Morgunblaðið - 17.05.1974, Page 2

Morgunblaðið - 17.05.1974, Page 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 17. MAÍ 1974 BSRB hefur samið við ríkið um sérkröfurnar ÖLL aðildarfélög BSRB, 18 tals- ins, scm semja við ríkisvaldið, hafa nú samið um sfrkröfur sínar, og kemur það því ekki til kasta Kjaradóms að þessu sinni. f gær undirrituðu Starfsmanna- félag ríkisstofnana, Starfsmanna- félag stjórnarráðsins og Félag forstjóra Pósts og síma samning- ana, og Skattstjórafélag fslands undirritar líklega samninga í dag. Næsta skrefið I þessum umfangsmiklu samningamálum BSRB verða samningar um sér- kröfur allra bæjarstarfsmanna á landinu. Þeim samningum skal lokið fyrir 1. júní n.k. I heildina sömdu öll félögin um svipaða flokkahækkun, eða um tvo flokka, en aðrar sérkröfur voru mismunandi eftir einstökum félögum. I heild mun hækkunin vera ríflega 20% hjá félögum BSRB, ef miðað er við stöðina Leitaði á 9 ára stúlkubarn Á MIÐVIKUDAGSKVÖLD sl. var lögreglunni tilkynnt um mann nokkurn, sem hafði þá fyrr um daginn leitað á 9 ára gamla stúlku í Hljómskálagarðinum. Að sögn stulkunnar hafði hún átt leið um Hljómskálagarðinn um kl. fimm þennan dag. Þar mætti hún manni. sem tók hana tali og leiddi hana áleiðis áð einum bekknum í garðinum. Er þangað var komið gerðist maðurinn ágengari og gerði sig líklegan til að þukla stúlkuna, sem varð hrædd og hljóp á braut. Stúlkan gat fremur litla lýsingu gefið á manninum nema að hann var á miðjum aldri, í frakka og með gleraugu. Mosfellshreppur SKRIFSTOFA Sjálfstæðisflokks- ins i Mosfellssveit er að Mark- holti. Sími skrifstofunnar 66401 — Opið allan daginn. eins og hún var áður en banda- lagið gekk til samninga í desem- ber sl. Víða á eftir að skipa fólki í fiokka og getur það tafizt eitthvað hjá sumum félögum. Ef einstakl- ingar verða ekki ánægðir með Sumarið kom um miðjan apríl Fáskrúðsfirði, 14. maí. SUMAR var komið á Fáskrúðs- firði strax um miðjan apríl, en síðustu daga hefur verið frekar kalt og þokur tiðar. Færabátar eru nú að hefja róðra, en hafa lftið orðið varir enn. Afli togarans Ljósafells hefur verið frekar tregur síðustu vik- una, en frá áramótum hefur hann fengið 1000 lestir. Mikið er nú að gera í bygginga- vinnu á Fáskrúðsfirði, bæði við íbúðarhúsabyggingar, byggingu frystihúss og nýs barnaskóla. Fréttaritari. Orri hefur ekki svarað GRÍSKI skipajöfurinn Orri hefur enn ekki gefið Eimskipafélagi Is- lands ákveðið sv.ar um það, hvort hann hyggst kaupa Bakkafoss af- félaginu eða ekki. Þegar hann dvaldi hér um síðustu helgi og skoðaði skipið lét hann I ljós óánægju með margt í búnaði þess, án þess hann gæfi þó endanlegt afsvar. Viggó Maack hjá Eimskip tjáði Mbl. að ef Orri keypti ekki skipið, yrði það líklega tekið af söluskrá, gert upp og notað í 4—5 ár ennþá. Búið er að ganga endanlega frá kaupum Orri Lines á Tungufossi, fyrir 36 milljónir króna. Skipið verður afhent hinum nýja eig- anda í þurrkví i Hamborg um miðjan júni. niðurröðun, fær kjaranefnd málið til r'‘“'ferðar. Mbl. sneri sér í gær til Kristjáns Thorlacius og innti eftir áliti hans á samningunum. „Ég lít svo á og heyri utan að mér, að við getum unað allsæmilega við úrslitin. Þeirri stefnu hefur verið haldið, sem mörkuð var á kjaramálaráð- stefnu BSRB í júní 1973, að þeir lægstlaunuðu skyldu fá mesta hækkun," sagði Kristján. Gosbrunnur við Norræna húsið Aform eru um að setja gos- brunn þann. sem Replogle sendi- herra Bandaríkjanna gaf Reykja- víkurborg á sínum tfma, upp í tjörninni framan við Norræna húsið. Hefur Iwrgarverk- fræðingur gert hllöguuppdrátt að staðsetningu gosbrunnsins, sem eru fjórir stútar, sem vatnið spýtist upp um og flóðlýstur. Borgarráð hefur samþykkt til- löguna ,og fól borgarverkfræðingi frekari framkvæmd málsins að höfðu samráði við stjórn Xorræna hússins. Kemur stjórn hússins saman til fundar 13. maí og verð- urtillagan þá lögð fyrirhana. 