Morgunblaðið - 28.02.1974, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUUAGUR 28. FEBRUAR 1974
Gott verð hefur fengizt fyrir
minkaskinn á uppboðum, sem
hafa staðið yfir í London síðustu
daga.
Meðalverð skinna af svörtum
karldýrum er 11 pund, en af
kvendýrum 6.5 pund. Meðalverð
pastelskinna hefur verið 10 pund
fyrir skinn af karldýrum og 5.5
pund fyrir skinn af kvendýrum.
Alls hefur staðið yfir sala á
850.000 minkaskinnum, þar af
eru 15.000 seld af fyrirtækinu
Hudson’s Bay & Annings Ltd.,
sem hefur umboð fyrir íslenzka
minkaskinnsframleiðendur.
SKEMMTIFERÐASKIP AF-
PANTAR 2 ÍSLANDSFERÐIR
Ljósm. Sv. Þorm.
Brugðið á leik á öskudaginn....
Vatnið þvarr í hverun-
um tveimur í Reykholti
BORUN eftir auknu heitu vatni f
Reykholti í Borgarfirði varð þess
valdandi, að vatn þraut næstum
alveg í hverunum tveimur, Dvnk
og Skriflu, sem hafa séð fyrir
heitu varni og gufu til upphitun-
ar á skólahúsum, íbúðarhúsum og
gróðurhúsum þar á staðnum. Var
í gær aðeins sæmilegur hiti í
tveimur húsum, gamla skóla-
húsinu og einu gróðurhúsi, en
kalt I öllum öðrum húsum. Von-
azt var þó til, að hitaveitan kæm-
ist í lag á ný í dag eða á morgun,
eftir að gerðar hefðu verið ráð-
stafanir til að draga úr þeim
áhrifum, sem gerð nýju borhol-
unnar hefði á vatnsstreymið úr
hverunum tveimur.
Vilhjálmur Einarsson, skóla-
stjóri í Reykholti, sagði i viðtali
við Mbl. í gær, að vegna aukinnar
mannvirkjagerðar á staðnum
hefði verið fenginn bor á vegum
Orkustofnunar til að bora nýja
holu eftir heitu vatni og hófst sú
borun i síðustu viku. Eftir venju-
Iega byrjunarörðugleika fór bor-
unin að ganga vel um helgina. Er
komið var niður á 25 metra dýpi,
fékkst heitt vatn, en þá fór fljót-
lega að minnka vatnsrennslið úr
hverunum tveimur og stöðvaðist
það næstum með öllu. Hins vegar
kom allt í einu I ljós nokkur
vatnsaukning i borholu, sem er í
um 7—800 metra fjarlægð frá
hverunum, skammt frá bifreiða-
verkstæðinu Litla-Hvammi.
Jarðfræðingar, sem komu upp i
Reykholt vegna þessa, telja, að
sögn Vilhjálms, að ástæðan fyrir
þessu sé sú, að kalda vatnið, sem
notað hefur veriðtil kælingar við
borunina, hafi kælt niður heita
vatnið, sem leitað hefur upp í
hverunum, og minnkað þrýsting-
inn á því. Á 25 metra dýpi tekur
við berglag, én ofan á því lag af
leir og möl og neðst í því lagi
virðist heita vatnið eiga upptök
sín. Virðist svæðið allstórt, sem
þetta heita vatn er á, miðað við
þær breytingar, sem urðu á
rennslinu úr holunni hjá Litla-
Hvammi.
Haldið hefur verið áfram að
bora síðan um helgina og er bor-
holan orðin um 100 metra djúp.
Neðst í henni hefur mælzt um 100
stiga hiti og gera jarðfræðingarn-
ir sér góðar vonir um, að með
áframhaldandi borun fáist heitt
vatn úr holunni úr annarri upp-
sprettu en þeirri, sem sá hvernum
fyrir vatni, og fáist þannig hrein
viðbót við heita vatnið, sem fyrir
var. Hins vegar var ákveðið að
fóðra nýju borholuna á öllum
þeim kafla, þar sem talið var að
kælingarvatnið gæti leitað úi og
haft áhrif á vatnsrennsli til hver-
anna og var það verk hafið í gær.
Talið er, að hverirnir eigi að ná að
jafna sig á tveimur dögum, en
ekki er hægt að segja til um,
hvort þeir ná að fullu fyrra vatns-
rennsli eða ekki.
Vilhjálmur sagði, að þar sem
veðrið hefði verið svo gott, hefði
ekki skapazt neitt vandræða-
ástand á staðnum, en hins vegar
ylti allt á því, hvort hverirnir
jöfnuðu sig aftur eða ekki; ef þeir
gerðu það ekki, væri aðstæður á
staðnum gjörbreyttar. En menn
vonuðu og byggjust við, að þetta
kæmist allt í lag nú næstu daga.
