Morgunblaðið - 20.01.1972, Síða 15
MOR/GUT'HBLA.ÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. JANÚAR 19T2
15
„Gætu orðið nauðsynleg
í flugi yfir Norður-Atlantshaf,“
Dr. I>orgreir Pálsson. (Ljósm. Mbl. Sv. Þorm.)
— segir dr. Þorgeir Pálsson um
tregðuleiðsögutæki fyrir
flugvélar
nugmálafélag íslands lleflu• feng
tð dr. Þorgeir Pálsson, flugverk
fræðing, til að flytja fyrirlestur
iixn tregðideiðsögnkerfi fyrir
flugvélar og verður fyrirlestur-
bm fluttur í Kristalsal Hótel
Loftleiða í kvöld kl. 20.30. Þor-
geír er ungur maður, þrítugur
að aldri, sonur hjónanna Páls
Þorgeirssonar og Elísabetar
Sigurðardóttur. Hann lauk stúd-
entsprófi frá MK 1961 og hefur
síðati aðallega stundað nám í
Bandaríkj imum í flugverkfræði.
Hann lauk doktorsprófi frá
Massaehusetts Institute of Tec-
hnology (MTT) vorið 1971 og
fjallaði doktorsritgerð hans um
ákveðið svið stjómtækni, þ.e.
viss hönmmarvandamál í gerð
stjömkerfa, einkum með tilliti
tU stjórnkerfa í loftförum. MIT
er einhver þekktasta vísinda-
stofnun í heimi og þar er stöð-
ugt unnið að margs konar rann-
sóknum og verkefnum t.d. fyrir
handarísk stjórnvöld, banda
ríska herinn og ýmsar stofnan-
ir. Þannig vann dr. Þorgeir að
doktorsritgerð sinni samkvæmt
samningi við NASA — Geim-
ferðastofnun Bandarikjanna. Að
því verkefni loknu kom dr. Þor
geir heim til íslands til starfa
og starfar nú hjá Raunvisinda-
stofnun Háskólans og þá eink-
um við tölvuna og ýmis þau verk
efni, sem hún er látin reikna út.
Við Morgunblaðsmenn heim-
sóttum dr. Þorgeir á sfcrifstofu
bans í Raunvísindastofnuninni
ífyrir nofckrum dögum og ileituð-
um hjá honum upplýsiniga um
störf hans og þennan fyrirlest-
ur.
— Að hvaða verkefnum ert
þú að vinna þessa dagana?
— Reifcnistofan hefur einkum
með höndum ýmis hagnýt verk-
efni, þar sem tölvan er notuð.
Þannig höfum við til dæmis unn
ið að ýmsum útreikningum í sam
bandi við skattafrumvarp rifcis-
sitjórnarinnar, við hötfium hatft
ýmis verkefni til athugunar, m.
a. stöðugleifcaútreiifeninga skipa,
rannsóknir á tölvukerfum til
nota í framtíðinni, rannsóknir á
almennri tölvuþörf, sérstaklega
hjá rannsóknarstofnun um, og
ýmislegt fleira. Við erum einnig
með ýmis verkefni á prjónunum
í aðgerðarfræðum, þ.e. stærð-
tfræðilegum aðtferðum tii að
leysa reks trarvandamál ýmiss
konar. Ég hef svo sjálfur 'lítil-
lega aðstoðað prófessor Þor-
bjöm Sigurgeirsson, en hann
hefur smáðað nýtt staðsetning-
artæki til nota við segulmæling-
ar úr lofti hér á lamdi, og
ég hef hjálpað honum að tengja
þetta tæki við sjáMstýringar-
tæki flugvélar. Auk þess hefur
Reiknistofan ýmislegt annað
með höndum, annast t.d. kennslu
í meðtferð tölvu í Háskólanum.
— En svo við snúum ofckur að
lilyrirlestri þínum. Um hvað
fjallar hann?