18 stiga hiti — Tregt hjá Neskaupstað 16. maí. BLÍÐUVEÐUR er nú komið aftur í Neskaupstað en vætusamt hefur verið þar sfðustu tvær vikurnar, eftir annars eitt það bezta vor, sem menn muna. Um hádegi I gær var 18 stiga hiti og sólskin I Neskaupstað. Gróður er nú orð- inn einstaklega góður og langt á undan því, sem menn eiga að venjast um þetta leyti árs. Frekar tregt er nú hjá Norð- fjarðartogurunum tveim, Barða og Bjarti, og sömu sögu er að segja af smábátunum. Nokkrir þeirra hafa þó farið norður að Langanesi og fiskað sæmilega. Brezkur togari kom í gær til Nes- kaupstaðar og tjáði skipstjóri hans fréttaritara Mbl„ að hann hefði fengið góðan afla djúpt úti af Austfjörðum. Var togarinn kominn með 120 lestir og hafði fengið mest á tveimur dögum. Leiðrétting 1 AUGLÝSINGU um kosninga- skrifstofur Sjálfstæðisflokksins í Morgunblaðinu sl. miðvikudag var sagt, að listabókstafur Sjálf- stæðisflokksins í Suðurfjarðar- hreppi væri J-listi. Þetta er rangt Sjálfstæðisflokkurinn býður ekki fram í Suðurfjarðarhreppi. J-list- inn er blandaður listi. í Neskaupstað togurunum Enn hefur ekki verið byrjað á mörgum nýjum íbúðarhúsum I Neskaupstað, en nýtt byggingar- félag á staðnum er þó að byrja á 5 nýjum einingarhúsum. Fréttaritari. Spólan týndist I GÆR auglýsti útvarpið eftir segulbandsspólu af mynd- listarþætti, sem Gylfi Gíslason sá um í nóvember s.l. Gylfi ætlaði að nota hluta úr þessum gamla þætti í síðasta mynd- listarþátt vetrarins, sem var á dagskrá í gærkvöldi. En þegar til átti að taka, fannst spólan hvergi. Voru nú góð ráð dýr, og að siðustu var ákveðið að leita á náðir hlustenda, I von um, að einhver þeirra hefði tekið þátt- inn upp á sínum tíma, og geymt spóluna. Og viti menn, stuttu eftir auglýsingin var lesin í útvarpi, hringdi maður til útvarpsins, og kvaðst hafa slika spólu i fórum sínum. Var hún sótt f skyndi, og Gylfi gat gengið frá þættinum. I umræddum þætti voru viðtöl við framúrstefnu- menn í höggmyndalist, t.d. Jón Gunnar Árnason. R Reykjavík ; xb ' N’r. 34 ' Récois. iír. S. Bayér Via Ajacoio, 14 R 0 M B. Italy Balbo flugbréfið sem boðið verður upp í Svfþjóð í dag. „Hópflug ítala” boðið á 210 þús. kr. á sænsku uppboði t DAG og á morgun verður haldið stórt frímerkjauppboð f Savoy- hóteli í Malmö f Svfþjóð. Alls verða rúmlega 2000 númer boðin upp, þar af um 50 íslenzk. Dýrasta íslenzka númerið er umslag með hópflugi Itala (Balbo-flugbréf), en á það bréf er sett lágmarks- verðið 210 þúsund. fslenzkar krónur. Þá verða tvö íslenzk söfn boðin upp, og er lágmarksverð beggja 150 þúsund krónur. Þá verður einnig boðið upp fslenzkt umslag frá árinu 1892, og er lág- marksverð þess 120 þúsund krón- ur. Númerin geta að sjálfsögðu selzt á mun hærra verði á uppboð- inu. Hópflug Itala (Balbo-flugbréf- ið), er dýrasta fslenzka númerið á uppboðinu. Upphaflega voru bréfin aðeins 298 að tölu, og hafa mörg þeirra týnzt, einkum f er- lendum söfnum í seinni heims- styrjöldinni. Þegar bréfin voru send í ábyrgð 1933 með Balbo og félögum, var kostnaðurinn 16,30 krónur. Hitt umslagið, sem um ræðir, var sent héðan með skipi í marz 1892, og var stílað á viðtak- anda í Þýzkalandi. Það er einnig með skozkum, enskum og dönsk- um póststimplum, auk þess ís- lenzka. Lágmarksverð þess bréfs eru 6 þúsund sænskar krónur, eða rúmlega 120 þúsund íslenzkar. Lágmarksverð Balbo-flugbréfsins er 10 þúsund sænskar krónur, eða 210 þúsund krónur íslenzkar. Miklar likur eru á þvf, að endan- legt söluverð umslaganna verði