Morgunblaðið - 21.01.1973, Page 17

Morgunblaðið - 21.01.1973, Page 17
17 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. JANÚAR 1973 Gunnar G. Schram: Efni auðlinda- tillögu íslands og Perú 1 GREIN, sem birtist í Morgunblað- ínu þann 9. janúar sl., eftir Einar Hauk Ásgrimsson, verkfrœðing, er vikið að tillögu Islands, Perú og fleiri rikja, um yfirráð yfir auðlind- um hafsins, sem 27. allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna samþykkti þann 18. desember sl. Er í greininni sagt, að ályktunin sé ,,svo óljóst orðuð, að hún sker ekki úr neinu vafaatriði." Hér gætir nokkurs misskilnings hjá greinarhöfundi, sem ástæða er til að leiðrétta, enda hefði verið harla tilgangslaust fyrir islenzku sendinefndina á þessu þingi, og þær aðrar, sem að tillögunni stóðu, að bera hana fram, ef tillagan skæri ekki úr neinu vafaatriði. Fyrsta grein tiilögunnar er svo- hljóðandi: „Allsherjarþingið „ítrekar rétt til varanlegra yfirráða yfir öll- um náttúruauðlindum þeirra, á landi innan alþjóðlegra landamæra þeirra, og jafnframt yfir þeim auðlindum, sem finnast í hafsbotninum innan lögsögu einstakra ríkja og í hafinu þar yfir.“ Varla þarf að leika vafi á því, hvað er hér við átt. Ekki einungis lýsir allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna því hér yfir, að riki eigi allan rétt til þeirra auðæfa, sem í hafsbotni finnast, svo sem olíu og málma, held ur nái yfirráðaréttur strandríkisins einnig til allra þeirra auðlinda, sem eru í hafinu yfir þessu svæði. Inn- an þessarar skilgreiningar fellur allt landgrunnshafið og einnig hafsfræði utan þess, svo langt sem lögsaga rikja yfir hafsbotninum nær. Hér er því með öðrum orðum lýst yfir í fyrsta sinn, af hálfu Samein- uðu þjóðanna, að strandrikið hafi eitt yfirráð yfir fiskstofnum í haf- inu út að mörkum hafsbotnssvæðis- ins. Þar er ekki lengur neitt „vafa- atriði“ á ferðum. íslenzka landgrunns hafið fellur vitanlega allt innan þess ara marka og er það í þessu efni, sem samþykkt auðlindatillögu alls- herjarþingsins hefur mesta þýðingu varðandi sóknarstöðu okkar í land- helgismálinu. En hve langt út fyrir landgrunn- ið skulu réttindi strandríkisins yfir hafsbotninum ná, og þá um leið yfir fiskstofnunum? Þeirri spurningu er ekki svarað i ályktuninni, enda er hún almenn pólitísk grundvallaryfir- lýsing, og ekki ætlað að marka víð- Gunnar G. Schrani áttu auðlindalögsögunnar i mílum. Það er verkefni næstu Hafréttarráð- stefnu Sameinuðu þjóðanna, sem kemur saman til fyrsta fundar síns á þessu hausti. Gera má sér þó allvel í hugarlund, hvar mörk hafsbotnssvæðisins muni ákvörðuð, og þá um leið auðlinda- lögsögunnar, samkvæmt ályktun allsherjarþingsins. Tugir ríkja hafa þegar lýst sig fylgjandi því, að mörk- in verði ákvörðuð 200 mílur frá ströndum. Jafnframt hafa allmörg ríki í reynd veitt vinnsluleyfi allt að 200 mílur frá ströndum. Má þar nefna Bandaríkin, Kanada, Ástralíu og Norðursjávarríkin. Ríkisstjórn Kanada hefur og veitt leyfi allt niður á 3.700 metra dýpi og Bandarikja- stjórn á um og yfir 5.000 feta dýpi. Sýnir þetta, að ósennilegt er að mörk hafsbotnslögsögu rikja verði ákveðin miklu skemmri en 200 mil- ur frá strÖndum. í annarri grein, sem birtist hér i Morgunblaðinu fyrir skömmu, var það gefið í skyn, að samþykkt auð- lindatillögunnar væri ekki neitt ný- mæli, heldur nánast framhald af starfi Sameinuðu þjóðanna í þessu efni. Hér er um misskilning að ræða. Ilvorki allsherjarþingið né aðrar stofnanir S.