Morgunblaðið - 15.08.1971, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 15.08.1971, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 15. ÁGÚST 1971 Útgefandi hf. Átvakur, Reykjavík. Framkvaemdastjóri Haraldur Sveinsson. Rilstjórar Matthías Johannessen. Eyjólfur Konráð Jónsson. Aðstoðarritstjóri Styrmir Gunnarsson. Ritstjómarfulltrúi Þorbjörn Guðmundsson. Fréttastjóri Björn Jóhannsson. Auglýsingastjóri Árni Garðar Kristinsson. Ritsljórn og afgreiðsla Aðalstraati 6, sími 10-100 Augiýsingar Aðalstræti 6, sími 22-4-80. Áskriftargjald 196,00 kr. á mánuði innantands. I lausasölu 12,00 kr. eintakið. FERÐ UTANRIKISRAÐHERRA ¥ gær fór Einar Ágústsson, utanríkisráðherra, til Bretlands og Þýzkalands í þeim tilgangi að kynna sjón- armið íslendinga í landhelg- ismálinu. í för með utanríkis- ráðherra eru þeir Pétur Thor- steinsson, ráðuneytisstjóri, og Ingvi Ingvarsson, skrifstofu- stjóri í utanríkisráðuneytinu, en Hans G. Andersen, sem nú starfar á undirbúningsfundi Hafréttarráðstefnunnar, mun koma til móts við sendinefnd- ina. Að undanförnu hefur utan- ríkisráðherra lagt kapp á að kynna sér stöðuna í landhelg- ismálinu og hefur notið til þessa aðstoðar þeirra sér- fræðinga, sem við íslending- ar höfum haft í þessu efni. Jafnframt hafa staðið yfir viðræður milli fulltrúa stjórn málaflokkanna. Hefur niður- staðan orðið sú, að samkomu- lag hefur orðið um, hvernig haga beri þeirri kynningu á málstað Íslands, sem utan- ríkisráðherra og aðstoðar- menn hans vinna að. Jafnframt þessari kynn- ingu hefur nú verið gefinn út bæklingur um landhelgis- málið, sem fyrrverandi ríkis- stjórn lét rita, og verður hon- um útbýtt, þar sem þess er talin þörf og að öðru leyti lagt kapp á að kynna málstað okkar, bæði í gegnum sendi- menn okkar í öðrum ríkjum og með öðrum hætti. Utanríkisráðherra hefur valið þann kost að hafa sér til ráðuneytis sömu menn og fyrri ríkisstjórn hafði samráð við og lengi hafa unnið að landhelgismálinu, bæði hér heima og erlendis. Er það vel, því að þessir menn sitja auð- vitað inni með mesta þekk- ingu á þessum málum. Landhelgismálið var illu heilli gert að kosningamáli í vor, en nú leitast menn við að snúa bökum saman og ut- anríkisráðherra hefur sér til ráðuneytis hæfustu menn okkar í þessu efni. Þess vegna ber að vona og treysta að för hans og aðstoðarmanna hans beri góðan ávöxt og þeim fylgja góðar óskir allra ís- lendinga um árangur. Mútuþegar á Möltu k Möltu var fyrir skömmu mynduð vinstri stjórn. Fyrsta verk hennar var að krefjast hárrar greiðslu fyrir þá aðstöðu, sem Atlantshafs- bandalagið hefur haft á eynni. Hefur síðan verið hart eftir því gengið, að kröfurnar um fjárframlög yrðu sam- þykktar. Stjómarvöldin á Möltu gera sér grein fyrir því, að landið hefur verulega hernaðarlega þýðingu og þá aðstöðu á að selja. Nú hafa borizt af því fregn- ir, að Atlantshafsbandalags- ríkin hyggist ekki samþykkja slíkar kröfur, heldur flytja stöðvar sínar burt frá eynni, en hins vegar munu Bretar halda áfram einhverju samn- ingaþófi við hin nýju stjórn- arvöld eyjarinnar. Það er vissulega vel, að Atlantshafs- bandalagið skuli ekki taka þátt í samningum við mútu- þega á borð við þá, sem nú ráða ríkjum á Möltu. Þegar þessar fregnir berast, verður ekki hjá því komizt að minnast á það, að stöku sinnum hafa þær skoðanir skotið upp kollinum hér á landi, að við ættum að láta greiða okkur fjármuni fyrir að vera varðir. Slíkur hugsunarháttur er einhver hinn ógeðugasti, sem heyrzt hefur í íslenzkum þjóðmála- umræðum, og sem betur fer hefur enginn stjómmála- flokkur gert slíkar kenningar að sínum. Við íslendingar gerðumst aðilar að Atlants- hafsbandalaginu, vegna