Morgunblaðið - 20.01.1972, Blaðsíða 4
4
MORGUiNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. JANÚAR 1972
22-0-22- |
RAUOARÁRSTÍG 3lJ
-=-25555
r^l4444
vmiiBiR
BILALEIGA
HVERFISGÖTU 103
VW Sai»cS<«fW)i?feið-VW 5 manna*VW Jvefnvagn
YW Sfnanna-Landrovef 7m3imi
LEIGUFLUG
FLUGKENNSLA
FLUGSTÖÐIN HF
Simar 11422. 26422.
BÍLALEIGA
CAR RENTAL
TS 21190 21188
Bílaleigan
SKULATUNI 4 SÍMI15808 (10937)
Hópierðir
-|| leigu í lengri og skemmri
ferðir 8—ÍQ farþega bílar.
Kjartan Ingtmarsson
sími 32716.
Ódýrari
en aárir!
Shddh
LEIGAH
44-46.
SlMI 42600.
PLASTEINANGRUN
GLERULL
BYGGINGARVÖRUR
KÓPAVOGI
Sími: 40990
0 Kirkjusókn og söngur
er andlegra meina bót
Ingjaldur Tómasson skrifar:
„Það er árelðanlega satt, að
þeir, sem sækja kirkju að stað-
aldri, halda meiri sálarró og
líkamsheilsu en þeir, sem Iáta
það ógert Hvernig stendur þá
á því, að alltof margir notfæra
sér ekki þá kristilegu heilsu-
lind, sem streymir frá kirkjun-
um og hinum kristnu söfnuð-
um?
Orsakirnar eru svo margar,
að varla er hægt að gera þeim
öllum skil í smágrein. Það má
segja, að mörg stórskáld þjóð-
arinnar hafi bæði fyrr og siðar
lagt prestastéttina í einelti. Ég
bendi á séra Sigvalda, séra Ket-
il og Jón prímus. Lítið dæmi
þessu til sönnunar frá okkar
mesta stórskáldi: „Vilji maður
verða að manni, sagði prestur-
inn, þá væri ráð að byrja
snemma að safna ónýtum
snærum, fúaspýtum, ryðnögl-
um, gömlum brýnum, þurrum
hundasklt og þar fram eftir
götunum. Sumir hafa orðið
ríkir á því að drepa mann.“
Áróður gegn kirkjum og
kristni kemur fram i mörgum
mynduim; t.d. ura glymskratta-
hljómsveitir ungs fólks með
sínum Uttþolandi hávaða, skaki
og hristingi, sem stefnt er
gegn öllu i þjóðfélaginu, sem
hefir verið talið til mannkosta.
Áhrif þessarar óhugnaniegu
„listar" verða öðru fremur til
þess að lokka ungt fólk inn I
heiðnaberg óánægjunnar, lífs-
leiðans og trúleysisins. Láka
má nefna leiklist, kvikmyndir
og áróður í æðri skólum og
víðar (sbr. Haunrahliðarsam
þykkt). Minna má á andstöð-
una gegn Hallgrimskirkju, sem
margir menntamenn þjóðarinn
ar hafa staðið að, bæði fyrr og
síðar.
Það er reynt að læða þvi inn
i fólk, að kristin trú sé engu
betri en ýmis önnur trúar-
brögð, t. d. Múhameðstrú,
Brama- eða Búddatrú. Ég vil
ráðleggja þvi fólki, sem verð-
ur fyrir áhrifum af þessum
laumulega áróðri, að bera sam-
an ástand ahnennings; sér-
staklega hinna sjúku, öldruðu
Keramik og föndur
fyrir börn 4—10 ára. Nýtt námskeið byrjar mánudag 24 jan.
Innritun í síma 35912.
lara lArusdöttir.
Atvinna í boði
Kona óskast til að skreyta keramik.
Laghentan og listfengan mann vantar til leirrennslu.
Upplýsingar í síma: 85411 frá kl. 8—16 00.
GLIT HF,
Höfðabakka 9.
Smðakono í ígripavínnu
Sníðakona óskast til að sníða fatnað eftir
McCall og Stil sniðum
Vinnumagn er nokkuð misjafnt.
Vinnutími fer eftir samkomuiagi.
Nánari upplýsingar veittar á skrifstofunni.
Skólavörðustíg 12.
og fátæku, í kristnum löndum
við lönd annarra trúarbragða,
svo sem Arabaiönd og Ind-
land.
Sjónvarpið hefir sýnit fjöl-
margar myndir frá þessum
löndum, sem sýna Ijóslega hið
mikla djúp milii fátækra og
ríkra. Það rikir í þessum lönd-
um hið ótrúlegasta menningar-
svartnætti og því samfara er
hfsafkoma ahnennings hin
ömurlegasta.
f>ó er ástandið eim hörmu-
iegra i ýmsum svertingjalönd-
um og víðar.
