Morgunblaðið - 27.04.1969, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. APRÍL 1969
19
SKÁKÞÁTTUR
í UMSJÓN SVEINS KRISTINSSONAR
Bakkus við stýrið
EINS og mönnum er kunn-
ugt — einstaka af eigin reynzlu
— þá er ekki heppilegt fyrir þá
sem neyta áfengis að ráði, að
taka þátt í sterkum kappteflum.
Að mininsta kosti má heita von-
laust að tefla alvarlega skák
beint undir áhrifum áfengis. Þótt
mörgum finnist áfengi skerpa
hugsunina í bili, og því megi
vera, að menn slampist sæmilega
út úr byrjuninni, þá sviptir á-
fengið menn þeirri þolinmæði,
rósemi og innra jafnvægi, sem
mest reynir á eftir því sem á
taflið líður. — Stórbrotin andleg
afrek verða ekki unnin undir á-
hrifum áfengis.
Mikið er að vonum rætt um
heimsmeistaraeinvígi það, sem
nú fer fram í Moskvu. Ekki er
að efa, að þeir Petrosjan og
Spassky mæta ódrukknir til
hverrar einvígisskákar, svo mjög
sem þeir hafa lagt sig fram um
að vera baéði líkamlega og and-
lega vel út búnir til keppninn-
ar. Og í flestum heismeistara-
meinvígjum, frá upphafi, mun sú
hafa verið reglan, að Bakkus
kóngur hafi engan þátt tekið í
vopnaviðskiptum.
En sagt er, að engin regla sé
án undantekninga. Þannig var
þeim, sem til þekktu, engin laun
ung á því, að hinn landflótta
rússneski heimsmeisiarinin Alex-
ander Aljechin (1892—1946), tap
aði heimsmeistaratittinum í hend
ur Hollendingsins Max Euwe,
1935, mestmegnis fyrir ofneizlu
áfengis. Langvarandi vinneyzla
mun hafa verið tekin að grafa
umdan skákstyrkleika hans, all-
löngu áður en einvígið var háð,
en úrslitum hefur þó ef'.aust ráð-
ið, að þegar líða tók á einvígið
og Aljechin taldi sér sigur vís-
an — hann hlaut sex vinninga af
fyrstu níu skákunum — þá tók
hann að slappa af og keyfa
sterka drykki og tefldi jafnvel
suimar skákirnar bein.t uindir á-
hrifum áfengis. Gekk þetta svo
langt, að talið er, að Euwe hafi
um skeið íhugað það úrræði að
hætta þátttöku í einvíginu, frem-
ur en reyna að ná titlinum af
hinium ö'lkæra heimsmeistara.
Danski skákmeistarinn, Jens
Enevoldsen, ryfjar þetta upp í
nýlega útkominni skákbók, sem
hann nefnir „Verdens Bedste
Skak“, og er bæði fróðleg og
skemmtilega skrifuð. Fjallar hún
einkum um síðustu tvö hundruð
ár skáksögurinar — frá síðara
hluta átjándu aldar og fram á
vora daga.
Enevoldsen greinir þarna með
al annars frá því, hvernig kona
Aljechins reyndi eitt sinn að fá
einvígisskák við Euwe frestað,
þar ti’l næsta dag, og bar því
við, að maður sinn hefði móðg-
azt vegna nokkurrar seinkunn-
ar, sem varð á því, að skákin
gæti hafizt. Hin raunverulega or
sök var þó sú, að Aljechin var
sætkenndur og ekki bardagahæf
ur.
Þegar stjórnendur einvígisins
tilkynnbu frúnini, að þeir vildu
fremur ræða málið við mamn
hennar, mætti hann og féllst á að
tefla skákina, en lagði jafnhliða
fram „siðferðileg mótmæli“
(„moralsk protest"), eins og
hann orðaði það. Skákstjórarnir
voiru hins vegar ekki ánægðir
með þann fyr rvara og buðu Al-
jechin upp á læknisrarnsókn. —
Aljechin afþakkaði boðið, og
keppendur hófu skákina. Euwe
vann þar auðveldan sigur.
Eins og getið var, hlaut Alje-
chin 6 vinninga af 9 fyrstu skák
unum, en svo var ákveðið í regl-
um einvígisins, að því væri lok-
ið, er áskorandinn hefði hlotið
15% vinning eða heimsmeistarinn
15. (Sambærileg regla og gildir
í einvígi Petrosjans og Spassk-
ys, nema þar eru tölurnar 12%
og 12). Eftir byrjuninni að dæma
Aljechin
voru því allar líkur til að ein-
vígið yrði ekki lengra en sem
svaraði til tuttugu og fjögurra
skáka, en það er hámarkstala í
núverandi heimsmeistaraeinvígj -
um. En nú urðu örlagarík þátta-
skipti í einvíginu, því að fjórtán
| skákum tefldum voru keppendur
jafnir að vinningum. — Euwe
| hafði þannig hlotið fjóra vinn-
! inga út úr fimm skákum í röð!
| —- Mun Aljechin aldrei, fyrr né
síðar, hafa hlotið slika útreið.
