Morgunblaðið - 18.03.1971, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 18.03.1971, Blaðsíða 6
6 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 18. MARZ 1971 HÚSMÆÐUR Stórkostleg lækkun á stykkja þvotti 30 stk. á 300 kr. Þvott ur sem kemur í dag, tilbúinn á morgun. Þvottahúsið Eimir, Síðumúla 12, sími 31460. KEFLAVlK Tveggja til þriggja herbergja íbúð óskast til leigu strax. Upplýsingar í síma 1152 eftir kl. 5. KÖTTUR TAPAÐIST Svörtflekkótt læða, með svartan blett öðrum megin við nefið, ómerkt, týndist fyrir tæpri viku. Skilvís finnandi hringi í síma 40116. LAND-ROVER Óskum eftir að kaupa nýjan eða nýlegan Land-Rover. — Uppiýsingar í síma 13428 og eftir kl. 7 i síma 31322. BLÓM OG GJAFAVÖRUR í úrvali. Verzlunin BLÓMIÐ Hafnarstræti 16, simi 24338. IBÚÐ TIL LEIGU Sex herbergja íbúð til leigu nú þegar á bezta stað í bæn- um. Aðeins fyrir barnlaust fólk. Sími 25891. 2—4 HERBERGJA (BÚÐ óskast til leigu fyrir reglu- samt fólk, strax eða um mánaðamótin. Vinsaml. hring M5 í síma 26618 eða 81319 eftir kl. 17. TRILLA 3V4 tonn, ný uppgerð, til sölu. Skipti á góðum bíl koma til greina. Iskista 350 l'rtra til sölu á sama stað. Uppl. í s. 22892 eftir kl. 6. MAÐUR ÓSKAST til næturvörzlu á hóteli í Reykjavík. Tifboð merkt .fíl&T' sendist auglýsinga- afgreiðslu Morgunblaðsins, MÓTATIMBUR No&að mótatimbur, 1x6", óðkast. Upplýsingar í síma 32651 eftir kl. 20 í kvöld. STÚLKA ÓSKAST til skrifstofustarfa. Vélritun- arkunnátta æskileg. Tilboð sendist afgr. Mbl. fyrir mánudag, merkt „Vélritun 489," VOLKSWAGEN '68 mjög fallegur bíll. Til sýnis og sölu í dag. Má borgast með 3ja—4ra ára skuldabréfi. Sími 19032 og 20070. Bílasala Guðmundar. 2—3 HERBERGJA IBÚÐ óskast. Þrennt í heimili. Má vera í Hafnarfirði. Góð um- gengni, algjör reglusemi og skilvís greiðsla. Upplýsingar í síma 14821. Alltaf uppselt á Kláusana Rarnaleikurinn I,itli Kláus og Stóri Kláus vaar sýndur I 15. sinn í Þjóðleikhúsinu sl. sunnudag-, en nú eru liðnar 6 vikur frá því að sýningar hófust á leiknum. Miklar biðraðir eru ævinlega í að- göngnmiðasölunni þegar aðgöngnmiðar eru seldir á leikinn og margir verða frá að hverfa. Hópar skólabarna koma að jafnaði á flestar sýningar úr nærliggj- andi byggðarUigum. 1 því samhandi má geta þess að 10 iangferða- bilar komu með hörn á skólaaldri á sýninguna s.l. laugardag. Ekkert bamaleikrit hefur hlotið slika aðsókn hjá í»Jóðleikhús- inu siðan Kardemommubærinn var sýndur þar fyrir 12 árum. Myndin er af Bessa Bjamasyni og Þórhalli SigiU'ðssyni í titil- hlutverkuniim. Börn í Hveragerði safna Fimmtudaginn 11. marz héidti nemendur úr 11 ára bekk í Barna- skólanum í Hveragerði hlutaveltu til ágóða fyrir f.jölskylihma að Grettisgötu 52, sem missti eigur sínar í eldsvoða. Það var gieði í svip þeirra, þegar þau afhentu fréttaritara Mbl. í Hveragerði Georg Michelsen 3000 krónur og báðu hann að koma þeim til skila tö Mbl., sem siðan myndi afhenda fólkinu féð. Kennari þeirra, Auður Aðalsteinsdóttir aðstoðaði bömin. Upphæðin er þegar