Morgunblaðið - 20.12.1970, Side 5
MOftGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. DESEMBER 1970
5
Sveinn Kristinsson:
Skákþáttur
SAGAN ENDURTEKUR SIG
ÞÓTT heimurinn gapi nú af
undrun yfir hinum mikla sigri
Fischers á Millisvæðamótinu á
Mallorca, og það ekki að ástæðu
lausu, þá er það ekki vegna þess,
að hann hafi ekki áður unnið
ótrúlega glæsilega sigra, sem
nálgast það að vera ofurmann-
legir. — Tökum til dæmis, Milli
svæðamótið í Stokkhólmi 1962.
Þar varð Fischer efstur í tuttugu
og fjögurra manna móti, með
17 Vi vinning, en næstir í öðru
og þriðja sæti voru rússnesku
stórmeistararnir, Petrosjan og
Geller, nieð 15 vinninga hvor.
Þetta var að visu minni sig-
ur en á Mallorca en eigi að síð-
ur, óvenjulega glæsilegur. — Og
hvað á maður að gera með að
vera meira en tveimur og hálf-
um vinningi ofar en næsti mað-
ur (í öðru sæti), þegar fyrsta
og sjötta sæti gefa sömu rétt-
indi?
Nú hafa sigurvegaraniir dreg
ið númerin sín i næsta Kandí-
datamóti, sem kunnugt er, eru
keppendur dregnir þar í tvær
grúppur, og lentu Fischer, Lar-
sen, Tabnanoff og Uhlmann sam
an i annarri, en í hinni Petrosj-
an, Kortshnoj, Geller og Hubn-
er. — 1 fyrr töldu grúppunni
teflir Fischer fyrst við Taiman-
off, en Larsen við Uhlmann. Sig
urvegarar hvors hinna tveggja
einví'ga, tefla síðan einvígi um
efsta sætið í þeirri grúppu.
(Trúlega verða það Fischer og
Larsen).
í síðartöldu grúppunni tefla
þeir fyrst saman Petrosjan og
Húbner og Kortshnoj og Gell-
er. — Síðan þarf að tefla þriðja
einvigið um efsta sætið i þeix-ri
grúppu. Efstu menn í grúppu
A og grúppu B tefla síðan ein-
vigi um áskorunaxréttinn —
verður það 12 skáka einvígi (en
hin einvígin ðll eru aðeins 10
skákir). — Heimsmeistaraeinvíg
ið sjálft er svo 24 skákir sem
kunnugt er.
Líklega byrja einvígi þessi
ekki fyrr en með vorinu, í apríl
eða mai.
Gott væri, ef lesendur vildu,
til gamans, senda þættinum spár
um úrslit i hinum einstöku ein-
vígum. Það er litlu lakara að fást
við spár, en rlfast um hunda-
hald og klám i skammdeginu.
Hér kemur ein af vinnings-
skákum Fischers frá Millisvæða
mótinu i Stokkliólmi, sem áður
var getið.
Hvítt: Fisclier.
Svart: German.
Riíssneski leikurinn.
1. e4, e5
2. Rf3, Rf6
smJirjm
haffi
LAUGAVEG 178
(„Rússneskri byrjun“, sem ein
kennist af leiknum Rf6 í öðrum
leik, er fremur sjaldan beitt, og
mun þar fremur tízka ráða en
leikurinn sé svo miklum mun
lakari en aðrar vamir, sem hvít-
ur beitir tíðar).
3. d4
(Sumir drepa á e5 í þriðja leik,
en ek'ki er það nema bráðabirgða
peðsvinninigur).
3. — exd4
4. e5, Re4
5. De2
(Skrýtinn leikur, sem þó er eng-
in nýjung. Steinitz gamli, heims-
meistari, fann hann upp. Mein-
ingin er að svara nú biskupsskák
á b4 með Kdl, og komast þann-
ig hjá uppskiptum. Kaemi þá
fram flókin staða, með skemmti-
legum möguleikum hjá báðum.
— Langalgengast er hins vegar,
að hvítur leiki 5. Dxd4).
5. — Rc5
6. Rxd4, Rc6
7. Rxc6, bxc6
(Þannig fær svartur óþægilegra
tafl, en ef hann dræpi með d-
peðinu).
8. Rc3, Hb8
9. f4, Be7
10. Df2, d5
11. Be3, Rd7
12. 0-0, 0-0
13. g4
(„Geymdu elkki til morguns,
það, sem þú getur gert í dag“
nálgast að vera einkunnarorð
staðna af þessu tagi. Spurningin
er tíðast: hvor verður fljótari að
nú afgjörandi sókn).
13—
14. Re2,
15. Rd4,
16. c3,
(Svartur hefur
nokkra veikingu á
hvíts).
Bb4
Rb6
De8
Be7
framkallað
kóngsstöðu
17. f5, c5
18. Rb5, d4!
(Svartur spriklar fjandi knálega
í höndunum á Fischer. — Skyldi
hann missa hann?)
19. Bf4!
(Hvítur verður að tefla af nokk-
urri varúð. T.d. 19. cxd4, cxd4;
20. Bxd4, Dc6f og hrókurinn á
hl fellur).
19. — dxc3
20. Rxc3, Ra4
(Þetta lítur hreint ekki svo illa
út hjá svörtum. — En nú kem-
ur einn af þessum snotru milli-
leikjum Fisehers, sem tryggir
kóngsstöðu hana og gerir honum
Framhald á bls. 26.
I DAG
QPIÐ
SUNNUDAG
FRÁ KL. 1-6
FJÖLBREYTTUR
JÓLAMATUR
KOMIÐ
SKOÐIÐ
SANNFÆRIST
SÝNING
ÞÝZKUR SKREYTINGAMAÐUR
sýnir auðveldar jóla- og borðskreytingar
í DAG milli klukkan 2-3 og 5-6
Vorum að fá NÝ BLÖM
FRÁ HOLLANDI OG FRAKKLANDI
Mikið úrval af fallegum gjafavörum
Opið alla sunnudaga til klukkan 6
-BLÖM &\MXTIR
HAFNARSTRÆTI 3 — SlMI 12717.
angli
a
ANCLI - SKYRTUR
COTTON-X = COTTON BLEND
OC RESPI SUPER NYLON
Fáanlegar í 14 stærðum frá nr. 34 til 47.
Margar gerðir og ermalengdir.
Hvítar — röndóttar — mislitar.
ANGLI - ALLTAF