Morgunblaðið - 06.03.1971, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 0. MARZ 1971
3r
*
Gífurleg loðnuveiði
vestan Eyja
Nýjar göngur á leiðinni — Skipin
landa á Faxaflóahöfnum
GÍFURLEGT loðnumag-n er nú
vestur af Vestmannaeyjuni, og:
fylla skipin sig þar á skömmum
tíma. I»á bendir ailt til þess að
ný loðnuganga sé út af InRölfs-
liöfða og Tvískerjum á leið vest-
ur með ströndinni. Verstöðvar á
Suðurlandi eru flestar hættar að
taka á móti loðnu, þar eð allaí
þrær eru fullar. Sigla nú skip-
in mörg hver til Faxaflóaliafna
með aflann.
Samkvæmt upplýsingum frétta
ritara Mbl. í Eyjum eru aðal-
loðnumiðin nú um 20 sjómíiur
vestur af Eyjum, og fengu loðnu
skipin þar góðan afla í gær. I
Vestmannaeyjum er að mestu
hætt að taka á móti loðnu nema
af heimaskipum, sem eru tiltölu
lega fá. Um 4—5 skip komu þar
til löndunar í gær — öll með
fullfermi. Alls hefur verið land-
að í Eyjum um 36—40 þúsund
lestum.
1 jþorlákshöfn og Grindavík
munu allar þrær fullar og er
hætt að taka þar á móti. Þá
munu þrær að fyllast i Sand-
gerði. Til Keflavíkur komu 4 bát
ar í gær — Árni Magnússon með
250 tonn, Harpa með 280 tonn,
Birtingur með 300 tonn, og Sel-
ey með 250 tonn. Tveir bátar
lönduðu í Reykjavik í gær —
Hafrún 230 tonnum og Gísli
Árni, sem var með fullfermi. t>á
var Þorsteinn væntanlegur með
fullfermi, svo og Ásberg og Ás-
geir. 1 nótt var von á Heimi SU
til Reykjavíkur með 440—470
tonn. Á Akranesi lönduðu tveir
bátar í gær — Jörundur III. með
fullfermi og eins Höfrungur. Þá
var von á Ólafi Magnússyni með
190 tonn og sprungna nót.
Rannsóknaskipið Árni Frið-
riksson lá í gær inni á Norðfirði
með rifna nót. Mbl. náði tali af
leiðangursstjóranum og sagði
hann, að svo virtist sem ný loðnu
ganga væri á leiðinni við Ing-
ólfshöfða. Að vísu hefði ekki
1600 tonn en
ekki 50 þúsund
MORGUNBLAÐIÐ skýrði frá
því fyrir nokkru eftir heimild-
um úr Aftenposten, að Norð-
menn hefðu selt 50.000 tonn af
frystri loðnu til Japans. Sagði í
fréttinni, að salan væri sam-
tals 150 þúsund hektólítrar, sem
blaðamaðurinn sagði að jafngilti
50 þúsund tonnum. Frétt þessi
var alröng og hefur framkv.stj.
Feitsild salgslaget í Noregi leið
rétt þessa rangfærslu, og skýrt
frá að seld hafi verið 1600 tonn
af frystri loðnu til Japans.
Blaðaskákin
TA - TR
SVART. Taflfélag Reykjavíktir.
Jón Kristinsson og
Stefán Þormar Guðmundsson
gefizt tími til að rannsaka hana
nánar, en fregnir af þessum slóð
um segðu loðnuna smærri en
áður, og benti það eindregið til
þess að þarna væri ný ganga á
leiðinni. Alls fengust 3 þúsund
tonn af loðnu á Meðallandsbugt
í fyrradag, og fór sá afli allur
á Austfjarðahafnir.
