Morgunblaðið - 30.11.1972, Síða 28
28
MORG UNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. NÓVEMBER 1972
— Við gáðum að henni, sagði
Bianehe. En við höfðum ekki
hugsun á að gera það, fyrr en
ég var búin að búa um sárið og
Pétur að ná í konjaksglas handa
Fioru. Hún lá héma á legu-
Concord lysing
Concord lompi
J^afbúdtn
Audbrekku49.
4 21 20.
bekknum. Hún hafði nægan tíma
til að ná í byssuna þar sem hún
hafði skilið hana eftir og koma
henni aftur í skúffuna ...
—'Það gerði ég bara alls ekki!
sagði Fiora í mesta æsingi. Þú
ert alltaf að segja, að ...
—- Hvað gerðirðu við kúluna,
Pétur? spurði Cal.
Ég fleygði henni út i Sundið.
Cal sagði stuttaralega: — Lof-
aðu mér að sjá byssuna.
— Gott og vel, sagði Pétur
rólega,. stóð síðan upp og gekk
fram i forstofuna. Cal fór á eft-
ir honum. Konurnar gátu heyrt
til þeirra.
— Það hefur ekki verið skot-
ið úr henni, sagði Cal. Að
minnsta kosti ekki nýlega. Eða
það held ég.
Pétur virtist dálítið hissa. -
Veiztu, að mér datt það aldrei
í hug. Þarna sérðu, hvort ég tap
aði mér ekki alveg.
— Áttu nokkrar aðrar byss-
ur?
— Nei.
— Þá hefur einhver raunveru
lega komið inn í húsið og skot-
ið á Fioru.
— Þetta var ég að segja þér,
sagði Fora við Blanehe.
— Það var verst, að þú skyld
ir fleygja þessari kúlu, sagði
Cal frammi i forstofunmi.
Hún hefði sannað, að byssam
þín var ekki notuð.
Löng þögn. Svo sagði Pétur
dræmt: — Ég var of fljófcur á
mér. Það er aldrei hyggiiegt.
En í þann veginn var Fiora að
%■ Hfíngl eílif miðncelli
M.G.EBERHART
falla í yfirlið og kjóllinn hennar
alblóðugur. En nú er of seint að
ná í þessa kúlu héðan af.
— Hvers vegna í ósköpunum
fórstu að fleygja henni?
—■ Notaðu vitið, sagði Pétur
kuldalega. —- Ekki vissi ég,
hvað hafði gerzt. Ég vissi bara,
að skotið hafði verið úr byssu
og ég átti byssu. Ef mín byssa
hefði verið notuð þarna og Fi-
ora hefði dáið, yrði ég fyrstur
manna til að liggja undir grun
hjá lögreglunni. Og kúla úr
minni byssu hefði verið öflugt
sönnunargagn. Róleg rödd Pét-
urs var orðin dálítið óþolin-
móð. — Og horfðu ekki svona
á mig, Cal. Enginn getur vitað
fr&wr.
Ueizlumntur
Smurt bruuö
og
Snittur
SÍI.I) 8FISKUIt
hvað réttast er að gera í neyð,
og mér fataðist þama dóm-
greindin.
—- Þú hélzt, að Fiora hefði
skotið á sig sjálf með byssunni
þinni.
— Hvað annað átti ég að
ha-lda?
— Ég gerði það ekki! æpti
Fiora. — Ég gerði það ekki!
Cal kom aftur inn í stofuna
og Pétur á eftir. — Hvernig er
það, Blanehe? Átt þú nokkra
byssu?
— Nei.
— En Fiora?
— Nei, ekki nema það þó. Ég
sem er dauðhrædd við þær. Ég
er alltaf að segja þér Pétur, að
ég skaut alls á m-ig sjálf.
Ca-1 sagði við Pétur. -— Þú rett
ir að kalla á lögreglu-na tafar-
laust. Strax!
Pétur hugsaði sig um sem
snöggvast. Já. Það lítur helzt
svo út sem ein-hver hafi brotizt
inn í húsið. Já, ég skal kalla á
ha-na sfcrax. Auk þess þarf lækn
iri-nn að fcilkynna það.
— Ég skal hringja. Cal fór
aftur fram í forstofuna.
— Þú trúðir mér ekki, Pétur!
æpti Fiora í re’lflutón. Ég sagði
þér þó, að ég skaut ekki á mig
sjálf.
— Fyrirgefðu, sagði Pétur
stilli-iega. — Ég hélt bara, að
þú hefðir sleppt þér.
