Morgunblaðið - 20.01.1972, Blaðsíða 17
MORGU.N1BLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. JANÚAR 19T2
17
-*
Danska dómsmálará,5uneytið:
Vill svipta
Mogens Camre
þinghelgi
Kaupmannahöfn, 19. jan. —
NTB
DANSKA dómsmálaráðuneytið
hefur sent þingrinu orðsendingu
þar sem farið er fram á að þing
maðurinn Mogens Camres verði
sviptur þinghelgi, svo hægt sé
að draga hann fyrir rétt. Camres
er þingmaður jafnaðarmanna, og
er sakaðnr um að hafa haft ólög
lega, skammbyssu í fórum sín-
um.
Hann var gripinn á Kaistrup
flugvelK í október í fyrra, með
hlaðna skammbyssu. Hann gaf
þá skýringu að hamn hiefði fentg
ið byssuna hjá útlægum Grikkja
í Osló, og verið beðinn um að af
henda hana öðrum Grikkja, sem
inman skamms kæmi til Kaup-
maninahafnar. Ekki er hægt að
sækja Camre ti'l saka meðan
hann nýtur þinghelgi, og því hef
ur dómsmálaráðuneytið nú farið
fram á að hann verði sviptur
henni.
Stjórnarmyndun í Finnlandi:
Miðar í sam-
komulagsátt
Helsimgfors, 18. jan. — NTB
LEÍÐTOGAR fimm finnskra
stjórnmálaflokka héldu fund með
Kekkonen forseta i dag til að
ræða möguleika á samsteypu-
stjórn. í Finnlandi eru tíu stjórn
málaflokkar, og embættismanna-
stjórn hefur farið með völd síð
an stjórnarkreppa varð á sl.
hausti vegna stefnunnar í land
búnaðarmáium.
Á fundinum í dag, lýstu leið-
togar allra flokkanna yfir því að
þeir væru fúsir til að halda á-
fram viðræðum, og bendir það
01 að nú miði loks í samkomu-
lagsátt. Flokkarnir fimm eru sós
íaldemókit'atar, miðflokkurimn,
kommúnistaæ, sænski þjóðar-
flokkurinn og frjálsilyndi þjóðar
flokkurinn og tvær nefndir hafa
unnið að því sleitulaust sl. viku
að gera málefnaisamning. Ömnur
nefndin fjallar um almenn póli-
tisk mál, en hin eingöngu um
landbúnaðarmálin.
Þar sem kommúnistar taka
þátt í viðræðum um stjórnair-
myndun, er líklegt að nýja stjóm
in verði lengra til vinstri en sú
gamla, ef þá samkomulag næst.
— Austfiröir
Framhald af bls. 28.
bryggju, gömul bryggja brotn-
aði og uppfyiling við rækjuverk-
smiðjuma skemmdist mikið. Emg-
ar 9kemmdir urðu á ibúðarhús-
utm.
Á Breiðdalsvík urðu miklar
skemmdir af völdum flóðs. I
síidarverksmiðju Braga hf. var
90 semtimetra djúpur sjór í gær-
morgun og átta vélar og hluti
af rafmagnstöflu verksmiðjunn-
ar í kafi, auk ýmissa annarra
hluta. Steypuefni til hafnargerð-
ar, sem nota átti á komandi
sumri, var geymt örskammt frá
húsum verksmiðjunnar og hafði
flóðið borið það að þeim, eyði-
lagt hurð á geymsluskemmu og
aiur og leðja komizt inn, einkum
í verksmiðjuhúsið. Nokkrar
skemmdir urðu einnig á þaki
þess. Emmfremur stórskemmdist
grjótgarður, byggður 1970 sem
upphaf að hafnarbótum í staðn-
uim, svo og kerslippur, byggður
1971. Ekki er búið að kan.na all-
ar skemmdirnar, en tjón netnur
vafalaust hundruðum þúsunda
krörm.
Á Stöðvarfirði gekk brimið á
land og olli skemmdum á öllum
húsunum á bakkanum. Braut
það rúður og hurð frystihússins
og færði grjót inn í vinnslusal
og vélasal. Vélar frystihússins
stöðvuðust, svo að frostlaust
varð í klefum, og ekki var hægt
að hefja vinmslu. Var unnið að
þvi í gærmorgun að hreinsa og
lagfæra húsið, Mikill sjór gekk
yfir bryggju og komust menn
ekki út í bátana við bryggjuna
fyrr en í gærmorgun og fóru þá
á jarðýtu út á bryggjuna. Færðu
þeir bátana út & fjörðinn og
biðu þar, unz veður gekk niður.
Vegurinn við síldarverksimiðjuna
Saxa eyðilagðist algjörlega af
völdum brimsins. Þá braut brim-
HJ m.a. hurð á fjárhúsi, sem er
& bakkanum, og fór alit féð út,
en sakaði ekki. Ymis önnur hús
á bakkanum skemmdust og einn-
ig urðu skemmdir á því, sem þar
var innan dyra.
