Morgunblaðið - 07.02.1971, Síða 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 7. BEBRUAR 1971
■
BLÓÐ-
TURNINN
■:*v../.../«5 'vCwftwSt« //. /./.. /.V /..
7 .
ávarpa standmyndir. Ekkert orð
var sagt fyrr en Appleyard átti
eftir svo sem eitt skref að stóln-
um. En þá kvað við lág
rödd, sem samt sem áður heyrð-
ist greinilega í þessu auða her-
bergi. — Gott kvöld, hr. Glap-
thorne, sagði hann, — þér leyf-
ið mér að tjá yður innilegustu
samúð mína.
Svar gamla mannsins kom
óvænt, eða að minnsta kosti
fannst Jimmy það. Með erfiðis-
munum losaði hann vinstra
hamdlegginn úr dúðunum i tepp
inu, sem var ofan á honum, rétti
út magran og skjálfandi fingur
og benti út um gluigganin. —
Tuminn stendur enn, býst ég
við, sagði hann með mjórri og
skjálfandi rödd, sem var næst-
um sigrihrósandi.
Jimmy leit ósjálfrátt í sömu
átt og fingurinn benti. Já, enn
var tuminn uppistandandi — á
því gat enginn vafi leikið.
Hann gat séð hann gnæfa ólán-
legan við sólarlagið. Jafn gjör-
samlega gagnslaus og hann var,
fannst Jimmy hann einhvem veg
inn vera tákn um forna frægð
Glapthomeættarinnar. En hitt
var honum hulið, hvað gamli
álnavöru
markaður
HVERFISGÖTU 44
KR. 50.-
Mikið úrval af efnum á aðeins kr. 50.— pr. meter.
KR. 290.-
Einlit terylene-efni br. 140 cm. margir litir, aðeins kr. 290,
pr. meter.
KR. 290.-
Glitofin samkvæmiskjólaefni á kr. 290.— pr. meter.
KR. 350.-
ullarefni, margir litir á kr. 350.— pr. meter.
Álnavörumarkaður
s>
l-í
§■ Hverflsgata
II
HVERFISGOTU 44
Lokað í hádeginu kl. 11,30 — 13.
maðurinn hafði í huga með þess-
um orðum, eins og nú stóð á.
En Appleyard virtist skilja
þetta. — Já, tuminn stendur
enn sagði hann. Það hlýtur að
vera yður huggun, að þér eig-
ið einn son eftir til að halda
uppi ættarnafninu. En ég veit,
að þér afsakið þó að ég verði
að leggja fyrir yður nokkrar
spurningar. í fyrsta lagi: Hve
gamall var Caleb, sonur yðar?
— Það hljóta að vera ein
fjörutiu ár síðan hann fædd
ist, svaraði gamli maðurinn.
Minnið mitt er nú ekki sérlega
gott, nú orðið, en þér finn-
ið þetta allilt í Biblíiuirjmi. Hún
hlýtur að vera einhvers staðar
hérna inni, ef skrattinn hann
Homing hefur ekki falið hana
einhvers staðar.
Stúlkan flýtti sér að standa
upp. — Ég veit, hvar hún er, Sim
frændi, sagði hún, og röddin var
viðkunnanlegri en þeir félagar
höfðu búizt við. Hún gekk yfir
að fornfálegu bókahillunum, og
tók þar stóra bók, sem var henni
næstum ofviða að bera. Jimmy
hljóp til, tók af henni bókina og
lagði hana á borðið. Hún þakk-
aði honum með tregu brosi og
settist aftur á stólinn sinn.
Jimmy opnaði Biblíuna við
saurblaðið. Hann las það sem
þar var skrifað þangað til hann
kom að þriðju neðstu linu, en
sú lína og tvær þær næstu voru
skrifaðar veikri, skáfleyttri
kvenhendi: „Caleb, fæddur 5.
maií 1896,“ lais hainin uppháitit. Þá
er hann fjörutíu og tveggja á
þessu ári.
Þegar hér var komið kvað við
aftur þetta sama skerandi vein,
enda þótt nokkuð drægi úr því,
þar eð dymar að bókastofunni
voru lokaðar, en nógu hátt lét
það samt til þess að Símon gamli
heyrði það. — Það er þessi kerl-
ingarskratti enn, tautaði hann, —
hún saknar hans sjálfsagt þó
að enginn geri það annar. Nú
verður hún að drekka ein síns
liðs. — Það er að segja, ef hún
getur náð sér í aura til að kaupa
áfengið fyrir.
Stúlkan klappaði honum á öxl
ina, eins og ásakandi. — Svona
máttu ekki talá, Sim frændi,
sagði hún.
Gamli maðurinn skríkti eitt-
hvað og það var djöfulleg kæti
í hlátrinum. — Þú þarft ekki að
vera neitt hrædd góða mín,
sagði hann. -— Lögreglan kemst
að þessu öllu bráðlega. Vertu
viss. Hún kemst fljótt að því, að
erfingi Glapthorne-eignanna
var vanur að sitja frammi í eld-
hús og drekka með eldabusk-
unni. Það þýðir lítið að ætla sér
að fara í felur með það.
