Morgunblaðið - 25.04.1970, Qupperneq 17

Morgunblaðið - 25.04.1970, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 2ö. APRÍL 1970 17 Afmælissýning Þjóðleikhussins Guðfræðinemar máluðu nýja húsið Baldvin Halldórsson, sem Mörður Valgarðsson og Rúrik Har- aldsson sem S karphéðinn. >J ÓÐLEIKHÚ SIÐ frumsýndi sjónleikinn Mörð Valgarðsson, eftir Jóhann Sigurjónsson sl. finuntudagsikvöld fyrir fullu húsi og við mjög góðar undirtektir. Áöur en sýningin hófst flutti Guðlaugur RósinJkranz, þjóðleik- hússtjóri, ávarp í tilefni af 20 ára afmseli leikhússins og Tóm- as Guðmundsson flutti nýtt, frumsaimið ljóð. Að lokinni sýningu tóku til máls Vilhjálmur Þ. Gíslason, for maður Þjóðleikhússráðs, Brynj- ólfur Jólhannesson, sem flutti kveðju Félags íslenzkra leiikara og Sveinn Einarsson, leikhús- stjóri, sem talaði fyrir hönd Leik félags Reýkjaví'kur, en þjóðieik hússtjóri þakkaði. FJÓRIR HLUTU VERÐLAUN FJÓRIR leikarar hlutu að þessu sinni verðlaun úr Menningarsjóði Þjóðleikhússins, en verðlaunun- uim var úthlutað að lokinni sýn- ingu á Merði Valgarðssyni. Verð launaafhendingin fór fram í hófi í Þ j óðle ik'h ú s sk j all a ranum þar sem Þjóðleikhúsið hafði boðið ölluim starfsmönnum sínum. Þeir, sem hlutu verðlaunin að þessu sinni, voru: Anna Guð- mundsdóttir, Árni Tryggvason, Lárus Ingólfsson og Þórhallur Sigurðsson. Menningarsjóðurinn var stofnaður fyrir 20 árum á vígsludegi Þjóðleikhússkis af Guðlaugi Rósinkranz, þjóðleik- hús3tjóra, og hafa nú 16 lista- menn hlotið verðlaun úr sjóðn- um. Upphaeðin, sem úthlutað var að þessu sinni var kr. 140.000,00. Það skal tekið fram að Þórhall- ur Sigurðsson, er enn nemandi í Leiklistarskóia Þjóðleikhússins, og var tekið frana við afhendingu verðlaunanná, að hann ætti að verja þeim til náms í leikstjórn. KVEÐJUR OG GJAFIR MARGAR ræður voru fluttar í hófinu. Valur Gíslason talaði af hálfu leikara og Þorlákur Þórðarson talaði fyrir hóp senu- og tæknimanna leikhússins og afhenti Þjóðleikhúsinu að gjöf veglega styttu gerða af Jóni Benediktssyni, myndhöggvara, en hann er starfsmaður leikhúss ins. Þá talaði menntamálaráðherra, en þjóðleikhússtjóri þákkaði ræðumönnum. Margar góðar gjaf ir og fagrar blómakörfur bárust til leikhússins í tilefni af 20 ára afmælinu. Leikfélag Reykjavíkur gaf myndir af þremur fyrstu leik stjórum Þjóðlei'khússins, þeirn Indriða Waage, Haraldi Björns- syni og Lárusi Pálssyni. Ennfrem ur bárust mörg heillaskeyti. EINS OG kunnugt er hefur Krist ján Friðbergsson ásarnt konu sinini Hönnu Hadldórsdóttur, rek- ið beimi'li fyrir umkomulaus böm að Kumbairavogi á Stokkseyri. — Þar eiga nú heima. 16 börn. Undanfarin tvö ár hefur Krist- ján unnið að því í frístundum sín um að byggja nýtt hús á lóð KumbairavogiS og er nú lanigt kom ið með byggingu þessa húss með aðstoð góðra mawna og kvenna víðsvegair um landið. Áformað er að reyna að taka 20 ÁRA AFMÆLISRIT í TILEFNI af 20 ára afmæli Þjóðleikhússins hefur verið gef- ið út mjög vandað rit um starf- serni Þjóðleikhússins sl. 10 ár, en fyrir 10 árum kom út' annað rit í líku sniði og var þar skýrsla um störf leikhússins fyrstu tíu árin. Tuttugu ára ritið er um 100 blaðsíður að stærð og er bókin prýdd myndurn úr flestum leik- sýningum Þjóðleikhússins sl. 10 ár. Ritstjóri er Oddur Björns- son rithöfundur. í ritinu eru ávörp eftir mennta málaráðherra, þjóðleikhússtjóra og Vilhjálm Þ. Gíslason, for- mann Þjóðleikhússráðs. Tuttugu ára ritið er mjög vandað að öll um frágangi og eru myndir flest ar eftir Óla Pál, ljósmyndara leikhússins. Ritið verður til sölu í Þjóðleik- húsinu og í helztu bókaverzlun um borgarinnar og kostar kr. 200,00. nýja heimilið í notkun í júní eða júli n.k. og verður þar húsinæði fyrir 12 börn. Fenigin hafa verið hjón til að veita nýja heimiliniu forstöðu. Að undamförnu hefur verið iaigt mikið kapp á að ljúka við húsið og í gær fenigu húsráðendur í Kumbara'vogi óvænta heimsókn, en þá komu þair guðfræðinemar