Á Fáskrúðsfirði voru margir
bátar í hættu við bryggjuna, en
enginn þeirra skemmdist. Nóta-
bát tðk út og rak hann yfir fjörð
inn og endaði þar uppi í fjöru.
Sjórinn bar grjót upp á Hafnar-
braut, en engar skemmdir urðu
á götunni. Ekki urðu neinar
skemmdir á húsum á staðnum
af völdum sjógangsins.
Á Reyðarfirði varð ekkert
flóð, enda er fjörðurinn dýpst-
ur Austfjarða. Hins vegar
lenti einn báturinin frá Reyð-
arfirði Gunnar SU 139 í hrakn-
ingum sunnan við Langanes
í fyrrakvöld og hafði frétta-
ritari Morgunblaðsins á Fá-
skrúðsfirði tal af stýrimanni
bátsins Alfreð Steinari Rafns-
syni eftir komuna til hafnar.
Sagðist honum svo frá: „Við vor-
um staddir sunnan við Langanes
um 1V2 sjómílu frá landi í 6—7
vindstigum. Klukkan var þá um
hálf tíu í fyrrakvöld. Fengum
við þá á okkur brotsjó, svo að
báturinn hallaðist um 60—70
gráður. Við fengum annan sjó
á okkur rétt á eftir, þannig að
útlitið var ekki sem bezt. Sjór-
inn reif i burtu lunninguna og
komst niður i lest og einnig í
olíutank stjórnborðsmegin. Yfir-
leitt allt lauslegt á dekki fór í
burtu, þar á meðal gúimmiíbátur,
þó ekki björgunarbáturinn. Ekki
urðu niein slys á mönnum við
þetta óhapp.“ Báturinn kom svo
til Reyðarfjarðar um þrjú leytið
í gær og er tjónið greinilega mik
ið og þarfnast hann mikillar við-
gerðar. Gunnar SU er 250 tonna
bátur, smíðaður í Austur-Þýzka-
landi fyrir 15 árum.
1 Neskaupstað gekk sjór ytfir
götu og bar á hana stóra steina.
Þrír bátar, sem stóðu í vetrar-
lægi, brotnuðu og eru taldir ó-
nýtir. Stór nótabátur, sem not-
aður hefur verið sem flutninga-
bátur, tók sig upp og sigldi yfir
fjörðinn. Margiir aðrir bátar
færðust til, en skemmdir urðu
engar á þekn.
Sérfræðingar með gasgrímnr og i sérstökum hlifðarfötum rann-
saka tunnur með eitiirefnum, sem rak á land á Cornwall-skaga á
mánudag.
Eiturefnum
Dýrðar-
veizla
Pliiladeiphia, 19. jan. AP
AUDKÝFINGURINN og lista-
verkasalinn Reese Palley frá
Atlantie City í New Jersey S
Bandaríkjunum verður fimm-
• tugur á morgun, fimmtudag,
og hefur ákveðið að halda upp
á afmælið í París. Hefur Pall-
ey tekið á leigu tvær risaþot-
ur Pan American fiugfélags-
ins af gerðinni Boeing 747 tií
að flytja 725 vini og ættingja
til Parísar, þar sem hópurinn
dvelst í þrjá daga á Interoont
inental hótelinu.
Palley, sem á listaverkasöl
ur í Atlantic City, New York
og San Franoisco, hefur pant
að 370 herbergi á hótelinu i
Paris fyrir sig og gesti sina.
Er hópurinn væntanlegur til
Parisar á fimimtudagsmorgun,
en kemur heim til New York
á sunnudag. Fulltrúi Pan Am
flugfélagsins hefur staðfest
að Palley hafi greitt 110 þús-
und doliara (rúmlega 9V4
milljón króna) í fargjöld. Þá
hefur hann pantað gríðarleg-
ar afmælistertur til að bjóða
gestunum ura borð, og hver
gestur fær þar einnig skraut-
legt. glas með áletraðri mynd
af afmælis-,,barninu“. Tals-
maðurinn sagði að gestirnir
kæmu frá 20 ríkjum Banda-
rikjanna, og að starfsmenn
flugfélagsins hefðu unniö að
skipulagninigu ferðarinnar frá
því í júlí í fyrra. „Þetta var
vandasamt verk, en skemmti-
legt,“ sagði hann.
skolar á land
Palmouth, 18. jan. — NTB.
SKIP og sjóliðar frá brezku
strandgæzlunni eru á verði vifl
snð-vesturströnd Bretlands eftir
að rúmlega hnndrað tunnum af
eiturefnum skolaði á land i nánd
við Falmouth á mánudag. FuII-
víst er talið að tunnurnar séu
hluti af farmi spænsks flutninga
skips, sem sökk i fyrra mánuði
á Biskaíaflóa. Var skip þetta
meðal annars að flytja um 2000
tunnur af eiturefnum, sem not-
uð eru í málningu og plast-
kvoðu, til brezka félagsins Uni-
on Carbide. Á Biskaíaflóa kvikn
aði í skipinn og það sökk eftir
að áhöfninni hafði verið bjarg-
að.