— Ég ætla að tala um tregðu-
leiðsögukerfi, en á siiðastliðnum
2—3 árum hafa þau mjög rutt
sér til rúms sem leiðsögutœfci í
farþegafI ugvélum á löngum flug
Jeiðum. Upphatflega voru þau
tframleidd til hernaðamota, en
eru nú komin í notfcun hjá ýms-
um flugíélögum. Það er talsvert
milkill áhugi á þessum tækjum
ríkjandi hér á landi og þau gætu
innan tíðar verið tekin í notk-
un í islenzkum millilandaflug-
vélum.
— Verður fyrirlesturinn al-
menns eðlis eða þarf einhverja
tfræðilega þekkingu til að geta
skiliðhann?
— Ég mun fyrst og fremst
tfjalla um aðalatriðin, grundvall
aratriðin og hugtök I samtoandi
vlð gerð þessara tækja, en ekkl
Eara út í tæknileg smiáatriði, og
því ætti þessi fyrirlestur að
verða aðgengileguir öllum þeirn,
sem einhvem áhuiga hafa á flug
máluim.
— í hverju felst sérstaða þess-
ara tækja?
— Þau eru alveg sérstök að
þvi leyti, að þau þurfa ekki að
fá neinar utanaðkomandi upp-
lýsingar á meðan á flugi stend-
ur. Önnur tflugleiðsögu- og stað
arákvörðunartæki fá að utan
upplýsingar, t.d. frá radíóvitum.
1 öðru lagi eru þessi tæki mjög
nákvæm sem slík.
— Eru þetta dýr tæki?
— Þau eru alveg geysilega
dýr. Hvert kerfi kostar um 100
þúsund dollara eða um 9 miiljón
ir lísl. kxóna og það þarf a.m.k.
tvö slík kerfi í hverja fflugvél.
Sumar stærri gerðir fflugvéla, t.
d. Boeing 747, hafa yffirleitt
þrjú kerfi.
— Hvers vegna þarf fleiri en
eitt bertffl?
— Það er fyrst og fremst
vegna öryggisins. Bf eitt kerfi
bilar, því að þau getað bilað, þá
verður að hafa annað tæki til
vara, og það er einniig hægt að
nota þessi tvö kerfi saman og
bera saman niðurstöður þeirra
og fá þannig meiri nákvæmni.
Þegar um þrjú kerfi er að ræða,
er hægt að fá enn betri saman-
burð, og þannig eykst nákvæmn-
in og jafnframt öryggið.
— Heldurðu, að islenzku flug
félögin muni taka þessa tækni í
sína þjónustu ?
— Eins og ég sagði áðan, eru
þessi tæki sérstaklega hentug til
langflugs. Flugleiðir á Evrópu-
leiðum eru yfirleitt það stuttar
og þá mest yfir landi, að óþarfi
er sem stendur að nota slík tæki á
þeim. Þess vegna er eklki líklegt,
að Flugfélaigið fái sér þessi tæki.
ttins vegar kæmi sterklega til
greina fyrir Loftleiðir að fá slk
tæki, en þau eru óneitanlega mjög
dýr. Htns vegar eiiga tækin tví-
mælalaust eftir að lælkka í verði,
ienda má búast við að þau fál
nokkra samkeppni frá svonefnd
um Omega-tækjum.
— Á hverju býggjast þessi
tæki?
— Þau byggjast raunverulega
á hagnýtingu Newtons-lögmál-
anna. Mæld er hiöðun flugvél-
arinnar og til þess notaðir sér-
stakir hröðunarmælar. Út frá
niðurstöðum þeirra er hægt að
reikna bæði hraða vélarinnar og
vegalengdina, sem hún fer, þ.e.
fjarlægðina frá upphafsstað.
og er það gert með töllvu.
Þetta mál er þó mun ffióknara
en það sýnist við fyrstu kynni.
