Morgunblaðið - 25.07.1970, Blaðsíða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. JÚLÍ 1970
Ef þú dettur framaf pabbi, hvaða strætó fer ég með heim?
24
— Já, ég get ekið alveg ná-
kvaemlega sömu leið og þegar ég
skrifa skýrsluna mina, skal það
ekki skakka fimm mínútum á tím
amum.
— Það gæti verið ágætt. En
viltu, að ég sitji bara og stein-
þegi?
— Nei, þú getur kjaftað alveg
eins og þig langar til, svaraði
Sam. — Það ruglar ekkert fyrir
mér.
Þeir óku nú samt steinþegj-
andi um stund. Sam var grip-
inn. ' embættislegri hreykni að
geta ekið alveg nákvsemlega í
gömlu förin sín. Hann leit á úr-
ið sitt. — Verðurðu nokkurs vís
ari? spurði hann.
— Ég er að prófa, hve heitt
getur orðið hér að nseturlagi,
svaraði Tibbs.
— Það hélt ég nú, að þú viss-
ir.
— Touché! svaraði Tibbs.
— Hvað þýðir það orð eigin-
lega? spurði Sam.
— Það er skylmingamáil. Þeg-
ar andstæðinigurinn kemur á þig
lagi þá viðurkennir þú það með
því að segja „touché“. Bókstaf-
lega tekið þýðir það „snertur".
— Á hvaða málii?
— Frönsbu.
— Það er naumast þú ert
menntaður, Virgil, það máttu
eiga. Sam beygði fyrir horn og
leit á úrið sitt.
— Ég get nú samt ekki ekið
eiiras vel og þú, sagði Tibbs. —
Ég hef aldrei hitt mann, sem ek-
ur betur.
Sam varð hrifinn af þessu,
þrátt fyrir allt og allt. Hann
vissi, að þó haran kannski kynni
ekki neitt annað, þá kunni hann
að aika bíl á við hvern annan.
Og hann var feginn að ein-
hver annar skyldi taka eftir því.
Þrátt fyrir uppeldi sitt, var
hann farinn að kunna vel við
Tibbs sem persónu.
— Kannski þú vitir svarið
við einu, Virgil. Ég las einu
sirani sögu um mann, sem varð
ofsahræddur. Hann var á gangi
um nótt og var að búast við,
að einhver réðist á sig og hon-
um fannst hann geta þefað ótt-
ann í loftinu, ef þú skilur það.
Höfundurinn notaði eitthvert orð
yfir þetta — ég man það ekki
lengur, en það byrjaði á 1. Ég
man eftir, að ég sló því uppþá.
— Lofðu mér að hugsa mig
um. Gæti það verið loftsmitun?
sagði Tibbs.
— Einmitt, sagði Sam. — Þetta
hefur alltaf verið að brjótast í
mér. Þetta er sjaldgæft orð.
Hvemig stendur á því, að þú
skulir þekkja það?
— Ég rakst einmitt á það í
sögu, eins og þú. Og oftar en
einu sinrai. Þetta er bara tilvilj-
un, en það festist í mér.
— Ég vildi óska, að ég hefði
getað gengið meira í skóla, sagði
Sam og varð um leið steinhissa
á því, að hann skyldi vera svoraa
opinskár. — Ég gekk í gagn-
fræðaskóla um tíma, en svo
varð ég að fara að vinna á bíla-
verkstæði. Og þar vann ég um
tíma, þaragað til ég fékk þessa
atvinnu.
— Fórstu ekki í ríkislögreglu
skólann?
— Nei, það gerði ég ekki, enda
engir möguleikar á því. En
heyrðu. Það miranir mig á ann
að, sem ég vildi spyrja þig um.
Tibbs beið ofurlítið, en sagði
svo: — Já, spurðu bara.
— Það kemur nú kannski ekki
mér neitt við, en ég heyrði, að
þú sagðir eitthvað við Gillespie
í dag, sem mér fannst koma illa
við hann. Mig langar að vita,
hvað það var.