Eiturefrún í tunnunum eru
bráðhættuleg, og hefur öll um-
ferð verið bönnuð um strand-
liengju við Falmouth. Þar hafði
ein tunnan brotnað i fjöruborð-
inu og eitrinu skolað á land. Ótt-
azt er að fleiri tunnum skoli á
laind, og er því strandgæzlan á
stöðugum verði.
Til greina befur komið að
banrna altar veiðar á miðunum
út af Cornwall-skaga af ótta við
að fiskur þar hafi orðið fyrir
eitrun.
Á fundi með fréttamönnum i
London í dag skýrði talsmaður
brezku stjórnarittnar frá því að
í fármi spænska skipsins hafi
meðal annairs verið 400 tunnur
af eiturefninu TDI, sem er mjög
hættulegt. Eitur þetta er vökvi,
og uppgufun frá honum innan
dyra getur valdið dauða þeirra,
sem anda henni að. Utan
dytra getur uppgufunin valdið
andþyngslum og brunasárum á
húð.
Þessi sjóreki er versta áfall,
sem íbúar Cornwall hafa orðið
fyrir frá því að olíuflutniniga-
skipið Torrey Canyon straindaði
og sökk við Scilly-eyjar í nuarz
1967 og hluti ol'íufarmsins flæddi
inn yfir strendumar.
Loftbardagi
háður yfir
N-Vietnam
Saigon, 19. janúar, AP.
HARDUR loftbardagi var háður
yfir Norður-Víetnam í dag, og
áttu þar bandariskar Phanton-
þotur i höggi við MIG-21-þotur
frá Norður-Víetnam, og flug-
skeyti, sem skotið var á þær af
jörðu niðri. Ein Phantonvélin
grandaði cinni norðiir-víetnömsku
þotunni, en þær bandarísku sneru
allar heim heilar á húfi.
Flugher Norður-Víetnamis hefur
sig yfirleitt ekki miikið í frammi,
enda missir hann tölfræðilega séð
rúimlega tvær þotur fyrir hverja
eina, sem honum tekst að granda
fyrir Bandaríkjamönnum. Þó hef-
ur hann nokkuð stundað það að
gera árásir á bandarísku flugvél-
arnar þegar þær koma hlaðnar
sprengjum, og eru seinar í svif-
um.
Loftbardaginn í dag hófst með
því að SAM-loftvarnaeldflaugum
var skotið að Phantom-þotunum,
og svo til um leið lögðu MIG-
þoturnar til atlögu. BandaríSku
þoturnar dreifðu sér til að forð-
ast eldflaugarnar, og réðust þá
MIG-þotuirnar á þær. Letknum
lauk sem fyrr segir með því að
MIG-þota var skotin niður, en
Phantom-þoturnar komust allar
heim, þótt ein þeirra væri löskuð
Vísað til
sáttasemjara
SAMNINGAR hafa enn ekki tek-
izt milli hárgreiðsl'usveiina og
hárgreiðslumeistara, en verkfaR
háirgreiðslusveiina hefur • sbaðið
síðan á laugardag. —*• Hefur
málinu verið visað til sáttasemj-
ara rikisÍTis, en hann hefur ékfcl
boðað tll fundar með deiluaðilum
enn sem komið er.
— Handtökur
Framhald af bls. 1
skýrslu um ástandið í Rhodesíu.
Skýrði sir Alec frá því, að hann
hefði óskað skýringar frá Iaui
Smith um ástæðurnar fyrir
handtöku Todds, fyrrum forsæt-
isráðherra, og viðurkenndi að at-
burðirnir í Rhodesíu undanfarna
daga hefðu valdið brezku stjóm-
inni miklum áhyggjum.
Þá sagði sir Alec að Ian Smith
hefði í dag sent brezku stjóm-
inni orðsendingu þess efnis, að
handtaka Todds stæði ekki í
neinu sambandi við gagnrýni
hans á kynþáttastefnu stjómar-
innar, heldur hafi hann og dótt-
ir hans verið fangelsuð af örygg-
isástæðum.
Að undanförnu hafa óeirðirn-
ar aðallega verið í Gwelo, þriðju
stærstu borg Rhodesíu. Tókst í
gærkvöldi að bæla þær óeirðir
niður, og var allt með kyrrum.
kjörum í borginnl í dag. Hins
vegar hófust í dag óeirðir i einnl
útborga Salisbury, og í borginni
Fort Victoria, rúmum 300 kíló-
metrum fyrir sunnan höfuðborg-
ina. Fjölmennt lögreglulið var
kvatt út í báðum borgunum, og
beittu lögreglumenn táragasi til
að tvístra blökkumönnunum,
sem stóðu að mótmælaaðgerð-
um þar.
LESIfl
DHCLECn