Morgunblaðinu hefur borizt
yfirlit um loðnuveiðina til 28,
febrúar. Alls hafði þá verið land
að 50.571 tonni af loðnu. Til Seyð
isfjarðar höfðu borizt 2224 lest-
ir, til Neskaupstaðar 7321 tonn,
til Eskifjarðar 5443 tonn, til Fá-
skrúðsfjarðar 2449 tonn, til
Stöðvarfjarðar 2245 tonn, Djúpa
vogs 2207 tonn, til Homafjarð-
ar 4976 tonn, til Vestmannaeyja
22.280 tonn, til Stokkseyrar 16
tonn, til Þorlákshafnar 633 tonn,
til Grindavíkur 877 tonn.
Ráðstefna um al-
mannatryggingar
— hefst í dag
HVÍTT: Skákfélag Akureyrar,
Guðmundur Búason og
Hreinn Hrafnsson
24. leikur hvíts —
D el x R e3
í DAG kl. 13.30 hefst ráð-
stefna Fulltrúaráðs Sjálf-
stæðisfélaganna í Reykja-
vík um almannatryggingar
að Hótel Loftleiðum. Að
lokinni setningu ráðstefn-
unnar mun Ólafur Björns-
son, alþm., flytja erindi
um tilgang og þróun al-
mannatrygginga og þátt
þeirra í félagsmálalöggjöf.
Síðan ræðir Gunnar J. Möll-
er, fraankvæfmdastjóri, um
fjárhagsgrundvöil og skipu-
lag a 1 mannat ry gg i n ga. Þá
talar Geirþrúður Bernhöft,
ellimá'lafulltrúi, um velferðar-
mál aldraðra og Sveinm Ragn-
arsson, félagsmálastjóri, Plyt-
ur erindi um aiimannatrygg-
— Nixon
Framhald af bls. 1
vélar sityddu einhvers konar að-
gerðir gegn Norður-Víetnam.
Forsetinn kvað það stefnu
Bamdarikjanna að flytja á brott
allt heriið sitt frá Suðaustur-
Asíu, þótt ekki væri hægt að
ábyrgjast að bardagar héldu
ekki áfram í Víetnam, Laos og
Kamibódiiu .Hann neitaði að láta
uppsikátt hve margir bandarísk-
ir hermenn yrðu eftir í Suðaust-
ur-Asíu er forsetakosnimgamar
færu fra.m i Bamdarfkjunum
1972, en sagði, að nokkurt herlið
yrði kyrrt í Víetna.m svo lengi
sem Bandarikjamenn væru fang-
ar hjá kommúniistum.
Nixon sagði, að afstaða Banda-
rík j'astj órnar ti'l Peking-stjómar-
innar myndi mótasit af afstöðu
Kinveirja til Bamdaríkjanna, en
bætti því við, að bandariska
stjómin myndi ekki fatlast á að
Peking-istjómin fengi aðiild að
Sameinuðu þjóðunum ef það
hefðl í för með sér brottvisun
Formósu úr samtökunum. Hann
kvaðst vongóður um að samnáng
ar rnvndu taikast við Sovetstjom-
ina itm takmörkun á smíði kjarn-
orkuvopna.
Hann vísaði á bug tflraunum
Rússa ti'l þess að knýja fram
pólvfcÍLska lauisn á deii'umál'unu.m
í löndunium fyrir botni Miðjarð-
arhafs. Hawn lagði áherzlu á, að
ísraei og Arabaríkin yrðu að
ha’da áfram viðræðum sínum í
þvi sikymi að ná samkomuilagi
um friðarsáttmála. Hann kvaðst
vona að báðir aðilar sambykktu
að fra.mi'engja vonnah'léð. annað
hvort óformlega eða með sairrvn-
ingi um að bardagar yrðu ekki
hafnir að nýju.
Hann vék sér undan að svara
bvi hvort Bandaríkjastióm legð
fas't að hinni isræ'stou að skuld
binda sig tii að flvtja heriið sitt
á brott frá herteknu svæðunum
en lét í það skína að það vær
vi’ii bandarisku srt jómarinnar
Wí hann kvaðst telja örvg'T
fsraels betur trvggfc með fiór
veldayfirlvsingu en áframhald
andi hemámi arabiskra svæða
Þá hét hann ísraehim áfram
haklarvdi voonaaðstoð, enda yrð
að viðhalda valdajafnvaegi í
bessum hermshluta.
ingar og félagsmálaþjónustu.
