Morgunblaðið - 21.01.1973, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. JANÚAR 1973 5
lisSasprang
Hverjir eiga gamiar
myndir eftir Sverri?
Sverrir Haraldsson lfistmál-
ari er nú að undirbúa stóra
máliverkaisýninigu sem verður
opnuð á KjarvaLsistöðum i sum
ar eða haust. Verður þetta
yfirlitssýning á verkum Sverr
is, allt frá því að hann byrj-
aði að mála og einnig verða
nýjustu myndir hans á sýn-
ingunni.
Sverrir og þeir sem vi.nna
að undiirbúningi sýningarinn-
ar hafa að undanförnu verið
að leita uppi gamlar myndir
eftir listamanniinn tii þess að
fá þær lánaðar á heildarsýn-
inguna. Eru það vinsamleg til
mæli til þeirra, sem eiga eldri
myndir eftir Sverrir að
hringja í síma 17840 fyrir há-
degi, en markmiðið er að fá
að velja úr sem flestum
mynduim fyrir þá yfirgrips-
miklu sýningu sem er fyrir-
huguð.
Tehús ágústmánans
á Sauðárkróki
Leikfélag Sauðárkróks á-
kvað í þessari viiku að taka
til sýningar gamanleikritið
Tehús ágústmánams eftir
John Patrik.
Aðal'hlutverkin eru leikin af
Hafsteini Hannessyni bifreiða
stjóra, Kristjáni Skarpihéðins-
syni kaupmanni, Svövu Svav-
arsdóttur, á iausum kili og
Hilmari Jóhannessyni mjólk-
urfræðingi, en framangreindar
upplýsingar gaf Kári Jónsison
formaður Leikfélags Sauðár-
króks.
Leikfélagið hefur venjulega
tekið eitt til tvö verkefini á
ári á.m.k. og s.l. ár voru t.d.
tvö verkefni tekin fyrir; AMr
synir mínir, eftir Arthur Mill-
er og Landabrugg og ást.
Hlutverkaskipti
í Iðnó
Þóra Borg leikkona varð
fyrir því óhappi að handlegigs
brotna og því verður önnur
lieikkona að taka við hlutverki
hennar í KristnihaMinu, þar
sem hún hefur leikið konu
Tuma Jónsens safnaðartfor-
manns. Við hlutverkinu tekur
Arnhildur Jónsdóttlr.
Þá hefur Gunnar Bjarnason
tekið við hlutverki prestsins í
Atómstöðinni eftir Laxness.
Gagnfræðaskóla-
nemar sjá
Leikhúsálfana
Aðsókn að Lei'khúsálfunum
i Iðnó hefur aukizt talsvert
að undanförnu og er sú aukn-
ing mest vegna þess að gagn-
fræðaskólanemar hafa fengið
áhuga á verkinu, enda er það
upplagt fyrir unglinga. Til
- dæmis er nærri uppselt á
Leikhúsállfana n.k. sunnudag.
Flóin gerir allt
vitlaust
Það er ekkert lát á Flónni
í Iðnó, hún er hreiniega að
gera aUt vitlausif. Það er þó
skárra að þetta er ekki garnal-
kunna flóin úr þjóðiífi fslend-
inga, en miðar á þennan hlát-
urleik seljast ávallt upp á 10
mínútum eða svo, enda lanigar
biðraðir við miðasölu Iðnó.
Unnur Guðjónsdóttir seni ver-
ið hefur ballettmeistari að
undanförnu.
Nýr ballettmeistari
Þjóðleikhússins
Nýr ballettmeistari kemur
til Þjóðleikhússins í stað Unn
ar Guðjónsdóttur, sem heldur
til Svíþjóðar þar sem hún rek
ur eigin ballettflokk.
Nýi balliet'tmeis'tarinin heitir
Alilan Carter frá Englandi, en
það var umboðsmaður Mar-
got Fonteyn, sem útvegaði
hann þegar hann kom hingað
til Lands í haust. Allan Carter
er nú í Osló, en hiinigað kemur
hann tíl þess að æfa ballett-
inm og setja upp sýningar.
Sinfónían með létta
tónlist í útvarpið
Á sunnudaginn klukikan
19,55 mun Sinifóníuhljómsveit
Islands leika næstu 40 minút-
urnar létt lög í útvarpinu og
verða þama nokkurs konar
Hljómskáiatónleikar, létt llög
við allra hæfi. Tónlistin verð-
ur eftir bítla og ekki bítla,
þannig að flestir ættu að geta
hafit gaman af púðrinu.
Einar með fiðluna
heim
Einar G. Sveinbjömsson
fiðiuleikari kemur heim til ís-
lands nú um helgina frá Svi-
þjóð ti'l þess að leika með Sin-
fóníuhljómsveit íslands á
fiimmtudaginn. Einar hefur
Einar G. Sveinbjörnsson
um árabil verið búsettur í
Svíþjóð, en hann er konsert-
meistari í Mataö.
— á.j.
P.S. Það eru vinsamleg til-
mæli til þeirra sem vilja
koma einhverjum fréttum
á framfæri úr listaheiimin-
um að þeir hafS samband
við okkur, við höfum
áhuga.
Sverrir Haraldsson, listinálari.
Okkar landsfræga janúarútsala heldur áfram að
LAUGAVEGI 89
Jakkaföt frá 3.900.- tK Stakir herrajakkar frá 1.500.- Stakir dömu-
jakkar frá 1.200 - >f Terylene-buxur frá 990.- x- Gallabuxur frá 490.-
Flauelsbuxur frá 890.- >f Skyrtur frá 300.- tK Peysur dömu og herra
frá 790.- >f Bolir dömu og herra frá 190.- * Ullarteppi 690.-
Terylene-bútar — Úrvals buxnaefni í litum
Aldrei meira úrval allt á útsöluverði >f Þetta er útsala ársins!