Morgunblaðið - 15.08.1971, Page 5
MORGUNBLABIÐ, SUNNUDAGUR 15. AGÚST 1971
5
Bjarni Halldórsson afhjúpar minnisvarðann.
t»eir hurfu inn í
ógnir öræfanna
Erindi fiutt við afhjúpun
minnisvarða Reynlstaðar-
bræðra á Kili, 18. júlí 1971.
Heiðruðu öræfagestir.
HER á þessum stað gei'ðiat mes-ta
harmsaga ættiar minmar, þegar
langömmubræður minir urðu hér
úti árið 1780.
Ástæðan til þess, að för
bræðranna var gerð, var sú,
eins og kunnugt er, að fjárskipti
fóru fram um Norðurland
vegna fjárkiáðans. Á Reyni-
stað var sauðlaust og einnig á
öðrum jarðeignum klaustursins.
Til þess að fá nýjan fjárstofn,
var leitað til þeirra svæða sun,n-
ainlands, sem höfðu ósýkt fé.
Halldóri klausturhaldara og
konu hans, Ragnheiði Einarsdótt-
ur var það ljóst að: Sveltur sauð-
iaust bú.
Til þess að bjargast af og
standa skil á gjöldum til kon-
u.ngs af eignum þeim, sem
klaustrinu tilheyrðu, varð að fá
fjárbúin upp aftur.
Reynistaðarhjón voru miklir
búhöldar. Ragnheiður var talin
eintn mesti kvensköi’ungur þeirra
tíma, búsýslukona mikil og
stjórnsöm, öðrum fremri í kven-
legum menntum, greind og fjár-
hyggjukona svo að á orði var
haft. Haildór mun hafa verið
hófsamur bóndi, fyrimannlegur,
með allvel tamið skap ættar sinn
ar, þó að út af kunni að hafa
brugðið.
Heimabúnaður þeirra Staðar-
manna allra var gerður svo
traustur, sem föng voru til, sýn-
ir það meðal annars, að gráa
hryssan, sem fannst í Gránunesi,
hafði ekki losnað við reiðingi.nn
vetrarlangt.
Um heimanför þeirra bræðra
má segja að öðru leyti, að Ragn-
heiður haifi haft ofmetnað fyrir
sonum sínum, og ekki metið
æsku Einars sem skyldi. Má það
mannlegt teljast, en byggt á
björtustu vonum um leikand.i
laufvinda síðsumarsinis.
Um þennan atburð hefir all-
mikið verið skrifað undanfarin
ár. Það varð aldrei lyft hulunnd
af hvatrfi Reynistaðairbræðra,
því síður verður það gert nú.
Rithöfundar hafa ski'ifað um
ýmsa löngu liðna atburði sögunn
ar, samið skáldsögur, sem sum-
ir taka sem söguleg sannindi.
Skrifin um Reynistaðarbræður
eru þeirrar tegundar. Hugmynd-
ir áin sannana, skáldskapur,
fullyrðingar án staðreynda.
Bjami Halldórsson sýslumaður
á Þingeyrum var gáfumaður,
taiinn einn lærðasti lögfræðing-
ur sinnar tíðar, auðugur og rjki-
látur, strangur við afbrotamenn,
óvægið refsivald Húnvetninga.
Bjarni Halldórsson á Reyni-
stað virðiist hafa erft margt frá
öfum sínum, sýslumanninum á
Þingeyrum og langafanum Páli
Vídalín lögmanni i Víðidals-
tungu. Meðal an.nars mikinn
metnað og framagirni sem títt
var með augugum höfðingjason-
um þeirra tíma. Hvatvísi nokkra
og meira kapp en forsjá, ein-
kenndi það frændur vora fleiri.
Lengi var talið að feigð fylgdi
Bjarna nafni, þótti það vera
refsiarfur frá forföður vorum á
Þingeyi’um að nafnar hans yrðu
skammlífir. Bjarni frá Reynistað
dó hér á Kili, ungur að ámm.
Systursonur hans, sonur Sigríð-
ax Halldórsdóttur í Glaumbæ,
Bjarni Magnússon, varð bráð-
kvaddur á hiaðinu í Geldinga-
holti, tvítugur að aldri.