nokkuð hærra en lágmarksverðið. Eins og fyrr segir verða íslenzk frímerkjasöfn á uppboðsskránni alls fjögur. Á tvö þeirra er sett lágmarksverð 7 þúsund sænskar krónur eða 150 þúsund íslénzkar krónur. Að uppboðinu stendur fyrirtækið Postiljonen AB, en að því standa Claes Arnrup og Morten Person. Kærði stuld á tanngarði sínum f GÆRMORGUN kom kona nokk- ur að máli við lögregluna og var erindi hennar að kæra mann, sem hún sagði hafa stolið neðri tann- garði sfnum. Var það [ þriðja skiptið á tæpum sólarhring, sem lögreglan hafði afskipti af konu þessari, en hún og eiginmaður hennar höfðu daginn áður gist fangageymslur lögreglunnar vegna ölvunar og óspekta á al- mannafæri. Að sögn lögreglunnar eiga hjónin við alvarleg áfengis- vandamál að strfða, heimilislaus og virðast eiga í fáa staði að venda. Barnaheimili við Hábæ: U n dir skr ift asöfnun aðeins í Þjóðviljanum ÞJÓÐVILJINN skýrir frá þvf á forsfðu í fyrradag, að fbúar ein- býlishúsahverfisins við Hábæ f Arhæjarhverfi hafi tekið sig Sérkröfur sjö félaga BHM fyrir Kjaradóm EKKI tókst að semja um sérkröf- ur sjö aðildarfélaga Bandalags háskólamanna á hendur rfkinu áður en frestur rann út í fyrri- nótt. Fara sérkröfurnar nú fyrir Kjaradóm og skal hann kveða upp úrskurð sinn í síðasta lagi 10. júlf. Almennt er talið, að samningar takist löngu fyrir þann tfma. Sjö aðildarféiög BHM sömdu áður en fresturinn rann út. Þau aðíldarfélög, sem ekki sömdu, voru kjaradeild Verk- fræðingafélags Islands, Arkitektafélag Islands, Félag ís- lenzkra náttúrufræðinga. Félag viðskipta- og hagfræðinga, Lyfja- fræðingafélag Isiands, Lækna- félag Islands og Lögfræðinga- félag íslands. 1 fyrrakvöld tókust samningar um sérkröfur Félags menntaskólakennara og Sálfræð- ingafélags Islands, en fyrr í vik- unni höfðu fimm félög samið. Eins og fram kom I Mbl. í gær, eru samningar um sérkröfurnar almennt á þá leið, að starfsmenn hækka um þrjá launaflokka auk sérkrafa, sem eru mismunandi •eftir einstökum félögum. Er hækkunin frá 1. desember sl. að meðaltali metin 20%. Mbl. sneri sér í gær til Markús- ar Á. Einarssonar formanns BHM og innti eftir áliti hans á þeim samningum, sem tekizt hafa. „Ég tel, að við höfum unnið ýmsa smá- sigra,“ sagði Markús. „Við börð- umst eindregið gegn því, að farið yrði inn á þá braut að skerða vísitöluna, og það hefur ekki ver- ið gert. Út úr Kjaradómi fengum við fjölgun flokka um þrjá og heimild um einn flokk, og nú síð- ast höfum við fengið tvo flokka til viðbótar með sátt fyrir Kjara- dómi. Síðast en ekki sízt fengum við okkar eigin launaflokkastiga. Ef litið er á stöðuna eftir að sum félaganna hafa samið um sérkröf- ur, verð ég að teljast nokkuð ánægður. Eg tel, að þetta hafi farið vel og nú liggi fyrir upp- gangspunktur, þegar næst verður lagt á brattann." saman og safnað undirskriftum gegn því, að rekið yrði barna- heimili f einu einbýlishúsanna í hverfinu. Einn af íbúunum við Hábæ kom. að máli við Morgunblaðið í gær og sagði, að þessi frétt væri alröng. Aðeins ein fjölskylda við Hábæ og tvær við Hlaðbæ hefðu kvartað til borgaryfirvalda vegna hins fyrir- hugaða barnaheimilis. Sagði hann, að fólk, sem byggi við Hábæ, hefði ekki vitað um þessa undirskriftasöfnun fyrr en það heyrði um Þjóðviljafréttina, og blaðið kallaði þetta hverfi ríkismannahverfi og þar fram eft- ir götunum, en ekki væri vitað annað en þar byggju ósköp venju- legir borgarar. Norðurlands- kjördæmi eystra KJÖRDÆMISRÁÐ Sjálfstæðisfé- laganna f Norðurlandskjördæmi eystra heldur fund sunnudaginn 19. maí kl. 15.00 f Sjálfstæðishús- inu á Akureyri (litlasal). Tekin verður ákörðun um framboð til alþingiskosninganna.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.