Morgunblaðið - 06.02.1974, Blaðsíða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 6. FEBRUAR 1974
Önnur umferð á Reykjavíkur-
skákmótinu var tefld f fyrra-
kvöld. Lítið var um óvænt úrslit,
en baráttan hörð á öllum borðum.
Ef marka má af taflmennskunni
fram til þessa virðist svo sem
þetta muni verða eitt allra
skemmtilegasta mót, sem hér hef-
ur verið háð. Enn hefur ekki ver-
ið samið eitt einasta stórmeistara-
jafntefli og hafa þó stórmeistar-
arnir teflt saman nokkrar skákir
nú þegar. Er þetta mikil breyting
frá sfðasta móti, þar sem erlendu
meistarnir þorðu yfirleitt ekki að
leika nema 10—15 leiki gegn
hvor öðrum, en byggðu allar von-
ir sínar á sigrum yfir löndum.
Sú skák, sem tvímælalaust vakti
mesta athygli í 2. umferð var á
milli þeirra Friðriks Ölafssonar
og búlgarska stórmeistarans
Tringovs. Friðrik beitti Sámichaf-
brigðinu gegn kóngindverskri
vörn andstæðingsins og hafði all-
an timann betri stöðu. Tringov
varðist vel og þegar skákin fór í
bið, hafði Friðrik tekizt að koma
frípeði upp á 7. línu, en staðan er
hálflokuð og erfitt að benda á
beina vinningsleið, a.m.k. f fljótu
bragði. Sigurmöguleikarnir eru
þóFriðriks megin.
Guðmundur Sigurjónsson hafði
hvítt gegn júgóslavneska stór-
meistaranum Velimirovic, sem
beitti Sikileyjarvöm. Guðmundur
virtist fá betri stöðu út úr byrjun-
inni, en Velimirovic tefldi af
öryggi og á tímabili virtist hann
vera að ná undirtökunum. Þegar
skákin fór í bið, hafði staðan hins
vegar einfaldast allmikið og verð-
ur að teljast nokkuð jafnteflisleg.
Rúmenski meistarinn V.
Ciocaltea tefldi nú sína fyrstu
skák i mótinu gegn Norð-
manninum Ögaard. Norðmað-
urinn beitti Aljekínsvörn og
hafði allan tímann lakari stöðu,
þótt ekki væri munurinn mikill í
timahrakinu tókst Rúmenanum
að auka yfirburði sína og í bið-
stöðunni hefur hann tvö peð yfir
og hlýtur að vinna.
Davíð Bronstein mætti gömlum
kunningja, þar sem var Frey-
steinn Þorbergsson. Freysteinn
beitti Skandinavískri vörn, sem
þeir hafa báðir mikið dálæti á. Út
úr byrjuninni fékk Bronstein
betri stöðu og sá Freysteinn sig
knúinn til að láta af hendi skipta-
mun. Báðir lentu í tímahraki og
virtist frípeð Freysteins þá ætla
að verða stórmeistaranum skeinu-
hætt. En alltaf vantaði herzlu-
muninn og þegar Freysteinn fór
yfir timamörkin var staða hans
vonlaus.
Skák þeirra Júlfusar Friðjóns-
sonar og Ingvars Ásmundssonar
var frá upphafi mjög fjörug.
Ingvar fórnaði snemma
skaptamun fyrir tvö peð, en Júlíus
virtist fá góða sóknarmöguleika á
kóngsvæng. Á timabili leit út
fyrir að Ingvar væri að verða mát,
en hann slapp og þegar Júlíus féll
á tíma hafði hann manni minna.
Magnús Sólmundarson tefldi
Aljekínsvörn gegn Benóný, sem
ekki notfærði sér rannsóknir sér-
fræðinganna frekar en fyrri dag-
inn. Fékk Benóný þó ágætt tafl út
úr byrjuninni, en siðan gaf hann
Magnúsi kost á að komast út í
hagstætt endatafl. Þegar skákin
fór í bið hafði Magnús biskupa-
parið og fimm peð gegn hrók og
fjórum peðum Benónýs. Ætti
staða Magnúsar að duga til vinn-
ings.
Fýrrverandi heimsmeistari
Vassily Smyslov tefldi við Jón
Kristinsson. Við skulum lita á
skákina, hún hefur handbrágð
stórmeistarans þótt hún sé stutt.
Tll lelgu
er hús fyrir svínabú að stærð 1080 fm. Auðvelt er að
nota hluta húsanna fyrir hænsna- eða kjúklingarækt.
Liggur mjög vel við markaði og sláturhúsin. 50 km frá
Reykjavík. íbúðarhús fylgir.
Áhugafólk sendi tilboð til Mbl. merkt: „Sveit — 1237"
fyrir 1 5. febr.
Evrópuráðsstyrklr
Evrópuráðið veitir styrki til kynnisdvalar erlendis á árinu
1975 fyrir fólk, sem starfar á ýmsum sviðum félagsmála.
Upplýsingar og umsóknareyðublöð í félagsmálaráðuneyt-
inu. Umsóknarfrestur er til 1. mars n.k.
Ungverjinn Forintos
hefur nú tekið forystuna
(VI R.vfkurskákmótinu.
Hvftt: V.Smyslov.
Svart: Jón Kristinsson.
Kóngsindversk vörn.
I. c4 — g6, 2. Rc3 — Bg7, 3. d4 —
c5, 4. d5 — d6, 5. e4 — Rf6, 6.
Bd3 — e5 (?),
(Hér var trúlega betra að hróka
og sjá til hvert hvíti kóngsriddar-
inn færi. Svartur gat þá valið á
milli leikjanna eð og e6 á eftir).
