Morgunblaðið - 27.04.1969, Side 14

Morgunblaðið - 27.04.1969, Side 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. APRÍL 1969 JÓN JÓHANNESSON, PRÓFESSOR: Aldur Grænlendingusögu MORGUNBLAÐIÐ hefur aflað sér leyfis til að birta ritgerð Jóns Jóhannessonar, Um aldur Grænlendinga- sögu, sem fyrst kom á prenti í Nordælu 1956. Síðustu daga hefur þessi ritgerð verið mjög umrædd, vegna boðaðrar bókar Halldórs Laxness um Vínlandskort- ið, en það telur hann byggt á upplýsingum, sem ekki hafi verið tiltækar fyrr en í þessari grein. Á ensku birtist grein þessi 1962. f IV. bindi íslenzkra forn- rita (1935) gaf Matthías I>órð arson út sögu þá, sem hann kallaði Grænlendinga sögu og hefur síðan gengið undir því nafni. Hún er hvorki til heil né á einum stað, en hefur verið sett saman úr þremur köflum í Ólafs sögu Tryggva- sonar hinni miklu í Flateyjar- bók (340., 342. og 427.-433. kap.). Kaflarnir verða hér kall aðir A, B og C til hægðar- auka. A (1. kap í útgáfu Matt híasar) er mestallur í öðrum hand.ritum Ólafs sögu hinnar miklu, og er sá hluiti runninn frá þættinum um fund Græn- lands og landnám þar í Land námsbók Sturlu hórðarsonar (d. 1284). Er því auðsýnt, að A getur ekki verið frumupp- haif sögunnar, og verður ekk- ert um það sagt með vissu, hvernig það hafi verið. Loka- greindn í A, þar sem taldir eru þeir menn, sem fóru út m-eð Eiríki hinuim rauða og námu la-nd á Grænlandi, ásamt B og C (2. og 3.—9. kap. í útgáfu Matthíasar) eru einungis í Flat leyj'arbók. í lokagrteininmi og fyrri hluta B hefur einnig ver- ið stuðzt við þáttinn um fund Grænlands og landnám þa-r í Landnámabók Sturiu eða sams kornar texta, en Landnámsbók Hauks Erlendssomar er þar frá brugði-n. Margar skýrtngar er unnt að gefa á þessu Dandnáma bókarefni, en líklegast er, að höfund-ur Flateyjarbókartextans hatfi hleypt því inm 3vm tengi- lið, um leið og hann felldi Græn iendinga sögu í Ól-afs sögu. Verð ur því ekkert ráðið um aldur Grænlendinga sögu af afstöðu bennar til Landnámabókar, og ekki sjást þess nein merki, að í Grænlendinga sögu hafi verið stuðzt við aðra-r ritheimildir. Grænlen-dinga saga og Eiríks saga rauða fjaila um Víniainds- ferðirnar, en greinir mjög á. Eiríks saga er rækilegri og sam siaiga ýmsuim öðrum h-eimildum, þar sem samanburði verður við komið, en Grænl-endinga saga er þar sér um sögu. Fyrir því hafa flestir dregið þá ályktun, að Grænl-endinga saga væri ó- trauistari og yngri en Eiríks saga jafnvel frá 14. öld. Sigurður Nordal hefur fyrstur manma bent á, hve haldlítil þau rök væru. Hann segir í Nordisk kult ur: „ErKÍ::,]ig gkal der om de to sagaer om Vinlandsrejserne, Eir. s. og Grænl.