Morgunblaðið - 20.12.1970, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. DESEMBER 1970 3
Séra Árni Pálsson í Sööulshoiti:
Jólagjöfin
Aðeins nokkur orð til þess að óska
ykkur öllum til hamingju með jólin í
ár. Bezt er að vera stuttorður þvi nú
eru jólin svo nærri að varla hefur
nókkur lengur tima til lesturs. Hins
vegar kaupum við nú þessa dagana
meira iesefni en nokkru sinni áður. >að
tilheyrir jóiaundirbúningnum á iandi
hér.
Allir vilja þá hafa og veita, sem mest
af því sem gleði gefur og þá er bókin
sjáifsögð. Gott meðan svo er og þó enn-
þá betra ef bókaútgáfan og smekkur
fólksins er menningarlegur og mann-
bætandi.
Bókagjafir á jóium eru sjálfsagt sér-
íslenzkt fyrirbæri þótt alls staðar i
hinum kristna heimi tiðkist gjafir
á borð við okkar.
Heimur Krists hugsar eins á jól-
um. Þá vilja allir gefa til þess að geta
þegið. Ekkert tungutak eða þjóðemi er
okkur svo framandi að við skiljum ekki
slátt hjartnanna á þessum dögum.
Við eigum öll þá gjöf á jólum, sem
kom í heiminn og sú gjöf á að vekja
samvizkuna í brjóstum okkar. Hver ert
þú að þiggja án þess að gefa? Hver
ert þú að gefa án þess að vita hvað þú
hefur þegið?
Þetta er sá lærdómur sem gjafaflóðið
má ekki skyggja á.
„Lofið Guð, sem gaf,
þakkið hjálp og hlíf.
Tæmt er húmsins haf,
allt er ljós og llf.“
Svo segir Stefán frá Hvitadal i jóla-
sálminum góða.
Innan fárra daga fyllist allt ljósi og
lífi, nema þar . . . Hvar? Þar sem hug-
urinn þekkir ekki gjöf jólanna eða get-
ui ekki fyrirgefið þeim að þau skuli
ekki koma til sín. Þar ríkir neyðin.
Hún getur verið í næsta húsi eða fjær.
Nýlega var neyðin og er enn meðal
hundruð þúsunda í Austur-Pakistan.
Og hún er alls staðar þar sem styrjald-
arástand rikir. Þá er neyðin þar sem
ósátt ríkir innan fjölskyldu eða milli
vina.
Sárt er til þess að vita að kristnar
þjóðir skuli enn beita aðra harðýðgi en
sárara þó að kristnir menn skuli ekki
vitna til jólagjafar guðs einum rómi svo
slíkt skuli ekki geta átt sér stað.
Þótt gleði jólanna sé mikil þá skygg-
ir sorgin i heiminum alltaf á hana. Við
Islendingar eigum einnig okkar sorgir
á þessari hátíð. Mörg voveifleg slys
hafa hent landsmenn á þessari jóla-
föstu. Margir eiga um sárt að binda
vegna ástvinamissis. Þá eru hinir ótald-
ir, sem eru einhvers konar utangarðs-
menn fjölskyldunnar eða þjóðfélagsins
á hátiðinni. Gefum öilu þessu fólki rúm
í hjörtum okkar á jólum svo þau geti
orðið okkur ljós og lií tii hjálpar þeim
nú og síðar.
Jólahátiðin gerir okkur sælli og betri
en endranær. En hversu iengi varir
það? Endist sú hugsvölun okkur jólin
út? Jólin ná yfir þrettán daga svo tim-
inn er nægur. Er ekki einhver nú i
huga þinum, sem þú átt mikið að þakka
þroska þinn en hefur verið þér gleymd-
ur um mörg ár?
Þegar ég var barn í Reykjavik sent-
ist ég oft fyrir fólk á jólaföstu eftir að
skóla lauk. Það eru eftirminnilegustu
dagar bernskunnar vegna þeirra kræs-
inga, sem ég þáði að Jaunum fyrir að
vera sendiboði þeirra, sem ekki
gJeymdu.
Mörg næstu árin dreymdi mlg um það
að verða þjónn, þegar ég yrði fullvax-
inn maður vegna þess að ég hafði
þreifað á hamingju þiggjendanna. Nú
veit ég að þeir voru sælli sem gáfu og
sendu mig og einskis spurðu um við-
tökurnar, þegar ég kom til baka. Þess-
ar stundir bernskunnar væru mér ekki
heldur svo minnisstæðar, ef ég hefði
verið spurður þegar heim kom um við-
brögð þiggjendanna.
