Morgunblaðið - 06.10.1971, Qupperneq 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 6. OKTÓBER 1971
IA - Þróttur;
V íkingur - iBA
*
drógust saman í Bikarkeppni KSI
Fjórir leikir um helgina
— kemur hingaó í boði borð-
tennisklúbbsins „Arnarins“
— leikur hér við beztu borð-
tennismcnn landsins og
kennir íþróttina
MIKÍÐ verður nm að vera I
Bíkarkeppni KSl urn næstu
toelgi, en þá munu fara fram
fjórir leikir og þar af þrir í
Reykjavík. Lokakeppnin hófst
iim aíðustu helgi og voru þá
leiknir þrír leikir og sigurveg-
arar úr þeim urðu IBA, sem
vann iBl, Þróttur, Reykjavík,
sem vann Þrótt, Neskaupstað og
VaJur, sem vann Vöisunga á
Uúsavík.
JEftir er að Ieika tvo leiki úr
þeirri umferð, sem dregið var í
fyrir skömmu og fara þeir báð-
ir fram um helgina. Fram og
KR leika á Melavellinum kl.
15.00 á laugardaginn og IBK og
Þessa mynd tók Sveinn Þormóðs son er dregið var í fyrstu um-
ferð lokakeppninnar. Ingvar N. Pálsson, varaformaður KSl, hef-
ur dregið. Jón Magnússon, íormaður mótanefndar KSl, fylgist
með og Hörður Felixson, einn af stjórnarmönnum KSÍ, skráir
dráttinn
3 skemmtilegir leikir
- í Reykjavíkurmótinu í kvöld
1 KVÖLD fara fram þrir leikir
í meistaraflokki karla í Reykja-
•vikurmeistaramótinu í hand-
knattJeik og má búast við þvi
að aliir verði þeir hinir skemmti-
Segustu, en handknattleiksmenn
okkar virðast hafa búið sig und-
5r keppnistímabilið aí kostgæfni
og er allur annar og betri svip-
ur á leikjum liðanna nú en oft
hefur verið íyrst á haustin.
Kann það að ráða miklu um, að
IsJandsmótið mun byrja mun
fyrr nú en venjulega, eða um
næstu mánaðamót, og taka
skemimri tima en vant er.
Leikirnir í Laugardalshöilinni
betfjast kl. 20.15 og verða þeir
þessir:
Valiir — Víklngur
KK — ÍK
Þróttur — Ármann.
Dómarar í fyrsta leiknum
verða HUmar Ólafsson og Sveinn
Valur Benediktsson og Einar
Hjartarson og þriðja leiknum
HUmar Ólafsson og Sveinn
Kristjánsson.
Fróðlegt verður að sjá hvern-
ig viðureign Valsmanna og Vik-
inga þróast, en bæði liðin hafa
sýnt góða leiki, það sem af er
mótinu og ekki tapað. Leikur KR
og IR ætti einnig að verða jafn,
en KR-ingar komu á óvart með
góðri frammistöðu sinni gegn
Fram á surmudagskvöldið. Ár-
menningar verða að teljast sig-
urstranglegir i leiknum við
Þrótt, en Þróttarar eru þó í
greinilegri framför og gætu
komið á óvart I leiknum.
NÚNA um miðjan mánuðinn er
væntanlegur til landsins einn
snjallasti borðtennisleikmaðiir
Amertku, George Braithwaite.
Kemur hann hingað í boði borð-
tennisklúbbsins Arnarins, en
milligöngu um komu hans hing-
að annaðist Grétar Norðfjörð,
hinn kunni knattspyrnudómari,
sem starfar nú sem lögreglumað
ur hjá Sameinuðu þjóðunum.
George Braithwaite er fæddur
i Guyana 1937, en fluttist til
Bandarikjanma árið 1959. Hann
var svokallaður sunnudagsborð-
tennisleikari, unz hann hóf störf
hjá Sameinuðu þjóðunum, en þá
tók hann að æfa og keppa fyr-
ir alvöru. Árið 1964 tók hann
fyrst þátt í meistaramáti Banda-
rikjanna og hefur verið New
York-meistari siðan. Má geta
þess að nú i ágúst sl. vann hann
Suður-Amerikumót og annað
mót á Jamaica, bæði í einliða-
og tviliðaleik. Þá hefur Braith-
m
Víkingurinn í Víkingsliðinu, Guðjön Magnússon,
um við IK á sunnudaginn
' '
skorar í leikn-
Kínaförunum
Breiðablik leika i Keflavík kl.
15.00 á sunnudaginn.
