Morgunblaðið - 07.11.1973, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 7. NOVEMBER 1973
Enn árekstrar á
ritstjórn Tímans
ENN hefur komið til árekstra á dæmi þessu áliti til stuðnings og
Framkvæmdir við Sigölduvirkjun eru nú að hefjast, og þessa dagana eru sífellt
að koma tæki til júgóslavneska verktakafyrirtækisins. Þessar tvær stóru
malarflutningabifreiðar komu nú um helgina með einum Fossinumfrá Banda-
ríkjunum. Eru þær af Caterpillar-gerð og hafa yfir 30 lesta burðarþol. — Ljósm.
Mbl.: Sv.Þ.
ritstjórnarskrifstofum Tfmans
vegna skrifa um Möðruvalla-
hreyfinguna. Andrési Kristjáns-
syni, fyrrverandi ritstjóra Tfm-
ans, hafði verið falið að annast
Sunnudagsblað Tfmans fram f
desember mánuði n.k., þar til nýr
ritstjóri, Halldór Kristjánsson frá
Kirkjubóli, tæki við þvf starfi. 1
fyrradag brá hins vegar svo við,
að einn af ritstjórum Tfmans til-
kynnti Andrési Kristjánssyni, að
umsjón hans með Sunnudagsblað-
inu væri lokið frá og með þeim
degi og jafnframt mundi Halldór
Kristjánsson frá Kirkjubóli verða
ábyrgur fyrir blaðinu einnig frá
og með sl. mánudegi. Jafnframt
var Andrési Kristjánssyni til-
kynnt, að ekki væri til þess ætl-
azt, að f Sunnudagsblaði Tfmans
væru greinar af þvf tagi, sem birt-
ist í dálknum thugunarefni sl.
Iaugardag og undirrituð var af
Andrési Kristjánssyni.
I grein þessari fjallar fyrrver-
andi ritstjóri Tímans um hinasvo-
nefndu Möðruvallahreyfingu og
þau skrif, sem orðið hafa í Tíman-
um um stefnuávarp hennar. I
greininni segir Andrés Kristjáns-
son m.a.: „I stefnuávarpinu er
þetta rökstutt nokkuð og nefnd
sagt m.a., að á síðustu árum hafi
ýmsir fésýslumenn einkarekstrar
aukizt að völdum og áhrifum i
lykilstöðum flokksins. Hver mað-
ur, sem fylgzt hefur með þessum
málum veit, að þetta er satt og
rétt. 1 þessu felst enginn ,,rógur“
um það góða fólk, þótt það sé
staðreynd, að þetta er töluverð
nýlunda í Framsóknarflokknum
og lífsskoðun sú, sem bundin er
þessu rekstrarkerfi er ekki ofar-
lega á stefnuskrá flokksins. Um
þetta allt geta að sjálfsögðu verið
skiptar skoðanir, en hvorki getur
það kallazt rógur né óhæfa af
Framhald á bls. 18
Höggmyndasýning í Austur-
stræti allt næsta sumar
AKVEÐIÐ hefur verið af borgar-
yfirvöldum og Myndhöggvara-
félagi Reykjavíkur, að Mynd-
höggvarafélagið efni til sýningar
í Austurstæti næsta sumar og
muni húnstanda alltsumarið.
Að sögn Magnúsar H. Amason-
ar myndhöggvara og listmálara,
Jónatan Livingston
Mávur er kominn út
BÖKAUTGAFAN Öm og Örlygur
h/f hefur sent á markað eina
mestu metsölubók, sem út hefur
komið f Bandaríkjunum á sfðari
árum, Jónatan Livingston Máv,
eftir Richard Bach, í þýðingu
Hjartar Pálssonar. 1 Bandaríkj-
unum einum hafa selzt á þriðju
milljón eintaka af bók þessari, en
Ragnar
Arnalds
hættir
1 LOK flokksráðsfundar Al-
þýðubandalagsins sl. sunnu-
dagskvöld skýrði Ragnar
Arnalds, formaður flokks-
ins, frá því, að hann mundi
ekki gefa kost á sér til end-
urkjörs, sem formaður Al-
þýðubandalagsins á lands-
fundi þess, sem haldinn
verður að ári Iiðnu. „Við eig-
um að skiptast á um að
gegna vandasömustu verk-
efnunum og mun ég þvf ekki
gefa kost á mér sem formað-
ur flokksins frá næsta lands-
fundi,“ sagði Ragnar
Arnalds.