Það er varla hægt að lá mönn-
um, þótt þeim dytti í hug, að
heimsmeistarinn kynni að vera
læknisþurfi.
Aljechin náði sér þó nokkuð á
strik aftur og hafði tvær skák-
ir yfir að nítján tefldum, vant-
aði aðeins 4% vinning til að halda
titlinum. Euwe þurfti hins veg-
ar að ná 7 vinningum til að
hann. Reiknað í vinningum sýnd
ist Aljechin þannig aftur með
pálmann í höndunum. Mun honu
I því hafa þótt hlýða að gera sér
virkilega glaðan dag, en gallinn
1 var sá, að Bakkus reyndist hon-
| um ekki hollur ráðgjafi við skák
borðið. Tapaði hann næstu tveim
ur skákum, og voru þá keppend-
uir aftur jafnir (með 10% hvor).
! Næstu þrjár skákir urðu jafn-
| tefli, en þá vann Euwe aftur
tvær í röð. Þar með var í raun-
inni útséð um úrslit einvígisins,
og ltokin urðu þau, að Euwe
hiaut 15% vinning gegn 14%.
Þótt fæstir muni þeirrar skoð
unar, að Euwe hefði nokkru sinni
unnið heimsmeistaraeinvígi gegn
AljeChin, hafði sá síðarnefndi
stundað reglubundið líferni, með
an á einvíginu stóð, þá er á-
stæðulaust að gera of lítið úr
sigri Euwes. Hann var sjálfur al
gjör bindindismaður, og er því
vafasamt, að óregla Aljechins
hafi að öllu leyti verið ávinn-
I ingur fyrir Euwe. Sjálfsagt hef-
ur hún einnig farið nokkuð í
I taugarnar á honum.
Auk þess var Euwe á þessum
árum mjög sterkur skákmaður,
hraustbyggðuir likamlega og
harðskeyttur keppnismaður. En
hann var enginn jafnoki Alje-
hcins í eðlilegu ástandi, enda
tapaði hann titlinum aftur í
hendur honum tveimur árum síð-
ar.
Aljechin hafði þá ekki bragðað
áfengi né tóbak í tvö ár, hvað
sem það hefur nú átt að merkja.
Hér fer á eftir 14. skák ofan
nefnds einvígis. Hún lýsir betur
en nokkur orð áhrifum þeirra
óheppilegu lyfja, sem Aljechin
notaði sér til hressingar í keppn
inni.
Hvítt : Euwe
Svart : Aljechin
Grúnfe'ldsvörn
1. d4, Rf6 2. c4, g6 3. Rc3, d5
4. Bf4, Rh5 (Það er ekki tíma-
bært að eyða leik í þessi manna
kaup. Betra er 4—Bg7 og síð-
an 0—0) 5. Be5, f6. 6. Bg3, Rxg3
7. hxg3, c6 8. e3, Bg7 9. Bd3
(Gallarnir við byrjunarkerfi Al-
jechins eru augljósir. Opnun h-
línunnar og leikurinn f6 hafa
veikt mjög vinstra fylkingar-
arm hans. Euwe hótar nú þeg-
ar 10. Hxh7. 9— f5 virðist nú
bezti leikur svarts) 9—0—0
(Svona geta annars flokks menn
stundum leyft sér að tefla, en
ekki heimsmeistarar. Hinum
mikla sóknar- og fórnamanni, Al-
jechin, virðist hafa sézt yfir ein
falda leikfléttu andstæðingsins.)
10. Hxh7! (Að sjálfsögðu. 10—
Kxh7 strandar n, á 11. Dh5 ? og
síðgn Bxg6) 10—f5 11. Hhl, e5
(Ekki er nú glæsilegt fyrir svart
an að „opna“ taflið svo mjög,
með alla menn sína á drottning-
ararmi á upphafsreitum sínum.
En Aljechin á svo sem ekki
margra góðra kosta völ, eftir
hina misheppnuðu byrjun) 12.
dxe5, Bxe5 13. RF3, Bxc3 ?
(Þennan biskup má hann auðvit
að ekki missa úr vörninni, en eft
ir 13—Bg7 14. cxd5, cxd5 15. Db3
þá liggur peðið á d5 undir ó-
bærilegum þrýstingi) 14. Bxc3,
Df6 15. cxd5, Dxc3 ? 16. Kfl,
Df6 17. Ha-cl, (Aljechin hefur
greinilega bæði stragetiskt og
materíalskt tapað tafl. Næsti
leikur, sem hann velur, hefði átt
að leiða til skjótra úrsldta. 17—
Rd7 veitti kannski helzt nokk-
urt viðnám í bili, þótt ekki sé
leikurinn fallegur) 17—cxd5 18.
Hc7, Rd7 19. Bb5, Dd6 20. Hc4?
