Morgunblaðið - 28.02.1974, Blaðsíða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. FEBRÚAR 1974
SVO LENGI SEM
HANN DvfELST I'
FRUMSKOGINUM
ER HANN l'HÆTTU
FyRlR Tl'GRISDVR-
INU SK/feOA
Guðlaugur Gíslason o.fl.:
Tollar og söluskattur
af Viðlagasjóðshúsum
renni í Viðlagasjóð
FJÓRIR þingmenn stjórnarand-
stöðunnar hafa flutt S þingi frum-
varp um breytingu á lögunum um
neyðarráðstafanir vegna jarðelda
í Vestmannaeyjum. Leggja þeir
til, að við lögin bætist eftirfar-
andi ákvæði:
Aðflutningsgjöld og söluskatt-
ur af húsum þeim, sem flutt hafa
verið inn vegna jarðeldanna á
Heimaey eða flutt kunna að verða
inn fyrir árslok 1975, skulu renna
til uppbyggingar í Vestmannaeyj-
um.
Guðlaugur Gíslason (S) er
fyrsti flutningsmaður frumvarps-
ins, en auk hans standa að flutn-
ingi þess Gylfi Þ. Gíslason (A),
Bjarni Guðnason (Ff) og Ingólf-
ur Jónsson (S).
NY
ÞINGMAL
• •
Oryggisráð-
stafanir fyrir
farþegaflug
Fyrirspurn frá Benedikt Grön-
dal (A) til dómsmálaráðherra:
1. Hvaða öryggisráðstafanir eru
gerðar á íslenskum flugvöllum til
verndar farþegaflugvélum gegn
hættu á flugvélaráni, ferðum
hermdarverkamanna og annars
slíks?
2. Geta íslensk yfirvöld annast
sprengjuleit í farþegaflugvélum,
ef tilefni gefst til?
Veiðar í landhelgi
Frumvarp til laga frá ríkis-
stjórninni um breytingu á nýaf-
greiddum lögum um veiðar með
botnvörpu, flotvörpu, og dragnót í
fiskveiðilandhelginni. Er frum-
Greinargerðin með frumvarp-
inu hljóðar svo:
Hin innfluttu hús á vegum Við-
lagasjóðs eru keypt fyrir hið
rausnarlega framlag Norðurland-
anna til endurreisnar byggð i
Vestmannaeyjum, eftir að nátt-
úruhamförunum þar er lokið.
Fullvíst má telja, að enginn ráða-
maður Norðurlandaþjóðanna,
sem máli þessu lagði lið, hafi látið
sér koma til hugar, að allveruleg-
ur hluti af framlaginu yrði látinn
renna sem tolltekjur eða sölu-
skattur til almennra þarfa ríkis-
sjóðs Islands, sem þá beinlínis
hagnaðist fjárhagslega á eldgos-
inu í Eyjum, þar sem hér er um
óvæntar tekjur að ræða, sem áætl-
að er, að nemi um 477 millj. kr.
varpið skv. orðum greinargerðar
flutt til að leiðrétta mistök, sem
urðu við samningu laganna.
Starfshættir
skóla
Fyrirspurn frá Vilhjálmi
Hjálmarssyni (F) til mennta-
málaráðherra:
Öskað er skriflegs svars við
þessari spurningu:
Hvernig er hagað framkvæmd
þingsályktunar um starfshætti
skóla og aðstöðu til líkamsrækt-
ar?
Skattaleg meðferð
verðbréfa
Frumvarp til laga frá ríkis-
stjórninni um skattalega meðferð
verðbréfa o.fl., sem ríkissjóður
selur innanlands. Segir í athuga-
semdum, að efni frumvarpsins sé
nánast það sama og finna megi
um þetta efni í árlegum lögum frá
Alþingi um framkvæmda- og fjár-
öflunaráætlun ríkisstjórnar.
Asberg Sigurðsson:
Hagnýtt verði vindorka
til raforkuframleiðslu
Guðlaugur Gíslason.