Þ. hafa fyrr gert slíka samþykkt. Hún er ítrekun á sjón- armiðum, sem mörg strandríki, þar á meðal ísland, hafa lengi barizt fyr- ir, en ekki fengið hljómgrunn hjá meirihluta þjóða. En nú verða þátta- skil. Nýtt blað er brotið i sögu þessa máls, þegar vfirgnæfandi meirihluti Sameinuðu þjóðanna lýsir fylgi sínu við þessi sjónarmið, þrátt fyrir harða andstöðu Evrópurikia og annarra. Það er einmitt af þessum sökum, vegna þessa nýmælis, sem islenzka tillagan varð tilefni harðari deilna í efnahags- og auðlindanefnd S.Þ. en flestar aðrar tillögur, sem þar voru á dagskrá. Og sú var m.a. ástæðan til þess að New York Times taldi tilefni til að fjalla um markmið tillögunn- ar í forystugrein þann 24. desember sl., auk frásagna í öðrum blöðum hér á austurströnd Bandaríkjanna. Að lokum þetta: Auðlindaálykt- un 27. allsherjarþingsins hefur ekki bindandi lagalegt gildi. Hún er hins vegar mikilvæg stefnumótandi grund- vallaryfirlýsing 102 þjóða heims, hlið- holl í máli, sem varðar lífshagsmuni íslenzku þjóðarinnar. 1 því felst meg- in framtíðargildi hennar. Með þökk fyrir birtinguna. New York, 16. janúar 1973, Gunnar G. Schram, varafastafulltrúi íslands hjá Sameinuðu þjóðunum. (Ljósm. Mbl. ÓL K. Maig.) Unga kynslóðin Hér á Islandi hafur stríðið í Víetinam haft sín áhrif eins og armars staðar og þá fyrst og fremst í röðum þeirrar kynslóð- ar, sem hefur komdzt til vits og ára á þeim tíma, sem hún hefur verið háð, með aðild Bamdarikj- anna. Áhrif þessarar styrjaildar á þetta unga fólk hafa fyrst og fremst orðiið þau, að það dregur i efa réttmæti fuliyrðiniga hinma eldri, að i heiminu>m takist á tvenns konar öfl, kommúnism- inn, sem í raun þýði einræði, og lýðræðisríkin með Baindaríkin í broddi fylkingar, sem berjist fyrir frelsi og sjálfstæði þjóða og eimstaklinga. Að vonum á unga fólkið erfitt með að skilja, að með því að berjast fyrir þvi að haildia hersihöfðingjum við stjórn í Saigon, sem litla virð- ingu hafa sýnt lýðræðimu, séu Baindaríkin að berjast fyrir þeim hugsjónum, sem þau hafa verið talin í fararbroddi fyrir. Þesisi einfalda staðreynd á áreiðanlega mjög ríkan þátt í því, að á siðustu árum hafa vinstri sininaðar og sósialiskar stjómimálaskoðanir náð veruleg- um áhrilfum, sérsitaklega í þeim hópd ungs fólks, sem stumdar háskólanám. Það trúdr ekki leng- ur á baráttu-na milli einræðis og frelsis, dregur í efa fullyrðingar hinna eldrx þar im. Kannsiki er þetta skiljanlegt, sérhver kyn- slóð verður að læra sima lexíu. Styrjöldin í Vietnam yfirgnæfði atburðina í Tékikóislóvakíu 1968. Fyrir löngu er orðið tfmabært að taka upp urnræðu við hina vinstri simmuðu æsku, mæta full- yrðingum hennar með málefna- legurn rökum og leiða henni fyr- ir sjónir, að þrátt fyrir allt eru lýðræðishugsjóniir hinna frjálsu þjóðfélaga á Vesturlöndum meira virði en hinn einræðissinn- aði sósíaldsmi í Austur-Evrópu. Málefnalegar umræður um styrj- öldina í Víetnam, aðiild Banda- rikjiatmianna að henni og tilrauai- ir til þess að brjóta áhrif henn- ar og afleiðimgar til mergjar hljóta að vera þáttur í nauðsyn- legum skoðanaskiptum milli æskunnar og hinna eldri. Enginn veit hvað átt hefur fyrr en misst hefur Ljóst er, að á undanförnum ár- um hefur stöðugt brei'kkað bilið mdlli kynslóðamnia í viðihorfum til þjóðféiiagsmála. Fáir