Morgunblaðið - 30.11.1972, Síða 17
MORGUNBLAÐÍÐ, FIMMTUDAGUR 30. NÓVEMBER 1972
17
| JQHANNHJÁLMARSSQN~
Frétt frá Moskvu
Fyrir nokkrum dögum bárust þær
fréttir frá Moskvu, að skáldið Júrí
Galanskov hefði látist í sovéskum
nauðungarvinnubúðum 33 ára að
aldri. Þegar orðið nauðungarvinnu-
búðir er nefnt vita flestir hvað það
merkir. 1 sovéskum nauðungarvinnu
búðum sitja menn, sem hafa gerst
sekir um „andsovéska starfsemi", og
það urðu örlög Júrís Galanskovs að
enda a:vi sína á slíkum stað vegna
þess að hann leyfði sér að gagn-
rýna sovésk stjórnvöld fyrir skerð-
ingu þeirra á andlegu frelsi. Auk
þess fór hann óvirðulegum orðum um
eftirlæti Sovétstjórnarinnar, rithöf-
undinn Mikael Sjólokov. Galanskov,
sem var maður veill fyrir, hefur að
öllum líkindum fengið að læra í
vinnubúðunum hvað það kostar að
beina skeytum að múrum hatursins i
Kreml. Samkvæmt fréttinni stendur i
bréfi frá honum, sem smyglað var út
úr vinnubúðunum í fyrra: „Ég eng-
ist ekki af kvölum, það er þjóðin,
sem er sjúk.“ Þessi orð skáldsins
sýna okkur inn í hugarheim, sem
ekkert vald getur bugað, lýsa stolt-
um einstaklingi, sem hugsar ekki að-
eins um sjálfan sig, heldur vill
lækna sjúka þjóð sína. En hversu
sjúk er rússneska þjóðin í raun og
veru, hve margir landar Júrís Gal-
anskovs hafa skrifað undir dóminn
yfir honum? Ekki þjóðin, heldur kerf
ið.
Þvi miður þekkjum við lítið til
skáldskapar Júrís Galanskovs og
sama er að segja um skáldskap
margra félaga hans. Verk þeirra fást
ekki birt opinberlega í Sovétríkjun-
um, en eru gefin út leynilega.
Um svipað leyti og fréttirnar ber-
ast um lát hins unga skálds er sýnd
i Reykjavik kvikmynd eftir frægri
skáldsögu: Dagur í lífi Ivans Deni-
sovits eftir Alexander Solsjenitsín.
Sagan hefur komið út i islenskri þýð
ingu á vegum Almenna bókafélags-
ins. Útkoma þessarar sögu táknaði á
sínum tima stefnubreytingu í sov-
ésku menningarlífi. Þá var Níkíta
Krústjov við völd og hugðist koma
til móts við kröfur rithöfunda og
menntamanna um andlegt frelsi, en
eins og kunnugt er neyddist hann
fljótlega til að hverfa af þeirri
braut.
Hafnarbió á heiður skilið fyrir að
sýna kvikmyndina um ívan Deniso-
vits. Þessi kvikmynd hefur vakið
mikla athygli og umræður. Finnar
treystu sér ekki til að sýna kvik-
myndina af diplóniatískum ástæðum.
Svo ósjálfstæð er utanríkisstefna
þessara frænda okkar og vina, að
kvikmynd um harðstjórn Stalínstíma
bilsins er þeim þyrnir í augum.
Dagur í lífi ívans Denisovits er að
mínum dómi áhrifamikil kvikmynd,
ekki aðeins vegna þess að hún er list
ræn að gerð, heldur af þeim sökum
að hún á brýnt erindi til okkar. Nýj
asta dæmið er dauði Júrís Galans-
kovs og þau eru ótalmörg dæmin,
ef farið væri að rekja þau.
En kvikmyndin, sem ef til vill býr
ekki yfir nægilega spennandi at-
burðarás til að hljóta þá aðsókn, sem
hún á skilið (í Hafnarbíói var hún
aðeins sýnd í viku, en vonandi er
að kvikmyndahúsið hefji sýningar á
henni að nýju), leiðir hugann að því
hve misbeiting pólitísks valds er lík
í öllum löndum. Myndin um Ivan
Denisovits geldur þess að við höfum
séð svo margar myndir líkar henni.
Við höfum kynnst óteljandi kvik-
myndum um ógnarverk nasista, þang
að til við erum farin að halda, að
engir hafi farið illa með pólitíska
fanga aðrir en þeir. Við höfum orðið
sefjun að bráð. Sannleikurinn er sá,
að ef skipt hefði verið um búninga á
Alexander Solsjenitsin.
sovésku vörðunum og sett á þá merki
þriðja ríkisins í staðinn fyrir hina
rauðu stjörnu „alþýðulýðveldanna",
hefði þessi mynd alveg eins getað
gerst í Þýskalandi Hitlers.