Ekki batnar, ef við lítum
austur fyrir „Tjaldið“. Þar er
ýmist urenið markvisst gegn
kristinni trú, eða hún er alger-
lega bönnuð. Þess i stað er
boðuð trúin á sósíalismann og
helztu boðendur hans, svo sem
Marx, Lenin, Stalín og Maó. I
þessum löndum er almenningi
haldið í járngreipum, bæði and-
lega og efnalega, og ef einhver
gerist svo djarfur að gagnrýna
ógnvaldið, er hann ýmist dæmd
ur í þrælkunarvinnu, Síberiu-
vist eða til langvarandi heila-
þvottar í geðveikrahæli.
Útvarp og sjónvarp flytja oft
áróður gegn kristinni trú;
nefni sem dæmi erindið „Lýr-
isk vatnsorkusálsýki“, sem
flutt var tvisvar í útvarpið.
Þar var farið mjög óviðeig-
andi orðum um þau ágætu
skáld okkar, sem sóttu yrkis-
efnið í ár og fossa. Svo var
klykkt út með þvi, að kirkju-
ræður og sáhnasöngur væri
komið beina leið frá þeim
vonda. Þó held ég, að mesta
hættan stafi af því, þegar
óvinir kirkju og kristni þykj-
ast vera þeim hliðhollir og gera
tilraunir tU að smokra sér inn
í kirkjurnar í gervi tízkufyrir-
bæra; sem dæmi nefni ég popp-
messur með hávaðahljómsveit-
um, sem hafa fengið kirkjur
tU afnota. Við vitum, hvemig
kommúnistar reyndu að koma
sér í mjúkinn hjá kirkjunni og
fylgjendum hennar á meðan
þeir vora að ná völdunum í
ýmsum löndum, en jafnskjótt
og þeim tókst það, hófu þeir
ofsóknarherferð gegn prestum
og kristindómi, (sbr. Minds-
zenty kardínála). Vörum okk-
ur á Antikristi, hann er nú á
ferð eins og forðum. Ég vil
ráðleggja fólki, sem þjáist aí
friðleysi nútímahraðans, að
sækja kirkjumar og taka þar
þátt í bænagjörð og guðdóm-
legum söng og hlýða á hinar
mörgu ágætu ræður, sem þar
eru fluttar.
Syngjum futlum háisi guU-
vægu sálmana okkar, sem eru
fíestir fuUir af guðdómlegum
krafti og lífsspeki; betri smyrsl
á lífsins sár hekl ég varla
þekkist.
Kirkjusókn með þátttöku í
guðsþjónustum þarf að þjálfa
eins og likamann. Ég er þess
fullviss, að faui þetta tvennt
saman, hverfur Mfsleiðinn og
lífið verður bjartara, jafnvel
þótt margt blási á móti. Það
yrðu færri vandamálin, færri
hjónaskilnaðir, léttbærara og
ánægjuiegra líf, ef unga fólk-
ið sækti kirkjumar og bergði
þar á lind trúarinnar og lífs-
ins.
Að lokum erindi um sönginn,
sem Matthías Jochumsson
þýddi og Bjami Þorsteinsson
samdi guUfaUegt lag við:
Söngurinn göfgar, hann lyftir f
ljóma lýðanna stríðandi
þraut.
Söngurinn vermir og vorhug
og blóma vekur á köldustu
braut.
Söngurinn yngir, við ódáins-
hljóma aldir hann tengir og
stund.
Hismiriu breytir i heUaga
dóma, hrjóstrmu í skínandi
lund.
Ingjaldur Tómasson“.
0 Hvar er klúbbur fyrir
einmana fólk?
Kristin Guðmundsdóttír
skrifar:
„Reykjavik, 12. janúar 1972.
Kæri Velvakandi!
Það viU víst ekki svo tíl, að
þú getir gefið mér upplýsingar
um það, hvort hér í borg sé
starfandi nokkur klúbbur fyr-
ir einmana fólk, þar sem það
getur kynnzt og ef tU vill eign-
azt félaga? Ef þú sérð þér fært
að svara þessu í dálkum þín-
um, verð ég eilíflega þakklát.
Virðingarfyllst.
Kristín Guðmundsdóttir."
Velvakanda er ekki kunnugt
um það, en sjálfsagt væri
starfsgrundvöllur hér fyrir
sMkan klúbb.
Opinber stofnun
óskar eftir að ráða skrifstofustúlku til ritarastarfa og síma-
vörzlu. Hálfsdagsvinna kemur til greina.
Umsóknum skal skila á afgreiðslu blaðsins merkt: .. Skrifstofu-
starf — 936" fyrir 26. janúar n.k.
Skrifstofustúlku öskast
sem fyrst. Þarf að vera vön vélritun og
öðrum almennum skrifstofustörfum.
Tilboð sendist afgreiðslu blaðsins merkt •
„Arnarhvoll — 932“ fyrir 22. þ.m.