Blanche sagði. — Þú verður
að skilja það, P’iora, að hér var
allt í uppnámi. Við gátum ekki
annað gert en s-inna þér, eins
fljótt og unmt Var. Þú ski-lur
ekki. . . .
í þýðingu
Páls Skúlasonar.
Hún þagnaði, þegar þau
heyrðu til Cals í símanum.
Hann sagðist tala vegna hr.
Vleedam —- einhver hefði brot-
izt inn i hús og skotið og sært
frú Vleedam. Nei, frúin væri
ekki alvarlega særð. Nei, það
virtist ekki vera neinn aðskota-
gestur núna í húsinu — þetta
hefði gerzt fyrir einum tveiimur
kl-ukkustundum. Nei, frú Vlee-
dam hefði engan séð. Enginn
hafði séð komumann. Nei, þetta
hefði ekki verið tilkynnt fyrr,
af því að þau hefðu verið að
sinna frú Vleedam og hefðu
ekki hafj hugsun á að ná í lög-
reglutna. Hann hlustaði svo
stund-arkorn, þakkaði slðan fyr-
ir og kom inn aftur. - Þeir
ætla að senda lögreglubíl
strax.
Fiora æpti enn upp yfir sig:
— Þú vildir ekki trúa mér, Pét-
grænt
hreinol
ÞVOTTALÖGUR
velvakandi
Velvakand: svarar i síma
1010C frá mánudegi til
föstudags kl. 14—15.
• „Hvar kreppir
skórinn að?“
Húsmóðir skrifar:
„í marga daga, margsinnis á
degi hverjum, hafa verið frétt
ir af Alþýðusambandsþing-
inu. Ætli engri húsmóður hafi
brugðið nema mér? Þó heyrir
maður, að aldrei hafi kaupmátt
ur launa verið meiri en nú, og
þess vegna ætlar þingið að
bíða eftir plöggum frá nefnd-
inni, sem ríkisstjórnin setti til
þess að rannsaka iaunakjör og
svo framvegis. Alþýðusam-
bandsþingið biður ekki einu
sinni um að hún flýti sér við
störfin það virðist svo sem ekk
ert liggi á núna. — Öðru vísi
mér áður brá. Hvað skyldi
hafa sézt í Tímanum og Þjóð-
viljanum eftir alla ráðs-
mennsku ríkisstjórnarinnar á
þessu rúma ári, ef svona vinnu
brögð hefðu verið viðhöfð á
dögum Viðreisnarstjórnar-
innar. Þetta eru sem sé þakk-
irnar fyrir það að ekki var far
ið í verkfall á meðan á samn-
ingum stóð, eins og oft var gert
hér áður. Þá loksins urðu allir
sammála um, að verkfall kem-
ur niður á allri þjóðinni, og
sýndu forráðamenn verkalýðs
mála í fyrsta skipti stjórninni
skilning, af hverju, sem það
svo stafaði. Jæja, sama er hvað
an gott kemur, það er kannski
hægt að sanna og afsanna allt
með tölum, en það er ekki hægt
að afsanna það, að maður veit
bezt sjálfur hvar skórinn
kreppir að. Hér er gerður sam-
anburður, bara á örfáum brýn-
ustu nauðþurftum.
í tíð fyrri stjórnar kostaði
t.d. mjólkurferna 26,20 kr. nú
32,10, skyr 27,30 nú 44,10, ost-
ur 30% 139,00 n. 169.00, smjör
1.30.00 og nú 196,50. Fiskur hef
ur einnig hækkað, sérstaklega
saltfiskur Ef nú húsmóðir ætl
ar að róa taugarnar með einni
sígarettu, þá fer nú allt versn
andi, því pakkinn hefur hækk
að úr 36,00 í 71,00. Brennivín
má víst ekki nefna, en það kost
aði 470,00, nú 650.00.
• „Valdið og þjóðin“
Ég hef alltaf haldið því fram,
að ómögulegt sé að fá góða skó,
eftir að Framsóknarfjármálaráð
herra er búinn að vera lengi
við völd, og líki því við það,
að í gamla daga þótti það lé-
legur bóndi, sem ekki gat skó
að konu sína, en þetta er eins
hvað snertir ráðslag Framsókn
ar á þjóðarbúskapnum. Með
kommúnistana gegnir öðru
máli. Þar er það bara ráðstjórn
in, sem leyfir enga samninga.
því að allir eru réttlausir þar,
og þess vegna getur stjórnin
bara skammtað að eigin vild.