MMnai
ÁSBERG Sigurðsson (S) hefur
lagt fram f sameinuðu þingi tik
lötu til þingsályktunar um hag-
nýtingu vindorku með vindraf-
stöðvum. Er tillaga Ásbergs svo-
hljóðandi:
Alþingi ályktar að fela ríkis-
stjórninni að gera nú þegar ráð-
stafanir til, að fylgst verði með
þeim tækniframförum, sem átt
hafa sér stað í hagnýtingu vind-
orku til raforkuframleiðslu, ef
vera má, að nýtísku vindrafstöðv-
ar séu hugsanlegur raforkugjafi á
afskekktum sveitabýlum, sem
erfitt er að tengja samveitum.
Hér fer á eftir greinargerð
þingmannsins með tillögu sinni:
Á síðari árum hafa orðið veru-
legar tækniframfarir í gerð vind-
rafstöðva. Það eru einkum Frakk-
ar, sem að þessu hafa staðið, og
eru vindrafstöðvar nú allalgengar
í Frakklandi. Nýlega hafa Norð-
menn keypt nokkuð af vindraf-
stöðvum frá Frökkum og sett upp
hjá sér á afskekktum stöðum, sem
ekki verða tengdir samveitum
með góðu móti.
Tollskráin af-
greidd frá Alþingi
I GÆR var frumvarp að lögum
um tollskrá afgreitt sem lög frá
Alþingi. Kom frumvarpið tii
einnar umræðu í efri deild, þar
sem breytingar höfðu verið gerð-
ar á því í þeirri neðri.
Frumvarp um tollskrá var lagt
fyrir þingið í byrjun desember og
stóð til að afgreiða það fyrir jól.
Þegar frumvarpið var til meðferð-
ar í efri deild var skotið inn í það
að tilhlutan rikisstjórnarinnar
bráðabirgðaákvæði um 1% sölu-
skattheimtu, sem að sögn stjórn-
arsinna áttu að vega upp á móti
tolltekjutapi, sem í frumvarpinu
fælist. Ekki var meiri hluti fyrir
þessu söluskattsákvæði í neðri
deild þingsins, þar sem Bjarni
Guðnason hafði lýst yfir andstöðu
sinni við það auk stjórnarand-
stöðuflokkanna. Brá þá ríkis-
stjórnin á það ráð að fresta af-
greiðslu tollskrárinnar, þó að al-
gjör samstaða væri um að af-
greiða hana.
í greinargerð með frumvarpinu
sagði:
Frumvarp það til nýrra laga um
tollskrá o. fl., sem nú er lagt fyrir
Alþingi, er til komið vegna aðild-
Framhald á bls. 35
Asberg Sigurðsson.
Nýtisku vindrafstöðvar eru
mun afkastameiri en áður var.
Þær geta séð venjulegu sveitabýli
fyrir raforku til ljósa, hita og ann-
arra afnota. Þær þurfa mjög lít-
inn vindhraða til að skila fullum
afköstum, en eru auk þess stund-
um tengdar rafgeymum, sem geta
gefið raforku í 3—4 daga.
Vegna núverandi orkukreppu
má gera ráð fyrir enn frekari end-
urbótum á vindrafstöðvum á
næstu árum, sem æskilegt er að
fylgjast með. — Á íslandi er mjög
vindasamt. Við eigum því vafalit-
ið verulegan auð i vindorku i
framtíðinni.
Hér á landi eru mörg sveitabýli,
sem erfitt er að tengja samveitum
vegna mikilla fjarlægða. Án raf-
magns er ekki hægt að búa í sveit
á íslandi. Með nýtísku vindraf-
stöðvum mætti ef til vill bæta hér
um á hagkvæman hátt og fyrr en
ella. Ef viðkomandi bvli legðist
niður, er auðvelt að ^lytja vind-
rafstöðina og koma henni í eðli-
legt verð.