Morgunblaðið - 07.11.1971, Side 20

Morgunblaðið - 07.11.1971, Side 20
20 MORGUNBLAEHÐ SUNNUDAGUR 7. NOVEMBER 1971 Fundirnir á tindinum Fundurinn í Glassboro: Kosygi n og; .Johnson. Krúsjeff og Kennedy í Vín 19 61. lagt á að auka og efla sam- bandið milli stórveldanna. Veturinn 1959 til 1960 var ■unnið kappsamlega að því að gera fyrirætlanirnar um annan fund æðstu manna fjórveld- anna að veruleika. „Andanum frá Camp David“ var óspart hampað. Almenn bjartsýni ríkti um horfur á batnandi sam búð austurs og vesturs og al- mennt samkomulag var um að nauðsyn bæri til þess að sam- komulag yrði gert. Eldflauga- kapphlaup Rússa og Banda- ríkjamanna sýndi annars veg- ar að hætta var á gereyðingu og hins vegar, að þrátefli mundi skapast í kapphlaupinu. í desember 1959 var ákveðið, að fundur æðstu manna stór- veldanna fjögurra vrði hald inn í París í mai 1960. Vonir þær sem voru bundn- ar við þann fund voru ýkt- ar, en fundurinn var aldrei haldinn. Krúsjeff tilkynnti um tíu dögum áður en ráðstefnan átti að fara fram, að U-2 könn unarflugvél Bandarikjamanna með fdugmanninum Francis Gary Powers hefði verið skot- in niður. Klögumálin gengu á Víxl, og þegar leiðtogar stór- veldanna komu til Parisar voru lítil likindi til þess, að af ráðstefnunni gæti orðið. Eisen hower neitaði að biðjast afsök unar, og sovézka sendinefndin fór heim i fússi. Síðan þessi ráðstefna fór út um þúfur hafa ekki verið eins miklar vonir tengdar við fundi æðstu ráðamanna stór- veldanna. Reynslan af Vínar- fundinum 1961 hafði neikvæð áhrif. Þó er ljóst, að hvorki á hinni fyrirhuguðu ráðstefnu í París né á öðrum fundum æðs u ráðamanna voru likindi til þess, að áþre:fn ,iegt sam- komulag tækist. Slíkir fundir geta i mesta lagi rutt brautina til samkomulags í ýmsum mál- um og stuðlað að persónuleg- um kynnum, sem eru mikilvæg. Leiðtogar stórveldanna verða betur færir um að dæma hvernig mótherjarnir bregðist við í aðsteðjandi deilumálum. Öðru máJi gegnir með ráðstefn ur þær sem leiðtogar stórveld anna héldu í stríðinu. Þar sett ust bandamenn á rökstóla og átkváðu aðgerðir gegn fjand- mönnum og nauðsynlegar ráð- stafanir sem þoldu enga bið. Samkkipti andstæðra stór- veida á friðartimum eru flkón- ari en svo að samkomulag tak- ist 5 einu vetfangi á aðeins ein um persónuiegum fundi. Þróun in gengur miklu hægar fyrir sig. Sú hætta er lika fyrir hendi, eins og reynstan sýnir, að persónulegir fundir æðstu valdamanna stórveldanna geti aðeins leitt til gagnkvæmra ásakana og vanmats á mótherj unum. Krúsjeff vanmat Kenn- edy, og Nixon hefur sjálfur reynslu af fundi með Krúsjeff, þar sem hnútur flugu um borð, Það var í hinni frægu heim- sókn hans til Moskvu 1959 og hinar svokölluðu „eldhúsum- ræður“ hans og Krúsjeffs eru enn i minnum hafðar. Síðan hefur margt breytzt. Nixon hefur tileinkað sér nýj- an stii í utanríkismálum og kemur fram sem boðberi bættra samskipta. Sem slikur fer hann til Peking og Moskvu þótt bandarískir hagsmunir séu honum efst í huga og vænt anleg kosningatoarátta á næsta ári. gildi Sovézkir s t j óm m á3 am enn reyndust engir eftirbátar starfsbræðra sinna á Vestur- löndum í ferðalögum og í sept- ember 1959 fór Nikita Krúsjeff forsætisráðherra í hina sögu- legu heimsókn sina til Banda- rikjanna og átti ítarlegar og hreinskilnislegar viðræður við Eisenhower forseta að sveita- setri hans í Camp David í Mary land. Gamansemi Krúsjeffs afl aði honum vinsælda í Banda- ríkjunum, og í fljótu bragði virtust straumhvörf hafa orðið í samskiptum stórveldanna. Hættan á kjarnorkustyrjöld var þá ölum efst í huga, þvi að samkvæmt gildandi her- fræðikenningum komu vart annað en gereyðingairárásir ti'l greina ef styrjöld brytist út. ÞýzkaJandsmálið gat leitt til slíks ástands og allt kapp var Misjafnar skoðanir á Eisenhower forseti og Kri'jsjeff í Camp David 1959. rangar huigmyndir um Kenn edy á þessum fundi og leit á haain sem ungæðislegan og veiklundaðan þjóðarieiðtoga. Aðeins nokkrum vkium eftir fundinn hófu Rússar mikið vopnaskak, þjanmað var ennþá einu siwni að Berlin og deilan um borgina komst á alvarlegra stig en nokkru sinni áður frá því samgöngubannið var sett á borgina 1949. Það var ekki íyrr en í