Morgunblaðið - 20.01.1972, Qupperneq 16
16
MOPW3UNBLAE>lÐ, FIMMTUDAGUR -20, JANÚAR 1972
Pétur Ólafsson:
Pétri Sigurðs-
syni svarað
Pétur Sigurðsson, í gervi rit-
ara Sjómannafélags Reykjavik-
ur, ritar heilsíðugrein í Morgun
blaðið sl. þriðjudag. Ekki mundi
ég hafa hirt um að svara henni,
ef Pétur hefði haldið sig við efn
ið, yfirstandandi st jórnarkosn-
ingu í Reykjavik, en þar eð
grein hans er óvenjulega rætin
og uppfull af persónulegum
dylgjum, ekki aðeins i minn
gárð, heldur og fjölskyldu minn
af, sé ég mig til þess knúinn
að biðja Morgunblaðið um rúm
fyrir svar við þeim atriðum, sem
grein ennverandi ritara gefur
tilefni til.
VERKALÝÐSHREYFING OG
PÓEITÍK
f Vikjum þá fyrst að málefnum
Sjómannafélagsins. Pétur eyðir
löpgu máli í að útlista það að
verkalýðshreyfingin sé ekki og
geti ekki verið ópólitisk. Um
það ætla ég ekki að deila við
Pétur, enda aldrei staðið til.
Það, sem ég, og félagar mínir,
sem að B-listanum standa, höf-
um haldið fram, er að verkalýðs
hreyfingin þurfi ekki að vera
óg eigi ekki að vera flokkspóii-
tísk. Dæmin eru nærtæk. Við
Pétur Sigurðsson erum báðir
sjálfstæðismenn. Það þýðir þó
ekki að ég hafi og verði að
hafa sömu skoðanir á öllum hlut
úm, og honum þóknast. Sem með
limur í verkalýðsfélagi mótast
skoðanir mínar af hag og kjör-
um sjálfs mdn og vinnufélaga
minna. Ég legg mat á störf Pét-
urs Sigurðssonar, sem forsvars-
manns í mínu verkalýðsfélagi
með aðstöðu til að taka málstað
sjómanna á Alþingi. Ef Pétur
Sigurðsson og félagar hans
falla á því mati, tek ég höndum
saman við félaga mína, sem kom
izt hafa að svipaðri niðurstöðu,
og með framboði reynum við að
gefa sjómönnum kost á því að
láta vilja sinn í ljós. Við spyrj-
um pólitísku flokkana einfald-
lega ekki að þessu. Sumum kem
ur það betur og sumum verr,
en það, sem máli skiptir fyrir
okkur sjómenn er að við berum
úr býtum forystu, sem við treyst
um og getum fylkt okkur um.
Þegar slíkur listi er kominn
fram, þarf eðlilega að koma hon
um á framfæri. Til þess leitum
við til blaðanna. Ef þau veita
okkur rúm, kemur okkur ekk-
ert við í hvaða tilgangi þau
gera það, svo lengi sem okkar
málstaður kemst óbrenglaður á
framfæri. Sama gildir um hús-
næði. Ef við fáum húsnæði, sem
hentar okkur og okkar starf-
semi, kemur okkur ekki hætis-
hót við, hvort leigusali hefur ein
hverra hluta vegna velþóknun
á okkar starfsemi, svo lengi sem
engir skiimálar fylgja.