menn hafa skilgreint þessi mismunahdi sjónarmið með jafn glöggum hæt'ti og forseti Islan'ds, Kristján Eldjárn, gerði i nýársávarpi sínu til þjóðarinnar. í því sagði hann m.a.: „E.t.v. er ofdirfsku- fulit að segja, að við þessi ára- mót sé friðvænlegra um að lit- ast í heiminum, en verið hefur um nokkurt skeið, enda er kyn- slóð hins kalda stríðs tortrygg- in og m'arghvekkt og trúir var- lega, þótt teikn sjáist á lofti, sem virðast spá góðu. Engu að síður hefur því verið almenmt fagnað og rnargt hefur gerzt á sl. ári, sem í svip hefur orðið til þess að slalta á sitrengdum taug- um hins kalda stríðs miild valda- þjóða heims og höfðingja þei:rra.“ Síðar í ræðu sinni vék Kristján Eldjárn að viðhorfum hinna yngri og sagði: „Hugur manna flýgur nú viða. Margir og ekki sizt ungdr menn eru tortryggnir á hdn gamaigrónu forystulönd og forréttindalönd, bæði austan hafs og vestan. Áhugi þeirra og saimúð beinist fasit að baráttu og þróun hinna fátæku og fjöl menmu þjóða, sem byggja önn- ur jarðarhvel. Þetta er eðlilegt og í fullu samræmi við vaxandi tilfinningu fyrir þvi á öld hraða og f jiarskipta og geimsiglinga að jörðin sé ein og mannkynið eitt . . .“ Með þessum fáu orðum hefur foijseti Islamds dregið upp skýra mynd af þeim skoðanamun, sem ríkir milli eldri og yngri. Vissu- lega er það rétt, að sú kynsióð, sem kynntist kalda striðinu af eigin raun, trúir varlega blíð- mælum og vísbendingum um, að það sé að renna sitt skeið á enda. Þeir, sem upplifað hafa mestu viðburði kalda striðsins, bjdting- unia í Tékkóslóvakíu 1948, loft- brúna til Berlínar, uppreisnina í Austur-Beriin á þjóðhátdðardegi Islendinga 1953 o.s.frv., eiga bágt með að skilja áhugaleysi unga fólksiins á þessum viðburð- um með sama hætti og margt ungt fólik er þeirrar skoðunar, að þeir eldri séu vanafastir um of og ríghaldi í gömul sjónarmið og atburði liðinna tíma. Hér þurfa til að koma skoð- anaiskipti, sem munu efla skiln- ing á báða bóga. Vafalaust er mikið hægt að læra af viðhorf- um unga fólksins, sem hefur haft forystu um mjög breytt gildismait eins og það hefur ver- ið kallað. En með sama hætti skyldi unga kynslóðin ekki van- meta reynslu hinna eldri. Eftir heimss'ty r j öldina fyrri og þær hörmungar, sem henni fylgdu i Evrópu, voru menn þeirrar skoðunar, að með henni hefði síðasta styrjöldiin verið háð. Mannkynið mundi ekki kalla yfir sig sllkar hörmumgiar á ný. Þær vonir brugðust eins og alltr vita. Nú eru margir þeirrar skoðunar, að Víetnaimstyrjöldin kunni að verða síðasta stórstyrjöldin. Er það ekki fullmikil bjartsýni? Et ekki viturlegt fyrir unga fólkið í dag að taka mið atf reyinslu þeirra, sem eldri eru? Ef það er ekki gert, gæti svo farið, að frelsi og lýðræðisleg mannrétt- indi, sem unga fólkið á Vestur- löndurri hefur vamizt sem sjálf- sögðum hlut, en jafnaldrar þeirra í Austur-Evrópu þekkja ekki, verði frá þeim tekið. Enginn veit hvað átt hefur, fyrr en misst hefur. Þótt for- ysturiki lýðræðisins, sem með þátttöku sinni í heimsstyrjöld- inni síðari skipti s'köpum um fall nasismans, hafi valdið vonþrigð- um, má það ekki verða til þess, að uppvaxandi kynslóðir glepj- ist til þess að fórna helgum mannréttindum fyrir þjóðfélags- kerfi á borð við sósíalismann, sem hefur sýnt, að þar sem hann rikir þrífst frelsið ekki, hvorki til orðs né æðis.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.