Morgunblaðið - 17.06.1973, Side 14
Í4
MORGUNTBLAÐIÐ, SUNNUOAGLTR 17. JÚNl 1973
Trúnaðarbrestur
MORGUNBLAÐIÐ hefur áður
skýrt frá því, hver viðbrögð er-
lendra bLaðamamna urðu við
framkomu Hannesar Jónssonar
blaðafulltrúa ríkisstjórnarinnar,
þegar hann skýrði frá ásiglingar
tilraununum á Árvakur og ýkti
svo stórlega, að trúnaðarbrestur
varð mil'li islenzku upplýsinga
þjónustunnar og erlemdra blaða-
manna. Furðuðu erlendu blaða-
mennirnir sig á því, hvernig það
mœtti vera, að slíkar frétfcir bær
ust beint frá forsætisráðherra ís-
lands, því að blaðafulltrúimn
kvaðst hafa fréttirnar beimt frá
honum, enda verið kaidaður úr
ræðustól til að tala við forsætis-
ráðherrann. Eiít þeirra blaða,
sem teiur að þessi íramkoma
hafi stórlega skaðað málstað Is-
lands, er sænska blaðið Express-
en, eins og Morgunblaðið hefur
áður skýrt frá.
Sú frétt Morgunblaðsims hefur
orðið til þess, að Hamnes Jóns-
son, blaðafulltrúi, segir í viðtali
við Tímann s.l. laugardag, þar
sem hann er spurður um þessi
ummæli Expressen:
„Það kemur alltaf fyrir, að
einm og eimn æsifréttamaður
slæðist með og segir meira en
sagt hefur verið. Hitt er furðu-
leg árátta hjá einstaka islenzku
blaði að leggja sig fram um að
prenta upp vitleysuma úr erlend-
um blöðum, em mimnast ekki á
það sem satt og rétt er.
T.d. var frétt úr sænska æsi-
fréttablaðinu Expressen um á-
siglinguna á Árvakur slegið upp
í Morgunbl'aðinu.
Ég bíð nú eftir því, að Morgum-
blaðið birti t.d. grein úr Herald
Tribune, Le Monde, Neue Zúric-
her Zeitung eða grein úr eim-
hverju öðru virtu blaði, sem fór
rétt með ummæli mín.
Ég skýrði að sjálísögðu frá
mál'imu eins og það stóð, þeg-ar
n.ér barst fréttim. Ég sagði, að
þrisvar hefði verið siglt á Ár-
vakur og tilraunir gerðar tll að
sökkva honum. Skipið væri þeg-
ar mikið laskað. „Þór væri kom-
imm á vettvang og vonandi tæk-
ist honum að bjarga Árvakri og
koma honum til hafnar. En allt
væri í tvísýnu um það sem
stæði."
Vitamlega væri það æskilegt
fýrir Hannes Jónsson, að málið
væri ekki rifjað upp frekar, em
tiligreimd ummæl'i bláðafulltrúans
géra það nauðsynlegt, að skýrt
sé frá því, sem erlend blöð sögðu
af framkomu hans á blaðamamna
fumdinum.
■The Daily Teiegraph segir frá
ummælum Hannesar á þessa
leið:
„fslenzkt varðskip skar tog-
vira Fleetwoodtogarans Gavina í
gær, einni klukkustund eftir að
„opinber talsmaður“ lýsti því
yfir, að það væri að sökkva
vegna ásiglingar og skemmda af
völdum brezks verndardráttar-
báts.“
Blaðið segir síðan, að talsmenn
landhelgisgæzlunmar hafi leiðrétt
þessa frétt og bætir svo við:
„Þremur hundruðum biaða-
manna, sem fylgdust með Nixon-
Pompidou viðræðunum í Reykja
vík, hafði verið sagt af Hannesi
Jónssyni, blaðafulltrúa rikis-
stjórnarimnar („Icelamd’s Chief
Information officer), að það væri
efamál, hvort Árvakri yrði bjarg
að eftir „hræðilegt ofbeldi“ af
hálifu verndiardráttarbátsins Ir-
esman.