Virgil Tibbs starði út um
gluggann og athugaði gangstétt
ina, sern þeir voru að aka fram-
hjá. — Ég sagði honum, að Man-
toli hefði ekki verið myrtur á
staðnum þar sem hann fararast,
heldur hefði líkið verið flutt
þangað og skilið eftir. Það var
þess vegna, sem Gottschalk, eld
flaugafræðingurinra, er bersýni-
lega saklaus. Líkið hefur áreið-
anlega ekki verið þama þegar
hann ók þar um, heldur hlýtur
það að hafa verið flutt þangað
og svo liðu ekki meira en fimm
mínútur áður en þú fannst það.
— Hvernig í dauðanum veiztu
þetta allt, Virgil?
— Þú mundir líka vita það,
Sam, ef þú hefðir fengið að
rannsaka líkið.
Sam kipptist við, er hann var
þararaig þúaður — einmitt þegar
hann var að byrja að kuraraa vel
við svertingjann, sem sat hjá
honum. Það þýddi, að hann taldi
sig jafninga hans og það kunni
Sam ekki við. En hann ákvað
að láta það gott heita í bili. f
stað þess kom hann með spum-
ingu, sem ekki var nema eitt
orð:
— Hvernig?
— Ég sá það á lófum líksins.
— Byrjaðu heldur ofan frá,
sagði Sam, sem var enn móðgað-
ur. Hann reyndi að láta þetta
vera skipun, en þegar orðin
komu út voru þau samt miklu
mýkri en svo.
— Gott og vel, Sam, við skul-
um þá byrja á því, þegar Man-
toli var sleginn í höfuðið. Við
vitum, að það var banahögg, en
hitt vitum við ekki, hvort mað-
urinn dó samstundis, eða hvort
hanin var með eirahverri meðvit-
und, að minnsta kosti nokkrar
sekúndur eftir að hann var sleg
inn.
Sam beindi bílraum upp eftir
lágri brekku og leit á úrið sitt.
Hann var nákvæmlega á áætlun.
Og harara hlustaði vandlega.
— Ef nú maðurin dó strax
og haran var sleginn, eða varð
meðvitundarlaus samstundis,
hvað mundi þá gerast?
— Hanra mundi detta.
— Já, en hvernig mundi hann
detta? Þú verður að muna, að
nú er hann annaðhvort meðvit
undarlaus eða dauður:
Sam velti þessu fyrir sér sem
snöggvast. — Ég held hann
mundi detta eins og kartöflu-
sekkur. Hann leit til Tibbs, sem
sneri sér að honum til hálfs, en
hvíldi annan arminn á glugga-
umgerðirarai.
— Það er einmitt alveg rétt,
hnén mundu verða máttlaus, axl
irnar síga, höfuðið hníga fram á
við og hann mundi hníga niður
í hrúgu, er svo mætti segja.
Sam rankaði við sér, er hann
tók að athuga þetta nánar. —
Já en þarna var hann teygður
út í allar áttir. Hendurraar voru
teygðar upp yfir höfuð.
— Einmitt, samþykkti Tibbs.
Ég sá myndiimar af því, hvern-
ig haran lá þegar hanra fannst.
— Bíddu andartak, tók Sam
fram í. — Setjum svo, að hann
hafi haft meðvitund dálitla
stund eftir að hann var sleg-
iran. . .
— Já, haltu áfram, sagði
Tibbs.
— Þá mundi hann rétta frá
sér hendurnar til þess að verja
sig.
— Jæja, nú ertu farinn að
tala eiras og morðfræðingur, ýtti
Tibbs uradir hann.
— Og þannig fann ég hann.
— Stendur heima.
— Svo að kannski hefur hann
verið með meðvitund, eftir að
hann var sleginn?