þ. (Grænlend- inag saga), bemærkes, at der ikke synes at være nogen sær- lige -grunde til að betragte den sidst-e som meget yngre (og mere upáli-delig) end den fþrste. Tværtim-od er disse to sagaer, der delvis behandler det samme æmne, sá uaf- hængige af hinand-en, at den naturligs-te forklaríng synes at være, at de er skrevet om- trent samticlig, men i hver sin landsdei. Eir. s. fþlger den op- fat-telse, ier kan fþres tilbage til Gunnlaugr Leifsson og ogsá er fulgt a-f Sn-orri i Heims- kringla, at det var Leifr Eiríksson (missionæren!), der havde æren af at opdage Vin- land, medens Grænl. þ. nævn- er den ellers ukendte Bjarni Herjólfsson i stedet, hvilket trods visse urimelige enkelt- heder godt kan være den ældre og mere ægte tradition.1) Engi-nn vafi getur leikið á, að Sigurður Nordal er hér á réttri braut og hefur hlaðið undir- sitöðu, sem skoðanir manna um aldur og heimildargildi Græn- lending-a sögu verða síðar reist- ar á. í>ó hygg ég, að taka hefði mátt skrefið lengra. Ég hygg, að Grænlendimga saga sé eldri en Eiríks saga og höfundur Eiríks sögu hafi þekkt hana, en vikið frá henni -sökum áhrifa frá ö'ðrum heimildum, eink-um Ólafs sögu Gunnlaugs mun-ks. Verður nú leitazt við að draga fram rök fyrir þess- ari skoðun. Að niðurlagi Grænlendinga sögu og Eiríks sögu eru raktar ættir frá Karlsefni og Guðríði til Brands biskups Sæmunds- sonar á Hólum (1163—-1201), Þorláks biskup.s Punólfssonar í Skálholti (1118—1133) og Bjarnar biskups Gilssona-r á Hólum (1147—1162). Ættar- tölur þeesar hafa Verið frá upp- ha-fi í báðum sögunum, svo sem sjá má af spádómum framar í þeim báðum um afkomendur Guðríðar. í Grænlendinga sögu er Þorsteinn Eiríksson, maður Guðríðar, látimn segja nýand- a'ður: ,,Mér er annt til þess at segja Guðríði forlög sín, tii þesg at hon kunni þá betr andláti mínu, því at ek em kominn til góðra hvíldas-taða. En þat er þér at segja, Guðríðr, at þú m-unt gipt vera íslenzkum manni, ok munu langar vera samfarar ykkrar, ok mart manna mun frá ykkr koma, þroskasamt, bjart ok ágætt, sætt ok ilmat vel.“2) í Eiriilss sþgu er hins vegar Þorbjörg spákona, sem köliuð var lítilvölva, Mti-n segja við Guðríði: „En þér, Guðríðr, sfcal ek launa í hön-d liðsinni þa-t, sem osis hefir af [þér] staðit, því at þín forlög eru mér nú öll glþggsæ. Þat muntu gjaforð fá hér á Grænlandi, er sæ-miligas-t er tiL Þó at þér verði þat eigi til langæðar, því at vegir þín- ir liggja út til íslan-ds, ok mun þar koma frá þér ættbogi bæði mikill og góðr, ok yfir þinum ættkvíslum mun skina bjartr geisli, enda far nú vel ok heil, dóttir mín. 3) í báðum sögunum erhér sýnilega á-tt við bi-skupana, sem frá Guðríð-i voru komnir. Spárnar, sem sýnil-ega eru skáldsikapur, geta e-kki verið eldri en ættartölurnar í lok sagnanna, og eru mestar líkur til, að spárnar séu eftir sögu- höfundana. En einkennilegt er, ef tveimur m-önnum hafa dott- ið í hug svo áþekkar spár um hina sömu konu, án þess að nokkurt samban-d hafi verið mill-i þeirra. Annar staður í Eiríks sögu varpar ljósi á það atriði. Þar er Þorsteinn Eiríks- son látinn ræða nýlátinn við Gu'ðríði, konu sína, og segir þar m.a.: „Hann sagði henni ok u-m sína hagi ok kvað he-nnar for- lög mikil mundu verða. En hann bað hana varas'k a-t gip-t- ask grænilenzkum rnanni."4) Búast hefði mátt við, a-ð höf- undur hefði hér skýrt nánara frá því, hver foriög Guðriðar yrðu, úr því að hann minnist á þau á annað borð, en hann gerir það ekki, af þvi að þáð hefði orðið en-durtekning á því, sem hann hafði sa-gt áður. En varla kem-ur n-ema ein