Morgunblaðið - 20.01.1972, Side 2
2
MOR/GUINBLAÐLÐ, FIMMTUDAGUR 20. JANÚAR 1972
Verzlanir opnar á laugardögum:
Eðlileg krafa neytenda
— segir Hjörtur Jónsson, form.
Kaupmannasamtakanna
MIKIL óánægrja hefur komið
frani meðal verzlunarfólks vegrna
framkvæmda á stytting-u vinnu-
* vikunnar. Hafa sumar verr.lanir
auglýst að þær opni ekki fyrr
en kl. 1 á mánudögrum en aðrar
að þær opni ekki fyrr en kl. 10
þrjá dagra vikunnar. Verzlunar-
fólk virðist hins vegar ekki sætta
sig við þessa tilhögun og efndi
til almenns félagsfundar um mál
ið í grær. Óska félagsmenn þess
eindregið, að þeim verði gefinn
kostur á að vinna dagrvinnutím-
ana á öðmm dögum en laugar-
dögum, en í samningum þeim, sem
undirritaðir voru 4. desember sl.
er skýrt tekið fram, að hámarks-
dagvinnutíma skuli vinna á til-
teknum tíma, þ.e. frá kl. 9.00 til
kl. 18.00 alla virka daga nema
laugardaga frá kl. 9.00 til kl.
12.00.
Af þessu tilefni hafði Morgun-
"> blaðið samband við Hjört Jóns-
son, formann Kaupmannasam-
takanna, og spurðist fyrir um
viðhorf kaupmanna í þessu máli.
— Okkur er kunnugt um ósk-
ir verzlunarmanna um að vinna
sé felld niður sem mest á laug-
ardögum. Um þetta snerust við-
ræður í kjarasamningunum mik-
ið, en kaupmenn töldu að það
væri ótiugsandi að fella niður
afgreiðslu á þessum dögum og
töldu sig hafa þær skyldur við
neytendur að á það væri ekki
hægt að fallsist. Enda voru sarnn-
ingar þeir sem gerðir voru þann-
ig, að heknilt er að hafa af-
greiðslutíma á laugardögum ó-
breytta.n frá því sem áður var.
En vegna laga um styttingu
vinnuvikunnar hjá verzlunar-
fólki varð að komast að sam-
komulagi um það hvernig sú
stytting ætti að verða i fram-
kvæmd.
— Vinnuvika styttist um 4
tíma, og samkomulag varð um
* að afgreiðsluttminn styttist þess
vegna þannig, í fyrsta iagi að
einn tími ynnist upp á fostudög-
um, þar sem dagvinna endar kl.
6 í stað kl. 7 áður, en hinir þrír
Vesturland
KJÖRDÆMISRÁÐ Sjálfstæðis-
flokksins á Vesturlandi heldur
aðalfund á Akranesi sunnudag-
inn 30. janúar kl. 3 e.h. í hótelinu
á Akranesi. Venjuleg aðalfund-
arstörf.
Á síðasta vetri var aðalfund-
urinn haldinn í Grundarfirði, og
verður sá háttur upp tekinn að
halda þennan árlega fund í fé-
lagsstarfi Sjálfstæðismanna í
þessu kjördæmi til skiptis á ýms-
um stöðum á svæðinu, en fram
til ársins 1970 hafa allir fundir
kjördæmisráðs verið haldnir í
Borgarnesi, sem liggur miðsvæð-
Lagasmiði |
Fiðlarans boð-
ið til íslands
STARFSMANNAFÉLAG Sin-I
fóníuhljómisveitar Islands muni
efna til dansleiks 19. marz og/
hefur þá boðið hingað hinui
f ræga bandaríska tónííkáldi |
Jerry Bock.
Jerry Bock er sj álfsagt kunní
astur hér af Fiðlaranum á þak-!
inu, en hann samdi lögin í(
þessu leikriti, sem hlutu mikl-(
ar vinsældir um allan heim.
Auk þess hefur hann samiði
óperur, sem vinsælar hafa orð-1
ið, svo sem óperuna um La(
Guardia og fleiri.
Hjörtur Jónsson.
tímarnir sem eftir verða næðust
með því að gefa fólki frí í þrjá
tima á mánudagsmorgnum. 1
öðru lagi með því að gefa fólki
frí 1 dag hálfsmánaðarlega og í
þriðja lagi með samkomulagi
milli starfsfólks og vinnuveit-
enda um aðra vinnutilhögun.
— Þeir möguleikar, sem enn
hafa komið til greina undir þess
um síðasta lið um samkomulag
milli aðila samningsins eru t.d.
að gefa frí fyrir hádegi einhvern
einn dag vikunnar, að opna kl.
10 þrjá fyrstu daga vikunnar,
eða hálf tíu sex daga vikunnar,
og að gefa fólki lengra sumar-
frí. Allir þessir möguleikar rúm-
ast innan þeirra samndnga, sem
undirritaðir voru 4. desember sl.
