Morgunblaðið - 06.10.1971, Page 2

Morgunblaðið - 06.10.1971, Page 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 6. OKTÓBER 1971 Lúdvík Jósefsson í New York: Getum ekki lifað ef þorskurinn fer „Yrðum að flytjast til einhvers annars lands" LCÐVÍK Jóscfsson, sjávarútveg's ráðherra sagði í gær í viðtali í aðalstöðvum Sameinuðu þjóð- anna í New York, að íslendingar hygðust nota dómstóla og dálitla sálfræðiþekkingu til þess að framfylgja útvíkkun fiskvelðl- lögsögunnar, að því er segir í AP frétt frá New York. Sjávarútvegs ráðherra kom við í New York á heimleið frá fundi Alþjóðabank- ans í Washington. Lúðvik Jósefsson sagði, að varð Jóhann Hafstein. skip mundu sigla með landhelgis brjóta til hafna þar sem þeir yrðu dæmdir af dómstólum til að greiða sektir. Hann játaði að smáþjóð eins og íslendingar gæti ekki sigrað ef afismunar yrði neytt af stærri þjóðum og fall- byssubátar yrðu sendir til þess að vernda erlend fi»kiskip. Sjávarútvegsráðherra sagði að ef það gerðist mundu íslenzku varðskipin einfaldlega bíða þang að til minni skipin jrrðu að færa sig frá hinum stærri tál þess að leita að betri fiwkimiðum. I>á mundu varðskipin láta til skarar skríða. Lúðvík Jósefsson sjávarútvegs ráðherra lagði þunga áherzlu á nauðsyn þess að íslendingar færðu út fiskveiðilandhelgi sína, það yrðu þeir að gera ef þeir ættu að lifa. Fiskur og fiskafurð ir væku 80—90% útflutnings landsmanna. Fyrir nokkrum árum var helm ingur útflutnings íslendinga síld og sildarafurðir, sagði Lúðvík Jós efsson, en síldarútflutningurinn hefur næstum því þurrkazt út á síðari árum vegna ofveiði. Ef sagan endurtekur sig með þorsk inn, sem íslendingar veiða nú mikið, getur þjóðin ekki lifað, sagði hann. „Við yrðum að flytj ast til einhvers annars lands til þess að lifa,“ sagði Lúðvík Jósefs son. Lúðvík Jósefsson hvatti mjög eindregið til þess að Island fylgdi hlutleysisstefnu, óháðri valdablokkum. Hann kvað flokk sinn andvígan aðild Islands að NATO og berjast fyrir brottflutn ingi bandaríska liðsins frá Kefla- vik. Hann kvað slíka stefmu nauðsyitlega til að varðveita Framh. á bls. 21 Nikulás Jónsson, fyrr- um skipstjóri, látinn A MÁNUDAGSKVÖLD lézt í Reykjavik Nikulás Jónsson, fyrr- um skipstjóri og vigtarmaður. Nitoulás var í hópi kunnustu togaramanna um áratugasikeið. „Veik og ráðvillt ríkis- stjórn á íslandi“ Jóhann Hafstein flytur ræðu á fundi Sjálfstæðisfélaga í kvöld SJÁLFSTÆÐISFÉLÖGIN í fteykjavík efna til fundar í kvöld í Súlnasal Hótel Sögu og hefst hann kl. 20.30. Formaður Sjálfstæðisflokks- ins, Jóhann Hafstein, flytur ræðu er hann nefnir: „Veik og ráðvillt ríkisstjóm á Islandi." Fundurinn í kvöld er hinn fyrsti sem Sjálfstæðisfélögin efna til á nýbyrjuðu starfsári. Fundurinn er öllum opinn og er óskað eftir þvi, að fólk mæti stundvislega, en húsið er opnað kl. 20. Á árumim fyrir strið var hann skipstjóri á Otri, og 1938-9 var harm fiskiskipstjóri á nýjum brezkum togara. Er striðið skaM á var hann skipstjóri á Hauka- niesi, en að sitriði