Morgunblaðið - 17.05.1974, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 17. MAI 1974
FROrréBQWM — BLÚSSUM — PEYSUM QQ
BÖMUkLAfíBQLUM
FYBtR DÖMUfí — HFRRA Q C BÖRN
TERLFNF- TWFEO- DFNJM- OG FLAOEíSBUXUR
FYfí/fí DQMUR — HFRRA QG BÖRN
ALÐRFt MFÍRA SKÖÚRVAL
ATH. 'QQMULFÐURSTÍGvéUN KQMJN
BERGSTAÖASTBÆTI — SIMI 14 360
8ANKASTRÆTI — SIMl 28-350
Valsmenn að hressast
eðlis. Valsmenn náðu af og til
mjög skemmtilegum sóknar-
lotum, þannig átti Ingi Björn t.d.
gott marktækifæri á 9. minútu
s.h., en brást bogalistin og skot
hans hafnaði langt framhjá mark-
inu. A 32. mínútu hálfleiksins
kom svo að því, að Valsmenn skor-
uðu sitt mark og var það fal-
legasta mark leiksins. Valsarar
höfðu spilað laglega upp völlinn
og endahnútinn á fallega sóknar-
lotu rak hinn efnilegi unglinga-
landsliðsmaður Kristinn Björns-
son. Hann skaut góðu skoti I
hliðarnetið hægra megin af um 15
metra færi.
Tæpum 10 mínútum síðar kom
svo síðasta mark leiksins.
Jóhannes Edvaldsson sló knött-
inn, sem gefinn var fyrir Vals-
markið og var á leið til eins Eng-
lendingsins í dauðafæri. Dómur-
Englendingar
og Skotar unnu
LEICESTER-leikmaðurinn Keith
VVeller skoraði sigurmark Eng-
lendinga og eina markið gegn N-
írum á Wembley í fyrrakvöld.
Hafa Englendingar því unnið
báða leiki sína í Bretlandseyja-
keppninni og mæta Skotum í síð-
asta leiknum á laugardaginn.
Skotar töpuðu fyrir Irunum
sfðastliðinn laugardag, en unnu
svo VVales á þriðjudaginn með 2
mörkum gegn engu. .Vlörkin í
þeim leik skoruðu Kenny Dalgl-
ish og Sandy Jardine — þótti sá
fyrrnefndi eiga stórgóðan leik.
Miklatúnshlaup
Vliklatúnshlaup Armanns hið
sjöunda í röðinni, f'e? Tram á
iaugardaginn og hefst kliíkKatf
14.00.
Lyftingamót
Meistaramót íslands i kraftlyft-
ingum fer fram i Sænska frysti-
húsinu á morgun. Keppni í léttari
flokkunum hefst kl. 15.00, en
keppni í þyngri flokkunum kl.
17.00. Flestir beztu lyftingamenn
Iandsins eru meðal keppenda, og
má því búast við góðum árangri
— og ef að líkum lætur: Nýjum
Islandsmetum.
Opið golfmót
í Leiru
OPIÐ golfmót fer fram á golfvelli
Golfklúbbs Suðurnesja i Leiru
um næstu helgi, 18. og 19. mai.
Það eru GS og Austurbakki hf.,
Dunlop-umboðið, sem standa að
keppninni. Auk venjulegra verð-
launa í keppni með og án for-
gjafar verða veitt sérstök verð-
laun takist einhverjum kylfing-
anna að fara holu í höggi á Berg-
vfkurbrautinni. Búast má við yfir
100 þátttakendum ef ntarka má
fyrri mót. Völlurinn í Leiru er
með bezta móti og kom betur und-
an vetri en undanfarin ár.
Væntanlegir þátttakendur hafi
samband við Golfskálann i Leiru
fyrir nk. föstudagskvöld.
inn gat ekki orðið annar en víta-
spyrna og úr henni skoraði
Holmes næsta örugglega.
Helztu breytingarnar, sem
gerðar voru á Valsliðinu að þessu
sinni, voru þær, að Sigurður Har-
aldsson varði markið þar til hann
meiddist og sýndi mikið öryggi.