—- Þessi heimild, sem hér er
rætt um, þótti nauðsynleg, og
var höfð í samningunum vegna
þess að hinar ýrrtsu sérgreinar
verzlunarinnar þjóna mismun-
andi þörfum neytenda, og þar
af leiðandi hentar ekki sama regl
an öllum.
Enn er ekki komin reynsla á
það, hver af þessum möguleik-
um muni bezt henta sérgrein-
um verzlunarinnar, og við því
mátti alltaf búast að nokkur tími
liði áður en það væri kiomið í
fastmótað form.
— Þurfa verzlanir að vera opn
ar á laugardögum?
— Verzlunin er fyrst og
fremst þjónustugrein, og hennar
hlutverk er að afgreiða vörur til
fólksins á þeim tíma sem fólki
hentar bezt.
Þróunin hefur beinzt í þá átt,
Framhald á bls. 19
Aukafundur S.H. um
afkomu frystihúsa
SOLUMIÐSTOÐ hraðfrystihús-
anna efnir til aukafundar að
34
árekstrar
TUTTUGU og einn árekstur vavð
1 umferðinnd í Reykjavík í fyrra-
dag og klukkan 19 í gærkvöldi
höfðu lögreglunni borizt til-
kynningar um 15 árekstra. —
Hvergi urðu alvarleg meiðsl á
fólki. „Þetta kemur við ökumenn
ina í sjálfsábyrgðinni," sagði lög-
regluþjónninn, aem Morgunblaðið
ræddi við. „Það er ekkert hæg-
ara en að koma tjóninu í 7.500
krónur."
liliili
Bjarni Eyjólfsson
ritstjóri látinn
f FYRRAKVÖLD lézt að Vifils-
staðahæli, Bjarni Eyjólfsson rit-
stjóri, formaðuT Kristniboðssam
baindsins, 58 ára að aldri.
Bjarni hefur veirið forrnaður
Kristniboðssambandsins í 35 ár
og jafnfnamt ritstjóri blaðs þes»,
Bjarma, um langt árabil. Er séra
Bjairni Jónsson vígslubiskup lézt,
varð Bjami Eyjólfsson formaður
KFUM og gegndi harm. því starfi
tii dauðadags. Bjarni hafði átt
við langvairandi veikindi '• að
stríða.
Hótel Loftleiðum á morgun,
föstudag, og hefst hann klukikan
14.00. Á fundinum verður rætt
um afkomu frystihúsanina, en
ekus og fram hefur kornið í frétt-
um telja forráðamenn hraðfrysti-
iðnaðarinis að með þeirn aðgerð-
um, sem gerðar voru á sl. ári og
niúna um áramótin, sé rekstrar-
grundvöllur hraðfrystihúsanna
brostinn.
Geir Giuuiar
Fræðslufundir
Giiðiniindur
Magnús
Verkalýðsráðs og Qðins:
Skattabreytingar
ræddar n.k. mánudag
UNDANFARNA vetur hafa
Verkalýðsráð Sjálfstæðis-
flokksins og Málfundafélag-
ið Óðinn, staðið fyrir fræðslu
fundum, sem tekizt hafa
mjög vel, fundirnir vel sótt-
ir og mörg málefni rædd.
Mánud. 24. jan. n.k. hefj-
ast þessir fræðslufundir að
nýju og verður fyrsti fund-
urinn um SKATTAMÁL.
Þessi mál eru nú í brenni-
depli og eru, eins og allir
vita, væntanlegar stórhreyt-
ingar á skattakerfinu. Það
er því mikil nauðsyn að
kynna og ræða til hlítar
þessi frumvörp ríkisstjórn-
arinnar, sem nú liggja fyrir
Alþingi. Framsögumaður á
þessum fyrsta fundi verður
Geir Hallgrímsson, borgar-
stjóri.
Þegar hefur verið ákveðið, til
viðbótar, að halda tvo fundi í
febrúar og tvo í marz. Mérnud.
14. febrúar verða atvinnu- og
kjaramálin á dagskrá, fram-
söguimaður Guðmundur H.
Garðarsson, formaður Verzlun-
ai-mannafélags Reykjavikur. —
Mánud. 28. febrúar verða hús-
næðismálin á dagskrá, fram-
sögumaður Gunnar Helgason,
formaður Verkalýðsráðs Sjálf-
stæðisflokkisins. Fræðslu- og f jár
mál verkalýðssamíakanna verða
svo tekin tH umræðu á fundi,
sem haldinn verður mánud. 13.
marz og verður Magnús L.
Sveinsson, skrifstofustjóri V.R.,
framsögumaður. Síðasti fundur-
inn, sem ákveðinn hefur verið,
verður 27. marz. Fundurinn verð-
ur í fyrirspumaformi, en slikt
fundarform hefur gefizt mjög
vel. Fengnir verða til að sitja
fyrir svörum, nokkrir þingmerm
og borgarfuHtrúar Sjálfstæðis-
flokksins.
