Morgunblaðið - 15.04.1969, Síða 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. APRÍL 1960
arnar á Lucy. Mér skildist Bob
ekki hafa varað vin sinn við því,
að Lucy var farlama. Og mig
greip einhver meðaumkun, eins
og svo oft, þegar líkt var á-
statt.
— Það er fallega boðið af þér,
en ég held bara ekki, að ég
hefði neitt að gera á hestbak,
sagði hún.
Nú kom að gesti okkar að
roðna og ég sá strax, hver á-
stæðan var. Hingað til hafði
hann ekki tekið eftir því, að
Lucy var alltaf með staf með
sér, og að hún hafði ekki hreift
sig úr legubekknum.
— Það eru kappreiðar hérna í
nágrenninu á laugardaginn kem-
ur, sagði Kay. — Fer þú á svo-
leiðis kappreiðar?
— Það geri ég auðvitað ef
tækifaeri býðst, sagði hann. —
Og ef þú átt við þessar við
Tenterden á laugardaginn, þá tek
ég einmitt þátt í þeim sjálfur.
— Virkilega? En skemmtilegt.
Hún sneri sér að mér. — Getum
við ekki farið, Melissa? Það
gæti verið gaman. Og það er
orðið langt síðan við höfum far-
ið á kappreiðar.
Ég tautaði eitthvað,' áherzlu-
laust, að það gætum við kanmski.
En ég óskaði þess bara, að Kay
hefði ekki verið að brydda upp
á svona bjánaskap. Að vera að
gefa í skyn, að það væri langt
siðan við höfðum verið á kapp-
reiðum, var ekki nema hlægilegt.
Ég mundi ekki, hvenær við höfð
um verið það síðast. Áreiðan-
lega ekki síðan við misstum for-
eldra okkar. Og meira að segja
meðan þau voru á lífi, fórum
við mjög sjaldan. Við höfðum
alls ekki efni á að fara á veð-
reiðar. Og því síður höfðum við
efni á því nú.
Rupert Briggs leit á Bob.
— Hversv.egna kemur þú ekki
20
Álstigar
fyrir háaloftið o.fl.
léttir - þægilegir
Falla saman og taka þá
aðeins 35 cm á kant.
Innréltingabúðin
Grensásvegi 3, sími 83430.
líka, Bob? Við skulum öll slá
okkur saman. Hanm sneri sér að
Mark, sem nú var kominn heim
úr skólanum, og var farinn að
háma í sig te og kökur. — Þú
ættir að koma líka, Mark.
Mark ljómaði allur.
— Það gæti svei mér verið
gaman.
Bob sagði: — Ég er hræddur
rafhlöður
fyrir
öll viötæki
Heildsala- smásala
VILBERG &
ÞORSTEIIMN
Laugavegi 72 sími 10259
0
Q
4)
0
0
0
0
0
0
0
0
0
0
0
0
0
0
0
8
0
0
0
0
0
0
o
0
0
0
Kaffi!
Ný tegund
0
0
0
0
0
0
0
0
Oss er það ánœgja að geta sífellt aukið fjölbreytni
kaffitegunda á markaðinum.
Nu bjóðum vér yður' nýja tegund er nefnist
f Santos blanda
Q Santos blandan er afbragðskaffiy
framleitt úr úrvalsbaunum
frá Santos í Brazilíu og Kolumbíu.
Santos kaffiblandan er ódýr úrvalsvara.
0.J0HHS0N & KAABEB HF
0
0
0
0
0
0
8
S0
10
§ 0
i 0
§ 0
0
0
0
0
0
0
0
0
0
0
0
0
0
0
0
0
0
0
0
0
COSPER,
— Það var heppilegt að þú skyldi ekki kaupa egg.
um, að þið getið ekki reiknað
með mér. Ég hef alltof mikið að
gera til þess, eins og er.
Það voru mér miki'l vonbrigði,
að hann skyldi skerast úr leik.
