Morgunblaðið - 15.10.1971, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 15. OKTÓBER 1971
Nýr yfirlögregluþjónn
rannsóknarlögreglu
BORGARRÁÐ hefur að tillögu
yflrsakadómara ráðið Magnús
Egrgertsson í starf yfirlögreglu-
þjóns rannsóknarlögreglunnar í
Reykjavík frá 1. nóvember n.k.
Magnús, sem er 64 ára, á lang-
an og farsælan lögreglumanns-
feril að baki. Hann tekur nú við
af Ingólfi Þorsteinssyni, sem læt
ur af störfum yfirlögregluþjóns
fyrir aldurs sakir.
Magnús Eggertsson er fæddur
8. marz 1907 í Hjörsey, Hraun-
hreppi í Mýrasýslu, sonur Magn
Magnús Eggertsson.
úsar Eggerts Magnússonar
bónda þar og konu hans Guðríð-
ar Guðmundsdóttur.
Magnús varð varðstjóri í lög-
reglunni í Reykjavík 1930 og
gekk i rannsóknarlögregluna
1941. Frá 1. janúar 1969 hefur
hann verið aðstoðaryfirlögreglu-
þjónn rannsóknarlögreglunnar.
LEIÐRETTING
MEÐ frásögn af „buslinu",
buisaskím í Mermtaskólanum
við Tjömina, sem birtist í blað-
inu í gær, var einnig birt mynd
frá sarns konar athöfn nem-
enda í M enntaskólanum við
Hamrahlíð, ,,jambei'ingunum“,
sem fram fóru i Öskjuhlíð á
laugardagskvöidið. Vegna mis-
taka féU myndartextinn niður
og er hér með beðizt velvirð-
ingar á því.
Ný pósthús rísa á Austfjörðum
Egilsstöðum, 12. október.
SENN er lokið byggingu pósts-
og símstöðvarhúss á Egilsstöð-
um. íbúð stöðvarstjóra, sem erá
efri hæðinni, er þegar tilþúin, en
áætlað er að afgreiðsla pósts og
síma verði tilþúin 1. feþrúar.
1 kjallara hússins eru tvö her-
bergi, sem ætluð eru fyrir starfs-
menn símstöðvanna, sem þurfa
að koma til eftirlits og við-
gerða og eru þau höfð til þess að
lækka kostnað við ferðalög úti
á landi.
Rækjuveiðar á Vestf jörðum;
Afli tregur og smá r æk j a
í Arnarfirði — Heildarveiði báta
takmörkuð við 6000 kg á viku
í ísafjarðardjúpi
RÆKJUVEIÐAR í Amarfirði
hófust 15. september sl., og stund
uðu 11 bátar veiðamar í sept-
ember. Heildarafli á þeasu tíma-
bili varð 38.7 lestir. Afli var yfir
leitt tregur og rækjan mjög smá.
Aflahæstu bátarnir voru með
rösklega 5 lestir í 11—13 róðrum.
í fyrra hófust rækjuveiðar í
Þeir hlutu f lest atkvæði
Rætt við séra Árna Pálsson og
séra Þorberg Kristjánsson
MORGUNBLAÐIÐ sneri sér
til prestanna tveggja, sem flest
atkvæði hhitu í prests-
kosningunum í Kópavogi i
í hvoru kjördæmi. Fyrst sneri
Morgunbl. sér til Árna Páls-
sonar, sem hlaut flest at-
kvæði umsækjenda um Kárs-
nesprestakall.
— Ég skal vera stuttorð-
ur. Ég er í senn undrandi og
þakklátur yfir þvi mikla fylgi
sem ég hlaut, og einnig vil
ég þakka meðframbjóðendum
minum fyrir drengilega fram
komu meðan á kosningaundir
búningi stóð. Á þessari stundu
er mér efst í huga viðskiln-
aðurinn við sóknarbörnin
vestra. Þar þjónaði ég með
frændum og vinum, sem hafa
sýnt mér og konu minni ó-
venjumikinn trúnað með því
að fela okkur mörg ábyrgðar-
míkil störf. Ég kveð þá með
söknuði.