þess að við vissum, að við áttum samleið með öðrum vestræn- um lýðræðisþjóðum og gerð- um okkur grein fyrir því, að Atlantshafsbandalagið eitt mundi geta stöðvað framrás kommúnismans og tryggt heimsfrið. Við létum síðan í té aðstöðu fyrir sameiginleg- ar varnir Atlantshafsbanda- lagsríkjanna, er ógnirnar voru auknar og við töldum sjálfir að brýna þörf bæri til að styrkja aðstöðu þess varnarbandalags, sem við eig- um líf okkar og frelsi undir. Því er að vísu ekki að leyna, að í eitt skipti var heiðri okkar stefnt í voða, það var þegar vinstri stjórn- in, sem sat 1956—‘58, gekk eftir peningaláni úr sérstök- um öryggissjóði Bandaríkj- anna gegn því að falla frá ákvörðunum um brottrekst- ur varnarliðsins. Þá lá við að ekki væri unnt að segja eins og Amas Arnæus, er hann bað Jón Hreggviðsson að skila heim eftirfarandi: „Þú getur sagt þeim frá mér að ísland hafi ekki verið selt, ekki í þetta sinn.“ í umræðum þeim, sem á næstunni munu verða um varnarmál íslendinga, hljót- um við að taka þveröíuga af- stöðu við það, sem vinstri stjórnin á Möltu gerir. Við munum ekki láta fjárgróða- sjónarmið róða því, hvort við XIST ILEVRIS Tvö dularfull sakamál Seinni grein Sú spuminig er oft áleitin í sögu list- arinnar, hvort fflytja skuli fyrir almenn ingssjónir ófullgerð verk látinna lista- manna. Stundum getur sllkt verið bein línis bjarnargreiði við minningu og orð stír hins látna, þar sem oft er um að ræða verk, sem hann hefur sjál'fur lagt tit hliðar af þeirri ástæðu að hann hef ur ekki treyst sér til að halda áfram með verkið. Stundum er það dauðinn sem grípur I taumana og það gerðist í Dickens tilviki, þannig að við verðuim þess aldrei vísari, hvað Xom fyirir Ed- win Drood eins og vikið var að í fyrri greininni. Um þetta eru jafnan skiptar skoðan- ir. Heimurinn hefði farið mikils á mis ef „Ófullgerða symfónía" Schuberts hefði aldrei verið birt almenningi og þrátt fyrir ýmsa vankanta á „The Myst ery of Edwin Drood“ er þó ekkert vafa mál að Dickens stendur ágætlega keik- ur eftir. Mark Twain lét eftir sig ófullgerða skáldsögu „Siimon Wheeler, Deteotive“. Sagan hefur nú verið gefin út með alls kyns skýrinigum og málalengingum eft- ir Franklin R. Rogers starfsmann for- Mark Twain. lagsins The New York Public Library. Hvort Rogers hefur gert Twain greiða með þessari framkvæmdasemi er sjáM- sagt meira efamáíl en þegar Dickens og Drood eru annars vegar, þar sem fjöl- margir bókmenntafræðingar hafa lýst yfir þeirri skoðun sinni, að bókin sé með eindæmum léleg — að vís-u með góðum sprettum inni á milli. Mark Twain var þekktur að kímni og frásagnarsnilld eins og álilir víta, og það er líka vitað að hann glímdi lengi við Simon Wheel- er. Loks laigði hann verkið frá sér, ám þess að ljúka því. Hann henti handrit- inu ekki, kannski hefur hann huigsað sér að snúa sér að því síðar meir og reyna að ijúka því. En þó svo að verkið sé um margt mis- heppnað, er þó fullkomlega réttlætan- legt að reyna að kynna sér það, þar sem það segir lesandanum margt um Mark Twain, bæði sem mann og rithöf- und, margt sem við vissum ekki fyrir. „Simon Wheeler, Detective" fjállar um grimmilegar greinir milM tveggja gróinna Suðurríkjafjölskyldna, Dexter í Kentucky og Bumside í Missouri. Dexter ungi kemur til þorpsins Gull- ford í Missouri og allir halda, að hann sé kominn þangað til að drepa jafn- aldra sinn og frænda, Hugh Burnside. En Það er nú eitfhvað annað; þeir verða þvert á móti perluvinir. Dexter verður mjög ástfanginn af systuf Hughs og Hugh fellir hug til Miily, sem er frænka Dexters og dóttir hins harð- lynda dómara Griswold, sem krefst þess, að Dexter drepi sinn