Gott verð á
minkaskinniim
Siglufjörður
SJÁLFSTÆÐISFÉLÖGIN á
Siglufirði halda sameiginlegan fé-
lagsfund í Sjálfstæðishúsinu í
Siglufirði sunnudaginn 3. marz
n.k. kl. 5 síðdegis. Tekin ákvörð-
un um bæjarstjórnarframboð.
Stuðningsfólk Sjálfstæðis-
flokksins hvatt til að mæta á
fundinn.
Stjórnir sjálfstæðisfélaganna.
Akureyri, 27. febr.
ASAHLÁKU gerði í gærdag á
Akureyri og f nágrenni og hin
mikla fönn, sem setti niður I stór-
hríðinni um daginn, rann sundur
með miklum vatnagangi og flóð-
um. Stjórtjón varð af vatnságangi
vfða um hæinn og þar að auki
urðu margir fyrir minni háttar
óþægindum. Slökkvilið og bæjar-
starfsmenn gengu vasklega fram
f að bjarga verðmætum f gær og í
dag er sums staðar enn verið að
dæla vatni úr kjöllurum húsa.
Leysingaflóðin urðu einna mest
á Oddeyri og við innanvert Aðal-
Frá því á miðnætti í fyrrakvöld
og þar til kl. 21 í gærkvöldi höfðu
7 ára telpa
fótbrotnaði
7 ÁRA telpa varð fyrir vélhjóli á
Háaleitisbraut við Hvassaleiti um
kl. 3:15 á miðvikudag. Var hún
flutt í slysadeild og var við fyrstu
rannsókn talin hafa fótbrotnað og
viðbeinsbrotnað.
Hækkunin á minkaskinnum er
um 20—25% í erlendum gjald-
eyri, en hún fær ekki notið sín
sem skyldi vegna óhagstæðrar
gengisskráningar að sögn um-
boðsmanns Hudson’s Bay, Skúla
Skúlasonar. Miðað við allar að-
stæður er salan þó mjög góð, sagði
Skúli við Mbl. í gær.
Að þessu sinni voru 200 kaup-
endur og Italir keyptu mest.
Þjóðverjar keyptu ekki, en banda-
rískir kaupendur hafa komið í
þeirra stað að sögn Skúla
Skúlasonar.
stræti. Göturnar umhverfis Ráð-
hústorg voru allar undir djúpu
vatni, svo að bílar þurftu að fara
mjög varlega þar og um tíma varð
að loka Skipagötu alveg. Við
Lundargötu og allvíða við Strand-
götu rann leysingavatn af götun-
um inn í kjallara margra húsa og
þar varð víða mikið tjón. Nausta-
lækurinn rann út úr farvegi sín-
um og hljóp ofan svokallað
Skammagil, skammt sunnan við
kirkjugarðinn, og bar með sér
óhemju magn af aur og leðju.
Lækurinn og framburður hans
fóru inn á lóðirnar númer 64 og
eftirtalin 16 skip tilkynnt um afla
sinn: Hrönn með 80 lestir, Eld-
borg með 500, Asver 140, Jón
Finnsson 400, Öskar Magnússon
400, Gunnar Jónsson 60, Sveinn
Sveinbjörnsson 240, Rauðsey 300,
Lundi 90, Ölafur Sigurðsson 200,
Alftafell 160, Grímseyingur 100,
Arsæll Sigurðsson 80, Helga
Guðmundsdóttir 250, Isleifur IV
110 og Albert 160.
Mest af þessari loðnu veiddist
út af Ingólfshöfða, en einnig
nokkuð í Faxaflóa.
SKEMMTIFERÐ ASKIP, sem ætl-
aði að koma til íslands í sumar
tvisvar sinnum, afturkallaði f
gærmorgun pantanir, og er hætt
við að koma vegna of hás verðlags
á því sem boðið er upp á hér á
landi. Þetta er ítalska skipið Ir-
tina, sem átti að koma 10. júní og
27. júnf og afboðaði komu sfna til
ferðaskrifstofu Geirs Zoega.
Auk þess hefur 50 manna
hópur norskur afturkallað um-
beðna þjónustu þar. Segjast Norð-
mennirnir ekki geta greitt svona
hátt verð.
66 við Aðalstæti og þær eru þakt-
ar djúpu leðjulagi. Vatn rann inn
I húsið nr. 66 og olli þar gífurlegu
tjóni, t.d. á þvottavél, frystikistu
og sjónvarpstæki.
Slökkviliðsmenn dældu úr
mörgum kjöllurum gær og telst
þeim svo til, að þeir hafi komizt
yfir að sinna 18 hjálparbeiðnum,
þar sem þörfin var mest, en mörg-
um hjálparbeiðnum varð þó að
synja, vegna annrikisins. Fast-
ráðnir verkamenn Akureyrarbæj-
ar voru kallaðir til starfa þrátt
fyrir verkfall og var fúslega veitt
undanþága verkfallsstjórnar
vegna þeirra, svo að þeir gætu
sinnt hjálparstörfum, við að dæla
úr kjöllurum og bjarga verðmæt-
um fólksins. F’ullyrða má, að allir
þessir menn hafi unnið vasklega
gott verk og komið í veg fyrir að
tjónið yrði enn meira en það hlaut
að verða.
