Morgunblaðið - 20.12.1970, Side 21

Morgunblaðið - 20.12.1970, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ, SUTSTNUDAGUR 20. DE'SEMBER 1970 YÐUR AÐ SEGJA þá þurfum við ekki lengur að auglýsa Nú-Nú, bókina sem aldrei var skrifuð, minningar Steinþórs á Hala, og Hið guðdómlega sjónarspil, endur- minningar Hannesar Jónssonar. Þessar bœkur seljast jafnóðum. — Jafnóðum og hvað og hvað? — Jafnóðum og þœr koma úr bókbandinu lesandi góður! Um að gera að tryggja sér eintak strax! Nýjar bækur 8JÖRN J. BLÖNDAL Bóka- útgáfu GuðjónsÖ GUÐJONÓ") Hallveigarstíg 6a Sími 75434 Vötn og veiðimenn, uppár Árnessýslu, ný bók eftir 1 Guðmund Daníelsson í ritsafninu um íslenzku veiði- árnar. Áin er lifandi vera, hver og ein og fiskar hennar, fuglar, grös og bakkahríslur gæða hana sérstæðum persónuleika. Rithöfundurinn sem skilur líf hennar og sögu hinum dýpri skilningi, vígir lesandann inn í sálufélag hennar. Áður eru komnar út í þessum flokki bækumar: ELLIÐAÁRNAR og DUNAR Á EYRUM ÖLFUSÁ OG SOGIÐ. Hér er nú þegar á boðstólum ritsafn, sem hentar öllu öðru betur til gjafa handa veiði- mönnum og náttúrudýrkendum. Eins og fyrri bækurnar þá njóta Vötn og veiðimenn þess að höfundur er ekki aðeins ritsnillingur, heldur einnig ástríðufullur stangarveiðimaður og unnandi hins ómálga lífs. Kjörin bók til að þreyja við þorrann og góuna. HNEYKSLI ★ Þessi æsispennandi bók fjallar um ástir ög ævintýri ungrar stúlku, sem er bæði fögur og rík, en grípur til þess óyndisúrræðis að skrökva því að foreldrum sínum að hún sé gift manninum, sem þau vilja að hún eigi. k Ungi maðurinn fellst á að hylma yfir með söguhetjunni, en ætlar að launa henni lambið gráa, og kenna henni mannasiði, en heldur gengur það brösugt. ★ Er nú ekki að sökum að spyrja, að það hendir þau bæði, sem hvorugt vildi; þau verða ástfangin hvort af öðru, og auðvitað án þess að gera sér grein fyrir því, að þarna er á ferð- inni gagnkvæm ást, hvorki meira né minna. 'k Vitaskuld berjast þau bæði einarð- lega gegn örlögum sínum, én árang- urslaust, og allt fer vel að lokum. k Þetta er góð bók og skemmtileg. 'k Bókin ségir frá ungum efnispilti; sem hlýtur í arf eftir forríkan frænda sinn heil 10 sterlingspund, en auðinn allan, ef hann kvaénist ákveðinni að- alsmær innan árs. ★ Ungi maðurinn lendir í ýmsum skémmtilegum ævintýrum, að ekld sé meira sagt. Er rændur aleigunni og berst við allskonar glæframenni og ræningja. ~k Frelsar unga stúlku úr klóm óþokka og lendir, fyrir misskilning, í útistöð- Um við réttvísina. Reynir af alefli að forðast stúlkuna, sem honum var ætluð frá upphafi. k Höfundurinn leiðir lesendur sína um völundarhús ástar og afbrýði, þannig að unun er að lesa og spenna og eftirvænting helzt bókina á enda. Þessi undarlega saga er sem sagt eins íslenzk og framast verður á kosið. Hún er sérkennilegt ritverk og hugvekja öllum þeim, sem bágt eiga með að sjá kátlegu hliðina á alvörunni. Á Heljarslóð er enn ein vinargjöf frá Bimi J. Blöndal til íslenzkra lesenda. Skáldsaga eftir Bjöm U. Blörídal, karlmannlega < fyndin bók um heilsubótarför og sjúkrahússvist borg- firzka bóndans Ófeigs Ófeigssonar. Fyrsta spítala- bókin þar sem veikindin verða kímileg, dauðinn allt að því skoplegur og læknarnir vægast sagt broslegir. Enginn hefur látið út úr sér önnur eins býsn af skoplegu pípi á heljarslóð og Ófeigur bóndi Ófeigsson. Bjöm J. Blöndal varð frægur rithöfundur af veiði- mannabókum sínum, frumlegum, fyndnum, nærfærn- um og gæzkuríkum náttúrulýsingum þar sem fiskar landsins, fuglar og ferfætlingar vom hafnir í hásæti. Á Heljarslóð er skáldsaga um manninn, sem eigi gengur haltur meðan báðir fætur em jafnlangir, og kann þá gömlu þjóðlegu nauðvörn að gera hið grát- lega broslegt.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.