I gær var svo dregið um
hvaða lið skyldu mætast i næstu
uferð bikarkeppninnar og dróg
ust þau þanníg saman:
lA — Þróttur.
Víkingur '— iBA
ÍBV — sigurvegari i leik KK
og Fram.
Valur — sigurvegari í leik
IBK og Breiðabliks.
Tveir þessara leikja munu
fara fram um helgina. Á Akra-
nesi leika heimamenn við Þrótt
og hefst leikurinn kl. 16.00 á
siinnudag og kl. 15.00 á sunnu-
daginn leika svo Víkingur og
IBA á Melavellinum.
George Braithwaite umkringdur ungum Kinverjum í hinni frægu Kinaför í fyrra.
Einn af bandarísku
waite keppt við beztu borðtenn-
isleikmenn Kanada og nýlega
tok hann þátt í kanadíska meist-
aramótínu sem gestur, en þar
kepptu margir mjög góðir borð-
tennisieikmenn. Ennfremur má
geta þess að Bretar telja Braith-
waite einn af sjö beztu borð-
tennisleikmönnum sem þar hafa
keppt og nýlega var hann kos-
inn þriðji bezti leikmaður
Bandarikjanna.
Braithwaite í keppni.
George Braithwaite var einn
af bandarísku borðtennisleik-
mönnunum sem fóru i hina
frægu Kínaför í fyrra, en þá
var hann einn af landsliðsmönn-
um Bandaríkjanna sem tóku þátt
í heimsmeistarakeppninni í borð-
tennis, sem fram fór í Japan.
Þar keppti hann við þrjá beztu
borðtennlsleikmenn Kína og sigr
aði tvo þeirra.
Grétar Norðfjörð, sem er mik-
ill unnandi borðtennisiþróttar-
innar, er persónulega kunnugur
George Braithwaite, og leitaði
hann eftír þvi hvort hann væri
fáanlegur til Islandsfarar, bæði
til þess að keppa þar og eins
til þess að kenna islenzku borð-
tennisfólki. Fékk Bandarikja-
maðurinn strax mikinn áhuga á
förinni, enda hefur hainn gert
nokkuð af því að þjálfa unga
leikmenn, og hyggst snúa sér
að þvi í vaxandi mæli i fram-
tíðinni. Leitaði Grétar fyrir-
FH -
Haukar
1 KVÖLD íer fram i íþróttahúsi
Hafnarfjarðar við Strandgötu,
leikur milli FH og Hauka í
Reykjanesmótinu i handknatt-
leik. Má búast þar við skemmtí-
legri viðureign, eins og ævin-
lega þegar þessi lið mætast.
Leikkvöldið í Hafnarfirði hefst
kl. 20.00 og fara fyrst fram tveir
leikir i 2. flokki karla. Haukar
og UMFN leika og síðan Breiða-
blik og Stjaman. Að þessum
leikjum loknum hefst leikurinn
í meistaraflokki.
greiðslu hjá ÍSl, en að ráði varð,
að borðtennisklúbburinn Öminn
tæki málið að sér og stæði fyr-
ir heimsókn Bandarikjamanns-
ins. 1 borðtennisklúbbnum Ern-
inum eru flestir af beztu borð-
tennisleikmönnum landsins, og
mikill áhugi ríkjandi þar um
vöxt og viðgang iþróttarinnar
hérlendis.
Ekki er endanlega ákveðið
hvemig keppni Braithwaite verð
ur hagað hériendis, en þó er
ákveðið að hamn mun keppa við
alla okkar beztu borðtennisleik-
menn. Verður fróðlegt að íylgj-
ast með hvemig þeim vegnar,
en hingað til hafa Islendingar
ekki keppt við útlendinga í borð-
tennis og þvi lítið vitað hvemig
þeir standa.
Urslit í
H flokki
1 KVÖLD fer fram úrsiitaieik-
urinm í II flokki ísiamdsmótsims
í kmiattspymu og mætast þá KR
og Fraim á Melavellimum. Hefst
leikurinm kl. 20,30 og varður þvi
leikið í flóðljósum og mum þetta
fynsti leikuximm í íslamdsmóti
sem fraim fex í flóðljósum.
Búast má við imjög jöfmum og
spemmamdi leik, þar sem í báðum
liðunuim eru miargir mjög eftai«
legir leikmenn, sem vakið hafa
á sér athygli fyrir getu í sumar.
í KR-liðinu imá t. d. nefma þS
Hauk og Björm Ottesen og Atla
Héðimsson og hjá Fram Gummar
Haraldssom, en allir þessir piltar
léflcu með meistaraflokkum lið-
anma í sumar.