Morgunblaðið - 06.10.1971, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 6. OKTÓBER 1971
5
Fi á vinstri: Ingólfur Guðbrands son forstjóri, Sigrún starfsstúlka hjá Útsýn, Ricliardo Botet Moro
forstjóri og Ottó Jónsson aðalfar arstjóri Útsýnar á Costa del Sol.
Franco
náðar
fanga
Madrid, 1. október — NTB
GENKKACISSIMO Franco, ein-
ræðisherra Spánar, ininntist þess
í dag, að 35 ár eru liðin frá valda
töku hans.
1 tilefni dagsins náðaði Franco
alla fanga á Spáni, sem eru að
afplána 6 mánaða eða styttri
fangelsisdóma og mildaði dóma
yfir öllum, sem afplána lengri
dóma, nema þeirn, sam dœmdir
hafa verið til dáuða, en þó
breytti hann dómum yfir nokkr-
um þeirra i lifstíðarfangelsi.
Þetta á bæði við um pólitíska
fanga og afbrotamenn. Franco
Fjöldadómar
í Guineu
Utsýn býður vikulegar
vetrarferðir til Spánar
Ferðaskrifstofan flutti liðlega
2000 manns þangað í sumar
Á BLAÐAMANNAFUNDI, sem
Ferðasikrif Sitofan Útsýn boðaði t'il
í gær kom fram að ferðaskrif-
stofan hyggst bjóða upp á vi/ku-
legar ferðir tii Costa del Sol frá
því í byrjun marz. Ingóltf'ur Guð-
brandsson forstjóri Útsýnar gat
þess, að vaxandi áhugi virtist
vera fyrir því að ferðasit til sól-
arlanda á vetrum og þvi væri
bryddað upp á þessum ferðum
og einnig hefði það komið til að
mörg fyrirtæki í Reykjavík og
úti á lanidi væ*ru að athuga með
orlofsferðir á vetrum fyrir starfs-
fólk sitt. Frá því í marzbyrjun
er sumarveður á Costa del Sol
og hitinn venjulega um 20—30
gráður. Um þessar mundir
standa yfir samningar milli Út-
sýnar og Flugfélags íslands um
flutning farþega til Spánar yfir
vetrartímamn.
Á blaðamannafundinum var
staddur á vegum Útsýnar, Rich
ardo Botet Moro, framkvæmda
stjóri Sofico S. A., sem er e'tt
stærsta almennings hlutafélag
Spánar og hefur það reist hótel-
og íbúðabygginigar viðs vegar á
Costa del Sol og hefur nú til
ráðstöfunar um 7000 gistirúm, en
eftir 3 ár er áætlað að fyrirtækið
hafi gistrúm fyrir 20000 manns á
ári. Útsýn skipti við Sofico í sum
ar og hefur nú endurnýjað samn
ing sinn til næsta árs, en að með
altali voru um 300 manns í allt
sumar á vegum Útsýnar á Costa
del Sol, en alls hefur ferðaskrif-
stofan annazt ferðir liðlega 2000
Islendinga þangað í sumar.
Abidjan, 4. október. NTB.
DÓMAR voru kveðnir upp um
helgina yfir mörg hundruð
manns, sem hafa verið ákærðir
fyrir þátttöku í samsæri gegn
stjórn Vestnr-Afríkuríkisins
Guineu. Dauðadóma hefur verið
krafizt í réttarhöldum gegn
sakborningunum. Útvarp Guineu
hefur ekki skýrt frá dómiinum,
en segir aðeins að skiptar skoð-
anir séu um þá.
Dómarnir ea-u kveðnir upp
sameiginlega af löggjafarsam-
kundum 30 verkalýðs- og flokks-
félaga Guineu. Ágreiningur er
að sögn útvarps Guineu í kvenma-
félögum og verkalýðsfélögum um
það, hvort dæma Skuli alla til
dauða. Löggjafarsamikundur
æskulýðsfélaga og heraflans
krefjast þess hins vegar, að allir
hinna ákærðu verði dæmdir til
dauða.
Mairgir útlendinigair og fyrrver-
aindi ráðherrar eru meðal sakborn
inga. Ekki er enn vitað hve
margi-r hafa verið leiddir fyrir
rétt, en ferðamenn, sem hafa
komið til Abidjan, höfuðborgar
nágrannalandsins Fílabeinsstrand
arininar, segja að þeir skipti þús-
undum. Þeir eru ákærðir fyrir
þátttöku í tilraun til innrásar í
Guineu 22. nóvember í fyrra.
Fulltrúar í löggj afarsamkundu
heraflaras hafa hótað að skila
vopraum sínum og einikenniis'bún-
ingum ef sakborningar verða
ekki dæmdir til dauða.
Sekou Touré forseti hefur
sakað Vestur-Þýzkalaind, Frakk-
land, Portúgal, Bandaríkin,
Senegal og Fílabeinsströndina um
að hafa verið viðriðinn samsæ-rið.
er 78 ára að aidri. Hann hélt
ræðu i dag i höll sinni, þar sem
hann lýsti því yfir, að hann
myndi stjórna landinu svo lengi
sem sér entist líf og heilsa.
Jíorðurbraut H1
Hafnarfirði
SÍMl 52001
EFTIR LOKUN 50046
Lausir bílar í dag
Ódýrari
en aórir!
SHOBH
LEIGAH
AUÐBREKKU 44-46.
SlMI 42600.
Platignum
penline
texti og teikning
verður skýrari og fallegri, ef menn
nota
PLATIGNUM PENLINE-
TÚSSPENNANN
Hann er með nylon-oddi, sem gerfr
hann í senn mjúkan, handhaegan
og-mjög endingargóðan.
Fæst i plastveskjum með 5—15
litum i veski.
Stakir litir — allir litir —
jafnan fyrirliggjandi.
FÁST I BÓKA- OG RITFANGA-
VÉRZLUNUM UM LAND ALLT,
<§>
ANDVARI HF
umboðs og heildverzlun
Smiðjustíg 4. Sími 20433.
i