Morgunblaðið - 19.02.1971, Page 17

Morgunblaðið - 19.02.1971, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 19. FEBRÚAR 1971 17 Banabitinn: BB211 og Tristar G j aldþrot Rolls Royce Stöðutáknið Rolls Royce Brezka þjóðin var sem þrumu lostin þegar það frétt- ist að Rolls Royce væri gjald- þrota. í>ar í landi, og reyndar mjög viða um heiminn, var Rolls Royce nokkurs konar tákn velmegunar og öryggis, og það virtist útilokað að það gæti einu sinni lent í fjárhagsörðug- leikum, hvað þá orðið gjald- þrota. Það hefur þó engu að síður gerzt, og þar var um svo gífurlegar upphæðir að ræða, að ríkisstjórnin treysti sér ekki til að veita fyrir- tækinu fjárhagslega fyrir- greiðslu, heldur lét það verða gjaldþrota og tók svo við rekstrinum með því að þjóð- nýta hluta af fyrirtækinu. En það var ekki bara Rolls Royce, sem varð fyrir áfalli, hundruð annarra fyrirtækja um heiminn, sem verið hafa undirverktakar, eru nú á barmi gjaldþrots, og í Banda- ríkjunum riðar risinn Lock- heed til falls. Það var útilokað fyrir brezku stjórnina að leyfa Rolls Royce hreinlega að hverfa af fyrirtækjaskránni. Ein ástæðan er að Rolls fram- leiðir svo til allar vélar fyrir brezka flugherinn og flotann, hvort sem er i kafbáta eða flug vélar. Þá framleiðir Rolls einn- ig vélar fyrir flugheri og sjó- heri fjörutíu landa, og þotu- hreyflar frá verksmiðjunum knýja áfram vélar 200 fiugfé- laga viðsvegar um heiminn. Banabitinn Banabiti Rolls Royce var nýr þotuhreyfill, RB211, sem verið er að framleiða fyrir Locheed þotuna Tristar. Tristar á að vera nokkurskonar „millibils- vél“ milli hinna „venjulegu" farþegaþota sem taka allt að 250 farþega, og risaþotunn- ar Boeing 747 sem tekur mest 490 farþega. Tristar getur bor- ið allt að 330 farþega. Þegar Locheed bauð út smiði hreyfla fyrir nýju þot- una árið 1968, hafði Rolls Royce reynt árangurslaust I mörg ár að komast inn á bandaríska markaðinn, og það hafði vakið mikla gremju hjá fyrirtækinu þegar banda- riska fyrirtækið Pratt & Whitney fékk samninginn um smíði hreyfla fyrir Boeing 747. Það var því sótt af meira kappi en forsjá að ná í Tristar samninginn, enda væri þar með fengin stærsta einstaka pönt- urun í sögu fyrirtækisins. Loc- heed átti þá þegar í nokkrum erfiðleikum vegna þess hve kostnaður við smiði risaflutn- ingavélarinnar C-5 Galaxy (fyrir bandaríska varnar- málaráðuneytið) hafi farið gífur lega framúr áætlun, og press- aði Rolls Royce töluvert, til að ná góðum kjörum. Árangur- inn — eða kannski afleiðingin — varð hagkvæmasti samning- ur sem Lockheed hafði nokk- urn tíma gert. Verðið fyrir hvern einstakan hreyfil var sett niður úr öllu valdi og sektir fyrir að skila ekki verkefninu á réttum tíma, voru settar upp úr öllu valdi. Þar að auki var svo til ekkert tillit tekið til hugsanlegra verðhækkana á efni eða vinnuafli. Rolls Royce virtist treysta algerlega á að tæknihliðin gæti bjargað fjár- málahliðinni, því fyrirtækið samþykkti — við fyrrnefnd skilyrði -— að framleiða helm- ingi stærri hreyfil en það hafði nokkru sinni framleitt, og á helmingi skemmri tíma en gert hafði verið áður. Erfiðleikarnir koma í ljós Það var ekki fyrr en síðari- hluta ársins 1970, sem stjórn Rolls Royce virtist fara að renna grun i að ekki væri allt eins og það ætti að vera. Nýi þotuhreyfillinn er sagður vera tæknilegt meistaraverk, og þeir sem kunnugir eru fram- leiðslu Rolls Royee, eru ekkert hissa á því. Vandamálið var að hönnun hans var óframkvæm- anleg á jafn skömmum tíma og Rolls hafði samningsbundið sig við, og auk þess fór fram- leiðslukostnaður langt framúr áætlun. Rolls var því í nokkrum fjárhagskröggum, og sneri sér til ríkisstjórnarinnar sem féllst greiðlega á að lána 60 milljón sterlingspund. 