úr Háskóla íslands með prófessor Björn Björnsson í fararbroddi og tóku þeir sig til og máluðu húsið að innam. EFTIR MATTHÍAS JOHANNESSEN Mikil lifandis ósköp getur fólk verið auðmjúkt og lítillátt. Ég er far- inn að halda að það sé rangt, sem forfeður okkar fullyrtu: að við sé- um öll af konungakyni. Hvað þá að áar okkar hafi hlaupið hingað af eintómu stolti. Skattamálin eru áreiðanlega nærtækari skýring. Samt þekki ég stöku manneskju, sem enn er þó nokkuð stolt og lítur stórt á sig. Ég veit að vísu ekki hvers vegna, en til þess hlýtur að liggja einhver ástæða. Ég hitti til að mynda mann sem setur svip á borg- ina. Hann vatt sér að mér og sagðist ekki kunna við að slá mig um minna en 50-0 krónur. Það var gott hjá honum. „Að sýná þér ekki ókurteisi, þú átt allt ann- að ílkilið af mér,“ eáms og hanm saglði. Svo kvaddi hamm mig kurteislega og hneigði sig til áréttingar því, að honum væru mannasiðir í blóð bornir. „Ég er að hugsa um að fá mér einn Thule,“ sagði hann, „það heldur mér við fram á hádegi.“ Ég sá á eftir honum, þar sem hann gekk stoltur inn í ysinn — með snöruna um hálsinn. Gekk inn í fögnuð dagsins með 2,9% af vínanda í annars gömlu, útþynntu blóði. Ólíkur öllum öðrum. Eigandi síns stolta persónuleika. Langt frá því að vera eins og allir aðrir. Þannig hefur hann ávallt litið á sig. Raunar með eindæmum hvað persónuleikinn hefur enzt honum, eins og hann hefur þvælt honum út í lífsbaráttunni. Hann er ekki einu- sinni kalinn á hjarta, eins og Grímur gamli, hvað þá að hann hafi slitið tilfiinmdmigiuim síiniuim edmis oig gaimialli flík, eða dottið í hug að lítilsvirða heiminn til að hafa vald á honum, eins og einhvers staðar er kennt. Eða — að hann hafi sótzt eftir valdi! Nei, ekki hann! Að minnsta kosti ekki öðru valdi en því, sem veitir honum frelsi til að fara í hundana. „Það er rakt í þessu kofaræksni, sem þú býrð í — og þröngt,“ sagði ég einhverju sinni við hann. Hann horfði undrandi á mig. Ekki laust við að dálítilli meðaumkvun brygði fyrir í augunum, eða hann vildi segja: Og þú líka, bróðir minn Brútus! En hann sagði það ekki. Hann er riddari í umgengni við ann- að fólk. Hann sagði aðeins: „Rakara og þrengra verður það í gröfinni.“ — ★ — Eg hef verið að hugsa um kynni mín af þessum manni, frá því ég las í Alþýðublaðinu um daginn „fram- bjóðiandasaimtal" við einn af þess- um fríðu „fulltrúum kvenþjóðarinn- ar,“ sem í boði er til borgarstjórnar. Ég átti ekki krónu að lestri loknum. Að því er virtist á frúin sérstakt erindi í borgarstjórn vegna þess, að hún lítur á sig, sem „venjulega manneskju." Ég efast ekki um að þetta sé rétt hjá henni. Flest erum við „venjulegar manneskjur,“ án þess okkur hafi þótt sérstök ástæða til að flíka því. Hvað þá að pota okkur í borgarstjóm á svo almenn- um hæfileikum. Fólk verður að hafa eitthvað óvenjulegt til brunns að bera: Ég er alltaf Vesitimiaininiaeyiing- ur í húð ag hár, sagfðd nýja fegurð- ardrottwimigiin. Nöklkiuð gotit hjá henini. Svomia á að heyja sjálfstæ’ðds- baráttu siínn: haldia í það óvemjulegia. — ★ — Ósköp er allt þetta meðal- mennskustref og eftirsókn eftir vindi að verða hvimleitt. Nú er því meira að segja haldið fram í fúlustu alvöru og notað sem áróðursbeita að kona sé „venjuleg manneskja“ fyrir það eitt, að hún fer öðruvísi að en flestir, ef ekki allir, mundu hafa gert. Hitt væri sök sér, ef frúin hefði lýst yfir því, að hún væri „óvenjulega venjuleg manneskja“ — og þess vegna ætti hún, öðrum frem- ur, að fara í borgarstjórn. Þaðmundi kunningja mínum, sem ég gat um áðan, hafa líkað. Hann vill að allt sé kallað réttum nöfnum: annað hvort er krónan króna eða ekki. Hún getur ekki verið fimmeyringur, þó að verðgildi hennar geti auðvitað minnkað. En svona er að koma „allt í einu fram á svið stjómmálanna,“ og tak- ast meira að segja „að verða tölu- vert umdeild kona,“ eins og blaðið hans Eggerts segir. Ég veit ekki bet- ur en reynslan hafi sýnt okkur, bæði fyrr og nú, að ekki þarf mikið til að verða „umdeild kona.