Morgunblaðið - 15.08.1971, Side 28

Morgunblaðið - 15.08.1971, Side 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 15. ÁGÚST 1971 Geroge Harmon. Coxe: Græna Venus- myndin an upp skyrtuna og nærskyrt- una. Bakið á honum skyggði á lik- ið fyrir Murdock, og Mur- dock nennti ekki að standa upp en kveikti sér í nýjum vindlingi og beið þar til Mason rétti úr sér og sagði: -— Jæja, þá get- urðu tekið við honum, lautinant. Bacon og einn af mönnum hans leituðu í vösum Lorellos og innihaid þeirra varð ofurlít- U hrúga á borðinu: Tveir vasa- klútar, anar hreinn, seðlaveski, tvö eldspýtnabréf, vindlinga- boréf næstum tómt og lítil, skinn bundin bók með heimilisföngum. — Jæja, þá eruð þið komnir, sagði Mason og vék sér til hlið ar er tveir menn komu inn með samanbrotnar sjúkrabörur. Annar maðurinn var i hvítum jakka og hvítum buxum, en hinn í hvitum jakka og venju- legum buxum. Þeir réttu úr bör- unum og lyftu síðan því, sem einu sinni hafði verið Tony Lor- ello upp á þær, breiddu þunnt grátt teppi yfir hann og lyftu siðan börunum. — Jæja, hvað er nú langt síð- an i þetta sinn, læknir? -— Það mun vera eitthvað kring um tólf tímar. — Þetta sagðirðu líka um Andrada. — Já, og segi það enn. — Sams konar sár, ekki satt? —• Nei, þessi hefur hitt betur. Eftir sárinu að dæma mundi ég segja, að hlaupinu hefði verið þrýst fast á jakkann. Og þetta skot hitti hjartað — að minnsta kosti held ég það, þangað til lík skoðun hefur farið fram. — En hvað um Andrada? Hef urðu fengið eitthvað nákvæmari tima þar? — Já, vitanlega, sagði Mason. —- Einhvem tíma milli kortér yfir tíu og kortér yfir ellefu, kvöld- ið áður. Var ég ekki búinn að segja þér það, Bacon? . . . Og þar á ég ekki við nákvæmlega milli þessara tímamarka. Það gat vel verið kl. 10.16—11.14. Mason setti upp hattinn og tók töskuna sina og gekk út. Bacon kom aftur til Murdocks. Áður en hann gæti nokkuð sagt, tók Murdock upp bréfin tvö, sem hann hafði fundið í svefn- herberginu, kvöldið áður, og rétti honum þau. Bacon tók við þeim, leit á Murdock og opnaði þau siðan. Hann tók að lesa og næstum strax leit hann snöggt upp. Murdock var að slá öskuna af vindlingnum sinum og horfa á hana detta — og það gerði hann af ásettu ráði. Bacon las áfram, kippti öðru blaðinu frá hinu og augun kipruðust meir og meir saman. — Hvar náðirðu í þetta? spurði hann. — Þama inni. í skúffu undir nokkrum skyrtum. — Hvenær? — Meðan ég var að bíða eft- ir þér. Murdoek hafði þegar ásett sér þetta. Það var eina lygin, sem hann ætlaði að segja. Að öðru leyti átti sagan af þvi, sem gerð ist kvöldið áður að vera sann- leikanum samkvæm, en þetta atriði varð að koma heim við sög una. Að hans áliti skipti það engu máli, hvenær hann hefði fundið bréfið. Hefði hann sagt Baeon frá því klukkan langt gengin í þrjú í nótt, ef hann hefði afhent það sjálfur, hefði það ekk- ert gert til. Því að nú var hann sannfærður um, að á þeim tíma hefði Loreilo þegar verið dáinn. Að fara að játa nú, að hann hefði geymt bréfin i þeirri von að geta fyrst talað við Lorello, myndi bara æsa upp vonzkuna í Bacon, sem nú var heldur far in að sjatna, og verða að engu gagni. — Þú hefur sjálfsagt vilað, hvar þú áttir að leita? sagði Bacon. —• Þú gazt ekki beðið eft ir lögreglunni? Nei, ekki aldeil- is, karlinn! — Sjáðu nú til, Bacon, sagði Murdock. - Ég er orðinn hálf svekktur á þér. Ef ég hefði ekki komið til þín í dag, hefðuð þið alls ekki fundið Lorello ennþá, eða hvað? Og sennilega hefðuð þið ekki fundið hann næsta dag heldur. Þér hefur orðið þetta mik ið ágengt bara af því, að ég þurfti að tala við hann. Ég talaði við hann í gærkvöldi, af því að mér datt í hug, að kannski hef'ði hann verið sendiboðinn, sem kom með skilaboðin frá Bruno Andrada. En ég fékk lítið upp úr honum í Silfurhurðinni, og þess vegna beið ég fyrir utan. En gallinn var bara sá, að und- ir eins og hann kom út náði ein- hver í hann, sem var i stórum svörtum bíl, og ég náði ekki tali af honum. Hann þagnaði og það var hörkusvipur um munninn, en röddin var enn þolinmóð. — Georg Damon átti þennan bil, sem sótti hann. Ég skal segja þér, hvernig ég vissi það og svo það, sem gerðist i gærkvöld, þeg ar ég fór að hitta hann. En óg kæri mig ekki um að láta hvæsa framan í mig, og ég