Saim var svo fullur áhuga á
efninu, að baran gleymdi einni
beygju. Hann leit snöggt aftur
fyrir sig og tók krappa beygju
til þess að vinna upp tímann,
sem hann hafði tafizt um.
— Því býst ég ekki við, sagði
Tibbs.
Teiknari óskast
Óska eftir teíknara helzt vanan innréttingateiknun.
Tilboð sendist afgr. Mbl. merkf „Teiknari — 5463 með
upplýsingum um fyrri störf fyrir fimmtudagskvöld.
TEIKIMISTOFA
ÞORKELS G. GUÐMUNDSSOIMAR.
ÁLFASKEIÐ
Hin árlega Álfaskeiðsskemmtun verður haldin sunnudaginn
26. júll n.k. og hefst með guðsþjónustu kl. 14.00.
Séra Sveinbjörn Sveinbjörnsson prédikar.
D A G S K R A :
1. Ræða: Jón R. Hjálmarsson skólastjóri.
2. Söngur: Kristinn Hallsson óperusöngvari.
3. Eftirhermur o. fl. Ómar Ragnarsson.
4. Skólahljómsveit Kópavogs leikur.
Stjórnandi Bjöm Guðjónsson.
5. Skemmtiþáttur, leikararnir Gunnar Eyjólfsson
og Bessi Bjamason.
6. Fímleikaflokkur úr Armanni sýnir.
Lúðrasveit Selfoss undir stjóm Ásgeirs Sigurðs-
sonar leikur milli atriða.
MÁNAR leika að Flúðum laugardagskvöld 25. júli.
Hljómsveit ÞORSTEINS GUÐMUNDSSONAR sunnudagskvöld
26. júli.
Sætaferðir til Reykjavíkur að loknum dansleik að Flúðum
sunnudagskvöld.
UNGMENNAFÉLAG HRUNAMANNA.
&
JTMjGARMATINN
' mmmj)
SSKUR
BVÐUK
YÐUR
(iIJÓÐARST. GRÍSAKÓTELEITIIR
GRILLAÐA KJIJKLINGA
ROAST BEEF
GLÓÐARSTEIKT IAMB
IIAM BORGARA
DJÚPSTEIKTAN FISK
mðurlamhbmut 14
sími 38650
r
Hrúturinn, 21. marz — 19. apríl.
I»ér liggur svo mikið á, að þú sleppir fram af þér beizlinu og
gerir eintómar vitleysur.
Nautið, 20. apríi — 20. maí.
Þú verður að velja á milli, ef þú ætlar ekki að gera einhverja
skyssu.
Tvíburarnir, 21. maí — 20. júní.
Það er einhver streita ríkjandi miili starfs og heimiiis.
Krabbinn, 21. júní — 22. júli.
Þú finnur margar skoðanir ríkjandi í dag.
Ljónið, 23. júlí — 22. ágúst.
Þú ert dálítið opinn fyrir ails konar skakkaföllum i dag.
Meyjan, 23. ágúst — 22. september.
Þú ert ekki jafnfætis féiögum þínum um þessar mundir.
Vogin, 23. september — 22. október.
Ef þú ert ekki sammála, skaltu bíða dálítið með að segja álitt þitt.
Sporðdrekinn, 23. október — 21. nóvember.
Þú getur vel beðið um smágreiða, ef þú vilt.
Bogmaðurinn, 22. nóvember — 21. desember
Þú ferð að græða núna, enda tími til korninn.
Steingeitin, 22. desember — 19. janúar.
Vertu smekkvís, en gerðu ekki ráð fyrir neinu frá vimim «g
vandamönnum. Tímarnir eru að breytast þér í hag.
Vatnsberinn, 20. janúar — 18. febrúar.
Ástandið fer batnandi hjá þér, enda tími til kominn.
Fiskarnir, 19. febrúar — 20 marz.
Þetta ætti að vera ósköp venjulegur dagur fyrlr utan það, hvað
þú ert málugur. Það gæti orðið þér til skaða.