12 mill- jón sterlingspund í viðbót áttu að koma frá einkaaðilum. Það er ekkert skrýtið þótt auðvelt hafi verið að leita lána, því gert var ráð fyrir að Rolls myndi selja RB211 hreyfla fyr- ir rúman milljarð sterlings- punda áður en framleiðslu yrði hætt. Þegar slík lán eru veitt er það þó jafnan sjálf- sagt formsatriði að rannsókn fari fram á efnahag viðkom- andi fyrirtækis, og það var auð vitað gert i þessu tilviki, og þá varð heldur betur uppnám. Kostnaður færður sem eign Það kom í Ijós að þegar Rolls Royce hóf framleiðslu á Spey, þotuhreyflinum árið 1961, var rannsóknar- og und- irbúningskostnaður svo mikill (20 milljón pund) að ef hann hefði verið afskrifaður með hagnaðinum á því ári, hefði fyrirtækið sýnt tap. Það var þvi gripið til þess ráðs að færa hann sem eign (fjárfestingu) sem yrði svo nfskrifuð þegar hreyfillinn færi að borga sig. Þessu var haldið áfram, og við rannsókn (undanfari 10 mill- jón punda láns) á síðasta ári, kom í ljós að þégar útlit var fyrir lítinn hagnað, hækkaði fyrirtækið einfaldlega áætlanir um tölu hreyfla sem myndu seljast, og létti þannig press- unni of minnkandi hagnaði. Á síðasta ári, var reyndar rannsóknar- og undírbúnings- kostnaður við RB211 orðinn svo hár, að hann var allur færður sem eign. Þennan kostnað hefði vissulega verið auðvelt að afskrifa þegar ágóð inn fór að streyma inn, en til þess var nú ágóði nauðsynleg- ur. Og ágóði er síður en svo út við sjóndeildarhringinn. 1 kostnaðaráætluninni 1968, var kostnaður við undirbúning undir framleiðslu talinn 65 milljón sterlingspund. Hann er nú kominn upp í 170 milljón pund og fer sífellt hækkandi, og þar er komið 105 milljón punda tap. 1 sömu áætlun var verð á hverjum hreyfli til Lockheed, ákveðið 350 þúsund pund, og fyrsta pöntun hljóð- aði upp á 540 hreyfla. Kostn- aður við hvern hreyfil (bara smíði) er nú orðinn 460 þús- und pund. Það þýðir að tap á hverjum hreyfli er 110 þúsund pund, eða samtals 59,4 milljón sterlingspund. Við þetta bætist að verkið er nú þegar heilu ári á eftir áætlun, og sektarfé sem Rolls Royce skuldar Lock- heed er komið langt yfir 100 milljón pund. Hvað gerist? Hvernig þessi flækja verður leyst, hefur enn ekki verið ákveðið. Sem fyrr segir hefur brezka stjórnin þjóðnýtt hreyflaframleiðsludeild Rolls Royce, og nú standa yfir samn- ingar við Lockheed, og reynd- ar bandarisku ríkisstjórnina, um hvernig tapinu skuli skipt, og á því veltur framtíð RB211 sem aflgjafa Lockheed Tristar. Sem fjnr segir á Lockheed þegar í efnahagsörðugleikum. Risaflutningaþotan C-5, sem smíðuð var fyrir varnarmála- ráðuneytið, fór langt fram úr kostnaðaráætlun, svo langt að pöntunin var skorin úr 115 niður í 81. Lockheed hefur þvi að undanförnu setið að samn- ingum um hvernig því tapi skuli skipt milli félagsins og bandaríkjastjórnar, og ef ekki tekst að standa við samninga flugfélaga sem iagt hafa inn pantanir, er félagið komið á hausinn. Orðrómur er á kreiki um að allir viðkomandi aðilar skipti með sér hinum aukna kostnaði: Flugfélögin greiði Lockheed hærri upphæð en samið var um, fyrir Tristar. Lockheed taki á sig stærri upphæð en samið var um, fyrir Tristar. Lockheed taki á sig stærri bagga vegna C-5, en það hefur viljað fallast á hingað til. Stjóm ir Bandaríkjanna og Bretlands leggi fram fé til að koma Rolls Royce aftur á fæturna, og Lockheed hækki verð það sem greiða skal fyrir hvern hreyf- II, og falli frá einhverju af sektunum fyrir afgreiðslutaf- irnar. Þessi orðrómur er að visu óstaðfestur, en þegar haft er í huga hvað í húfi er fyrir alla aðila, er ekki ólíklegt að hann hafi við rök að styðjast. Framtíð Rolls Hver framtíð Rolls Royce verður, er svo erfiðara að spá um. Þegar stjórnin þjóðnýtti fyr- irtækið, var gengið svo frá málum að þegar búið er að koma undir það fótunum, sé hægt að selja það aftur, einka- aðilum, og ekki færri en tól/ þegar gefið sig fram. Er talið líklegt að það verði endanleg lausn málsins. Þegar Rolls Roýce er nefnt á nafn, dettur flestum sjálfsagt fyrst í hug lúxusbíllinn sem heitir því nafni, og sem er nokkurs konar endanleg stað- festing á hárri stöðu manna í þjóðfélaginu. Bifreiðafram- leiðsludeild Rolls Royce, stend utan við það sem fjallað hef- ur verið um hér að framan, og er ekki séð fyrir hver áhrif það kann að hafa á rekstur hennar. Hún virðist standa Framhald á bis. 25

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.