Morgunblaðið - 28.02.1974, Síða 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. FEBRUAR 1974
CARGOLUX:
„Starfeemin vex jafnt og þétt”
Rabbað við Einar Olafsson
framkvæmdastjóra um harða
samkeppni á alþjóðavettvangi
STARFSEMI Cargolux, sem hef-
ur aðalbækistöðvar sínar í
Luxemburg dafnar stöðugt.
Félagið er löngu orðið þekkt víða
um heim fyrir vöruflutninga sína
og einnig eru þeir þekktir fyrir að
vera með fyrstu aðilum til hjálpar
á staði þar sem hörmungar hafa
dunið yfir. Síðustu ár hefur
Cargolux ávallt verið fyrst á stað-
inn f hjálpartilfellum, nema í
Mexico. Frægt er hjálparflug
Cargolux til Dacca og fleiri staða,
en til Daeca hefur félagið flogið
af og til með hjálpargögn,
röntgentæki, skordýraeitur og
margt fleira.
Við röbbuðum við Einar Olafs-
son framkvæmdastjóra Cargolux i
Luxemburg fyrir skömmu og fer
viðtalið hér á eftir.:
Skrifstofur víða í Austurlöndum
„Auk skrifstofunnar i Luxem-
burg erum við með skrifstofur i
Singapore, Bankok og Hong
Kong. Þá var opnuð eftir áramót-
in skrifstofa í Japan, en Cargolux
er einnig með umboðsmenn i
Kóreu og víðar.“
„Hverjar eru helztu vörurnar,
sem þið flytj ið?“
„Megnið af þeim vörum, sem
við flytjum frá Luxemburg eru
hálfunnar iðnaðarvörur eða hálf-
unnin hráefni. Þá flytjum við
mikið af vefnaðarvörum, úrum,
varahlutum og lyfjum, en mest af
okkar vörum kemur frá Sviss,
ítalíu, Belgíu, Hollandi, Svíþjóð
og Kaupmannahöfn. Mest af þeim
fer til Singapore, Hong Kong,
Tokio og Osaka."
Af undanförnu hefur félagið
stöðugt verið að auka starfsemi
sina í Singapore, en um áramótin
flutti félagið þaðan meira en 10
tonn á viku.
Um 100 starfsmenn
Starfsmenn Cargolux eru tæp-
lega 100, en félagið er um 4 ára
gamalt. Af þessum 100 eru tæp-
lega 70 flugliðar og flugvélarnar
eru 5 Rolls Royce 400 eða c44 og
siðasta sumar og haust var ein DC
8 þota einnig í vöruflutningum,
en vegna oliuvandamála er hún
ekki í flutningum um sinn.
Flytja27% af allri flugfragt
Megnið af öllu fluginu er til
Austurlanda fjær og þær skýrslur
sem fyrir hendi eru sýna að þar
eru mikil umsvif.
Yfir 50% af allri flugfragt frá
Hong Kong fer með leiguflugvél-
um og þar af flytur Cargolux um
60% þannig að Cargolux flytur
tæplega 30% af allri flugfragt frá
Hong Kong.
I haust var fasta rútan þannig
að það voru 3 þotuflug í viku
Lux-Hong Kong-Lux og tvö flug
með C-44 Lux-Singarpore, Hong
Kong-Lux.
Auk þess var félagið með eina
vél staðsetta í Beirut og þar önn-
uðust tvær áhafnir flutninga. Þá
hefur verið vikulegt flug frá
Luxemburg til Lusaka í Zambíu,
einnig vikulegt flug til Lagos í
Nigeriu og allverulegt flug til
Ethiopiu. Þá er Cargolux einnig á
ferðinni í Casablanca og Akadir í
Marokko og auk þess er ávallt
talsvert flug fyrir stóru flugfélög-
in og svo fyrrgreint hjálparflug.
Erindi sem erfiði
„Þetta gengur all sæmilega,“
sagði Einar, „en við erum ugg-
andi vegna eldsneytismálanna.
Við teljum að með þessu starfi
okkar höfum við haft erindi sem
erfiði. Það er góð nýting á vélun-
um og starfið hefur vaxið jafnt og
þétt.“
Varningurinn, sem Cargolux
flytur mest af frá Austurlöndum
til Luxemborgar, er fatnaður, en
þó er um hvers kyns flutning að
ræða. Til dæmis hafa flugvélar
félagsins flutt 20 lifandi fíla frá
Kalkutta til ítaliu og Þýzkalands,
1500 rollur frá Kákasus í Rúss
landi til Indlands o'g þannig
mætti telja upp margs konar kyn-
legan flutning.
Geysihörð samkeppni
„Hvað um samkeppnina á þess-
um markaði, Einar?“
„Hún er geysihörð, það er feiki-
leg samkeppni. Erfitt er að gefa
dæmi, en við höfum verið á þess-
ari rútu siðan í árslok 1970. Síðan
þá hafa tvö allstór flugfélög, þotu-
félög, bætzt við og þau keppa að
sjálfsögðu við okkur auk þess em
fjöldi af áætlunarflugfélögum og
minni leiguflugfélög teygja sig
einnig inn á markaðinn.“
Vörum skipað um borð.
Einar Ólafsson framkvæmda-
stjóri Cargolux í Luxemburg.
Cargoluxvél á flugvellinum f
Hong Kong. Ljósmyndir Mbl. Sig-
urgeir iEyjum.
Cargoluxvél keyrir fullhlaðin út á
flugbraut í Luxemburg. Aætlun:
Hong Kong.
Eldsneyti tekið á flugvellinum i
Istanbui í Tyrklandi. Oft þarf að
fara ýmsar krókaleiðir til að geta
fengið nægilegt eldsneyti.