Að lokum er rétt að geta þess,
að á eftir framsöguerindum
verða leyfðar fyrirspurnir og
frjálsar umræður. Rétit er einn-
ig að kynna, að nú er á loka-
stigi undirbúningur að málfunda
námskeiðum, sem haldinn verða
inn á milli þessara funda, sem
að ofan greinir. Verður þar leið-
beint í ræðumennsku, framsögn
og fundarstjórn og einnig teknir
fyrir ákveðnir málaflokkar, sem
nánar verður getið um síðar,
þegar þetta verður orðið full-
mótað. Allir fundirnir verða
haldnir í Valhöll við Suðurgötu
og hefjast kl. 20.30.
(Fréttatilkynning frá Verka-
lýðsráði og Óðni).
Ríkisskattstjóri á fundi sveitarstjórnamanna:
100 kr. tekjuaukning getur þýtt
4.800 króna útsvarshækkun
— vegna stighækkandi útsvars-
stiga á heildartekjur
Á FULLTRÚAFUNDI Sambands
íslenzkra sveitarfélaga I gær gaf
Sigurbjörn Þorbjörnsson, rikis-
skattstjóri, þær athyglisverðu
upplýsingar, að það gæti kostað
hjón með fjögur böm 2700 kr. í
útsvar að hafa 100 kr. meira i
tekjur, ef beitt væri heimildar-
ákvæðum 27. gr. tekjusitofna-
frumvarpsins. Er þá miðað við,
að hjónin nái þvi að hafa 380.000
kr. í árstekjur í stað þess að
hafa 379.900 kr. Hjón með fimm
böm töpuðu 4.800 kr. ef þau
næðu 390.000 kr. í árstekjur í
stað þess að halda sig við 389.900
kr.
Þessi undarlega niðurstaða
kemur út úr dæminu vegna þess,
að í frumvarpinu er gert ráð
fyrir stighækkandi útsvari á
heildarbrúttótekjur. Má nefna
önnur dæmi hliðstæð þessu eins
og það, að 100 kr. tiil eða frá í
tekjur geta munað 1000 kr., eft-
ir því hvort framteljandi lætur
sér nægja 449.900 kr. eða er svo
óheppinn að ná nákvæmlega
450.000 kr.
Ríkisskattstjóri benti á, að
Samningar verzlunar-
manna í Skagafirði
SAMNINGAR þeir, sem náðust á
fundi með sáttasemjara rikisins
milli Verzlunarmannafélags
Skagafjarðar og kaupmanna þar
í héraði voru siamþykktir með
yfirgmæfandi meirihliuta atikvæða
á félagsifundi í Verzlunarmanna-
félaginu á Sauðárkróki í gær. —
Kaupmenn og Kaupfélag Sfeag-
firðinga samþykfetu einndig sam-
komulagið fyrir sitt leyti. I því
felist, að verzlanir í Skagafirði
verða lokaðar á laugardögum
fyrstu sex mánuði ársins, en
opnar til hádegis á laugardögniim
slðari sex miámiðina. f staðinn
fyrir hverja tvo unna lauigardaga
fá verziunarmenn einn heilain fri-
dag og má gjarnan safna þess-
um fríidögum saman og jafnvel
tengja þá við sumarfrí. Geta
þessir fnídagar orðið allt að
þrettán talsins.
komast mætti fram hjá dæmum
eins og þessum með því að hafa
persónufrádrátt, sem smáeydd-
ist, eftir þvi sem tekjurnar hækk
uðu.
Samikvæmt núgildandi skatta-
lögum getur enginn tapað á þvi
að afla sér aukinna tekna.
— Andsovézkur
Framhald af bls. 1
ur þeirra eiga ekkert sameigin-
legt við raunveruleikann.
Faðirinn segir, að Vladimir
hafi komið til Sovétríkjanna ár-
ið 1963, og aftur 1967 fór faðir-
inn í heimsókn til sonar sins.
„Mér er auðið að heimsækja son
minn hvenær sem er,“ segír
hann, „en ég hef ekki getað það
vegna heilsu eiginkonu minnar.
f raun get ég ásamt fjölskyldu
minni farið til sonar míns og
búið hjá honum.“
David Ashkenazy segir, að
hvorki hann né fjölskylda hans
hafi nokkru sinni hugsað sér að
yfirgefa heimalandið, Sovétríkin.
„Hér hef ég starfað og hér hef
ég búið allt mitt líf,“ segir hann,
„og allt hér er mér mjög náið
og kært. Ekkert annað land er
til á þessari jörð, sem fjölskylda
mín getur búið i. Þeir herra-
menn, sem velta sér upp úr sora,
mega hafa þetta í hu-ga,“ “ Píanó-
leikarinn bætir þvi við, að kona
hans og dóttir hafi gefið fullt
samþykki sitt við hinu opna
bréfi.