Hins vegar má öllum vera
ljóst, að þegar maður leggur
út í tvísýna kosningu gegn
glæsilegum og gegnum fram-
bjóðendum, þá blasir sigur-
inn engan veginn við fyrir-
fram. Því heldur maður
áfram sínum eðlilega starfa
í heimabyggðinni og það höf-
um við hjónin gert. Og nú
þegar líður að vetri finn ég,
að ég þarf umþóttunartíma
til að komast í starfsaðstöðu
í þeirri sókn, sem ég væntan-
lega kem til með að vera skip
aður í, þar sem ég hef eins
og ég sagði áðan emgar ráð-
stafanir gert.
En ég vænti mikils af sam-
starfinu við séra Þorberg
Kristjánsson, væntanlegan
starfsbróður mimn í Kópa-
vogi, og hlakka til viðkynn-
ingarinnar við sóknarbörn
mín. Hvernig svo sem at-
kvæðin hafa fallið er það min
heitasta ósk og bæn að söfn-
uðurinn komi heill til starfa,
þegar þar að kemur, og ég
vænti þess að Kópavogur
muni ekki skiptast svo mjög
í tvær heildir við það að fá
tvo presta i afmörkuðum
prestaköllum.
Þá náði Morgunblaðið tali
af séra Þorbergi Kristjáns-
syni, sem atkvæðahæstur varð
umsækjenda um Digranes-
prestakall. Hann sagði:
— Jú, ég er að sjálfsögðu
mjög ánægður með kosninga
úrslitin. Þau eru skýr, þótt
munurinn á atkvæðatölu
minni og næsta manns sé llt-
il. Þess ber að gæta, að um-
sókn mín um Digranespresta
kall átti sér stuttan aðdrag-
anda, og ég þekkti þar tiltölu
lega fáa fyrir, þótt ég ætti
þar nokkra persónulega vini.
En þegar ég fór að ganga
um bæinn og berja að dyr-
um, var mér yfirleitt tekið
af mikilli alúð og úrslit kosn-
inganna sýna, að sú alúð var
ekki yfirborð eitt. Mér þykir
bara leitt, að mér gafst ekki
timi til að heimsækja nema
nokkurn hluta af íbúum
prestakallsins, en vonandi
kemst ég í persónuleg tengsl
við þá sem flesta áður en
langur tími líður.
Þetta prestkosningafyrir-
komulag er auðvitað vand-
ræða fyrirbæri, en ég varð
ekki var við annað en allt
væri sæmilegt varðandi kosn-
ingaundirbúninginn. Er ég
þakklátur félögum mínum,
sem með mér sótfcu fyrir
drengilegan leik og vona að
stuðningsmenn þeirra sætti
sig við orðinn hlut. Nú var
kosningin að vísu ekki lög-
mæt, þannig að veitingarvald-
ið er í höndum kirkjumálaráð
herra, en ég geri ráð fyrir að
þeirri hefð verði fylgt að
veita þeim, er flest atkvæði
hlýtur.
Ég á að sjálfsögðu mikið
Framhald á bls. 21.
ArnarfirÖi 21. september, og öfl-
uðu 13 bátar þá 47.6 lestir.
Frá Drangsnesi og Hólmavík
stunduðu 5 bátar rækjuveiðar í
september og öfluðu þeir sam-
tals 24.3 lestir. Aflahæstur var
Kópur með 6.3 lestir, en fjóvir
bátanna fengu um 6 lestir. f
fyrra voru 3 bátar frá Hólmavík
byrjaðir rækjuveiðar í septem-
ber og öfluðu þeir samtals 17.8
lestir.
Við ísafjarðardjúp hófust
rækjuveiðar 1. október sl. og eins
og komið hefur fram, stunda nú
um 70 bátar rækjuveiðar í Djúp-
inu, en það er veruleg aukning frá
því í fyrra. Heildarveiðimagn
verður nú takmarkað við 160
lestir á viku hverri, en leyfilegt
er að hagræða því á milli vikna.
Fyrstu þrjá daga vikunnar má
hver bátur veiða 1500 kg, en
heildarafli hvers báts er tak-
markaður við 6000 kg á viku,
eins og í fyrra.