kom in í hendur Mi»l. SÁ NÆST BEZTI Kerlingin: Já, svo yður langar til að verða tengdasonur minn! Ungur maður: Nei, alls ekki, en það er óumfflýjanlegt, fyrst ég vil giftast dóttur yðar. DAGBÓK Þá munuð þér ákalla mig og fara og biðja til mtn, og ég mtin bænheyra yður. (Jer. 29, 12). í dag er fimmtiidagur 18. marz og er það 77. dagur ársins 1970. Eftir lifa 288 dagar. Árdegisháflæði kl. 9.30. (Úr íslands almanak- inu). tNæturlæknir í Kefiavik 18.3. Ambjöm Ólafsson. 19.3., 20.3. og 21.3. Guðjón Klern enzson. 22.3. Jón K. Jóhannsson. Báðgjafaþjónusta Geðverndarfélagsins briðjudaga kl. 4—6 síðdegis að Veltusundi 3, sími 12139. Þjón- ustan er ókeypis og öllum heim- U. Mænusóttarbólusetning fyrir íullorðna fer fram í Heilsuvemd arstöð Reykjavíkur á mánudög- um frá kl. 5—6. (Inngangur frá Barónsstíg yfir brúna). AA-samtökin Viðtalstími er í Tjamargötu 3c frá kl. 6— 7 e.h. Sími 16373. Ásgrímssafn, Bergstaðastræti 75, er opið sunnudaga, þriðjudaga og fimmtudaga frá kl. 1.30—4. Aðgangur ókeypis. Bílar til Eyja I simahappdrætti Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra voru 3 aðal- vinnmgar, 3 CortínuMlar, ár- gerð 1971, en tveir þeirra fóru til Vestmannaeyja, sá þriðji kom á óseldan miða. Attk þess voru 15 aukavinningar á 10.000 krón ur hver, og gengu flestir þeirra út. Bílarnir fóru til Guðna Gríms- sonar, Bakkastig 5 og Sigurðar Jóhannssonar, Brimhólabraut 37. Myndirnar eru teknar af því, þegar Matthildur Þórðar- dóttir, skrifstofustjóri félagsins afhendir bílana í Vestmannaeyj- um, S.L janúar. Sala á happ- drættismiðum Styrktarfélagsins í Vestmannaeyjum er mjög góð. ;ÍWýJ PENNAVINIR Fní Myonghim Cho, ensku- kennari við Hankuk menntaskól ann í Seoul í Kóreu, skrifaði á dögunum bréf til Morgunblaðs- ins, og sagði frá þvi að nemend- ur sínir hefðu mikinn áhuga á að eignast pennavini á íslandi, þar sem þeir hefðu áhuga á þvi að æfa sig í ensku og kynnast Islandi í gegnum bréfaskriftir. Skrifa má til frúarinnar á eftir- farandi heimilisfang: P.O. Box 100, Chungang, Seoul, Korea. Melvin B. Sandler, 36, Charl- bury Ave, Prestwich, Man- chester, M25, 8 EJ, England, 18 og hálfs árs skrifstofumaður, sem skrifar ensku, og vill gjama eignast pennavini á Islandi, og hann svarar öllum bréfum, sem hann fær, Jimmy Kerr, 28 Fort Matilda Place, Greenock, Renfrewshire, Scotland, 15 ára skólanemandi, sem ætlar að gera ritgerð um Island, óskar eftir pennavini, sem gæti sent honum eítthvað efni um ísland með myndum. Ef einhver vill svara Jimmy Kerr, einkanlega drengur á sama aldri og hann, yrði hann feginn, og gæti þá unnið að ritgerð sinni. Múmínálfarnir eignast herragarð--------— Eftir Lars Janson Múininstelpan: Nú hefur Elín hefðarfrú fundið eitt hvað handa okkur að starfa að nýju. Elín hefðarfrú: Bölvaður sé sá dagur, sem ég fædd- ist, að ég skuli lifa það að sjá kindur Gobbié órúnar. Múmínstelpan: Órúnar? Elín hefðarfrú: Neyddu mig ekki út af sporinu, kiipptar með skærum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.