Ef einhver möglar, þá seg-ir eft
irlitsmaðurinn frá og þá er sá
undir eins rekinn, og upplýs-
ingar um hann síðan sendar út
á vinnustaðina, og gæti þá orð
ið erfitt að fá vinnu. Ég kann
nú bara söguna af borgarstjór
anum í Leningrad. Hann hafði
þennan háttinn á, og svo þeg-
ar mannvesalingurinn var bú-
inn að ganga atvinnulaus um
tíma, þá var hann dreginn fyr-
ir borgarréttinn, og dæmdur til
fangabúðarvinnu fyrir leti.
Þessi borgarstjóri var í mikl-
um metum hjá valdhöfum, svo
núna er hann sjálfsagt kominn
í miklu betri aðstöðu. Það má
lesa um eftirlitsmennina í bók
eftir Arnór Hannibalsson,
„Valdið og þjóðin". Á þessum
árum var 1 eftirlitsmaður á
hverja 3 verkamenn. Það ættu
allir að lesa þessa bók, því þar
er ástandinu svo vel lýst og
allt með tiivitnunum, svo ná-
kvæmlega, að það er ekki hægt
að rengja eitt orð.
• Brjóstgæði „friðarsinna“
Mig hefur lengi langað til að
sjá svipinn á félögum í hinum
ýmsu Menningar og friðarsam-
tökum, og sérdeilis í „gegn-her
-í-landi samtökum", þegar þeir
eru að lesa þetta. I þeirri bók
er nefnilega margur stórbiti,
sem ætti hálfpartinn að standa
í þessu fólki, sem alltaf er að
kenma í brjósti um nærri allt
fólk á jörðinni, nema það sem
býr við kommúnistíska kúgun.
Mig langar líka til þess að
spyrja þetta brjóstgóða fólk,
að því, hvort matvælaskortur-
inn í heiminum gæti ekki að
einhverju leyti verið kommún
ismanum að kenna t.d. í Rúss-
landi, sem kallað var korn-
forðabúr Evrópu á dögum keis
aranna, en nú verður að flytja
inn kornvörur á hverju ári.
Getur komskorturinn ekki ver
ið af því að í Rússlandi rekur
ríkið 92%> af öllu landinu
en sjálfseignabændur bara 8%,
en þessi 8% framleiða 40% af
allri framleiðslunni en 92%
skila bara 60%. Sannast þá það
gamla, að það grær ekki gras
í sporum kommúnismans frek-
ar en hjá hestum hans Attila.
Húsmóðir."
• Kcnnsla í framkomu
og háttprýði
Steinunn Sigurðardóttir,
Garði, hringdi og spurði, hvort
ætlaður væri tími fyrir kennslu
í framkomu og háttprýði í frum
varpi fyrir nýrri fræðslulög-
gjöf, en ætlunin mun vera að
leggja frumvarpið fyrir Al-
þingi fyrir lok þessa árs.
í menntamálaráðuneytinu
fengust þær upplýsingar, að
frumvarpið væri enn í smíðum
og væri ekki unnt að skýra
frá efni þess, fyrr en það yrði
lagt fram.
Certina-DS:
úriö,
sem þolir
sitt af hverju!
Certina-DS, algjörlega áreiðan-
legt úr, sem þolir gífurleg högg,
hita og kulda, í mikilli hæð og á
miklu dýpi, vatn, gufu, ryk.
Ótrúlegt þol, einstök gæöi. Litiö
á Certina úrvalið hjá helztu
úrsmíðaverzlunum landsins.
Skoðið t.d. Certina-DS
Chronolympic Chronograph,
sérstaklega högg- og vatnsþétt,
ryöfrítt stál, þrír teljarar fyrir
sekúndur, minútur og klukku-
tíma Svört eða hvít skífa.
Certina-DS, úr fyrir áræðna.
Certina-DS Chronolympic
Chronograph, sérstaklega
högg- og vatnsþétt, ryðfrítt stál,
þrir teljarar fyrir sekúndur,
mínútur og klukkutíma. Fæst
með svartri eða hvítri skífu.
Certina-DS fæst, ásamt úrvali
Certina úra, hjá helztu úrsmiða-
verzlunum landsins.
CERTINA
Certina Kurth Fréres SA
Grenchen/Switzerland
Ú tgerðarmenn
Get bætt við stöðina EYJABERG einum netabát
á komandi vertíð. Hef til netaveiðifæri.
Sími 1123, Vestmannaeyjum, eftir kl. 8 e. h.