loiknu var hann um árabil með Siglunesið og sið- an með minni skip — Sandfel! og Brynju. Voru liðin 50 ár í fyrra frá því að hann braut- skráðist úr Stýrimannaiskólan- uim. Eftir að Nikuliás fór í land var hann vigtanmaður Reykjavikur- hafnar um 15 ára skeið, en hálft annað ár er frá því að hann hætti störfum. Nikulás veiiktist skyndilega á mánudag, og var fluttur i sjúkra- hús, þar sem hann lézt um kvöldið. Eftirlifandi kona hans er Gróa Pétursdótttr, fyrrum borgarfull- trúi. Böm þeirra eru öll upp- kotnin. í slendingur byggir upp fiskveiðar Indónesíu HILMAR Kristjónsson, sem að undanförnu hefur verið for stöðumaður fiskveiðideildar FAO (Matvæla- og landhúnað arstofnunar Sameinuðu þjóð- anna) í Róm, hefur rní verið skipaður yfirmaður eins mesta viðreisnarstarfs á sviði fiskveiða, sem unnið hefur verið á vegum þróunarsjóðs SÞ. Hefur Hilmari í því skyni verið veitt tveggja ára frí frá störfum í Róm. Frá þessu nýja embætti Hilmars Kristjónssonar er skýrt í síðasta hefti tímarits- ins Fishing News Internati- onal, og segir þar að hann hafi tekið við starfinu 1 júlí. Verkefni hans er að byggja upp frá rótum fiskveiðar Indó nesíu, en vitað er að þar á slóðum eru mjög auðug fiski mið. Á eyjum Indónesiu búa um 120 milljónir, og eru eyjarnar meðal þéttbýlustu landsvæ.ða heims. Um 700 þúsund fiski- menn starfa þar við frum- stæðusttx skilyrði, og stunda veiðar á segl- og árabátum. Hilmar Kristjónsson Er heildaraflinn um 1,2 millj. tonna árlega. Ætlunin er að kenna þessum fiskimönnum nútíma veiðiaðferðir, og gera tilraunir með togveiðar, svip aðar tilraunum, sem gerðar voru á Síamsflóa fyrir nokkru með góðum árangri. Kennsla í veiðitækni og meðferð veið arfæra fer fram í fiskveiði- háskólanum í Djakarta og í sjómannaskóla í Tegel. Áætl aður kostnaður við þessar framkvæmdir eru 2,2 milljón- ir dollara, og leggur Indónesíu stjóm fram 1,2 milljónir, en Sameinuðu þjóðimar 1 millj. Indónesar útvega 6—8 fiskiskip til framkvæmdanna, og verða þau um 80 —140 tonn að stærð. Eiga þau að vera búin öllum nýjustu veið- arfærum og fiskleitartækj- um. Hilmar Kristjónsson hefur undanfarin 19 ár sitarfað á vegum FAO, en var áður for- stjóri Síldarverksmiðja ríkis- ins á Siglufirði um skeið. I Indónesiu fær hann sér til að stoðar fjölda sérfræðinga, og einnig mun hann starfa þar sem sérlegur ráðgjafi fiski- málastjómar landsins. Mun hann skipuleggja veiðamar og stjórna framkvæmdunum á vegum SÞ næstu tvö árin. Gunnar Guðmundsson forstjóri Siníóníuhljómsveitar fsiands George Cleve og Ámi Kristjánsson tóniistarstjóri Ríkisút- varpsins. Fyrstu tónleikar Sinfóníunnar á fimmtudagskvöld Stjórnandi er George Cleve Einleikari Jörg Demus FYRSTU tónleikar Sinfóníu- hljómsveitar íslands á þessu starfsári verða haldnir í Háskóla- bíói á fimmtudagskvöld. Stjóm- andi er George Cleve, en einieik- ari Jörg Demus. Á efnisskrá verður Forleikur að Rúslan og Lúdmíla eftir Glinka, Píanókonsert nr. 21 C-dúr K 467 eftir Mozart og sinfónía nr. 4 í e-moll op. 98 eftir