Appleyard fannst ráðlegast
að láta sem hann heyrði þetta
ekki. Hann tók að spyrja Simon
Glapthome um athafnir sonar
hans á dánardægri hans, en hon
um tókst ekki að fá nein svör,
sem eitthvað væri á að græða.
En á meðan var Jimmy að skoða
áletranirnar á saurblaðinu í
Biiblíuinmd, till þesa að firæðast
eitthvað meira um þessa ein-
kennilegu ætt.
Sú fyrsta var með sterklegri
en óæfðri rithönd og náði yfir
blaðsíðuna þvera: „Thaddeus
Glapthorne fæddur 5. október
1705, kvæntur 11. júlí 1743,
Elísabetu Wilmington frá Bjarn-
arhöll.“ Fyrir neðan var bætt við
með annarri rithönd: „Dáinn 17.
janúar 1782.“
Þar á eftir kom upptalning á
niðjum Thaddeusar í beinan
karllegg. Sonarsonur hans var
Malakías, dáinn 1884, lét eftir
sig tvö börn. — Símon, fæddan
1876, kvæntan Mary Matfield og
Leu, fædda 1887, sem giftist
John Blackbrook 1905 og dó
1929. Síðan kom línan með Caleb,
sem Jimmy hafði þegar lesið. Þar
Hann er farinn að eldast kokkurinn hér
gráhairður.
hann er orðinn
á eftir komu tvö í viðbót. —
Rakel, fædd 1899, dáin sama ár
og Benjamín fæddur 1904.
Á blaðsíðunni á móti, hafði
upphaflegi ritarinn ritað ein-
kennilega skrá. Upplitað blekið
var enn læsilegt, enda þótt
Jimmy sýndist á pappírnum,
að einhverri tima hefði verið
reynt að þurrka það út. Yfir
skránni stóð: „Ritningarstaðir
handa ætt minni.“ Og svo komu
tilvísanir til margra ritningar-
staða. En til hliðar við hverja til
vísun voru einkennileg merki,
sem Jimmy gizkaði á, að ættu sér
einhverja táknræna þýðingu.
(Sjá meðf. skrá).
Jimmy tók vasabókina sina,
svo að litið bar á og krotaði hjá
sér nokkur atriði viðvíkjandi
Glapthorneættinni. En svo datt
SNYRTISTOFAN IRIS
Hverfisgötu 42. — Guðrún Þorvaldsdóttir.
NÝTT SÍMANÚMER.
1-21-70
Hrúturinn, 21. marz — 19. april.
Þú hcfur gott vit á tækjakaupum, og getur vei fengið fólk til
að aöstoða þig. Heimsæktu fólk, sem þíi getur gert viðskipti við.
Nautið, 20. apríi — 20. maí.
Þér gengur sem bezt að semja þcssa dagana, og gerðu það þá
sem fyrst, áður en tímabiliö er gengið yfir.
Tvíburarnir, 21. maí — 20. júní.
Reyndu að stofna til sem víðtækastra sainbanda, vendu sem
flesta á samvinnu við þig, og gerðu það helzt sem fyrst.
Krabbinn, 21. júní — 22. júlí.
Ungt fólk vekur atliygli þína. Þú getur hresst þig talsvert upp á
þvi að halda þér til.
Ljónið, 23. júlí — 22. áffúst.
Reyndu að gera sem mest úr því, sem guð gaf þér, og skarta
þínu bezta.
Meyjan, 23. ágiist — 22. sepfcember.
Þú átt von á góðum fréttum, og skiptist á skoðunum við mark
verðar manneslijur.
Vogln, 23. september — 22. október.
Þú kemst að raun um, að fábreytt-ar manneskjur geta líka verið
góðar og gagnlegar, ef því er að skipta.
Sporðdrekinn, 23. okfóber — 21. nóvenibev.
Reyndu að fá fólk á þitt band og það sem fyrst. Þú þarft að
endurskipuleggja ýmsa hluti, ef vel á að fara.
Bogmaðurinn, 22. nóvember — 21. desember.
Ef þú leggur vel við hlustirnar núna, án þess að gera mikið
veður út af málunum, færð þú að vita eitthvað, sem fer fram hjá
flestum öðrum.
Steingeitin, 22. desember — 19. janúar.
Ef þú gerir áætlun snemma dagsins, kemur það sér vcl, er
á líður. Þú græðir á því að ræða við vini þína, og í kvöld áttu
hiklaust að hugsa ráð þitt.
Vatnsberinn, 20. janúar — 18. febrúar.
Nú eru tækifæri allt í kringum þig, og ég er illa svikinn, ef ekki
er einhver gróðavon á næstu grösum.
Fiskarnir, 19. febrúar — 20. marz.
Reyndu að vera eins natin við að telja öðrum hughvarf, og þú
frekast mátt.
KJOTBÚÐ SUDURVERS STIGAHLIÐ 45-47 - Sími 35645
ÞORRAMATUR - ÞORRAMATUR
Opið laugnrdag til klukkan 20 — Opið sunnudag klukkan 10-18