7. Rge2! (Þar sem svartur hefur
þegar leikið e5 stendur riddarinn
bezt á e2).
7. — 0-0, 8. 0-0 — Re8, 9. Dc2
— b6,
(Einnig kom til greina að leika 9.
— Ra6, ásamt Rc7 og reyna síðan
að skapa mótspil með þvi að leika
b5).
10. a3 — f5, 11. f4!
(Nú kemur i ljós að uppbygging
svarts er ekki eins og bezt varð á
kosið. Hann á í erfiðleikum með
að koma mönnum sínum út og
neyðist jafnframt til að opna lín-
urnar á kóngsvæng).
II. — fxe4, 12. Rxe4 — Rf6, 13.
Rg5 — De7, 14. fxe5 — dxe5, 15.
Bd2 — h6.
(Slæm veiking, en hvað átti svart-
ur aðtaka tilbragðs?).
16. Re4 — Bf5, 17. R2g3 — Rxe4,
18. Bxe4 — Bxe4. 19. Dxe4
(Nú er allt i voða í ríki svarts,
hvítxTr hótar bæði Dxg6 og d6).
19. —^Dd6, 20. Hxf8+ — Bxf8, 21.
Dg4!
(Rýmir e4 reitinn fyrir riddar-
ann. Svartur neyðist nú til að gefa
peð).
21. — h5, 22. Rxh5 — Rd7, 23.
Hfl
(Ekkí 23. Dxd7 — Dxd7, 24. Rf6+
— Kf7, 25. Rxd7 — Bg7 og riddar-
inn er á villigötum.
23. — Be7, 24. Rg3 og svartur
gafst upp.
Ungverjinn Forintos er iðinn við
kolann. Hér sjáum við hvernig
hann afgreiddi Kristján Guð-
mundsson.
Hvftt: G. Forintos.
Svart: Kristján Guðmundsson.
Benonibyrjun.
1. d4 — Rf6, 3. c4 — g6, 4. Rc3 —
Bg7,5.Be2 — 0-0, 6. f4
(Fjögurra peða árásin þykir ekki
beinlfnis traust áframhald en
skemmtileg er hún).
6. — c5, 7. d5 — e6, 8. Rf3 —
exd5,9. cxd5.
(Nú kemur upp Benónibyrjun.
Með 9. exd5 gat hvitur haldið sig
við hefðbundnar leiðir kóngsind-
verskrar varnar).
9. — He8 ( Hér komu ýmsir leikir
til greina, 9. — Ra6, 9. — Bg4 og
loks 9. —b5, sem býður e.t.v. uppá
skemmtilegustu möguleikana).
10. — e5!? (Þessi peðsfórn býður
uppá skemmtilega möguleika þótt
hún geti tæplega talizt hárrétt.
Þeir, sem vilja fara varlega i sak-
irnar leika hér 10. Rd2).
10. — dxe5, 11. fxe5 — Rg4, 12.
Bg5 — Da5, (Nákvæmara var 12.
—Db6).
13. 0—0 — Rxe5, 14. Rxe5 —
Bxe5, 15. Bc4 — Db4, 16 Db3
(Hér kom einnig sterklega til
greina að leika 16. Df3).
16. — Bf5, 17. d6 — Dxb3, 18.
axb3 — Bd4 + , 19. Khl — Bxc3,
(Svartur er kominn í illþyrmis-
Iega klemmu og vegna hótunar-
innar Rd5 afræður hann að láta
biskupinn góða af hendi. Til
greina kom þó að leika hér 19. —
Be6 og svara síðan Rd5 með Ra6).
20. bxc3 — Be6, 21. Bb5 — Rd7,
(Nú lendir svartur í vandræðum,
til greina kom að leika 21. —
Hc8).
22. Hael — a6, 23. Bxd7 — Bxd7,
24. He7 — Hxe7, 25. dxe7 — f6,
(Svarta staðan er mjög erfið, en
hér var sjálfsagt að reyna 25. —
He8, þótt hvftur hafi töglin og
hagldirnar á borðinu e'ftir 26.
Bf6). 26. Hxf6 — h6, (26. — Kg7
gekk ekki vegna 27. Hf8. Kristján
var nú kominn í mikið tímahrak).
27. Hxg6+ — Kf7, 28. Hf6+ —
Kg7, (Ekki 28. — Kxe7 vegna
H xa 6+).
29. Hd6 — hxg5, 30. Hxd7 — He8,
31. Hxb7 — Kf7, 32. Kgl (Einfald-
ast, svartur neyðist fyrr eða siðar
til að fara út í peðaendataflið).
32. — Hxe7, 33. Hxe7 — Kxe7, 34
Kf2 — c4, 35. b4 — Ke6, 36. Ke3
— Kf5, 37. h3 — Ke5, 38. g3 —
Kf5, 39. Kd4 og svartur gaf.
3. umferð verður tefld i kvöld
og þá tefla saman m.a.: Tringov
og Forintos, Jón Kristinsson og
Friðrik, Magnús og Smyslov,
Ingvar og Bronstein, Velimirovic
og Július.
Jón Þ. Þór.
útgerðarmenn - Flskverkendur
Bátur tll lefgu
Til leigu er góður 52 lesta bátur. Allar uppl í síma 1 9700
á skrifstofutíma.
TilboÓ óskast
í flekabyggð timburhús á Keflavíkurflugvelli.
Upplýsingar í síma 24989 frá kl. 10—12 árdegis.
Tilboðin verða opnuð I skrifstofu vorri þriðjudaginn 12.
febrúar kl. 11 árdegis.
Sala varnarliðseigna.