Samkvæmt skipulagsregl-
um Alþýðubandalagsins má
sami maður ekki gegna for-
mennsku lengur en 9 ár sam-
fleytt, en hvert kjörtímabil
formanns er 3 ár. Ragnar
Arnalds var kjörinn formað-
ur Alþýðubandalagsins eftir
klofning þess á árinu 1968
og mun því hafa gegnt þessu
starfi í 6 ár á næsta lands-
fundi. Hann hefði getað
haldið því áfram I 3 ár til
viðbótar en ummæli hans á
flokksráðsfundinum benda
til þess, að hann hafi fengið
nóg.
höfundur er 36 ára gamall
orrustuf I ugm aður.
I fréttatilkynningu frá útgáf-
unni um bók þessa segir m.a.:
„Jóhann Hjálmarsson komst m.a.
svo að orði um þessa bók i Morg-
unblaðinu 25. febrúar s.l.: „Jón-
atan er frelsistákn, sigur andans
yfir efninu, um leið er hann lof-
söngur um einstaklingshyggju,
dýrkun hins einstæða og dirfsku-
fulla, þess, sem fer ekki alfara-
leið. Jónatan má líka kalla Jesú-
máv, hugleiðslumáv í guðspeki-
legum skilningi. Hann er í senn
fugl og maður, tákn endalausrar
leitar, Richard Bach tileinkar
bókina hinum raunverulega Jón-
atan Mávi sem býr í okkuröllum.
Jónatan Livingstone Mávur kom
fyrst út í litlu upplagi árið 1970,
illa gekk að fá útgefanda að hon-
um, vegna þess, að erfitt var að
átta sig á, hvort bókin var handa
börnum eðafullorðnum. Sama má
að vísu segja um margar aðrar
frægar bækur, t.d. Litla prinsinn
eftir Saint-Exupéry, en Emest K.
Gann er meðal þeirra, sem líkt
hafa þessum tveimur bókum sam-
an.“
Bókin var prentuð í Finnlandi,
en samtímis voru prentuð upplög
af henni fyrir hin Norðurlöndin.“
verða væntanlega yfir 20 högg-
myndir til sýnis f Austurstræti,
og verður það framlag félagsins
til þjóðhátfðar 1974.
Mynhöggvarafélag Reykjavfk-
ur var stofnað fyrir liðlega ári,
eftir höggmyndasýninguna, sem
þá var á Skóiavörðuholti. Flestir
myndhöggvarar I bænum eru f
félaginu, eða alls 14 menn, en
einnig taldi Magnús lfklegt að
aðrir listamenn yrðu með.
Myndhöggvarafélagið hélt
sýningu í Vestmannaeyjum 1972
þar sem sýnd voru yfir 70 verk, og
í sumar var haldin stór sýning á
ísafirði með 78 verkum úr 8
greinum myndlistar. 11 verk seld-
ust á þeirri sýningu fyrir rúmar
400 þús. kr. og á 7. hundrað Is-
firðinga sáu sýninguna, eða um
30% ibúanna. Báðar þessar
sýningar voru styrktar af mennta-
málaráði oglistum landið.
Júní hjó
nærri
heims-
metinu
TOGARINN Júnf frá Hafnar-
firði seldi 233.3 lestir af fsfiski
f Bremenhaven á laugardaginn
fyrir 331.936 mörk, eða 11.3
millj. fsl. kr„ meðalverð fyrir
hvert kfló er 48,53 kr. Þessi
sala Júnf er önnur hæsta sala
fslenzks togara frá upphafi, ef
talið er í krónum. Togarinn
Maí frá Hafnarfirði á enn
hæstu söluna. Maf seldi 17.
marz 1967 í Þýzkalandi fyrir
364 þúsund mörk, sem jafn-
gilda 12.4 milljónum kr. Mun
það vera hæsta verð, sem fiski-
skip hefur fengið f heiminum
fyrir farm af venjulegum bol-
fiski. Skipstjóri á Maf f þeirri
ferð var hinn kunni aflamaður
Halldór Halldórsson, en hann
var einnnig með Júnf í þessari
ferð' Framhald á bls. 18
hita-
500 milljón kr.
veita á Suðurnes?