Kúbu-deilunni í nóv- eber 1962, sem Krúsjeff fékk annað álit á Kennedy, og það kom greinillega fram við útför Kennedys, að Krúsjeff mat hann mikils og bar virðingu íyrir honum. Af þessu má sjá, að þótt fundir æðstu manna séu til þess fallnir að auka persónuleg kyinni, þá geta þeir valdið hættulegum misskilningi og gert meira illt en gott. Á árunum 1945 til 1960 voru fundir þjóðarleiðtoga mikið í tízku, og átti það rætur að xekja til hins svokallaða anda frá Genf, sem varð til þegar ieiðtogar ailra stórveldanna, Dwight D. Eisenhower forseti Bandarikjanna, Anthony Eden, forsætisráðherra Bretlands, Edgar Faure forsætisráðherra Frakklands og Nikolai Bulgan- anna forsætisráðherra Sovét- ríkjanna héldu með sér sögu- legan fund í hinni mákiu svissn esiku ráðstefnuborg Genf. Ráðstefnan stóð dagana 23.— 30. júlí og kynntust ráðamenn irnir mjög náið, bæði á ráð- stefnunni sjálfri og í ýmsum veizlum sem voru haldnar, þar sem þeir reeddust við óform- lega og einslega. Þama gafst Eisenhower fæari á að hitta góð vin sinn úr striðinu, Zhukov marskálk. Viðræður leiðtog- anna vojtu allar svo vinsamleg ar, að nafngiftin „andinn frá Genf“ varð ekki til að ásíæðu- lausu. Sá andi varð þó ekki langláfur: Ungverjalandsupp- reisnin og Súez-stríðið rúmu ári síðar gerðu hann að engu. Trú manna á gagnsemi funda æðstu manna dvínaði þó ekki við það, og á næstu árum var kappsamlega unnið að því að efna til nýs fundar í likingu við þann sem var haldinn í Genf. Ferðalög valdamanna austurs og vesturs urðu sífellt algengari. Vestrænir stjóm- málamenn komust fljótt að raun um, að þau voru vel til þess fallin að vinna atkvæði í kosningum. Fáir voru eins dug legir i slíkum íerðalögum og brezki forsœtisráðherrann, Harold Macmillan, sem átti drjúgan þátt í að bæta sam- búðina við Rússa. funda æðstu manna FYRIRHUGUÐ ferð Nixons íorseta til Moskvu og Pek- ing leiðir hugann að fyrri fundum æðstu manna stór- veldanna frá lokum síðari heimsstyrjaldar. Slíkir fund- iir voru á tímabili taldir vænlegasta leiðin til þess að leysa ágreiningsefni stór- veldanna. Síðan hefur sú skoðun breytzt, og því hef- ur jafnvel verið haldið fram, að þeir geti engan vanda leyst. Sannlcikurinn er ein- hvers staðar mitt á milli, eins og algengt er. Siðasti fjmdur æðstu manna Bandaríkjanna og SoVétrikj- eama var íundur þeirra Lynd- ©n B. Johnsons íorseta og Al- exei Kosygins forsœtisráðherra í bænum Giassboro í New Jersey í Bandaaikjunum dag- ama 23. tfl 25. júní 1967. Við- ræður þeirra fóru fram 1 iok niu daga heimsóknar Kosygins til Bandarikjanna, og þótti sú heimsókn hafa tekizt vei, þótt varla gæti heitið að bilið milii óiikra váðhorfa Bandarikjanna og Sovétrikjanna til heimsmál- «rma minnkaði að ráði. Fundurinn gaf þó tiiefni til persónulegra kynna, og er það eim helzti kostur funda æðsiu rnanna. Heitt var í veðri í GJass tooru þessa daga og mikill f jöldi nmnna saman kominn til þess að fagna Johnson og Kos- ygin. Þeir létu sér það vei líka, og Kosygin, sem a.n.nars þykir ekki hláturmiidur, brosti til Jjósmyndara, hló við og sagði: „Ég er orðinn heimavanur hérna, þetta er eins og að koma heim.“ Það markverðasta við íund- irm í Glassboro var, að hann leiddi til samkomulags um loka drögin að sáttmálanum um bann við útbreiðslu kjamorku vopna og aukinnar bjartsýni á samkomulagshorfur í afvopnun armálum, ekki sízt um takmörk un á smíði kjarnorkuvopna. Segja má, að fundurirm hafi meðal annars orðið til þess, að viðræður hófust um takmörk- un á smíði og fjölda kjam- orkuvopna og annaira gereyð- ingarvopna. Þær viðræður standa nú sem hæst, og þau mái verða eitt mikilvægasta um ræðuefnið í viöræðum Nixons við sovézka ráðamenn í Moskvu-ferðinni. Horfumar á bættri sambúð Bandaríkjanna og Sovétiikj- arma voru ótíkt betri eftir Glassboro-fundinn en eftir fund þeima John F. Kennedys forseta og Nikita Krúsjeffs for sætisráðherra i Vin i júní 1961. Þá var stutt síðan hin vanhugs aða innrás í Svínaílóa á Kúbu hafði farið út um þúfur, og Kennedy var nýr og iitt reynd ur í starfi. Krúsjeff fékk al- Frá einjim af mörgum fundum Roosevelts forseta og Jósefs Stalins á striðsáruniim.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.