Pétur virðist líka líta svo á,
að svo háttsettur sem hann sé í
mannfélaginu eigi hann að hafa
einkarétt á þvi að beita Morg-
unbiaðinu fyrir vagn sinn og af
dönkuðu kratakiikunnar í Sjó-
mannafélaginu og það gangi
guðlasti næst, að aðrir sjálfstæð
ismenn fái þar rúm til að koma
skoðunum sínum og sjónarmið-
um á framfæri. Morgunblaðinu
beri að verja ailar hans gerðir
og aðgerðaleysi í málefnum sjó-
manna í líf og blóð. Pétur vill
því greinilega nota verkalýðs-
hreyfinguna flokkspólitískt, eft
ir þvi sem flokkunum hentar
hverju sinni, með eða móti ríkis
stjórn. Ég vil aftur á móti að
verkalýðshreyfingin beiti sér
pólitískt, eftir því sem kjör og
hagur meðlima hennar krefst
hverju sinni, og án tillits til
þess hvaða flokkar eru innan
eða utan stjórnarráðsins, og það
höfum við B-listamenn rækilega
sýnt og sannað í yfirstandandi
kjaradeilu, að við erum ekki
handbendi neinna pólitískra
flokka, sem fórnum hagsmunum
okkar og félaga okkar eftir því
sem þeim eða rikisstjórninni
kæmi bezt í pólitíkinni.
Hvers vegna ætti ég þá, fyrir
það eitt, að ég er samflokksmað
ur Péturs Sigurðssonar, að þola
það, að á undanförnum árum
höfum við sjómenn fyrir beinar
og óbeinar aðgerðir hans og fé
laga hans, orðið fyrir kjara
skerðingum, sem nema tugum
þúsunda á ári?
EQGIÐ 1 SMAIJ
Neyðist ég nú til að vikja að
dylgjum Péturs Sigurðssonar og
iúalegum aðdróttunum um pers-
ónulega hagi mína. Fyrst er það
smáatriði, sem Pétur hafði í sím
tali við konu mína lofað að leið
rétta sjálfur, en láðst að koma
í verk. Til marks um áhugaleysi
mitt og félagslega deyfð, taldi
Pétur Sigurðsson sem sagt helzt
sér til framdráttar að draga son
minn inn í þessi mál með því að
ég hefði svikizt um að upplýsa
hann um, að þótt hann hefði
borgað tvö ár félagsgjald, hefði
hann þar engin réttindi, vegna
þess að hann hefði ekki geng-
ið frá formlegri inntökubeiðni.
Hefði hann komið á skrifstofu
félagsins og ætlað að kjósa, því
hann hefði talið sig í félaginu.
Hið sgnna er að drengurinn
Steig aldrei fæti inn á skrif-
stofu félagsins, af því að ég
hafði einmitt upplýst hann um,
hvernig allt var í pottinn búið.
Þessi ósannindi, þótt í litlu sé,
eru góður forsmekkur að þvi
hvernig Pétur umgengst sann-
leikann undir lok greinar sinn-
ar.
„PÓEITÍSK
FYRIRGREIÐSLA“
Pétur segir orðrétt:
„Grein mín mundi lengjast
um of, ef ég teldi hér upp þá
pólitísku fyrirgreiðslu, sem
hann hefur hlotið um dagana
frá fleirum en einum aðila."
Ég skora á Pétur Sigtirðsson
að sanna það, að grein hans
hefði iengzt um eina einustu
línu, já einn einasta bókstaf,
þótt hann birti tæmandi lista yf
ir allar þær fyrirgreiðslur, sem
ég eða nokkur úr minni fjöl-
skyldu hefur fengið úr hendi
Sjálfstæðisflokksins. Ég er fús
til að greiða Morgunblaðinu
fullt auglýsingaverð fyrir slika
upptalningu Péturs, svo að ekki
verði borið við rúmleysi fyrir
þann lista! En að vísu yrði ég
að áskilja mér rétt til að krefj-
ast þess, að hann yrði í sam-
ræmi við staðreyndir og sann-
leikann, og má vera, að Pétur
léti málið stranda á því skilyrði.
UMBOÐIN SEM HURFU
Og úr því að Pétur Sigurðs-
son hefur kjark til þess að
draga inn í málin, að „Pétur
Ólafsson hefur um ævina ætlað
sér að verða bæði heildsali og
iðnrekandi auk þess sem hann
stundaði bílabjörgunarstörf um
langt sikeið og með góðum ár-
angri,“ og I samhengi, sem gef-
ur í skyn að ég hljóti að hafa
meira en lítið óhreint mjöl í
pokahorninu, verð ég í svo
stuttu máli sem mér er unnt, að
rif ja upp ýmsa hluti í þessu sam
bandi.