Eftir kaffihlé starfa urnræðu-
hópar og almemnar umræður
verða.
SUNNUDAGUB
Ráðstefnan heldur áfram
eftir hádegi á sunnudaig og
hefst þá kl. 14.00 með fram-
söguerindi Guðjóns Hansens,
tryggingafræðings, um al-
mannatryggin'gar og skyld
svið, sem löggjöf og kjara-
samningar taka til. Þá ræða
Björgvin Sigurðsson, fram-
kvæmdastjóri, og Pétur Si'g-
urðsson, alþm., um atvinnu-
leysistryggimgar og fengna
reyns'lu. Þá verður kaffihlé,
umræðuhópar starfa og al-
mennar umræður að lokum.
— Bruni
Framhald af bls. 32
sem hlaupið hafði út frá hús
inu að hringja í slökkviliðið.
Er inn kom stóð húsmóðirin
í stofunni og var að reyna
að ráða niðurlögum eldsins
með blautu handklæði. Log-
aði þá upp eftir veggnum og
út um gluggann. Ég þaut inn
í eldhúsið, en þar var eng
inn, en fann börnin síðan í
svefnherberginu ásamt föð-
urnum, sem var að vakna.
Ég tók kornabarn úr rúmi
sínu og ýtti síðan öllum
barnahópnum á undan mér
út í gegnum eldhúsið. Maður
inn fór að leita sér að föt-
um.
Þegar við komum að for-
stofunni, var hún alelda. —
Börnin urðu hrædd og vildu
snúa við, en ég ýtti þeim
áfram í gegnum logana, sem
þá voru þó ekki svo magnað
ir að neinn brenndist. Konan
fór síðan með börnin í næata
hús.
— Maður, sem var að sýsla
þarna fyrir utan, kom nú
með stiga og reistum við
harm upp við svefnherbergis
gluggann, þar sem húsbónd-
inn var inmi. Rétt í þann
mund braut svo maðurinn,
:em var inni, gluggamn og
komst út. Var húsið þá orðið
mannlaust og nokkrum
augnablikum síðar kom
slökkvilíðið. — Húsbóndiin-n
skarst smávegis á hendi við
það að brjóta rúðuna í glugg
anum, en sá skurður var
ekki alvarlegur.
— Jú, það má segja að
hurð hafi skollið nærri hæl-
um. Húsið fylltist fljótlega
af reyk og eldi og- logamir
stóðu út um dyr og glugga.
Miki.nn reyk lagði yfir hverf
ið, enda mun húsið hafa ver
ið einangrað með hálmi og
timbrið mun hafa verið orðið
æði þurrt. Tel ég að mér
hafi komið að góðum notum
reykköfunarþjálfun sú, sem
ég og félagar mínar höfum
fengið í slökkviliðinu —
sagði Guðmundur Kristins
son að lokum.
Hafrún kom fyrst loðnubáta með loðnu til Reykjavíkur til
bræðsiu, og landaði í Sundahöfn. (Ljósm. Mbl. Ól.K.M.)
Danska kvenrétt-
indafélagið 100 ára
Ólöf Pálsdóttir flutti ávarp
fyrir hönd Kvenréttindafélags
Islands
f SÍÐUSTU vilku miinnfcist danska
kvenréttindafélagið 100 ára af-
mælis sínis með margvísiiegium
háltíðahöldum. Vair boðið þang-
að fuHlfcrúuim kverLnasamitaka á
Norðurlönduim. álöf Pá'ilsdóttir,
sendiherrafrú, mætti við hátíða-
höldin fyrir hönd Kvewréttinda-
félags íslands samikvæmt ósk
þess. Hélt hún ræðu á fjölda-
samkomu í ráðhúsi borgarmnar
og flutti dönskum- konum toveðj-
ur og ámaðaróskir KvenTétt-
indafélags íslands og ísilenzkra
kvenina. Afhenfci hún formarmi
féiagsins, frú Eviu Hamimer Han-
sen, skál'dkoniu, listaverkabók
Jónis Stefánissonar, listmiálara.