ætla held- ur ekki að fara að karpa við þig. Mér er fjandans sama þó að þú sért vondur. Ég ætla að segja Dömur - Hainarf irði Hef opnað snyrtivöruverzlun að Strandgötu 33. Sigurbjörg Ármannsdóttir. Húsvörður óskast til starfa við Gagnfræöaskóla Garðahrepps. Umsóknir um starfið sendist undirrituðum fyrir 27. þessa mánaðar. Sveitarstjórinn í Garðahreppi. m g g SÍÐBUXUR ^ margar gerðir, allar stærðir. h TÍZKUSKEMMAN SMEKKBUXUR STUTTBUXUR 3g| fjölbreytt litaúrval. I TÍZKUSKEMMAN 5<S27 — I.illi litli < r byrjaður að tala. Hann plataði mig til að kaupa jjessa Inixnadragt. þér þetta, en ég get svo sem al- veg eins vel farið í skrifstofuna til saksóknarans og . . . —Nei, þú segir mér það. Murdock dokaði við. Hálsinn á Bacon var enn rauður. Hann gekk í litlum hring og var niður- sokkinn í hugsanir, ef af útliti mátti dæma. Hann japlaði eitt- hvað og kom svo aftur. — í enn eina sekúndu glápti hann á Murdock, en svo var eins og hann píndi sig til að brosa. — AMt i lagi, sagði han. — Já, víst er ég ergilegur. Og lika dálítið tortrygginn. Þú varst hér ekki lengur en stundarfjörðung seinnipartinn í dag — nema þú hafir verið að ljúga að mér. En þú fannst samt þessi bréf. En hvers vegna leitaðirðu ekki fyrst í skrifborðinu? Það var þó rétti staðurinn til að hefja leit- ina á. En haltu áfram. Láttu mig heyra alla söguna, en sjáðu til þess, að þú hafir svarið við þessu þegar þú kemur með hana. Murdock hóf söguna. Hann minntist á það, að Gail Roberts hafði fyrst nefnt Tony Lorello á nafn og að han hefði komið heim til prófessorsins. Hann sagði, að þegar hann var að mynda málverk Rogers Carroll, hefði hann heyrt einhvern á gangi úti fyrir, sem fór þó án þess að koma inn, og þegar hann leit út um gluggann, sá hann Tony Lorello flýta sér eftir götunni. — Ég komst að því, hvar hann vann og fór þangað í gærkvöld og fékk Louise Andrada með mér, ef hún skyldi þekkja hann síðan hann kom í húsið. Það hafði hún og þekkti hann aftur. Ég talaði því við Lorello. — Þú sagðir mér ekkert um Lorello, sagði Bacon. Ég á við þetta, að hann hafi hætt við að koma inn til Carrolls. — Heyair það undir að leyna upplýsingum? - Sleppum því, sagði Bacon. — Hefði ég verið klókur, hefði ég komizt að þvi, að Loreilo kom heim til Andrada — ekki svo að skilja, að það hefði neinu breytt. En haltu áfram og segðu mér eitthvað meira. Murdock sagði honum svo það, sem eftir var sögunar. Hann sagðist hafa komið til að leita í herbergjunum og hvemig hann hefði komizt inn. Sagðist hafa eytt hálftíma í að rannsaka skrifborðið, en ekki fundið neitt og hafi ætlað inn í svefnherberg ið, þegar hann heyrði einhverja mannaferð frammi. Síðan hefði hann siloppið út bakdyramegin og loks sagði hann frá þvi sem gerzt hafði eftir það. Bacon kallaði á fingrafara- manninn sinn. — Náðu í þessa peru úr standlampanum, sagði hann. — Fingraförin hans Mur- docks eiga að vera á henni. Kannski einhver önnur í viðbót. — Orsatti og Feeney, sagði hann við borgaraklæddu lög- reglumennina. Athugið þið hús- ið baka til og leiitið þið vel í stig um og úti í sundinu. Svo sneri hann sér að Murdoek. — Peran var í - ég á við, að hún hafi verið skrúfuð í aftur þegar þú kveiktir í dag? — Já. Hrúturinn, 21. marz — 19. apríl. Fólk verður að fara sínar leið, þrátt fyrir haK'smiiui þína. Nautið, 20. apríl — 20. mai. ÆttiiiK.iar þínir eru þér eitthvað erfiðir. Tvíburarnir, 21. niaí — 20. júnl. I»ú fréttir eitthvað RaK'nirKt þessa daRaiia. Krabbinn, 21. júni — 22. júlí. i»að skaðar ekki viðsklpti að sýna saimiiinuvilja. Ljónið, 23. júlí — 22. ágúst. I»ú færð áRætis hugm.vnd. Meyjar, 23. ágúst — 22. septeniber. I»ú a*ttir að sleppa einhverjum smáatriðum. Vogin, 23. september — 22. október. KÍRÍiiRÍrui þfu K'<‘tur orðið þér hættuleB:. Sporðdrekinn, 23. október — 21. nóvember. Nýmæli er ekki það versta, sem upp kemur. Boginaðiirinn, 22. nóvember — 21. desemlier. I»ú ættir að suúa þér að því, sem leikur í liendi þér. Steingeitin, 22. desember — 19. janúar. I»ú verður að vera dálitið þýður þessa stundiua. Vatnsberinn, 20. janúar — 18. febrúar. Ila.ltu áfram ágpfttu starfi. Fiskarnir, 19. febrúar — 20. marz. læyfðu iettiiiKjtiiium að vera meira með en þá heftir ipert.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.