skýring til igreina á því, að hann skuli þó minnast hér öðnu sinni á spá um forlög Guðríðar. Hann hef- ur annað hvort þek'kt Græn- lenidin-ga sögu eða samkynja sagnir og hef-ur hér varðveitt leifar, er á það minma. En hon- um hefur þótt fara betur á að láta spádóminn um forlög Gu’ð- ríðar koma fram fyrr á ævi hennar, og í því skyni hefur hann búið til söguna um Þor- bjöngu lítilvölvu. Nú verður snúið aftur að ættar tölun-um. Föðurna-fns Brands biskups er í hvoruigri sögunni getið, og er aftircektar vert, að hann er ekki á neinn hátt auðkenn-dur í Grænlend- inga sögu, en í báðum hand- ritum Eiríks sögu er hann kallaður „Brandr byskup inn fyrri“ og er greindur á þan-n hátt frá Brandi bisk-upi Jóns- syni á Hólum (1263—1264). Er því ljó-st, að Eiríks saga er yngri en 1264, enda felliur sú aldursákvörðun vel við það, að höfundur henmar hefur stu’ðzt við Lan-dnámabók Sturlu. Að vís'u hafa bæði sá, er þetta ri-t- ar, og sumir aðrir verið þeirr- ar skoðunar, að til haifi verið eldri Eiríks saga. En Sven B. F. Jansson hefur sýn-t fram á, að efni úr Lanidnámabók Sturlu hefur ekki verið fellt framan við Eirí'ks sögu á vél- rænan hátt, h-eldur hef-ur það verið hagnýtt á þann hátt, sem höfundi einum er ætlandi til.5) Er því senmi-legast, að þau auð- kenni, sem hafa vakið grun um eldri Eiríks sögu, séu sprottin af því, áð höfun-dur hafi stuðzt við ýmsar ritaðar heimildir. Á hinrn bóginn er eðlilegast að draga þá álykt-un af texta Grænlendinga sögu, að hún sé rituð fyrir 1263 og sé eldri en Eiríks saga. Brandutr þigkup Jónsson var einnig kom-inn frá Karlsefni og Guðríði, meira að segja á tvo vegu. Jón á Svmaflailli, faðir hanis var sorvur Sigmumd-ar Orms somar á Va-lþjófsstöðum, en móð ir Orrn-s var Þórný Gilisdóttir, systir Bjarmar bigkups. En móðir Brands biskups Jónssomar var HaLldóra Arnórsdóttir og Guð- rúnar Brandsdóttur biskups Sæ mundarsonar. Er þvi furðulegt, að höfundur Eiríks sögu skyldi ekki rekja ætt til hans, svo sem til hinna biskupamma, en eðli- legt um höfumd Grænliendiniga- sögu, sem hefur verið eldri en 1263. Þessa vangá er einiungis hægt að skýra á þann veg, að höfundur Eiríks sögu hiafi tek- ið ættartöliurnair úr eiruhverju riti án þess að átta sig á því til hlítar, hvers eðlis þær voru. og veita því athygli, að auka þurfti við fjórða biskupmum, sem kominin var frá Guðríði. Er senmiilegast, að það heimi-ldar- rit h-afi verið Grænliendiinigasaga úr því að ekki eru næg rök fyrir tilvist eldri Eiríks sögu. Hægt er að leiða nánari rök að aldri Grænlilendin-ga sögu eft- ir öðruim leiðum. 1 Eiriks sögu segir, að Leifur Ei-ríksson hafi farið til Noregs og verið með Óiafi koniungi Tryggvasyni u-m vetuirin-n. En um sumiarið eftir sen-di koniun-gur hamm til Græn- lamds að boða þar kristni. Þá fa-nn Leifur Víniand hið góða og bjargaði mönnum af skip- flaki og var síðan kallaður Lei'f ur hinn heppni.6) Samkynja frásagnir eru í Heim&kriniglu, 7) Kristni sögu,6) Ólafs sögu Trygigvasonar hinni miklu5) og landifræðiritgerð í AM. 194,8vo (frá 138710). Hafa sumir flaskað á að eigna þá ritgerð -alla Niku- lási ábóta á Þverá (d. 1159), em ihanm á vafallaust 'eikkiert í þeiim -hluta, þair 'seim Leifur er m-efnd- w.