Morgunblaðið - 20.12.1970, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, SUTSTNUDAGUR 20. DE'SEMBER 1970
YÐUR AÐ SEGJA þá þurfum við ekki lengur að auglýsa Nú-Nú, bókina
sem aldrei var skrifuð, minningar Steinþórs á Hala, og Hið guðdómlega sjónarspil, endur-
minningar Hannesar Jónssonar. Þessar bœkur seljast jafnóðum. — Jafnóðum og hvað og hvað? —
Jafnóðum og þœr koma úr bókbandinu lesandi góður! Um að gera að tryggja sér eintak strax!
Nýjar
bækur
8JÖRN J. BLÖNDAL
Bóka-
útgáfu
GuðjónsÖ
GUÐJONÓ")
Hallveigarstíg 6a
Sími 75434
Vötn og veiðimenn, uppár Árnessýslu, ný bók eftir 1
Guðmund Daníelsson í ritsafninu um íslenzku veiði-
árnar.
Áin er lifandi vera, hver og ein og fiskar hennar,
fuglar, grös og bakkahríslur gæða hana sérstæðum
persónuleika. Rithöfundurinn sem skilur líf hennar
og sögu hinum dýpri skilningi, vígir lesandann inn
í sálufélag hennar.
Áður eru komnar út í þessum flokki bækumar:
ELLIÐAÁRNAR og DUNAR Á EYRUM ÖLFUSÁ
OG SOGIÐ. Hér er nú þegar á boðstólum ritsafn,
sem hentar öllu öðru betur til gjafa handa veiði-
mönnum og náttúrudýrkendum.
Eins og fyrri bækurnar þá njóta Vötn og veiðimenn
þess að höfundur er ekki aðeins ritsnillingur, heldur
einnig ástríðufullur stangarveiðimaður og unnandi
hins ómálga lífs.
Kjörin bók til að þreyja við þorrann og góuna.
HNEYKSLI
★ Þessi æsispennandi bók fjallar um
ástir ög ævintýri ungrar stúlku, sem
er bæði fögur og rík, en grípur til
þess óyndisúrræðis að skrökva því
að foreldrum sínum að hún sé gift
manninum, sem þau vilja að hún
eigi.
k Ungi maðurinn fellst á að hylma yfir
með söguhetjunni, en ætlar að launa
henni lambið gráa, og kenna henni
mannasiði, en heldur gengur það
brösugt.
★ Er nú ekki að sökum að spyrja, að
það hendir þau bæði, sem hvorugt
vildi; þau verða ástfangin hvort af
öðru, og auðvitað án þess að gera sér
grein fyrir því, að þarna er á ferð-
inni gagnkvæm ást, hvorki meira né
minna.
'k Vitaskuld berjast þau bæði einarð-
lega gegn örlögum sínum, én árang-
urslaust, og allt fer vel að lokum.
k Þetta er góð bók og skemmtileg.
'k Bókin ségir frá ungum efnispilti; sem
hlýtur í arf eftir forríkan frænda
sinn heil 10 sterlingspund, en auðinn
allan, ef hann kvaénist ákveðinni að-
alsmær innan árs.
★ Ungi maðurinn lendir í ýmsum
skémmtilegum ævintýrum, að ekld
sé meira sagt. Er rændur aleigunni
og berst við allskonar glæframenni
og ræningja.
~k Frelsar unga stúlku úr klóm óþokka
og lendir, fyrir misskilning, í útistöð-
Um við réttvísina.
Reynir af alefli að forðast stúlkuna,
sem honum var ætluð frá upphafi.
k Höfundurinn leiðir lesendur sína um
völundarhús ástar og afbrýði, þannig
að unun er að lesa og spenna og
eftirvænting helzt bókina á enda.
Þessi undarlega saga er sem sagt eins íslenzk og
framast verður á kosið. Hún er sérkennilegt ritverk
og hugvekja öllum þeim, sem bágt eiga með að sjá
kátlegu hliðina á alvörunni.
Á Heljarslóð er enn ein vinargjöf frá Bimi J.
Blöndal til íslenzkra lesenda.
Skáldsaga eftir Bjöm U. Blörídal, karlmannlega <
fyndin bók um heilsubótarför og sjúkrahússvist borg-
firzka bóndans Ófeigs Ófeigssonar. Fyrsta spítala-
bókin þar sem veikindin verða kímileg, dauðinn allt
að því skoplegur og læknarnir vægast sagt broslegir.
Enginn hefur látið út úr sér önnur eins býsn af
skoplegu pípi á heljarslóð og Ófeigur bóndi Ófeigsson.
Bjöm J. Blöndal varð frægur rithöfundur af veiði-
mannabókum sínum, frumlegum, fyndnum, nærfærn-
um og gæzkuríkum náttúrulýsingum þar sem fiskar
landsins, fuglar og ferfætlingar vom hafnir í hásæti.
Á Heljarslóð er skáldsaga um manninn, sem eigi
gengur haltur meðan báðir fætur em jafnlangir, og
kann þá gömlu þjóðlegu nauðvörn að gera hið grát-
lega broslegt.