Brahms. George Cleve, hljómsveitar- srtjóri kom hingað í febrúar til að stjórma og mun í þetta skipti dveljast hér í sex vikur og stj ároa fjórum tónleikum. Cleve er fæddur í Austurríki, bandarískur þegn, og er 34 ára gamall. Hann stundaði alhliða nám við Mannes tónlistarskólann í New York. Frá 1954—63 var hann nemandi Pierre Monteux auk þess að vera aðstoðarhljóm- sveitarstjóri hjá honum í Han- sock, Maíne. Hann vair og um skeið aðstoð- arhijómsveitairstjóri hjá Szell í Cleveland. Hefur hann stjórnað öllum helztu hljómsveitum Bandaríkjannia og víðair. Hann var fastráðinin aðalhljómsveitar- stjóæi Sinfóniunnar í St. Louis 1967—68 og aðalhljómsveitar- stjóri Simfónáuhljómsveitarinnar í Winmipeg 1968—70. Hanm býr í Berkeley í Kali- forníu, og stjómar þax Berkeley Firee Orchestra, sem er dálítið nýstárleg hljómsveit, vegna þess, að þar fær emginn neitt kaup. Um hana sagði hann: — Mér er ljúft að geta þess- arar hljómisveitar. Við hama stairfa mest 70 manms, en minmst 20—30. Allir hljóðfæraleikairaTnLr gefa vilkulega tvö kvöld af tirna sín- um til leiiks. Við óskum ekki eftir að vera á launum og erum algerlega óháðir pemingum þess vegna. Okkur hefur nefnilega lengi verið það ljóst, að ef ein- hver fer að gefa fé til starfsemá okikar, vilja þeir um leið fara að stjóma ökkur, en það viljum við nefnilega ekki. Með þessari hljómsveit hef ég starfað í sjö mánuði og líkar lífið vel. — Ég hlafcka til að starfa með Sitnfóníuhljómsveit íslands. Hljóð- færaleikarar henmax hafa góða þefckingu, og ég veit, að okfcur gengur starfið vel. Ég er ekki álitinn neitt blíður, en ég heimita mikið af samstarfsmönnum mán- um án þess að vera frekur. Tónlistim er mannleg og með því að vera dálítið mannlegur sjálfur, vænti ég þess að ná góð- um árangri með ykfkair fólki. Það er erfitt að komaist inm úr stoelinml á íslendingum, en þegar Jörg Demus þangað er komið, finnst mér þeir töfrandi fólk. Uppáhaldstónskáld eru ekki til í mínum augum, kannski finmsit mér einm núlifandi stjórnandi vera betri en annar, em fyrst og fremst hugsa ég um tónleika, sem ég hef verið viðstaddur og skara framúr, því að þeir eru fjarri því að vera allir jafngóðdr. Einleikari með hljómsveitinni er Jörg Demus, sem er Austur- ríkismaður, fædur 1928. Hamm. stundaði nám við Tónliistairhá- skólanm í Vínarborg, hjá Krip», Karl Walter og fleirum. Fram- haldsnám í píanóleik stundaði hann m. a. hjá Gieseking, Edwin Fischer og Wilhelm Kempff. Hainm lék fyrst opimberlega í Vin 14 ára gamall. Síðam hefur hanm leiikið víða um heim með flestum frægustu hljómsveitarstjórum heims. Busoni-verðlaunin hlaut hann 1956 og Harríet Cohen-verð- launin 1958. Telur Wilhelm Kempff í röð fremistu píamóleik- ara heims. Árásarmennirnir ófundnir RANNSÓKN árásarmálsins að- fararnótt sunnudags, er tvelr menn réðust á karl og konu, er voru á gangi á Grjótagötu, er enn haldið áfram. Enn hefur ekk ert komið fram, er bendir til hverjir árásarmennimir eru.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.