Þá varð Benny Jensen, danskur
bóndi að Lóni við Akureyri, fyr-
ir miklu tjóni, er 25 unggrisir í
svínabúi hans drukknuðu. Hafði
Lónslækur stiflazt og á svip-
stundu myndazt mikið lón og
flæddi úr þvi inn í svínahúsin.
Fullomu svínin gátu rekið trýnin
upp úr vatninu og sluppu því, en
grísirnir drukknuðu.
— Sv. P.
Geir Zoega sagðist hafa miklar
áhyggjur af þessari þróun. Engar
pantanir bærust lengur frá Eng-
landi, sem ekki væri undarlegt,
þegar tebolli og ristuð brauðsneið
kostaði orðið 15 shillinga eða 140
krónur. Slíkt verðlag vildu enskir
ferðamenn ekki greiða.
Sagði Geir, að hann væri
hræddur um að afpantanir ættu
eftir að aukast, því þetta verðlag,
sem þarna væri við miðað, er frá í
janúar og eftir samningana nú
mætti búast við að enn bættist á.
Skemmtiferðaskipin, sem voru 22
í fyrra í íslandsferðum, voru kom-
in niður í 16 í sumar, þar sem tvö
þeirra voru seld, Hansiatic og
Hamborg, og nú hefur þeim enn
fækkað í 14. Kvaðst Geir hræddur
um að enn gætu fallið úr ferðir
skipanna hingað. Væri jafnvel
farið að gefa í skyn að skipin
gætu komið og farþegarnir gengið
um I landi án þess að kaupa nokk-
uð nema minjagripi. Ferðir fyrir
farþegana væru of dýrar til að
þýddi að bjóða þeim þær, og mat-
ur í landi væri líka of dýr til að
þeir keyptu hann.
— Verst þykir mér að búast má
við að þeir fáu, sem koma í sumar,
Fáskrúðsfirði, 27. febr.
VONZKUVEÐUR var hér í fyrri-
nótt og í gærdag og olli töluverðu
tjóni. Meirihluti af söltunarhúsi
Hilmis sf. valt yfir sig og járnið af
því dreifðist um allt.
Bátur, sem verið hefur hér í
viðgerð um Iangan tfma, lá við
bryggju söltunarstöðvarinnar.
Menn, sem voru þar að vinna,
höfðu skilið bíla sína eftir til hlés
við húsið, með þeim afleiðingum,
að þrír bílanna urðu undir hús-
inu, þegar það valt yfir sig. Tveir
bílanna skemmdust lítið, en þriðji
bílinn, sem var af Toyota-gerð,
er alveg gjörónýtur. Má teljast
mildi, að ekki skyldu hljótast af
fari að segja frá því við heimkom-
una hvílíku „ræningjabæli” þeir
hafi lent í ogþað tekur mörg ár að
vinna slíkt upp aftur, sagði Geir
Zoega.
— Okkar verðlag er að útloka
okkur af ferðamannamarkaðin-
um, sagði hann að lokum. Og um
úrræði, sagði Geir, að hann hefði
áður stungið upp á ferðamanna-
gengi, en ekki fengið undirtektir.
En reynslan af gengisfellingum
hefði verið sú, að eftir 2—3 mán-
uði væri verðlagið orðið það sama.
Dregið í happdrætti Orators
DREGIÐ hefur verið í happdrætti
Orators, félags laganema.
Tvær utanlandsferðir komu á
miða nr. 727 og 4224.
Lögbókin kom á miða nr. 1, 854,
855, 1176, 2455, 2592, 4332 , 4677,
5227 , 5460, 6060, 6443, 6604, 7250,
7510, 8815, 8840, 8841, 8842, 9250,
9333, 9404, 9612, 9641, 9644.
Ulfljótur kom á miða nr. 8065,
8533, 8975.
Vinninga sé vitjað á skrifstofu
Orators á þriðju hæð í Lögbergi
alla virka daga frá kl. 13—15.
slys á möiínum, er þetta gerðist.
Tjónið er áætlað um 2—3 milljón-
ir kr., en að sögn framkvæmda-
stjóra Hilmis var húsið ekki fok-
tryggt og trygging bílsins nær lík-
lega ekki yfir tjónið á honum.
I sama veðri tók fimm plötur af
þaki nýlega byggðs ráðhúss
hreppsins, en ekki er kunnugt um
annað tjón hér af völdum óveð-
ursins.
I dag var komið hingað með 12
lesta bát í togi frá Stöðvarfirði, en
bátúrinn hafði farið á hvolf og
sokkið í þessu sama óveðri. Verí
ur gert við bátinn hér og hann
hreinsaður upp.
— Albert.
Akureyri:
Mikið tjón af leysingaflóðum
Loðnuskipin aftur á skrið
Bílar, hús og bátur
skemmdust í óveðri