Á sama hátt vekur frétt um dauða
ungs rússnesks skálds ekki þá eðli-
legu reiði, sem hún á að gera. Við
erum hætt að vænta annars en þess
versta af sovéskum valdhöfum. Hugs
analetin og doðinn setur mark sitt á
veröld okkar. Frétt er aðeins frétt,
en ekki nálægur veruleiki. Enginn
mótmælir fyrir framán sovéska sendi
ráðið; það er ekki einu sinni haft fyr
ir því að skrifa bréf, eins og frægir
rithöfundar hafa stundum gert, til
þess að friða samvisku sína. Ekkert
heyrist frá Rithöfundasambandi Is-
lands. Það er engu likara en finnsk
sjónarmið í utanríkismálum hafi
fengið yfirhöndina á Islandi.
Agnar Guðnason skrifar
landbúnaðarmál:
Aukin fr jósemi sauðf jár
Meiri tekjur
ÞAÐ er viðurkennt af flest-
um sauðfjárbændum, að eiinn
þýðingarmesti þáttur til betri
afkomu fjárbúa sé aukin frjó-
semi. Þrátt fyrir þessa stað-
reynd, er víða þannig ástatt,
að ekki fæst lamb að jafnaði
eftir vetrarfóðraða kind. Með
kymbótum og fenigieldi má
auka frjósetmi sauðf járins.
Sveinn Hallgrímsson, sauð-
fjárræktarráðuhautur, hefur
gert ítiarlegan samanburð á
frjóseimi áa í tveimur sauð-
fjárræktarfélögum, Þistli og
Mýrahrepps. Eftirfarandi
tafla sýnir, hvernig frjósem-
in hefur aukizt:
á nokkru áraibili að rækta
upp verutega frjósemi í stofn-
inum.
ÚR BÚREIKNINGUM
í skýrslu Búreikningastofu
landbúnaðarins fyrir 1971 var
birt súiurit það, sem sýnt er
hér. Þar kemur fram, hversu
mikilíl munur er á afkomu
fjárbúanna eftir frjósemi.
Þar, sem fæðist 1 lamb eða
færri eftir vetrarfóðraða kind,
eru framteiðslutekjur á kind
minni en 2000 kr., þar sem
fæðast 1,3—1,4 lömb eftir
vetrarfóðraða kind, eru fram-
leiðsilutekjurnar kr. 2.426.
Framtegð á vinnustund er
lægst kr. 100, en mest kr. 179
Tímabil:
1940—1946
1946—1951
1952—1956
1957—1961
Sf. Þistili:
33.3
33.4
36,1
58,3
Sf. Mýrahrepps:
22,1
26,3
34,5
52,7
Sveinn gerði jafnframt at-—
hugun á því, hve mikiH hluti
ásettra girobralamba voru
fæddir tvíitembingar. Að með-
altaM fyrir þetta tímabil voru
það 58,7% i Sf. Þistli eða
47,2% í Sf. Mýrahrepps. Veru-
leg aukninig í frjósemi var í
báðum félögunum. Á timabil-
inu 1940—1946 voru 46,2%
ásettra lamfoa tvílembingar í
Sf. Þistli, en aðeins 27,9% í
Sf. Mýrahrepps. En á síðasta
tímabili, sem þessi rannsókn
tók yfir, voru 76,7% tvílemb-
ingar af ásettum gimbrum
hjá Sf. Þistli og 59,1% hjá Sf.
Mýrahrepps. Þannig er hægt
ið 18 dögum fyrir fengitíma,
en í hinum 8 dögum síðar.
Ærnar, sem lengur voru á
fengieldi, gáfu að meðaltali
1,71 lamb, en hinar 1,60. Mið-
að við 100 ær, þá fæddist 11
Franthald á bls. 20.
Runólfi Þorsteinssyni, Brekku
ÞykkK'fcbee, hefur tekizt að
rækta mikla frjósemi í fjár-
stofni sínunt. Hér er hann
með fjórlembu.
% áa, sem áttu tvö lömb og fleiri í Sf. Þistli og Sf. Mýrahrepps
á ártinum 1940—1961.
(fraimtegð = framleiðslutekj-
ur -f- breytitegur kostnaður).
Framtegð á vinnustund hækk-
ar með aukinni frjósemi.
FENGIEEDI
Með sérstöku fengieldi er
hægt að auka frjósemi ánna.
Margar tilraunir hafa verið
gerðar hér á landi tii að rann-
saka áhrif fóðrunar á frjó-
semina. Á Hesti voru gerðar
tilraunir árin 1969 og 1970 til
að kanna hvað áhrif mislangt
fengteldi hefði á frjósemina.
Ánum var skipt í tvo flokka.
f öðrum fíliokknum hófst eld-
i Kr-.
3 .000
2.500 _
2.000 -
1.5 00
1.000 -
500 -
Áhrif frjásemi sauSfjár á framlegð á vetrarfóÖraða kind og vinnustund.
Talan efst á sálu er framlegö á vinnustund.
Framleiöslutekjur á vetrarfáðraða kind.
157
Braytilegur kostnaöur á vetrarfáöraða kind.
Framlegö á vetrarfóðraöa kind.
128
1
I
i
11
jua—l—i--,—tuí——i—i-------- —un i—1-,——1—----,——*—'—■--. ---------
0,30—0,89 ' 0,98-0,99' 1,00-1,09 ‘ 1,10-1,19 1 1,20-1,29 1 1,30-1,39 1 1,90-1,49
Fasdd lömb á vetrarfdöraða kind.
1,50 og
yfir