Morgunblaðið - 17.06.1973, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 17.06.1973, Qupperneq 10
V MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 17. JÚNl 1973 % Listaverk búið undir Islandsf ör í JTJLÍMÁNUÐI kemur lista- konan Gerður Heigadóttir og starfsmenn á verkstæðum Oidtmans í Þýzkalandi með mósaík-mynd þá, sem setja á upp á nýju tollstöðina í Reykjavík, en í vetur hefur listakonan og starfsmenn verkstæðisins unnið að henni, klippt niður mósaík-steinana og komið þeim fyrir í mynd- inni. Síðan verður myndin flutt í htutum og unnin sam- kvæmt hinini hefðbundnu mósaík-list á vegg stöðvarinn- ar. Morgunblaðið hefur fengið nokkrar myndir af vinnslu verksins í Þýzkalandi og birtir þær hér með. E'nnig mynd af líkani af mynd, sem Gerður mun gera úr kopar og bronsi, og sem standa á fyrir framan nýtt hverfi, er fyrirtækið Societe Centrale Immobiliere de ia Caisse des Depots er að reisa i Caen í Norður-Frakklandi. Á stytt- an að vera tveir og hálfur metri á hvem veg og hefur Gerður skrifað undir samin- inga um að gera hana í haust, er hún kemur frá íslandi. En hún hefur áður skreytt íbúða- hverfi með listaverki á sama stað. Vinnuaðstaðan er ekki sein bezt í bráðabirgðavinnustofu Gerðar i París. Hér er hún að stækka vinnuteikningar af mósaík-myndinni á gólfinu og hefur fengið starfsbróður sinn, Enaril tii bjálpar. Gerður Helgadóttir og starfsmenn á verkstæði Oidtmans vinna við mósaík-myndina í verkstæðinu i Linnicb. Aðeins bluti af myndinni sést á gólfinu, en greina má skipamyndir í horninu til hægri. Líkan af brons- og koparsty ttiinni, sem Gerður mun vinna og setja upp í C aen i Frakklandi. V THE OBSERVER Eftir Roland Huntford * Enn styðja Svíar Víetcong ÞAÐ EB einkar algeng sjón í Svíþjóð, að sjá vei metna borgara með rauð, gnl og blá merki í fötun- um með einkennisorðunum „Með Víetnömum tii sigurs“. Þctta er merki sænskra stuðningsmanna Vietcong. Þeir virðast ákveðnir í því að hafa að engu þá staðreynd að striðinu í Víetnam er opinberlega lokið, og halda áfram að bera merk- in svo lengi, sem þeir sjá ástæðu til. Svíþjóð er ólík flestum vestræn- um þjóðum að því leyti til, að Víet- namhreyfingin hefur mikil áhrif með al ven julegra kjósenda. Og þelr hafa stofnað með sér landssamtök, nokk- uð þýðingarmikil, einmgarsamtök Þjóðfrelsisfylkingarinnar, þótt rök- réttara væri að segja Samtök stuðn- bigsmanna Þjóðfrelsisfylkingar- innar. Um 50.000 meðlimir eru í samtök- um þessum víðs vegar um Olof Palme. landið, en aðalstöðvamar eru í Stokk hóimi. Sænska ríkisstjómin er hlynnt samtökunum og Olof Palme, forsætis ráðherra, Krister Wickman, utanrík isráðherra og aðrir ráðherrar, hafa opinberlega lofað Þjóðfreisisfylking- arsamtökin, og gera svo enn þó að vopnaihlé hafi verið samið. Víetnamstríðið hefur haft mjög mikil áhrif á sænska æsku, og hafa Svíar verið virkastir í baráttunni gegn stríðin'U af öilum Norðurlönd- unum. 1 Svíþjóð heldur fylkingin áfram að marséra um vegna þess að hún hefur ekki fenigið neitt hentugt baráttumál í staðinn. Heimurirm bíður eftir að endanieg ur friður komist á í Vietnam, en það eru Bandaríkjamenn einir, sem geta bundið enda á stríðið en Svíar viðurkenna bráðabirgðabyltingar- stjómina í Víetham. Þó að Sviar séu eindregnir stuðn- ingsmenn Hanoi og Viietcong, munu þeir ekki skuldbinda sig till beinna aðgerða, svo lengi sem bráðabirgða- stjómin stjómar ekki Suður- Vietnam. En það er greinilegt, að sænska Þj óðfrelsisfylkingin á erfitt uppdrátt- ar, þótt hún haldi áfram að starfa, og kom það fram á útifundi í Stokk- hólmi' nýlega, hvað fylkingin mun taka sér fyrir hendur i framtíðinni. Fundurinn var haldinn til stuðn- ings Palestinu-Aröbum, en var óvin- veittur Israel. Ef til vill sýnir þetta, að vandamál Palestínu-Araba taki við, þegar styrjöldinni í Vietnam lýk ur, og verði baráttumál Þjóðfrelsis- fylkingarinnar í Svíþjóð. Fylkingin hefur einnig mikinn áhuga á málunum á Norður-lrlandi. Stuðnimgsmenn Víetconig hafa mikla samúð með írska lýðveldishem- um. Þeir hafa gengið um götur Stokk hólms, með kröfuspjöld, sem lýsá and úð á Bretum, en stuðningi við „Prov- isional“ arm írska lýðveldishersins. Það er þó ásetningur Þjóðfrelsis- fylkingarinnar, að berjast eins lengi og unnt er fyrir því að endi verði bundinn á styrjöldina í Víetnam.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.