Það verður að taka með í reikn
iniginn, að jörðin er kúlulaga og
snýst að auki. Það verður því
að mata tölvuna á upplýsingum
um snúning jarðarinnar og þar
sem hann er stöðugur, er sú
stærð sett 5 reikninginn í eitt
skipti fyrir öll. Þá ber að hafa
það í huga, að hröðunin, sem
mælarnir mæla, er miðuð við
hnitakerfi fastastjarnaruna, en
upþlýsingarnar, sem flugmaður-
inn vill fá, eiga auðvitað að mið
ast við kerfi, þar sem jörðin er
fastapunktur. Þá verður að
gæta þess að hröðunarmælarnir
séu stöðugt láréttir miðað við
jörðina, lil þess að þyngd-
arkraftur hennar hafi ekki á-
hrif á þá. Þeir geta nefnilega
ekki greint á milli hröðunar og
þyngdarkrafts. Þetta er gert á
þann hátt, að mælunum er kom
ið fyrir á sérstökum palli og sjá
gýrótæki um að halda pallinum
láréttum allan tímann, enda þótt
flugvélin haltist í beygjum og
við lendingar og flugtök. Hröð
unarmælarnir og gýrótæki eru
ákaflega fíngerð og til dæmi's eru
þau ekki sett saman nema i sér-
stökum herbergjum, þar sem loft
ið er hreinsað, til að eklki slæð-
ist rykkorn inn í þá.
— Hefur þú unnið við gerð
slíkra tregðuleiðsagnartækja?
— Ég hef ekki unnið við gerð
þeirra, en ég hef unnið við rann
sóknir á eiginleikum þeirra. Þau
voru fundin upp í MIT og það
eru til ýmsar tegundir slíkra
tækja. Tæki þau aif þessari gerð,
sem notuð eru i farþegaflugvél-
um, eru aðeins ein af mörgum
tegundum. Það má geta þess til
gamans, að gýróleiðsögutækin,
sem notuð voru S Apollo-tungl-
förunum, voru frá MIT.
— Hvaða tæki leysa þessi
tæki af hólmi ?
—r Það er lílklega ekki rétt að
segja að þau leytsi önnur tæki af
hólmi, þvi að önnur tæki verða
vafalaust notuð áfram um nofek
urt skeið. En þessi tæki gætu
komið í staðinn fyrir öll ðnnur
staðsetningartæki á löngum
vegalengdum.
— Kvaða tæki hafa verið not
uð hingað til?
i— Loran-tæki hafa verið mik
ið notuð hér á landi, og einnig
má nefna Decca-tæki, sem haía
náð nokkurri útbreiðslu. Þessi
tæki hyggjast á tímasamanburði
radiómerkja, sem send eru frá
nobkruim stöðvum, venju-
lega þremur. Omega-kerfi eru
einnig að ryðja sér til rúms og
þau byggjast á sömu grundvall-
aratriðum og hin fyrmefndu. Þá
má nefna VOR-tæki, eða fjöl-
stefnuvitana, sem senda út á há
tíðni og eru í almennri notkun
á flugleiðum yfir landi.
— Þú sagðir, að Omega-tæki
væru að ryðja sér til rúms. Eru
þau samkeppnisfær við tregðu-
leiðsögutækin?
— Já, að vissu leyti. Móttöku
tæki af Omega-gerð eru mun ó-
dýrari en þessi tregðuleiðsögu-
tæki og þar sem þau geta geffið
ýmsar meiri upplýsingar, vegna
tölvunotkunar, en Loran- og
Decca-kerfi, eru þau að vissu
leyti samkeppnisfær. Ég held t.
d., að Landhelgisgæzlan sé að
atihuga Omega-tæki, því að þatt
yrðu ef til vill heppileg
Ivið staðsetningar á veiðisikip-
um innan landihelginnar. Þar
myndu tregðuleiðsögutækin ein
sér eklki henta vel, þar sem
skekkja þeirra evk’st með timan-
um. Skekkjan er um ein sjómíla
á klukfcustund, þannig að ef flug-
vél Landihelgisgæzlunnar hefði
t.d. verið sex tíma á lofti, væii
skekkjan e.t.v. orðin sex sjómíl
ur og það er of mikil ónákvæmni
í ákvörðunum um landhelgis-
brot. Slík ónákvæmni kemur
hins vegar alls ekki að sök I
langflugi farþegaflugvéla.