(Maður gæti freiztast til að
halda að bindindismaðurinn
væri kominn í kippinn líka. Hér
gat hann unnið á einfaldan hátt
með 20. Dd4, Dxc7 21. Hh8?,
Kf7 22. Rg5, ? Ke7 23. Hh7 ?,
Ke8 24. Dxd5 og svartur er
varnarlaius) 20— RF6 21. Hc-
h4, Dc5 22. Ba4, Dc3 23. Rg5,
Kg7 24. Rh7, Hd8 25. Rxf6, Kxf6
26. Hh7, Be6 27. Hhl— h6, (Nú
hótar Euwe 28. Hxg6 ? , Kxg6
29. Dh5 ? Kf6 30 f4 og svartur
fær ekki forðast mát. Einnig
gæti hvítur unnið drottninguna
með skákum á h6 og g7 í 30. og
31. 'leik) 27— Bf7 28. Kgl, Hg8
29. g4, Hg7 30. gxf5, Hxh7 31.
Hxh7, gxf5 32. Bb3, De5 33. Df3
(Vegna hinnar veiku peðastöðu
sinnar og veiku kóngsstöðu, er
svartur auðvitað glataður, er til
lengdar lætur) 33— Hc8 (Flýtir
fyrir eigin ósigri. 33— Dal ? 34.
Kh2, De5 ? 35. g3 osfrv. hefði
lengt nokkuð skákina.) 34. g4.
(Nú strandar 34— Hg8 á 35.
Hxf7 ? Kxf7 36. Dxd5 ? og vinn
ur) 34—Bg6 35. Hxb7, Dal ? 36.
Kg2, Hh8 37. g5 ? , Kxg5 38.
Df4 ? , Kf6 39. Dd6 ? , Kg5 40.
f4 ? , Kh5 41. De7 og nú gafst
Aljechin upp. Sjaldan hefutr
he msmeistari teflt mikilvæga
skák jafn herfilega illa og Aljech-
in tefldi byrjun þessarar skákar.
En þá ber þess að gæta, að áð-
urnefndur ráðgjafi hans mun
hafa haft miður hol'l áhrif á tafl-
meninskuna.
Spassky : Petrosjan
Þegar þetta er ritað, að fimm
skákum tefldum í heimsmeistara-
einvíginu, hefur Spassky tekið
forustuna, með einn vinning yf-
ir. Eftir skellinn í fyrstu um-
ferð og síðan tvö heldur litlítil
jafntefli, vann hann bæði fjórðu
og fimmtu skákina. Þær skákir
hefi ég ekki séð og get því ekki
; dæmt um, á hve sannfærandi
hátt þær eru unnar, en óneitan-
lega hefur nú hagur Spasskys
vænkazt allmikið. Hann er nú að
því 'leyti í sömu aðstöðu og Petro
sjan í byrjun einvígisins, að
honum nægir, að fá jafnt út úr
þeim nítján skákum, sem eftir
eru til að verða heimsmeistari.
Petrosjan þarf hins vegar að
sækja 10 vinninga í hendur
Spasskys, til að halda titlinum.
Mér finnst horfur því nokkuð
ískyggilegar fyrir heimsmeistar-
ann. Það er sálráent áfall að
glata svo fljótt fengnum ávinn-
ingi. Petrosjan er fyrst og fremst
öflugur varnarmaður, en nú
verður hann að fara að sækja á.
Á móti meistara eins og Spassky
getur vel svo farið, að það verði
honum ofraun.
Hér kemur að lokum þriðja
skák einvígisins:
Hvítt ! Spassky
Svart : Petrosjan
Sikileyjarvörn
1. e4, c5 2. Rf3, Rc6 3. d4. cxd4
R4. Rxd4, g6 5. c4, Rf6. 6. Rc3,
R.3D4 7. D.3D4, D6 8. Be3, Bg7
9. f3, 0—0 10. Dd2, Be6 11. Hcl,
Da5 12. Be2, Hf-c8 13. b3 a6 14.
Rd5, Dxd2 ? 15. Kxd2, Rxd5
16. cxd5, Bd7 17. Hxc8 ? , Hxc8
18. Hcl, Hxcl 19. Kxcl, Kf8 20.
Kc2, e6 21. a4, exd5 22. exd5,
| Ke7 23. Bd3, Be5 24. g3, Ke8 25.
j Kd2, Ke7 26. Bb6, Be8 27. f4,
' Bg7 28. g4, Bd7 29. h3, H5 30.
Be2, hxg4 31. Hxg4, Bb2 32. Ke3,
Bc3 35. f5, Gxf5 36. Bxf5, xf5
37. gxf5, Kd7 38. Ke4, el 39.
Kd3, Kc8 40. Kc4, Bd2 41. b4,
Bel 42. b5, Bd2 43. Bd4.
Flugfar strax -
far greitt síðar
Loftleiðir bjóða íslenzkum viðskiptavinum sínum þriggja
til tólf mánaða greiðslufrest á allt að helmingi þeirra gjalda,
sem greidd eru fyrir flugför á áætlunarflugleióum félagsins.
Skrifstofur Loftleiða í Reykjavík, ferðaskrifstofurnar og um-
boðsmenn félagsins úti á landi veita allar nánari upplýsing-
ar um þessi kostakjör.
Sívaxandi fjöldi farþega staðfestir, að það sé engu síður
vegna frábærrar fyrirgreiðslu en hagstæðra fargjalda, að
þeir ferðist með Loftleiðum.
kaFTmnm