Morgunblaðið - 28.02.1974, Blaðsíða 34
34 MORGUNBLAÐIÐ, FIM MTUDAGUR 28. FEBRUAR 1974
ímni iFRETTIR 1 HRGIHVBLAfiSIAIS
Flensan herjar á Iandslíðsmennina
Sumir með allt að 40 stiga hita í gær
ÓTTINN við andstæðingana þjáði ekki íslenzka handknattleikslandsliðið þegar til
Karl Marx Stadt kom í gær, heldur hrjáðu beinverkir og kvef eða inflúensa sjö af
leikmönnum liðsins. Nokkrir landsliðsmannanna hafa verið svo illa haldnir af
þessari hvimleiðu pest, að alls er óvíst, að þeir geti leikið hinn þýðingarmikla leik
gegn Tékkum í heimsmeistarakeppninni í kvöld
Frá Agústi I. Jónssvni
blaðamanni Mbl. í Karl
Marx Stadt
Olafur Benediktsson, Einar
Magnússon, Gunnsteinn Skúla-
son, Geir Hallsteinsson, Hjalti
Einarsson, Gísli Blöndal og Ólaf-
ur H. Jónsson voru allir meira og
minna hjá lækni í gær og í dag og
var dælt í þá vítamíni. Vonir
stóðu til, að þeir yrðu oðnir sæmi-
legir tii heilsunnar í kvöld, en
þær vonir rættust ekki, og þótt
þeir verði skárri á morgun er
hætt við að veikindi þeirra komi
fram í leíknum í kvöld. Ólafur H.
Jónsson og Gísli Blöndal voru
verst haldnir, rúmliggjandi með
tæplega 40 stiga hita.
Ekki var þorandi að gefa lands-
liðsmönnunum nein lyf við pest
þessari, þar sem í kvöld verður
einn leikmaður úr hvoru liði tek-
inn til prófunar og komi fram að
þeir hafi neytt lyfja, á liðið þunga
refsíngu á hættu.
tslenzka landsliðið kom til Karl
Marx Stadt, 300 þúsund manna
borgar í S-Þýzkalandi s.l. þriðju-
dag og hefur dvalist hér á þægi-
legu hóteli síðan. Farið hefur ver-
ið yfir leikaðferðir og myndir af
andstæðingunum skoðaðar. Einn-
ig var farið yfir leikinn gegn
Norðmönnum: og höfðu menn af
því ntikla ánægju, þar sem þessi
leikur er einn sá bezti sem ís-
lenzkt landslið hefur sýnt í lengri
tíma.
Sá leikur gaf auknar vonir og
byr undir vængi, og að honum
loknum var mikill hugur í mann-
skapnum. Veikindin hafa hins
vegar dregið úr stemmningunni,
þó svo að strákarnir séu auðvitað
ákveðnir í að gera sitt bezta í
leiknum í kvöld. Spurningin er
hvort það verður nógu gott.
Við ræddum við Pál Jónsson
liðsstjóra landsliðsins og lands-
liðsnefndarmann í gær og sagðist
hann vera sæmilega bjartsýnn á
Tékkaleikinn, en ef til vill væri
óskhyggjan skynseminni yfir-
sterkari. Tékkarnir ættu mjög
góðu liði á að skipa en leikir
þeirra væru mjög misjafnir. — Ef
markvarzlan verður eins góð og á
móti Noregi og strákarnir verða í
bardagaham, þá er ég óhræddur
við Tékkana, sagði Páll.
Eins og fyrr segir leikur ís-
lenzka landsliðið gegn Tékkum í
kvöld og hefst leikurinn kl. 16.30
að íslenzkum tima. Strax að hon-
um loknum mætast svo V-Þjóð
verjar og Danir. Báðir þessir Ieik-
ir fara fram í Karl Marx Stadt og
verður leikið í glæsilegri íþrótta-
höll sem rúmar 4500 manns. Höll
þessi er tiltölulega ný og var upp-
haflega byggð sem skautahöll, en
miklar breytingar hafa verið
gerðar á henni fyrir heims-
meistarakeppnina.