heittelskaða vin, Hugh. Stúlkukindurnar tvær hegða sér í meira lagi bjálfalega og það svo, að þeir eru að verða örvita. Hugh fer til skógar og hyggst fremja sjálfs- morð og Dexter ætlar að dreifa hugan- um með því að fara á veiðar með riffil sinn á sömu slóðir. Hugh vinnur þá einstæðu dáð að bjarga dóttur Gris- wolds frá bráðum bana og dómarinn ríður af stað í náttmyrkrinu til að koma i veg fyirir að Dexter ráði Hugh af dög- um, en allir hafa talið að það sé ætlan hans. Sjálfsmorðstilraun Hughs mis- tekst hins vegar. Flækimgur nokkur vekur hann til lífsins og þeir skipta á fötum. Dexter, sem er með afbrigðum léleg skytta skýtiur að flækmgnum í þeirri trú, að þar sé úlfur á ferð. Flæk ingurinn læzt vera dauður. Dexter finn ur „líkið" í fötum Hughs og fflýr nú I örvæntingu í þerri trú, að hann hafi drepið sinn bezta vin. Flækingurinn flýr síðan og víkur nú sögunni til Hugh, sem hefur fallið í djúpan svefn, en aðvífandi blaðamaður heldur að hann sé steindauður, dröslar honum upp á börur og ekur honum tii þorpsins til að geta komið frétt um lík- fundinn í blaðið sitt. Honum er ráð- lag-t að fara með „líkið" aftur á sinn stað. Hugh ruimskar um s-íðir og tekur þá ekki betra við, því að þorpsleynilöig reglumaðurinn Simon Wheeler handtek ur hann. Lengra er Mark Twain ekki kominn með söguna, en á laus-um bliöðum fund- ust þó alls kyns setningar og áætlanir sem trúlegt er að hann hafi ætlað að nota. Harla ruglingslegar virðast þær vera sumar, en lesandanum skilst að Hugh eigi að skjóta upp kollinum við sína ei-gin „útför". Upphaflega virðist sem Mark Twain hafi ætlað sér að hafa „Simon Wheel- er“ ei-ns konar melodrama í anda sins tíma. Vitað er að Twain skrifaði megn- ið af bókinni á þrem-ur sólarhringum og þá i leikritsformi. Leikhúsmenn á Broadway ráðlögðu honum að breyta þvi í skáldsögu og við þeim tilmælum varð hann. Erindi Simons Wheeler í söguna ligg ur ekki ljóst fyrir, gefið er í skyn að Wheeler sé eins konar þorpsfifl, sem hefur mest alla vitneskj-u úr leynilög- reglusögum. „Plottið" í sögunni er einnig ákaflega ruigMnigslegt og þótt telja megi víst, að Twain hafi í fyirstu ætlað sér að skrumskæla leynilögreglu sögur sem dáðastar voru, þegar hann var upp á sitt bez-ta. læðist sá grunur að lesanda, að smám saman hafi Twain í aðra röndina farið að taka viðfamgs- efnið einum of alvarlega og reist sér sannkallaðan hurðarás um öxl. En eims og fyrr sagði eru góðir sprettir i bók- inni, sérstaklega þar sem Twain einbeit ir sér að skrumskælingum; einn kafli sem fjafflar um Wheeler og forkost-u- lega aðstoðarmenn hans við leynilög- reglustörfin, er að margra viti meðal þess skemimtilegasta, sem eftir hann ligg-ur. Mark Twain mun hafa íagt Simon Wheeler á hilluna fyrir fullt og allt ár- ið 1896 og hafði hann þá gripið í það öðru hverju í 20 ár. Og enda þótt varla sé fært að mæla með Simon Wheeler hef-ur Twain þó ekki ti-1 einskis Skrifað. Ýmsar hugmyndir sem skutu upp koll- inum í bókinni haifa aðrir síðan gripið á lofti og notað með ágætum árangrl. Og svo margt gott gerði Mark Twain, að ein misheppnuð lögreglusaga breyt- ir þar engu um. h.k. höfum samstöðu með öðrum lýðræðisþjóðum og leggjum okkar af mörkum til að tryggja sameiginlegt freilsi og lýðræði þjóðanna í Atlants- hafsbandalagin-u; miklu frek- ar munum við spyrja sjálfa okkur, hvað getum við af mörkum lagt, er tím-abært, að við tökum að einhverju lejrti þátt í varnarstarfinu t.d. með þjálfun sérfræðinga, sem sitarfað gætu hér á landi við hlið bandamanna okkar í Atliantshafsbandalaiginu? Slíkt er og verður vonandi ætíð Íslendingseðlið.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.