GERT er ráð fyrir, að á næstunni
verði stofnað sameignarfélagið
Hitaveita Suðurnesja, en að þvf
standa flest sveitarfélögin á
Reykjanesi. Ætlunin er, að jarð-
hitinn við Svartsengi við Grinda-
vfk vcrði nýttur, en þar fara nú
fram miklar rannsóknir á vegum
Orkustofnunar. Búið er að bora
nokkrar holur og hefur fengizt
allt að 200 stiga heitt vatn úr
þeim. Sá galli er þó á þessu vatni,
að það er salt, en talið er, að nóg
ferskt vatn finnist þarna einnig.
Samkvæmt áætlun, sem Orku-
stofnun gerði I fyrra, er gert ráð
Innbrot
BROTIZT var inn f gleraugna-
verzlun að Laugavegi 65 aðfara
nótt þriðjudags og stolið um sex
þús. kr. f peningum.
fyrir, að hitaveitan kosti um 500
millj. kr., og er þá ekki gert ráð
fyrir dreifikerfum um bæjarfé-
lögin.
Jóhann Einvarsson bæjarstjóri
f Keflavík sagði í samtali við
Morgunblaðið í gær, að nú væri
beðið eftir niðurstöðum rann-
sókna við Svartsengi. Hann sagði,
að þau sveitarfélög, sem væntan-
lega myndu standa að þessari
hitaveitu, væru: Keflavík,
Grindavík, Sandgerði, Njarðvíkur
og Garður. Þá væri hugsanlegt, að
Hafnir og Vatnsleysustrandar-
hreppur myndu standa að hita veit
unni, en i þvf sambandi yrði hag-
kvæmni látin ráða.
Sagði Jóhann, að Orkustofnun
hefði áætlað á sínum tíma. að
hitaveitan myndi kosta um 500
millj. kr. og væru þá dreifkerfin
ekki tekin með f reikninginn.
Keflavíkurkaupstaður og Njarð-
víkurhreppur hefðu nú hins
vegar ráðið verkfræðingafyrir-
tækið Fjarhitun h.f. til að gera
áætlun um gerð dreifikerfis og
væri unnið að því verki núna.
Ekki sagðist Jóhann vita, hvað
gerð hitaveitunnar tæki langan
tíma, það færi að sjálfsögðu eftir
fjármagninu. Ef það væri fyrir
hendi og mannskapur til vinnu
nægur, þá þyrfti verkið ekki að
taka ýkja langan tíma. I því sam-
bandi mætti líta á Húsvíkinga,
sem hefðu verið fljótir að leggja
sína hitaveitu, en þeir þurftu að
fara með hana um nokkuð langan
veg.
Gerð þessarar hitaveitu hlýtur
að vera þjóðhagslega mjög hag-
kvæm, þar sem hún mun spara
mikinn gjaldeyri, að maður tali
nú ekki um olíuskotinn, sem er
orðinn í heiminum, sagði Jóhann
aðlokum.
Alþýðusamband Norðurlands:
Kommúnistar ráðast gegn stuðn-
ingsmönnum Björns Jónssonar
ALÞVÐUBANDALAGSMENN I
verkalýðshreyfingunni á Norður-
landi hafa byrjað „hreinsanir“ til
þess að bola stuðningsmönnum
Björns Jónssonar úr áhrifastöð-
um f verkalýðshreyfingunni fyrir
norðan. A þingi Alþýðusambands
Norðurlands um sfðustu helgi var
Jón Helgason, sem er einn af
stuðningsmönnum Björns Jóns-
sonar, felldur úr formannssæti,
en kommúnistinn Jón Asgeirsson
kjörinn I hans stað með 30 at-
kvæðurn gegn 25 atkvæðum Jóns
Helgasonar.
Eins og kunnugt er, var Björn
Jónsson ráðherra um langt skeið
formaður Verkalýðsfélagsins Ein-
ingar á Akureyri og á áhrifum
hans þar byggðist síðan staða
hans innan ASÍ, sem að lokum
leiddi til þess, að hann var kjör-
inn forseti ASÍ. Jón Asgeirsson
tók við formennsku í Einingu af
Bimi Jónssyni, og benda atburð-
irnir á þingi ASN um helgina til
þess, að Alþýðubandalagsmenn
fyrir norðan telji sig nú nógu
sterka til þess að bola stuðnings-
mönnum Björns Jónssonar úr öll-
um áhrifastöðum verkalýðshreyf-
ingarinnar á Norðurlandi. Ólfk-
legt er hins vegar talið, að Björn
Jónsson og stuðningsmenn hans
taki þessum aðgerðum með þegj-
andi þögninni og er búizt við
hörðum stjórnarkosningum I Ein-
ingu í vetur.