Liðið sem leikur í kvöld hafði
ekki verið valið þegar þetta var
skrifað, en setji veikindin ekki
meiri strik i reikninginn en þegar
er orðið bendir allt til þess að þeir
sem hvili verði Gunnar Einarsson
FH og Gunnar Einarsson Hauk-
um, Gísli Blöndal og annaðhvort
Hörður Kristinsson eða Ólafur H.
Jónsson.
Fvrsta júdólandslið Islands, er keppir við Norðmenn á laugardaginn. Fremri röð frá vinstri: Sigurjón
Kristjánsson, Össur Torfason, Garðar Jónsson, Svávar Carlsen og Michal Vachun. landsliðsþjálfari. Efri
röð: Viðar Guðjohnsen, Halldór Guðbjörnsson, Kári Jakobsson, Jóhannes Haraldsson, Hörður Óskarsson,
Guðmundur Rögnvaldsson og Þóroddur Þórhallsson. A myndina vantar Sigurð Kr. Jóhannsson.
Júdólandskeppni við Norðmenn
ÍSLENDINGAR keppa sinn
fvrsta landsleik f júdó á laugar-
daginn. Mótherjarnir verða Norð-
menn og fer keppnin fram í Osló.
Teflt verður fram fullu liði, þ.e.
tveir menn í hverjum þyngdar-
flokki og keppnisflokkarnir verða
fimm. Alls fara 12 júdómenn ut-
an til keppninnar auk tveggja far
arstjóra og landsliðsþjálfarans
Michal Vachun frá Tékkóslóvak-
fu.
Á fundi sem forráðamenn Júdó-
sambands íslands héldu með
fréttamönnum í gær kom fram
m.a., að júdómennirnir hefðu æft
mjög vel undir þessa keppni. Hins
vegarsagði landsliðsþjálfarinn að
ekki væri neitt vitað um hvaða
möguleika þeir hefðu f keppninni
við Norðmenn. — Við vitum,
sagði hann, — að Norðmennirnir
eru flestir miklu keppnisreyndari
en okkar menn, og það er oft
þungt á metunum. Á móti höfum
við samstilltan hóp og kröftugan,
þannig að ég vona að um
skemmtilega keppni geti orðið að
ræða.
Fyrsta júdólandslið Islands var
valið af tækniráði JSl, sem jafn-
framt er landsliðsnefnd, og verð-
ur það þannig skipað:
Léttvigt (undir 63 kg) Jóhann-
es Haraldsson, 1 kyu, UMFG, og
Hörður Óskarsson, 5. kyu, UMFK.
Léttmillivigt (63—70 kg) Þór-
oddur Þórhallsson, 1. kyu, A; Við-
ar Guðjohnsen, 1. kyu A; Halldór
Guðbjörnsson, 2. kyu, JR.
Millivigt (70—80 kg) Sigurjón
Kristjánsson, 1. dan. JR; Össur
Torfason, 1. dan, Gerplu.
Léttþungavigt (80—93 kg) Sig-
urður Kr. Jóhannsson, 1. dan. JR;
Kári Jakobsson, 2. kyu, JR og
Guðmundur Rögnvaldsson, 3.
kyu, JR.
Þungavigt (yfir 93 kg) Svavar
Carlsen, 1. dan, JR og Garðar
Jónsson, 2 kyu, JR.
Fararstjórar verða Eysteinn
Þorvaldsson, formaður JR, og
Jónas Erlendsson.
Að sögn Eysteins Þorvaldsson-
ar, formanns JSI, er það hug-
myndin hjá sambandinu að senda
fullt lið til keppni á Norðurlanda-
meistaramótinu í júdó, sem hald-
ið verður í Kaupmannahöfn dag-
ana 21. og 22 apríl.
Flestir spá Júgó-
slövum sigri
HVERJIR verða mótherjar ís-
lands í heimsmeistarakeppninni í
handknattleik, komist liðið í átta
liða úrslit? Ísland leikur í A-riðli
keppninnar og þau lið sem verða
þar í 1. og 2. sæti eiga að leika við
lið sem verða í 1. og 2. sæti í
C-riðli. Verða það væntanlega
Sovétmenn og A-Þjóðverjar.