Eftir að hafa heyrt hina opim-
beru tilkynningu lamdhelgisgæzl
unnar af atvi'kimu, voru margir
íslenzku blaðamammanna í mikl-
um bobba vegna þess sem þeir
kölluðu klaufalega tilraum stjórn
arinnar ti'l þes að komast í sviðs
ljósin í viðræðum Nixons og
Pompidous."
The Guardian segiir í fyrir-
sögn: „íslendingar setja atburð
á svið.“ „Icelanders put on a
showpiece incident."
Segir 1 upphafi þessarar frétt
ar, að íslenzka rikisstjórnim hafi
sett á svið átök til þess að sýna
erlendum fréttamönmum alvöru
þorskastríðsins. Síðan segir:
„Því miður var sú útgáfa af
atburðinum, sem himn opinberi
talsmaður íslenzku ríkisstjómar
inmar gaf fyrir troðful’lium blaða
mannasalmum, ýkt og lýsingin
bar merki skreytni, sem islenzku
blaðamennirnir reyndu að leið-
rétta á eftir, með því að gefa
brezkum starfsbræðrum sínum
raunhæfari og réttari fréttir.
Á timabili tiikynnti útvarps-
stöð varnarliðsins, að 17 manns
væri sakmað, og gerði þessi frétt
suma hlustendur þess skelfimgu
lostna.“
1 frétt sinni rugl'ar blaðamað-
urinn þeim saman Hamnesi og
Ólafi Jóhannessyni ög má það
vera íhugunarefni fyrir þann sdð
arnefnda.
1 lok fréttarimmar, segir blaðið,
að útgáfa 1'andhelgis.gæzlumnar
af málinu hafi verið mun skyn
samlegri og réttari og þegar á
alilt sé litið, sé ekki annað hægt
að segja, en Árvakri hafi tekizt
nokkuð vel ætlunarverk-Sftt. Það
segir m.a.: „Árvakur, sem sam-
kvæmt Jóhamnessyni (sic., hér
er vonandi átt við Hamnes Jóms-
son) átti að vera að sökkva,
tókst allt 1 eimu að skera vörpu
frá Fleetwoodtogafranum Ga-
vina.“
Bæði þessi virtu blöð hafa það
éftir opinberum talismamni ri'kis-
stjómarinnar, að Árvakur hafi
verið að sökkva. Og það eru
fleiri blöð, sem taka í sama
streng.
The Fimancial Times segir á
þessa leið:
„Því var lýst yfir í Reykjavik,
að varðskipið Árvákur væri illa
laskað og hætta á að það sykki,
vegna árásaraðgerða Breta.
Á meðan notaði íslenzka ríkis-
stjórnjn tækifærið.tiil þess að ráð
ast á framkomu Breta á hinum
mikla söfmuði blaðamanna i
Reykjavík vegna toppfundar
Nlxons og Pompidous.
Talsmaður hennar Hanmes
Jónsson lýsti yfir, að tiu til tutt
ugu togarar ætluðu að „sigla
niður" Árvakur, óvopmaðan.
Þeim tókst að siigda á skipið,
sem var í þann vegimn að
sökkva, þótt viðgerð hefði farið
frarn á sjó. „Þessi atburður sýn
ir yður glögglega, hvers konar
yfirgang af hálfu Breta við eig-
um í höggi vdð," sagði Mr. Jóns-
son“.“
Evenimg Standard segir þanniig
frá atbUrðunum m.a.:
„Við austUrströndima kom flug
vél fréttamannsins að Árvakri,
sem siigldi á fulilri ferð á leið
simmi að norðurströnd Is'lands.
Það var ekki á leið til tveggja
næstu kaupstaða, Neskaupstaðar
eða Seyðisfjarðar.
Harnnes Jónsson, talsmaður ís-
lenzku ríkisstjómarinnar, sagðd
í gær, að floti tíu til tuttugu
brezkra togara hefðu tekið þátt
í ásiglimgarárásiinni á Árvakur
og skilið það eftir sökkvandi."
Og eitt virtasta blað V-Þýzka-
lamds Sud-deutche Zeitung skýrir
svo frá:
„Isdenzka rikis'stjórnim tid-
kynnti, að brezkir togarar hefðu
þrem sinnum siglt á íslenzkt
varðskip og skaddað það svo, að
það væri að sökkva." Blaðið hef-
ur Hannes fyrir fréttinmd.
