Morgunblaðið - 09.05.1971, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. MAÍ 1971
19
Til að vernda og
bæta heilsuna
Stutt samtal við Eðvald Hinriksson
f TÆPLEGA 10 ár hefur Eðvald
Hinriksson rekið nudd- og gufu-
baðsstofuna Sauna að Hátúni 8
í Reykjavík. Hann varð einn
þeirra fyrstu til að kynna hið
viðfræga finnska sauna-bað hér
á landi. En á undanförnum ár-
um hafa gufuböð orðið stöðugt
vinsælli til heilsuræktar. 1967
var Eðvaldi úthlutað lóð að Há-
túni 6a undir sauna-baðstofu
og heilsuræktarmiðstöð. Húsið
er nú uppsteypt, en framkvæmd
um við það virðist miða seint.
Fyrir skömmu sneri Mbl. sér til
Eðvalds Hinrikssonar og spurði
hann nokkurra spurninga um
bygginguna og rekstur nudd- og
gufubaðstofu almennt.
— í tæp tíu ár hef ég rekið
sauna-baðstofu í fjölbýlishúsi,
sagði Eðvald, og það er afar
erfitt. fbúar hússins hafa skipt-
ar skoðanir á rekstrinum, og
pípum. Erlendis ráðleggja lækn-
ar sjúklingum sínum að stunda
slík böð.
Bað í hitakassa er allt annað
en bað í sauna. Hitakassinn get-
ur þó verið góður að vissu
marki. Sjálfur átti ég hitakassa,
og ég notaði hann á íþróttavell-
inum í 10 ár, á meðan ekki var
hér saunabað. Annars hefur
verið skrifað svo mikið um
saunaböð hér og erlendis, að
mér finnst ekki þörf á frekari
skýringu á þeim.
—- Þú rekur einnig nuddstofu,
hvenær byrjaðir þú að stunda
nudd hér á landi?
— Ég kom fyrst upp nudd-
stofu á Akureyri árið 1948. Þá
höfðu margir þar veikzt af löm-
unarveiki og þörfnuðust því
endurhæfingar. í samráði við
lækna komu tugir manna ef
ekki hundruð til mín í nudd,
réð það miklu um, að ég sótti
um lóð undir hann, sem ég fékk
að Hátúni 6a. En vandinn var
ekki leystur með því. Ótrúlega
fast var sótt eftir greiðslu lóðar
gjalds o.fl. þess háttar, svo fast,
að mér þótti furðu gegna. Erfitt
var um lán, svo að ég neyddist
að ganga í félag við tvo bygg-
ingamenn.
Við gerðum samning 1967 og
samkvæmt honum átti minn
hluti hússins að afhendast mér
veturinn 1968-1969. Ég hefði því
getað lokið mínu verki í húsinu,
ef gerðir samningar hefðu stað-
ið. Nú er komið fram á sumar
ársins 1971, og ég hef ekki enn
fengið minn hlut, þess vegna hef
ég ekki getað hafizt handa við
innréttingu og annað, auk þess
sem allur kostnaður við hana
hefur hækkað til mikilla muna
frá vetrinum 1968—’69.
Það er mjög kostnaðarsamt að
eiga atvinnuhúsnæði í byggingu
í mörg ár, og ég hef ekki efni
á því. En mér hafa borizt góðar
fréttir, þær, að mun yngra
heilbrigðisfyrirtæki hafi fengið
ríkisábyrgð fyrir láni til að
byggja stórhýsi undir starfsemi
sína. Og meira en það, fyrirtæk-
ið þarf ekki að greiða lóðar-
gjaldið tafarlaust heldur á löng-
um tíma. Gleði mín er þó ekki
óblandin, vegna þess að mér
finnst, að samkeppni á jafnréttis
grundvelli fái ekki þróast, þeg-
ar fyrirtækjum, sem stunda
svipaðan rekstur, er mismunað.
— Hvað segir þú um böð í
Sauna annars vegar og böð í
svonefndum hitakössum hins
vegar?
— Saunaböð eru þekkt um
allan heim og eru í flestum lönd
um notuð sem heilsubrunnur
— fyrir heilbrigt fólk til að
vernda heilsuna og fyrdr sjúkt
fólk til að bæta heilsuna. Það
er mikill misskilningur, þegar
fólk leggur að líku saunabað og
hitakassa. Saunabað er svokall-
aður yfirhiti og er víða um
heim notaður fyrir brjóstveika
og þá, sem þjást af astma, því
að heita loftið er gott fyrir önd-
unarfærin og lungun, og það
hreinsar slím úr úr lungna-
það var mér mikil ánægja að
geta veitt sjúklingum og lækn-
um hjálp á þeim erfiðu tímum.
— Er ekki erfitt að fá nudd-
fólk hér á landi?
— Jú, það er erfitt, og þess
vegna varð ég alltaf að fá er-
lent fólk til nuddstarfa, en nú
er ekki eins auðvelt að fá slíkt
fólk frá útlöndum vegna gengis-
breytinga.
Ég greip því til þess ráðs að
þjálfa íslenzkt fólk til nudd-
starfa, og hefur það ekki staðið
erlendu nuddurunum að baki.
Mér finnst annars næsta undar-
legt, að ekki hefur verið stofn-
aður hér nuddskóli, þaðan sem
útskrifa mætti nuddfólk, sem
síðan starfaði á nuddstofum og
heilsuhælum, því að sífelld þörf
er fyrir slikt sérþjálfað fólk.
Mín reynsla er sú, að við þurí-
um ekki að sækja nuddfólk til
útlanda. Ég hef haft í minni
þjónustu finnskt, þýzkt, danskt,
sænskt, og norskt nuddfólk,
og margt kom hingað strax
eftir nám á nudd-kvöld-
námskeið og fékk sína
fyrstu reynslu hér. Nú hef ég í
minni þjónustu danskan mann,
sem lærði nudd hjá mér árið
1962, en fór síðan af landi brott
vegna lasleika. Hann kom hing-
að aftur á síðasta ári og hefur
starfað hjá mér síðan, og var
kennsla mín tekin gild í Kaup-
mannahöfn, þar sem hann starf-
aði við nudd.
Sá misskilningur er útbreidd-
ur, að aðeins sjúkir þurfi á
nuddi að halda. Um nuddið má
segja það sama og um gufubað-
ið — það hjálpar heilbrigðum
að vera heilbrigðir og þeim,
sem sjúkir eru, að ná heilsunni
aftur.
Á íslandi er hlúð vel að æsku
fólki og nokkuð vel að öldruð-
um, sagði Eðvald Hinriksson að
lokum, og fólk á miðjum aldri,
sem er bærilega frískt, verður
að gæta sín sjálft, eins og eðli-
legt er, og því er gott að hafa
hugfast, að saunaböð og hress-
ingar-nudd ásamt góðri hvíld
eru heilsubætandi fyrir sál og
líkama.
Gefið þeim smjör og ost í nestið.
Smjor&Ostur
Hreysti og glaðlyndi úr nestispakkanum.
Ostur er alhliða fæðutegund. Úr honum fá
börnin eggjahvítuefni (protein), yítamín og
nauðsynleg steinefni, þ. á m. óvenju mikið
af kalki. Kalkið er nauðsynlegt eðlilegri
starfsemi taugakerfisins. Smjörið veitir
þeim A og D vítamín. A vítamín styrkir t. d.
sjónina og D vítamín tennurnar.
,V\