Aðairæðu’ma á þessum hátíðar-
f-u.ndi fliufcti frú Lis Groeis, fyrr-
verandi ráðherra. Rakti hún
sögu danskrar kvenréttindabar-
áttu.
Næsta dag hafði forseti
dansika þingsins, Canl Skytte,
móttöku fyrir komumar í Þjóð-
þingimu. Voru þar fluttar margar
ræður, m. a. tölmðu þar Hilmar
Baunsgaard. forsætisráðherra,
Per Hækkerup, fyrrverandi ufc-
anríkisráðherra, og Bodil Koch,
fyrrverandi ráðherra.
Bílvelta á
Elliðaárbrúm
SLÆM bílvelta varð á Elliðaár-
brúm seint í gærkvöldi. Þarvalt
jeppi, tókst á loft og stakkst á
toppinn fyrir utan veginn.
Þrennt var í bílnum, hjón með
ungt barn, en öll sluppu furðu-
lega vel — aðeins konan skarst
á augabrún, en ekki alvarlega.
Slæm lýsing er á veginum við
brýrnar. Ökumönnum er mjög
gjamt á að setja háu ökuljósin
á vegna myrkurs og blinda þá
hverjir aðra, enda bar bílstjóri
jeppans að hann hefði blindazt.
Nýbreytni í guðsþjón-
ustum á æskulýðs-
daginn
— söngvar í léttara formi,
— helgileikrit
ÆSKULÝÐSMESSUR verða
lialdnar úti um allt land á morg-
un, sem er æskulýðsdagur kirkj-
imnar. Eru þær margar með
nýju sniði, sér í lagi eru söngv-
ar í léttara formi, þótt ekki séu
það poplög.
Æskulýðsfélag Hallgrims-
kirkju annast guðsþjónustuna i
sínum söfnuði. Helgi Einarsson
og Kristin Ólafsdóttir leiða þar
sönginn, ungmenni spyrja spurn
inga og verður það í stað pré-
dikunar, vixllestur verður úr dag
blöðum og ritningunni og
áherzla er lögð á sem virkasta
þátttöku kirkjugesta. Þessi
guðsþjónusta hefst kl. 11 og verð
ur plakati dagsins, sem ber yfir-
storiftina Hvert ætlarðu? dreift
við kirkjudyr.
1 Langholtskirkju verða einn-
ig ýmsir nýir þættir, bæði i tali
og tónum. Ungmenni stíga við-
ast hvar í stólinn, t.d. prédikar
inspector scholae á Akureyri,
nemandi og kennari í Réttar-
holtsskólanum taka til máls við
guðSþjónustuna þar.
Helgileikir eru víða settir á
svið, og koma þá gjaman í stað
lesturs guðspjalls. Má sjá í
messuauglýsingum dagsins að
þeir verða m.a. í Garðakirkju,
Laugarneskirkju og Árbæjar-
skóla.
Kvöldvökur verða allvíða. 1
Hafnarfjarðarkirkju gengst
æskulýðsnefnd safnaðarins fyrir
henni, verður þar þjóðlagatrió
sem kennir unga fólkinu nýja
söngva, ungmenni fjalla um
spurninguna: Hvert ætlarðu? 1
Hallgrímskirkju er væntanleg-
um fermingarbörnum boðið til
kvöldvökunnar og á Akureyri
verður árshátíð æskulýðsfélaigs-
ins þar í kirkjukjallaranum.
Hópur ungs fólks hefur ann-
azt undirbúning dagsins ásamt
æskulýðsfulltrúa sr. Bemharði
Guðmundssyni.