Þannig eru fréttir flestra blaða
á sama veg. Þau bera Hammes
Jónsson fyrir því, að Árvakur
væri að sökkva, og benda sdðam
á, að hér hafi verið farið rarngt
með mál.
Hér eru aðeins tiifærð nokkur
dæmi i tilefni af áður nefndu við
tali við Hannes Jónsson 9. júní
s.l. Hannes gefur þar í skyn, að
„virt blöð“ skýri yfiríeitt frá at-
burðunum þannig, að ísdending-
ar geti sæmilega við umað. Nefn
ir hann nokkur dæmd þess, að
blöð reyni yfirleitt að fá sannar
fréttir, ekkd sizt virt blöð.
Og það er kannski þess vegna,
að Herald Tribune vitnar nær al-
drei til blaðafulltr. í frétt sinmi af
atburðunum, heldur styðst við
frásögn lamdhedigisgæzl'unmar og
brezkar fréttir. Þvi aðeins er
vitnað til Hannesar, að tilfæra
þurfi skoðanir opimberra aðida á
Islandi á verknaðinum, en þó
sagt, að Harnmes hafi tidkynnt
um ásiglinguna. Blaðið hefur
það sérstaklega eftir lardheigis-
gæzliunni, að engin hætta væri
á þvi, að skipið væri að sökkva.
Slikt hefur þannig flogið fyrir.
Eins og fram kemur í þessum
tilvitnunum, reyndu íslenzkir
blaðamenn, að gera gott úr mis-
tökum Hannesar. Eigi að sdður
varð framkoma hans til þess, að
fjölmörg blöð værna ísdenzku rik-
isstjórnina um að hafa sett þenn
an atburð á svið.
Þanniig segir Herald Tribune
frá því, að orðrómur hafi verið
á kreiki, um að íslenddngar ætl-
uðu að notfæra sér, að hér væru
staddir svo margir blaðamenn,
og The Time lætur liggja að
hinu sama.
Hið alvarlega við frumhlaup
blaðafuldtrúans er þó það, að
Forsíða The Guardian 2. júní sl.
Forsíða The Daily ThelegTaph
2. júní sl.
i -
ýkjusögurnar af ásiglimgumni á
Árvakur hafa verið notaðar tid
þess að gera upplýsingar íslend-
irnga um landhelgismálið al-
mennt tortryggilegar. Andstæð-
ingar okkar grípa tækifærið og
segja, — þarna sjáið þið, — það
er ekkert að marka það, sem þess
ir Islendingar segja. Og er ís-
lenzkur málstaður betri en svo,
að ástæða sé til að skaða hanm
með ýkjurn og skröksögum.
Má í því sambandi geta þess,
að Morgumblaðið hefur vitneskju
um, að eftir Árvakursmálið
hættu sænskir fjölmiðlar að
vitna fyrst í islenzkar frásagnir
af landhelgismálinu og síðan
breZkar, en gera sjónarmiðum
Ðreta þau skid í staðiimn sem ís-
lenzk höfðu áður fengið.
Flest af því, sem frarn kom á
blaðamannafundum meðan á
fundum Nixons og Pompidous
stóð, var vélritað og afhemt blaða
mönnum, islenzkum og erlend-
um. Nú er ástæða tid þess að
blaðafulltrúinn geri hreint fyrir
sínum dyrum með því að láta vél
rita orðrétt það, sem hann sagði
um Árvakursmálið, svo að mernn
geti séð, hvað hann raunveru-
lega sagði. Þeir sem hlustuðu
gátu ekki skidið ummæli hans
öðru visi en að Árvakur væri
að sökkva með manmi og mús,
svo að vitnað sé tiil Aftonbladet
og Dagens Nyheter.
Geri bliaðafulltrúimn þetta ekki,
en haldi áfram uppteknum hætti
að ráðast á Morgunblaðið fyrir
það eitt að segja frá þvi, sem
satt er og vissulega hefur skað-
að málstað íslands, er fylli'lega
kominn timi til að íhuga, hvaða
hlutverk Hannes eiigimlega hafi,
áður en t rúnaðarbre'.s tur sá,; sem
nú er rnidii embættis hans og
blaðamanna verður að trúnaðar-
missi.