Þannig vinnur hinn sanni kærleikur,
sem jólin vekja upp í okkur, öðrum
tíma fremur. Hann spyr einskis en vill
aðeins gefa.
Þess vegna verða jólin aðeins þeim
sönn gjöf, sem engan má vita i skugga
og myrkri á dimmasta og kaldasta tíma
ársins, ef hann er nokkurs megnugur.
Megi hin komandi jól gefa okkur
þennan skilning, hvort sem við erum
glöð eða harmþrungin, svo okkur lær-
ist að „1 myrkrum ljómar Jífsins sól.
Þér Guð sé lof fyrir gleðileg jól.
Hellelúja."
Útvarpið 40 ára
ÚTVARPIÐ á 40 ára afmæli í
dag. Það hóf starfsemi sina hinn
20. desember árið 1930 í Edin-
borgarhúsinu í Hafnarstræti.
* •
Orlaga-
nóttin
eftir Mignon
G. Eberhardt
STAFAFELL hefur sent frá sér
ástar- og leynilögreglusöguna
„Örlaganóttina" eftir skáldkon-
una Mignon G. Eberhardt.
Áður hafa komið út hér eftir
sama höfund sögurnar „Seinni
kona læknisins“ og „Leyndarmál
sjúkrahússins".
„Örlaganóttin" er 237 blaðsíð-
ur að staerð. Bókin er prentuð
hjá Grágás sf. í Keflavík. Bók-
band annaðist Nýja bókbandið.
Starfsmenn i upphafi voru 8 tals
ins, auk 3ja manna útvarpsráðs.
Úr Edinborgarhúsinu flutti út-
varpið starfsemi sina í Land-
símahúsið við Austurvöll, og er
starfsemin jókst enn í hús Fiski-
félags íslands að Skúlagötu 4.
Hefur það þar tvær efstu hæð-
irnar til umráða. Fyrir skemmstu
var samþykkt að gefa stoínun-
inni i«st á lóð undk eigin bygg-
ingu á svæði vestan við Háaleit-
isbraut.
Fynsti útvarpsstjórinn var Jón-
as Þorbergsson, en við starfi
hans tók síðar Vilhjákniur Þ.
Gislason. Núverandi útvarps-
stjóri eir Andrés Björnsson.
Útvarpið minnist afmælis síns
með ýmsum dagskrárliðum í dag,
og eins verður sjónvarpið með
sérstakan þátt í tilefni afmælis-
ins. Þá minntust starfsmenn út-
varpsins afmælisins með hófi að
Hótel Borg í gærkvöldi. Sjá nán-
ar um afmælið í kynningu á dag-
sfcrá sjónvarps og útvarpa í blað-
inu í dag.
Krabbameinsfélag Akureyrar:
Hef ur skoðað
1812 konur
Akureyri, 19. desember.
LEITARSTÖÐ Krabhameinsfé-
lags Akureyrar er nú hætt störf-
nm á árinu 1970. Frá því a<J
stöðin tók til starfa í ágúst 1969,
hafa 1812 konur komið þangað
til skoðunar. Nokkrar þeirra hafa
verið skoðaðar oftar en einu
sinni, svo að tala skoðana er
alls 1928. Einkuin hafa verið
skoðaðar konur, fæddar árin
1909—1943.
Starfssvasði stöðvarinnar var
framan af bundið við Akureyr-
arlæknishérað, en var stækkað
haustið 1970 og eftir það einnig
skoðaðar konur úr Dalvíkur- og
Ólafsfjarðarlæknis'héruðum.
Bjarni Rafnar iæknir hefur ann-
azt allar skoðanimar og með
honum hafa unnið tvær hjúkrun-
arkonur. Smásjárannsóknir á
sýnum hafa verið gerðar í Leit-
arstöð Krabbameinsfélags ís-
lands í Reykjavik.
Leitarstöðin mun taka til
starfa að nýju i ársbyrjun 1971
og verður þá opin einn dag I
viku, og sem lengst af hefur ver-
ið. Þá verður auk framhaldsskoð
unar sömu aldursflokka fleiri
árgöngunum gefinn kostur á skoð
un, þ.e. konum alit upp að sjö-
tugs aldri og konum fæddum ár-
ið 1944 og ’45. — Sv. P.
Ég kalla mig Ófeig
Sögur og þættir
eftir Hallberg Hallmundsson
HEIMSKRINGLA liefur sent frá
sér bókina „Eg kalla mig Ófeig",
eftir Hallberg Hallmimdsson.