“ Hitt er svo annað mál, og ekki nema sjálfsagt að viðurkenna, að hún virðist vera hin gjörvilegasta kona af fjölskyldu myndum að dæma og dómgreind hennar í góðu meðallagi, þótt hún sé fulltrúi eins af minnihlutaflokkun- um, því að hún lýsir því yfir „að borginni hafi verið mjög vel stjórn- að.“ Ekki vel — heldur mjög vel. Að vísu þarf ekki mikla athyglis- gáfu eða sérstaka hæfileika til að sjá það, sem öllum ætti að vera ljóst, sem horfa ekki á borgina gegnum pólitíska skráargatið. „Betur sjá augu en auga,“ segir frúin réttilega, enda er þetta hið athyglisverðasta samtal. Og hefur þann óvenjulega kost, að það er í stíl við tilefnið: af- skaplega venjulegt. — ★ — Mikið verka annars þessi snögg- soðnu samtöl við fólk misjafnlega á mann. Frambjóðendasamtöl eru að verða sérstök bókmenntagrein á ís- landi og líklega er átt við þau, þegar talað er um kerlingabækur um fram- liðna. Og þó eru undantekningar til að sanna regluna. Um daginn las ég einkar eðlilegt og til allrar guðs- lukku talsvert óvenjulegt samtal við kennara í Hagaskólanum, Jón Baldvin Hannibalsson. Það birtist í skólablaði nemendanna og ber báð- um jafngott vitni, krökkunum og kennaranum — og þá ekki sízt hin- um unga rithöfundi sem samtalið skrifar. Hann verður einhvern tíma góður. Kennarinn er spurður, hvem ig honum lítist á æskuna, sem eigi að erfa landið. Hann svarar að sér lítist vel á landið, sem æskan á að erfa. Skemmtileg hreinskilni við krakkana. Kennarinn segist vera einmana og hann eigi „samleið með mörgum, en félagsskap við fáa.“ Einkar persónulegt frávik frá taum- lausri félagshyggju nútímans. Og vanalyfjum eins og sósíalisma. Múgsefjunin sem gengur undir nafni sósíalismans gerir alla eins. Hún virðist einkar handhæg fyrir nokkuð kotroskna, en að því er virð- ist, lítt þroskaða menn um tvítugt, sem ættu að hafa upplifað Tékkó- slóvakíu, þótt ekki muni þeir Berlín og Ungverjaland. Þar veit fólkið af eigin raun, hvað rauður fáni og „sósíölsk bylting" hefur í för með sér. Sumir héldu að kínalífs- elexír væri við ölluim kvillum. Og enn er gripið til hans, því að enn er til fólk sem tekur inn sósíalisma við allri sinni gigtisýki og heimatil- búnu kvillum. En slíkir sjúkdómar eru á læknamáli kallaðir móðursýki. Þeir eru víst ekki betri en sumir al- vörusjúkdómar. En slæmt er að þurfa að horfa upp á það, að 19. ald- ar vígorð um „sásiíalsikar byltingar" skuli í alvöru vara helzta hugsjóna- mál umgra manna. Sumt fólk fæði'st inm í vitlausa öld. Glatar persónu- leikanum, ærist á krosisgötum. Og hefur ekki upp á neitt anmiað að bjóða — en gaimlar kieiniur með kaff- iniu. í lok samtalsáinis seigisrt Jón Baldvin hafa það áhugamál helzt, „að yrkja eitt ljóð sem lifir áður en ég dey.“ Það getur orðið þrautin þyngri, Jón minn Hannibalsson. Ég þykist hafa nokkra reynslu fyrir því! í fyrra birtist samtal í þessu sama skólablaði við annan kennara, Hall- dór Bjarnason. Ég hef síðan verið að velta því fyrir mér, hvað kenn- arar og nemendur geta verið gáfað- ir, ef þeir leggja saman. „Telur þú, að nemendur eigi að fá meiri ítök í skólunum?", er hamn sp'urður. Og hann svarar: „Já, svo framarlega sem þeir hafa þroska til þess. En ég tel þá ekki hafa nógu mikinn þroska til þess að geta ráðið sér meira en þeir gera“. Þarna eru einstaklingar á ferð, persónulegir og hreinskiftnir. Sem betur fer hefur unga fólkið engan áhuga á því, að allir séu steyptir í sama móti og séu „venjulegar mann- eskjur.“ Og sízt af öllu krefst það þess, að fólk missi persónuleikann daginn sem það fer í framboð. Það er enginn skortur á fólki í framboð. En það er að verða alvar- legur skortur á fólki — með mann- dóm og persónuleika. Nóg virðist af múgsálum sem til að mynda níða land sitt og þjóð í skjóli sænskra sorpblaða: undir heiðum himni nor- rænnar samvinnu. i

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.