Jóhannes Edvaldsson lék í stöðu
miðherja og lék eins og sá, sem
valdið hefur, var mikill brim-
brjótur á sóknarlotur Eng-
lendingánna. Hörður Hilmarsson
lék í stöðu 'tengiliðar og virtist
hinn frískasti. Þá komu Sigurður
Jónsson,.Jón Gislason og Kristinn
Björnsson inn f liðið og stóðu sig
allir mjög vel. Valsliðið getur
leikið knattspyrnu eins og hún
getur bezt orðið hér á landi og
eftir þennan leik leyfir maður sér
að gera því skóna, að Valsmenn
séu að finna sig og verði því sterk-
ir i islandsmótinu, sem hefst á
morgun.
áij.
Hermann Gunnarsson sækir að marki York City, en enginn má við
margnum og Hermann varð að lúta í lægra haldi fyrir hinum harð-
skeyttu varnarmönnum enska atvinnumannaliðsins.
BREYTT liðsskipan frá fyrri
leikjum vorsins breytti leik Vals
mjög til hins betra, er Valur lék
gegn ensku atvinnumönnunum
frá York City f fyrrakvöld. Að
vísu töpuðu Valsmennirnir með
einu marki gegn þremur, en eigi
að sfður var allt annar svipur á
leik liðsins; baráttan var meiri og
samvinna leikmanna á tíðum
mjög góð.
Englendingarnir höfðu yfirleitt
frumkvæðið i leiknum og sitt
fyrsta mark skoruðu þeir á 37.
minútu Ieiksins, tekin var auka-
spyrna á vinstri vængnum nokk-
uð fyrir utan vítateig Vals. Gefið
var fyrir markið og Seal sneiddi
knöttinn í netið framhjá Sigurði
Haraldssyni. Nokkrum sekúndum
fyrir lok fyrri hálfleiksins breytt-
ist staðan i 2:0. Knötturinn hafði
þvælzt á milli manna í vítateigi
Vals og aftur hafði Seal síðasta
orðið, renndi knettinum í netið af
stuttu færi.
Sigurður Haraldsson, sem varið
hafði mark Valsmanna í fyrri
hálfleiknum af stakri prýði
meiddist í upphafi síöari hálf-
leiksins og kom nafni hans Dags-
son í markið. Ekki var þó talið, að
meiðsli Sigurðar væru alvarlegs
Fyrsti leikurinn
á Þróttarvelli
Þróttarar hafa sem kunnugt er
ákveðið að leika heimaleiki sína í
2. deildinni á velli félagsins við
Sæviðarsund.Fyrsti leikurinn fer
fram þar í k\öld, þá mætir Þrótt-
ur liði Hauka og hefst leikurinn
klukkan 20.00. Tveir aðrir leikir
fara fram í 2. deildinni um helg-
ina, Völsungur og Armann leika á
Ilúsavfk klukkan 14.00 á morgun
og klukkan 16 leika Selfyssingar
gegn Isfirðingum á Selfossi.
Aukaúrslitaleik-
ur hjá Bayern
og Atletico
V-þýzka liðið Bayern
Munchen og Atletico Madrid
frá Spáni gerðu jafntefli, 1:1, í
úrslitaleiknum í Evrópu-
meistarakeppni félagsliða I
fyrrakvöld. Leikur liðanna var
æsispennandi og að venjuleg-
um leiktíma hafði hvorugu lið-
inu tekizt að skora. Luis
skoraði fljótlega fyrir Spán-
verjana í framlengingunni, en
Schwarzenback jafnaði með
þrumuskoti þegar tæp mfnúta
var til leiksloka. Aðeins fylgd-
ust um 30 þúsund manns með
þessum skemmtilega leik, sem
fram fór í Rotterdam og þar
fer aukaúrslítaleikurinn einn-
ig fram á föstudaginn.
Knattspyrnu-
dómarar funda
UNGLINGA- og héraðsdómarar í
knattspyrnu og þeir landsdóm-
arar, sem ekki sóttu ráðstefnu
KDSÍ í Munaðarnesi 19—21. apríl
sl„ eru boðaðir til fundar föstu-
daginn 17. mai kl. 20.00 að
Freyjugötu 27. Á dagskrá verður
samræming knattspyrnulaganna.