Ég hefði haft svo gaman af því,
ef hann hefði verið með í hópn
um, jafnvel þó að við hefðum
ekki efni á að veðja á hesta.
Ég sneri mér að honum: —.,
Er ekki hægt að fá þig til að
koma líka, Bob?
— Ég er hræddur um ekki,
Melissa. Ég hef svo mikið að
gera við uppskeruna, eins og er.
IÞessi rigning um daginn tafði
illilega fyrir okkur.
— Ég held ekki ég geti farið
heldur, sagði Lucy.
— Jú, víst geturðu það, Lucy.
Þú getur setið í bílnum, ef þú
vilt ekki ganga um.
Lucy setti upp löngunarfullt
bros.
— Ég held ég vi'lji heldur vera
heima.
Bob sendi henni vingjarnlegt
bros, sem hann átti ekki til nema
handa henni einni.
— Það er rétt, Lucy, sagði
hann. — Og svo getum við drukk
ið te saman.
7.
Þetta var daginn fyrir kapp-
reiðarnir. Við Kay og Mark ætl-
uðum með Rupert Briggs, sem
ætlaði að koma og taka okkur
með sér. Ég varð hissa á því,
hve mjög Kay hiakkaði til ferð
arinnar, því að annars var hún
alltaf með John um helgar. En
svo frétti ég að hann væri að
heiman einmitt urn þessa helgi.
Hún hafði ekkert minnzt frek-
ar á námskeiðið góða, og ég var
farin að vona, að hún hefði átt
að sig á því, hve óviðeigandi
það var að láta John fara að
kosta það.
Ég var í setustofunni að laga
til vaðmálspils, sem ég ætlaði að
vera í á kappreiðunum. Það var
þriggja ára gamalt, en Lucy
hafði fullvissað mig, eftir að
hafa séð mig í því, að það færi
mér ágætlega.
— Mér finnst treyjan of mitt-
ismjó, Lucy.
— Nei, það er hún ekki og nú
Kvenstúdentofélng íslnnds
Árshátíð Kvenstúdentafélags Islands verður haldin í Þjóðleik-
húskjallaranum þriðjudaginn 15. apríl og hefst með borðhaldi
kl. 19 30. Árgangur M.R. 1944 sér um skemmtiatriði.
STJÓRIMIN.
Hrúturinn, 21. marz — 19. apríl
Ef þín hefSi ekki notið við, hefði engin málamiðlun orðið.
Nautið, 20. apríl — 20. maí
Þótt einhver ætli að áfellast þig frekar, er það tilgangslaust.
Tvíburarnir, 21. maí — 20. júní
Það er aiveg eins gott að láta aðra um að bítast núna.
Krabbinn, 21. júní — 22. júlí
Þú skalt benda þeim á það, sem að verkinu standa, að þú sért
líka nokkurs virði.
Ljónið, 23. júlí — 22. ágúst
Það er ekki víst að það sé rétti tíminn til að gera sér glaðan dag.
Meyjan, 23. ágúst — 22. sept.
Ef einhverjir eru að höggva í þig, er þér óhætt að svara í sömu
mynt.
Vogin, 23. sept. — 22. okt.
Nú er mál að vakna og láta hendur standa fram úr ermum.
Sporðdrekinn, 23. okt. — 21. nóv.
Er nú ekki eitthvað, sem er meira aðkallandi en smáþras.
Bogmaðurinn, 22. nóv. — 21. des.
Vegur þinn vex og traust það, sem þú nýtur núorðið er þér mikill
sálarstyrkur.
Steingeitin, 22. des. — 19. jan.
Þér er alveg óhætt að vera rólegur, þótt aðrir hafi áhyggjur.
Vatnsberinn, 20. jan. — 18. febr.
Sá sem ekki vill, þegar hann tær, fær ekki þegar hann vtll.
Fiskarnir, 19. febr. — 20. marz
Þú heldur alltaf allt það versta um aðra, en hvernig væri nú að
líta i eigin barm til tilbreytingar.