(i’i) Menm haifla lagt fullan trúmað á þessar frásagnir, sö'k- um þess a-ð þær stand-a svo víða. En í raiun-immi má að líkindum nekja þær til einmiar og sömiu hei'mildiar, Ólafs sögiu Tryggva soruar hinm-ar latn-esku eftir Guinmlaug munk Leifsson á Þing Jón Jóhannesson eyrum (d. 1219), eins og Sigurð ur Nord-al drepur á. Höfundur Grænlendinga sögu hetfu-r hvorki þdkkt sagnir um Noregsför Leifs né kri-stniboð á Græmlandi, og að h-ans sögn fanm Leifur ekki Vínla-nd fyrst- ur m'anina, h-eldur Bjami Herj- ólfsson. Hinis vegar fór Deiftiir síðan að leita þeirra landa, sem Bj-arn-i hafði séð, og fann þau. Á heimleið bjargaði hanm skip- brotsmönnum úr ske-ri og var síða-n kalliaður Leifur hinn heppni. Þessi frásögn Grænkmdiniga sögu er sýnil-ega óháð frásögn Guininliaiugs munks og frásögn allra þeirra rita, er homum fylgja. En hvernig má það vera, <að höfundur Grænlendinga sögu þekkti ekki frásögn, sem varð skjótt alfcunm og tekin trúanleg af helztu fræðimönnum? Ekki er 'hægt a-ð bera við fáfræði, því að þá væri óskiljanlegt, hve hanm þslkkir m-argar 11. og 12. aldiar persónur, sem eru eða virðast sanmisögul-egar.. Hin eima skýring, sem kemur til greima, er sú, að Grænlendinig-a saga sé allmikliu eldri en tailið heifur verið. Er eðllilegast að gera ráð fyrir, að hún sé -eldri en Ólafs saga Gunnlaugs, sem samin var um aldamótin 1200. Verður Grænllendinga saga eftir því m-eð elztu íslendinga sögum, rituð á dögum Brands biskups Sæmundarsonar. Það eykur líkur fyrir því, að frásögn Grænlendinga sögu sé gömul og sanmsöguleg, að sögn Gumnlaugs og skyldar sa-gnir um kristniboð Leifs á Græn- land-i a'ð hvötum Ólafs komungs eru tortryggilegar. í hinum elztu heimildum er þess hvergi gletið, að Óliafur koniungur haifi kristnað Grænlending-a, og eru þó talin þau lönd eða þjóðir, sem h-amm kristmaði. f Historia Norwegiæ segir, að hamin hiafi kristnað Hjaltlendim.ga, Orkn- eyimga, Færeyinga og fslend- inga, auk Norðmianma.12) f kvæðinu Noregskonium/gatali og í Catalogus reg-um Norvegiæ, 13) sem bæði eru runnirn frá kon- umigaævi Sæm-und-ar hins fróða, stendur, að Ólafur komiumigur hafi kristnað fimrn lömd, en þam eru -akki nefnd með nöfmum. f Ágripi er enm sú sögn, að hanm h-afi kristnað fimm lön-d: Nor- eg, ísiam-d, Hjiailt'land, Orkneyj ar og Færeyjar. 14) í öðrum fl-Okki eru hin Skyld-u kvæði, Ólaifs drápa Tryggvasonar sú, sem er mngiaga eigniuð Halil- freði vandræðaskáldi, og Rek- stefja Halliarsteims. í þeim er hermt, -að Ólafur konumgur hafi kristniað fimim lönd: Hjaltlamd, Eyjar (þje. Orkneyj-ar), Noreg Grænland og ÍSlamd. is) Höf- undair kvæðanna hafa auðsælaga þekkt þá sögm, að Óliafur kom- uingur hafi kristniað fimrn lönd en verið í v-afa uim, hv-er þau voru, og sett Græn.iand í stað Færeyja. Lo'ks er kveðið svo a-ð Framhald á bls. 23 X; V.X- X'- v-. yl'' ' . W&jA ... /* :: e • S. ' \ | ■ • -............................................................ iÍÍÉ s _.,-kv,w ......,

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.