í bókinni eni sjö sögur og
þættir, sem nefnast: Ryk, „Ég
eir farimn að huigsa", Ný saga af
Ekxn Juan, Sæmundar-Edda við
Sjöbtu hreiðgötu, Maðurinn með
eyrað, íhlutun og Ég kallla mig
Óféiig.
Bókiin er 110 bis. að sitærð,
prentiuð í prentismiðju Jóns
Heligasonar.
I»eir segja margt
í sendibréfum
Bók Finns Sigmundssonar komin út
BÓKAÚTGÁFAN Þjóffsaga sendi
fyrir skömmu á markaðinn bók-
ina „Þeir segja margt í sendi-
bréfum". Finnur Sigmundsson,
fyrrv. Landsbókavörður tók bók-
ina saman.
í henni eru birt 100 sendibréf
frá 19. öld eftir þjóðkunna ís-
lendinga, t.d. séra Einar Thorla-
Barn-
fóstran
— ný bók
KOMIN er út hjá Grágás í Kefla
vík skáldsagan Bamfóstran eftir
Erling Poulsen í þýðingu Önnu
Jónu Kristjánsdóttur. Bamfóstr-
an er 182 síður.
Skáldsaiga þeissi fjallar uim 17
ára stúlku Betty Taggart. Hún
er muri'aðarlaus og iheifur atizt
upp á bairnaheiimili. Eina nótt-
ina strýkur hún burt og ræðst
sem bamtfóstra á henraigarð
nokkum þar seim 'hún leindir í
ýmsum hættuim og ævintýrum.
cius í Saurbæ, Gunnar Gunnars-
90n prest í Lautfási, Grim Jóns-
son, amtmann, Ólaf Briem,
bónda að Grund, Björn Halldórs-
son, prest í Laufási, Ólaf Davíðs-
son, Guðmund Guðmundsson,
skáld og Matthías Jochumsson,
skáld.
Bókin er 286 blaðsíður að
stærð, prentuð og bundin í Prent
húsi HafSteins Guðmundssonar.
Á undanförnum árum hefur
Fimnuir Sigmundsson tekið sam-
an margar sendibréfabækur,
sem náð hafa miklum vinsæld-
um.
Cargolux
fær nýja vél
STJÓRN Cargolux Airlines, sem
er að hluta í eigu Loftleiða, hef-
ur ákveðið að festa kaup á nýrri
flugvél í stað Rolls Royce-vélar-
innar, sem fórst í Dacea i Pak-
istan á dögunum. Hefur AP-
fréttastofan þetta eftir áreiðan-
legum heimildum í Luxemborg,
en ekki er getið hvaða tegund
vélar hefur orðið fyrir valinu.
Bíll fram af
hárri brekku
Akuireyri, 19. desember.
LÍTILL fólksbill lenti austur af
Bjarmastíg í mikilli hálku i
gærkivöldi og staðnæmdist irnni
á lóð neðan við götuna. Þarna
er beygja á götunni og brattar
brekkur og háar. Um 5—8 metra
falll var þar, sem billiinn fór
fram atf. Ökumaður var einn I
bilnum og meiddist hann ekki,
en biHJinn er alllimikið skemmd-
ur. —. Sv. P.
Skúraskin
ný bók f rá Grágás
GRÁGÁS í Kcflavík liefnr sent
frá sér þýdda skáldsögu, Skúra-
skin eftir Nettu Musjett. Bók
þessi er bjónabandssaga og er
216 blaðsiður að lengd. Ragnar
Jóhannesson íslenzkaði.
Á kápu bókarinnar segir að
sögulhetjurnar, hjónin Caria og
Ricky ihafi lofað hvort öðru að
halda ökki átfram í hjónabandi
ef i'kLa gengi og fljótlega virtist
svo ætla að fara. Carla fer frá
manni sínuim og ræðst í viinnu í
London. Gemgur sagan síðan út
á það hvernig þeim genguir sitt
í hvoru lagi, en vantraust og af-
brýðisemi var mikil.
Nýjasta bók Desmond Bagleys
íjallar um baráttu lítils en
harðsnúins hóps manna við
voldugan
eiturlyfja-
hring, sem
smyglar
heroíni frá
Austurlöndum
nær til Evrópu
og Bandaríkjanna.
Ævintýralegasta og fremsta saga
Bagleys til þessa.
NÆSTA SAGA BAGLEYS GERIST Á ÍSLANDI
SUÐRI
EITURSMYGUUUIR