Riðlaskiptingin í A-Þýzkalandi
er þessi:
A-riðill:
Tékkóslóvakía
Vestur-Þýzkaland
Danmörk
tsland
B-riði II:
Rúmenía
Svíþjóð
Pól lan d
Spánn
C-riðill:
A-Þýskaland
Sovétrikin
Japan
Bandaríkin
D-riðill:
Júgóslavía
Ungverjaland
Búlgaría
Alsír.
Að undanförnu hefur mikið
verið fjallað um heimsmeistara-
keppnina í erlendum blöðum, og
margir spádómar hafa þar verið á
lofti. Svo er að sjá að nær allir séu
sammála um hvaða lið komast i
átta-liða úrslitin. Tékkóslóvakia,
V-Þýzkaland, Rúmenía, Svíþjóð,
A-Þýzkaland, Sovétríkin, Júgó-
slavía og Ungverjal. Búizt er við
því að baráttan verði hörðust í
D-riðlinum um annað sætið í úr-
slitakeppninni milli Ungverja-
lands og Búlgariu, en sagt er að
liði Búlgariu hafi farið geysilega
mikið fram að undanförnu.
Svo er að sjá að flestir séu einn-
ig sammála um hvaða lið spila um
9. — 12. sætið: Danmörk, Pólland,
Japan og Búlgaría, en eftir þvi
eru þá liðin sem detta út eftir
forkeppnina: Island, Spánn,
Bandaríkin og Alsír.
DANIR ÖRUGGIR
Dönsku blöðin hafa fjallað mik-
ið um möguleika sinna manna í
keppninni undanfarna daga. I
viðtölum hefur landsliðsþjálfar-
inn Jörgen Gaarskjær lýst þvi yfir
að hann telji sennilegt að Danir
keppi um 9.—12. sætið í keppn-
inni, en auðvitað eigi þeir mögu-
leika á að komast i átta liða úrslit
in og jafnvel áþví að verða heims
meistarar. Hann segir að erfiðasti
leikur danka liðsins verði fyrsti
leikurinn, við Vestur-Þjóðverja,
en hann þurfi Danir að vinna til
þess að vera tryggir með að kom
ast áfram. Tékkarnir verði einnig
erfiðir víðfangs, en leikurinn við
ísland ætti hins vegar að vera
Iéttur, þar sem íslenzka liðið sé
örugglega lélegt og illa þjálfað.
Leikmenn danska landsliðsins
virðast einnig vera á sama máli,
og spá flestir að þeir muni verða í
7. eða8. sæti í keppninni ogþann-
ig tryggja sér þátttökurétt, án for-
keppni, í Olympíuleikunum í
Montreal 1976.
HVERJIR VERDA
HEIMSMEISTARAR?
Þegar erlendu blöðin fjalla um
hverjir verðí heimsmeistarar í
handknattleik eru þau meira
ósammála. Flestir eru þó sam-
mála um það, að fjórar þjóðir
tróni á toppnum: Rúmenía,
Júgóslavía, A-Þýzkaland og
Tékkóslóvakía. Fleiri kunni þó að
blanda sér i þessa baráttu, eink-
um Vestur-Þjóðverja og Sovét-
menn. Að öllu samanlögðu virðast
flestir hallast að því að röð lið-
anna í keppninni verði þessi:
1. Júgóslavía
2. A-Þýzkaland
3. Rúmenía
4. Tékkóslóvakía
5. Sovétríkin
6. V-Þýzkaland
7. Ungverjaland
8. Sviþjóð
9. Búlgaría
10. Danmörk
11. Pólland
12. Japan
Drengja- og
stúlknameist-
aramótið
DRENGJA- og stúlknameistara-
mót tslands í frjálsum íþróttum
innanhúss fer fram í Njarðvíkum
sunnudaginn 10. marz n.k.
Keppt verður i eftirtöldum
greinum:
Drengir: Hástökk, stangar-
stökk, kúluvarp, hástökk án atr
ennu, langstökk án atrennu, þrí-
stökk án atrennu.
Stúlkur: Hástökk, langstökk án
atrennu.
Þátttökutilkynningar skulu
berast tilHelga Hólm, Verzlunar-
bankanum í Keflavfk, sími 1788
eða i heimasíma 2613 í síðasta lagi
þriðjudaginn 5. marz ásamt þátt-
tökugjaldi kr. 50.— fyrir hverja
keppnisgrein.