Árið 1962 varð ég fyrir slysi
á handlegg og varð að hverfa í
land. Leit um tíma út fyrir að
ég ætti ekki afturkvæmt á sjó-
inn og fór ég þá að huga að
þvi, að skapa mér eigin atvinnu
í landi. Ég hafði umboð fyrir am
erískt stórfyrirtæki, sem verzl-
aði með hvers konar dæluút-
búnað og tæki í því sambandi,
s-vipuð og síldarflotinn hóf að
afla sér skömmu síðar. Það varð
að ráði, að ég gekk í félag með
Pétri Sigurðssyni og öðrum
Pétri, sem hann lagði til með
sér, kenndan við Brúarenda,
kunnan borgara hér I bæ. Þeim
skiptum lyktaði svo, að umboð-
in hurfu úr niinni eigu, og hef-
ur ekki fengizt upplýst, hver
með þau fer nú. Ég var kosinn
í stjórn félagsins, að mér fjar-
verandi (úti á sjó) og félagið
síðan gefið upp til gjaldþrota-
skipta, að mér forspurðum. Áð-
ur hafði ég reyndar neyðzt tfl
að höfða mál á hendur fyrirtæk
inu, enda bókhald þess allt í
óreiðu, og konu minni, sem var
endurskoðandi synjað um að-
gang að þeim gögnum, sem hún
hafði krafizt. Mál þetta hefur
legið hjá Sakadómara nú í fimm
ár. Kannski það sé ein af þéim
pólitísku fyrirgreiðslum, sem ég
hef fengið? Eða eru það aðrir
Pétrar, sem þar hafa notið
flokksskírteina sinna?
HAFA ALLIR
REYKVlKINGAR NOTIÐ
„PÓLITÍSKRA
FYRIRGREIÐSLNA“ ?
Um þessar mundir fékk ég
líka lóð vestur á Granda fyrir
lítið iðnfyrirtæki. Hafi sú lóðar-
veiting verið pólitísk fyrir-
greiðsla fullyrði ég, að hver ein
asti iðnrekandi og húsbyggjandi
í bænum hafi fengið slíkar fyrir
greiðslur. Ég lagði allt mitt und
ir til að koma þessu á fót, seldi
ofan af mér húsnæðið til að geta
byggt, en fótunum var kippt
undan þessu áður en ég gat
hafið starfsemi, þar eð annað
fyrirtæki við hliðina hafði feng
ið sams konar vélar og ég ætl-
aði að nota með kjörum, sem ég
gat ekki keppt við.
BIÐ.IÍ AFSÖKUNAR
Bilabjörgunarstörf hef ég
áldrei stundáð sjálfstætt, eh
vann hins vegar um háifs árs
skeið hjá FÍB, og fékk 100 kr.
á timann hvort sem var á nóttu
eða degi. Hvernig í ósköpunúm
óg hvérs vegna í ósköpunúm
Pétur fér að gera þetta tör-
tryggilegt er mér hulin ráðgáta.
En hvað heildsöluna og iðnfyr-
irtækið snertir vil ég benda á,
að Pétur gerir þau að fyrra
bragði að umtalsefni með að-
dróttunum og dylgjum. Vilji
hann að þau mál verði opih-
berlega rakin ofan í kjölihn,
skal ekki standa á mér óg
kunna þá fleiri að dragast þar
inn í en ég og hann. Kjósi
hann það ekki er honum sæmst
að biðja Morgunblaðið að bírta
afsökunarbeiðni sína. Þessi mái
eru fyrir dómstólunum og get
ég fyllilega sætt mig við að bíöa
eftir niðurstöðum þeirra, frem-
ur en sækja þau og verja á dag
blöðum.