Bjarni Stefánsson Magnússon-
ar prests í Glaumbæ dmkknaði í
Héraðsvötnum ungur maður. —
Þegar Indriði Einarsson frétti
það, að Hallldór bróðir hans hefði
látið son sinin heita Bjarna, þá
hristi hann höfuðið og sagði:
,,Þetta átti Halldór bróðir ekki
að gera, þessi drengur verður
ekki langlífur.“ En á síðustu ár-
um Indriða, og þá engin dauða-
mörk komin á mig, taldi han.n
að nú væri ættin búin að færa
sýslumanmi'num á Þiingeymm
nógu marga nafna hans að fórn,
nú væri karlinn kominn úr
hrein.su nareldinum.
Einn af reiðhestUm Bjarna á
Þingeyrum yar bleikur að lit, mik
ið hestavail, en sá var annar arf-
ur frá sýslumanni, að enginn
nafni hams mátti eiga bleikan
reiðhest. Ég fór einu sinni á bak
bleikum hesti og hrekkjóttum,
en var auðvitað tæpast kominn
í hnakkinn, þegar hesturinin
henti mér á jörðina. Ég tók þetta
að sjálfsögðu sem bendingu um
það, að ég ætti ekki að ríða á
bleikum hesti. Síðan hefi ég
aldrei komið á bak á bleikum
hest og aldrei átt bleikt hross.
Þá var það trú í ætt vorri, að
enginn með Bjarna nafni mætt.i
vera í grænum fötum. Ég hef
fylgt þessum erfðavenjum, sér-
staklega hefi ég gætt þess í seinni
tíð, að engin.n grænn þráður væri
til í fötum mínum. Ég á 2 sonar-
syni og 2 dætrasyni, sem bera
Bjarna nafn. Þess er vandlega
gætt að þeir komi aldrei í græna
flík.
Ég sagði í byrjuin máls míns,
að hulunni yrði aldrei lyft af
hvarfi Reynistaðarbræðra. Við
greftrun beinanna, sem tailin
voru af þeim bræðrum og jarð-
sett voru við hlið foreldranna í
kirkjugarðinum á Reynistiað,
sagði Gísli Konráðsson í erfiljóð-
um, sem hann flutti við þá at-
höfn:
„Dárlegt vair þeirra að dylja hel
dysjaðir fyrr á eyðimel.“
Það var trú ættmenna þeirra, að
þeim hefði verið rænt úr tjald-
inu á Kili. Sú trú verður lang-
líf.
Þær lifa ennþá draumvjsurnar:
Enginn fiinina okkur má
undir fannahjami.
Dægur þrjú yfir dauðum ná
dapur sat hann Bjarni.
í klettaskoru krepptir erum
bræður
en í tjaldi áður þar
allir sváfum félagar.
VegfarenduT, sem fara hér um
Franihald á bls. 23.
Karl eða kona
með reynslu í ferðamannamóttöku óskast til starfa í vel þekkta
ferðaskrifstofu í Miðborginni.
Viðkomandi þarf að geta starfað sjálfstætt, m. a. við útgáfu farseðla
fyrir erlenda jafnt sem innlenda ferðamenn.
Mjög góð laun í boði fyrir hæfan starfsmann. Fimm daga vinnuvika.
Með umsóknir verður farið sem algjört trúnaðarmál.
Umsókn, merkt: ,.Ferðaskrifstofa — 5734“ sendist Mbl. fyrir 25.
ágúst næstkomandi.
Flugsf jórar
Aðstoðar-
flugmenn
Flugfélagið Þór hefur hug á ráðningu
flugmanma til starfa erlendis.
Umsækjendur verða að vera tilbúnir
til starfa í haust.
Eiginhandarumsóknir. sem tilgreini reynslu,
sundurliðaða flugtíma og fyrri störf, ásamt
ljósmynd af umsækjanda, sendist Auglýsinga-
stofunrai Argus, pósthólf 5133, Reykjavík.
Rýmingarsala
vegna nýrra birgða.
Gólfteppi, gólfdúkar, litaður strigi.
Somvyl-veggdúkur.
May Fair vinyl-veggfóður og gólfflísar.
MIKILL AFSLÁTTUR.
Klœðning
Laugavegi 164
RGYLBN
FEINSTRUMPFHOSE
COLLANT FIN
PANTY-HOSE
30 den
' i ' *&&&* <•&&&&■ mmm - -<
Erum að taka heim nýjar gerðir
af ROYLUN sokkabuxum.
KAUPMENN og INNKAUPASTJÓRAR!
Vinsamlegast hafið samband við okkur
sem fyrst.
Agúst flrmann hf. Sími 22100
k
(
«