Fréttamaður hafði samband
við Björgvin Lútersson, póst- og
símstöðvarstjóra á Egilsstöðum.
Sagði hann að byggingarfélagið
Brúnás h.f. hefði séð um bygg-
ingu póst- og símahússins á Eg-
ilsstöðum og gat hann þess að
nú væru í byggingu póst- og
símahús á Reyðarfirði, Seyðis-
firði, og viðbygging við pósthús-
ið á Eskifirði. Ennfremur hefði
verið undirskrifaður samningur
við Brúnás 2. september sl. uim
byggingu póst- og símstöðvar-
húss á Vopnafirði. Lauk hann
miklu lofsorði á frágang og
vinnu við þessi hús og sagði að
Brúnás hefði það góðum fag-
mönnum á að skipa, að ekki
þyrfti að sækja þá til annarra
landshluta. Bnnfremur sagði
harm blaðinu, að Brúnás hefði
séð um innréttingar í póst- og
símahúsið á Höfn og í Neskaup-
stað.
Sjálfvirki síminn var opnaðup
hér 10. apríl 1970, og var hann
þá til húsa í fyrsta áfanga nýju
símstöðvarinnar. — Hákon.
Tvö nöfn vantaði
1 MINNINGARGREIN um Arn-
grím Arngrímsson frá Þorsteins
stöðum í Svarfaðardal, er birt-
ist sl. laugardag eru taldir upp
bræður hans. 1 þessa upptaln-
ingu vantar tvö nöfn en þau eru:
Tryggvi, sem dó ungur og Krist-
inn, sem nú býr i Reykjavík og
er 71 árs.
Fastanefndir
á Alþingi
Á FUNDI í sameinuðu þingi í
gær var kosið í fastanefndir sam
einaðs Alþingis. Að loknum þeim
fundi voru settir fundir í báð-
um þingdeildum og fastanefndir
kosnar þar. Við nefndarkjörið
báru stjórnarflokkarnir fram
sameiginlegan lista, en síðan
komu fram tveir listar í viðbót
frá Sjálfstæðisflokki og Alþýðu-
flokki. Sjálfkjörið var í allar
nefndirnar, þar sem ekki bár-
ust fleiri framboð, en kjósa
skyldi í hverja nefnd. Þingmenn
skiptast í nefndist á eftirfarandi
hátt:
SAMEINAÐ ÞING:
Fjárveitinganef nd:
Ágúst Þorvaldsson,
Ingvar Gíslason,
Vilhjálmur Hjálmarsson,
Geir Gunnarsson,
Karvel Pálmason,
Jón Árnason,
Matthías Bjarnason,
Steinþór Gestsson,
Jón Ármann Héðinsson,
Utanríkismálanef nd:
Aðalmenn:
Eysteinn Jónsson,
Þórarinn Þórarinsson,
Gils Guðmundsson,
Bjarni Guðnason,
Jóhann Hafstein,
Matthías Á. Mathiesen,
Gylfi Þ. Gíslason.
Varamenn:
Jón Skaftason,
Steingrímur Hermannsson.
Magnús Kjartansson,
Magnús Torfi Ólafsson,
Geir Hallgrímsson,
Friðjón Þórðarson,
Benedikt Gröndal.
Allsher jarnef nd:
Gísli Guðmundsson,
Björn Fr. Björnsson,
Framhald á bls. !J
Brennu-
vargar
í Stokkhólmi
H. G. 10.10. 1971.
ALGER brennuvargafaraldur
herjar nú í Stokkhólmi. Suður-
hluti borgarinnar hefur orðið
hvað verst xiti í þessu æði og líð
ur naumast sú nótt að þar komi
ekki upp ein eða fleiri íkveikj-
ur. Frá því í haust hefur lög-
reglan haft afskipti af 150
íkveikjum, en síðustu vikurnar
hefur þeim fjölgað óhugnanlcga
og liafa þær kostað 4 mannslíf
og óteljandi slys á tæpum tveim-
ur mánuðum. Tjónið sem þess-
ar ikveikjur hafa vaidið skiptir
tugum milljóna.