Að lokum þetta. Úrslit kosn-
inganna í Sjómannafélaginu
sýna glögglega að framboð B-
listans átti fullan rétt á sér, var
byggt á félagslegum forsendum,
sem eiga sér mikinn hljóm-
grunn og á ekkert skylt við
persónulegt eða pólitískt upp-
þot. Hefðu kringumstæður ver-
ið þær, sem til er ætlazt í frjáls-
um kosningum er ég ekki í vafa
um, að hann hefði sigrað. Hefðu
þeir sjómenn sem í starfi eru á
skipunum yfirleitt verið í félag
inu með fullum réttindum, hefði
hann áreiðanlega sigrað með yf
irburðum. Það er kaldhæðnis-
legt, að Pétur Sigurðsson og skó
sveinar hans úr Alþýðuflokkn-
um reru að því öllum árum að
telja sjómönnum trú um, að við
B-listamenn værum upp tfl
hópa kommúnistar, ef hann
skyldi á næstunni verða að
iauna óvenjulega liðveizlu for-
manns í öðru verkalýðsfélagi,
Iðju, frænda síns og fóstra Run
ólfs Péturssonar, með smala-
mennsku fyriir lista Runólfs
þar, en hann er að meirihluta
skipaður yfirlýstum kommúnist-
um! Þegar málið er þó athugað
ofan í kjölinn er það þó ekki
svo merkilegt, því að allar að-
farir við Sjómannafélagskosn-
inguna hefðu betur sómað sér
fyrir austan tjald, en í landi
sem telur sig hafa lýðræði í há-
vegum! :
ATVINNA
Þvottahús í borginni vantar starfsfólk við eftirfarandi störf:
1. Vandvirkan og traustan mann til ýmissa starf.
2. Konu til verkstjórnar. Reyrtsla við lík störf æskileg.
Góð vinnuaðstaða. Góð laun.
Upplýsingar um aldur og fyrri störf sendist Morgunblaðinu
merkt: „2577".
Hafnarfjörður - Hafnarf jorður
Dömur athugið höfum fengið „conditionneur" baby form fyrir
litað og ólitað hár. Ennfremur mini vague, struktura, og
cikardi peimanent, toniku og fleiri olíur. Höfum lokað alla
mánudaga, en opið laugardaga frá kl. 8—4.
Ath. Ennfremur að verkfall hárgreiðslusveina nær ekki til
Hafnarfjarðar.
Hárgreiðslustofan LOKKUR
Strandgötu 28,
2. hæð. sími 51388.
Leiguíbúð!
Auglýsingastofan TÍGRIS óskar að taka á leigu tveggja eða
þriggja herbergja íbúð. Æskilegt væri að húsnæðið væri mið-
svæðis í Reykjavík eða nálægt Sjónvarpinu.
Góðri umgengni og skilvísri greiðslu heitið.
Ef að þér, sem lesið þessa auglýsingu, getið aðstoðar okkur
þá vinsamlegast hringið í síma 13000.
TÍGRI5
Auglýsingastofa Baldursgötu 6. FleyKjavik Símar 13000-20655 RG. Box 722.
Hesfafóðrun
Bóndi í Ámessýslu getur tekið nokkur hrcss
í fóðrun 1 vetur. Upplýsingar 1 síma 24595
kl. 6—8 næstu kvöld.
Stúlkur óskast
Brauð hf. Kópavogi
Skrifstofuhúsnæði óshnst
Óska að taka á leigu 20—40 ferm. skrifstofuhúsnæði.
Tilboð merkt: „939" leggist inn á afgr. Mbl. fyrir hádegi n.k.
laugardag.
Vélritunarstúlka
Stórt innflutningsfyrirtæki óskar eftir að ráða vélritunarstúlku,
hálfan daginn.
Nauðsynlegt er að viðkomandi hafi gott vald á íslenzku, ensku
og dönsku auk leikni i vélritun.
Umsóknir er tilgreini m. a. menntun, aldur og fyrri störl
sendist afgreiðslu blaðsins eigi síðar en 27. janúar n.k. merkt:
„IS — 940".