Morgunblaðið - 09.05.1971, Side 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. MAl 1971
Þurfum að koma upp
smáiðnaði á Hólmavík
— til þess að koma í veg fyrir
frekari fólksfækkun
— OKKUR vantar einhvern
Einar Guðfinnsson eða Harald
Böðvarsson til þess að fitja
upp á smáiðnaði á Hólmavik.
Séra Andrés Ólafsson.
Naertækast væri að hugsa sér
að iðnaður þessi stæði í sam-
bandi við vinnslu sjávaraf-
urða, t.d. mætti láta sér detta
í hug niðursuðu af einhverju
tagi. Á Hólmavík byggist allt
atvinnulíf á sjónum. Rækju-
veiðin skapar næga atvinnu
fyrir allt vinnandi fólk á staðn
um og í nágrenninu á með-
an hún stendur yfir, en sið-
ar kemur dauður tími fram
í júnílok er bátarnir fara á
handfæraveiðar. Þetta dauða
tímabil þurfum við að brúa
og eins er nauðsynlegt að
skapa meira atvinnuöryggi á
staðnum og hvort tveggja
gæti fengizt með tilkomu nið
ursuðu, eða annars iðnaðar.
Ef til vill yrði þetta einnig
til þess að stöðva þann fólks-
flutning sem verið hefur frá
Hólmavík sl. 2 ár. — Þannig
fórust séra Andrési Ólafssyni
fréttaritara Morgunblaðsins á
Hölmavik orð í viðtali fyrir
skömmu.
Auk smáiðnaðar sagði séra
Andrés að mikil nauðsyn væri
á að fá eitt stórt skip til þess
að leggja upp á Hólmavík yf-
ir sumartímann, en þá vant-
ar frystihúsin tvö á staðnum
verkefni.
— Um þessar mundir eru
engar byggingar í smíðum á
Hólmavík en fyrir dyrum er
að hefja byggingu læknisbú-
staðar og auk þess stendur
til að byggja félagsheimili á
staðnum. Verður hafizt handa
við byggingu læknisbústaðar-
ins í surnar. Læknir á Hólma-
vík er Guðmundur Steinsson.
Félagslíf almennt á Hólma-
vik hefur verið heldur dauft,
en þó starfa þar tvö félög,
Lionsklúbbur og kvenfélag.
Starfsemi beggja félagamna
hefur verið blómleg og um
þessar mundir eru konurnar
í kvenfélaginu að beita sér
fyrir að koma upp elliheim-
ili á staðnum. Þær hafa þeg-
ar safnað töluverðu fé með
það fyrir augum að komast
yfir húsnæði, og sagði Andrés
að mjög mikill fengur yrði að
því að koma upp elliheimili
á staðnum þar sem nú þarf
að senda gamalt fólk sem ekki
býr á einkaheimilum, burt af
staðnum. — Lionsklúbburinn
hefur aftur á móti safnað
fé til kaupa á tækjum i sjúkra
skýli staðarins og fl.
Því næst vék séra Andrés
Ölafsson að skólamálum stað-
arins. Á Hólmavik er barna-
og unglingaskóli, en ef ungl-
ingarnir vilja leita sér frek-
ari menntunar þurfa þau að
sækja burt í skóla.
— Ég tel að það sé algjört
lágmark að við getum veitt
unglingunum okkar gagn-
fræðamenntun heima, sagði
Andrés. Það kostar ekki lít-
ið fyrir okkur að senda burtu
stóran hóp unglinga til þess
ið láta þá ljúka gagnfræða-
prófi. Á Hólmavík búa ekki
nema um það bil 350 manns
og við vorum að telja það
saman nýlega hvað margir
þeirra væru núna í mennta-
skólum og Háskólanum. Voru
það um 10 manns, sem er ekki
svo lítið brot af heildinni og
þar við bætast síðan allir þeir
unglingar sem fara burt til
þess að Ijúka gagnfræðaprófi.
Ég vona að úr þessu rætist
Framh. á bls. 21
Fréttir
frá
Hólmavfk
Rætt við sr.
Andrés Ólafs-
son fréttaritara
Morgunblaðsins
Frá Hólmavík.
sokka
buxur
Vogue sokkabuxur fegra fótleggi
yðar. í Vogue sokkabuxur
myndast engin hné. Þær falla
þétt að, en gefa þó vel eftir.
Silkimjúk áferðin og aðlögunar-
hæfnin stafar af því, að garnið
í þeim er teygjanlegra,
fíngerðara og þéttprjónaðra
en almennt gerist.
Heildsöludreifing:
JOHN LINDSAY. Sími 26400.
HÁDEGISVERÐARFUNDUR
verður haldinn þriðjudaginn 11. maí
kl. 1*2 í Þjóðleikhúskjallaranum.
Ræðumaður verður hr. Bjarni Bragi
Jónsson forstjóri Efnahagsstofnunar-
innar.
Ræðuefni: Hvað er framundan í
efnaliagsmálunum.
JUNIOR CHAMBER
I REYKJAVÍK
PINGOUIN -GARN
Classique Crylor 50 litir
MULTI-PINGOUIN 30 litir
Ný mynstur.
Útsölustaðir:
Verzl. HOF, Reykjavík,
Hannyrðaveczlunin sf., Akranesi,
Verzl. Jórunn Bachmann, Borgarnesi,
Hannyrðabúðin, ísafirði.
Verzl. Dyngja, Akureyri,
Verzl. Anna Gunnlaugsdóttir, Vestmannaeyjum.
Réttindi til hópierðooksturs
Þann 1. júní 1971 falla úr gildi réttindi til hópferðaaksturs,
útgefin á árinu 1970.
Umsóknir um slík réttindi fyrir timabilið 1. júní 1971 til 31. maí
1972 skulu sendar til Umferðarmáladeildar pósts og síma, Um-
ferðarmiðstöðinni í Reykjavik, fyrir 25. maí 1971.
f umsókn skal tekið fram skrásetningarnúmer og farþegafjöldi
þeirra bifreiða, sem sótt er um réttindi fyrir, svo og aldur
þeirra.
Einnig skal tekið fram hvort umsækjandi hyggst eingöngu
nota bifreiðina til farþegaflutninga.
Umferðarmáladeild pósts og síma,
5. maí 1971.