Ég vil í þessu sambandi geta
þess, að Leifur Magnússon, fram
kvæmdastjóri flugöryggisþjón-
ustu Flugmálastjórnar, mun
halda fyrirlestur um Omega-
kerfi á vegum Flu.gmálafélags-
ins í næsta mánuði.
—- Ef þú værir beðinn um að
spá því, hvenær Loftleiðir
myndu koma sér upp slikum
tækjum, hverju mynidirðu þá
svara ?
— Það kasmi mér alls ekkert
á óvart, þótt félagið væri að at-
huga með kaup á þessum tækj-
um einmitt núna. Helztu kostir
þeirra eru þeir, að ekki yrðl
þörf fyrir flugleiðsögumann í
flugvélinni, tækin eru nálkvæm-
ari en önnur tæki og gefa stöð-
ugar upplýsinigar til flugstjóm-
armanna og þau gefa mi'klu
meiri upplýsingar en Loran-tæk
in. Út frá rekstrarsjónarmiðinu
er það töluvert atriði að ektó. er
þörf fyrir flugleiðsögumann, en
það vegur hins vegar upp á móti
að einhverju leyti, að tækin eru
mjög dýr og þurfa talsvert við-
hald. Það er svo annað mál,
hvort þessi tæki verða ekki gerð
að skyldutækjum I flugi yfir N-
Atlantshaf, þvi að flugumferðín
á þessu svæði er orðin svo mik-
11, að horfir til vandræða, nerna
hægt verði að láta vélarn-
ar fljúga nær hver annarri og
til þess þarf nákvæmari tæki en
nú eru almennt í notkun.
— Myndu þessi tæki gera
störf flugumferðarstjóra ónauð-
synleg?
— Nei, þau geta ekki komið
í stað flugumferðastjóranna, því
að þeir stjórna umfterð hinna
fjölmörgu véla, en tækin eru að
eins leiðsögutæki fyrir eina vél
hvert. Það er hins vegar hægt
að tengja þessi leiðsögutæki
beint við stjórntæki vélarinnar
og láta þau fljúga henni beint
til ákvörðunarstaðar, þannig að
flugstjórinn þurfi aðeins að sjá
um flugtak og lendingu.
— Við höfum nú rætt um þessi
tæki vítt og breitt, en mig lang-
ar að lokum til að spyrja þig
um nám þitt í flugvélaverkfræði,
hvort þú teljir, að þú getir unn-
ið mörg verkefni á því sviði hér
á landi?
— Mín sérgrein var stjórn-
tækni, sem er ein grein af kerf-
isfræðum. Það hefur ákaflega
lítið verið gert á þvi sviði hér á
landi og verða vafalaust mörg
verkefni að vinna að fyrir mig,
og sum þeirra kannski í tengsl-
um við flugið.
Og þar með sláum við enda-
punktinn i viðtalið, þökkum dr.
Þorgeiri Pálssyni fyrir og kveðj
um hann að sinni. Eins og að
ofan var nefnt, er það Flugmála
félag íslands, sem stendur fyrir
fyrirlestrinum í kvöld, en eitt
af verkefnum þess félags er ein
mitt að stuðla að umræðum
um fflug og málefni þess.
Hér á landi er geysimiikill
ahugi meðal fólks á flugi, ekki
sizt vegna þess hve snar þáttur
flugið er í lífi allra landsmanna
og eins vegna þess hve flugrekst
ur er orðinn umfanigsmikill hér
á landi. Fýsir því vafalaust
marga að hlýða á fyrirlestur dr.
Þorgeirs i kvöld, en hann verð.
HÞannig: iítur stjórnborð tregðuleiðsögutækjanna út og má ur, eins og áður sagði, í Kristál-
segja, að ekki séu á því fleiri takkar en á nýtizkulegri elda- sal Loftleiðahótelsinis og heftst
vél, sem 3nrer húsnióðir getur læ rt á. Tregðuleiðsögtitækin sjálf tó. 20.20.
taka áiíka mikið pláss og ein sk úffa í skjalaskáp. — sfe. (