Morgunblaðið - 17.05.1974, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 17. MAI 1974
7
Sólveig vekur mikla
athygli erlendis
Rekaviðarspýturnar voru félagar hennar
listasprang
■k
Eftir Arna Johnsen
Sólveig útskýrir listaverk sitt, sem bankinn f Slagelse í Danmörku keypti.
SÓLVEIG Eggerz Pétursdóttir list-
málari hefur sýnt viða erlendis að
undanförnu og hefur hún fengið
mjög góða dóma fyrir list sina.
bæði vatnslitamyndir og rekavið-
armyndir, sem þykja mjög sér-
stæðar i iistheiminum. Siðan
1972 hafa yfirleitt verið verk á
sýningum erlendis eftir listakon-
una.
1972 AÐ LOKINNI SÝNINGU I
Kaupmannahöfn var henni boðið
að sýna i nýju gallerii hjá Ágústu
Nielsen i Slagelse I Danmörku.
Áður hafði Ágúst Petersen sýnt á
vegum Nielsen.
Að lokinni sýningu Sólveigar
hafði bankinn í Slagelse að láni
eina af stærstu spýtunum, sem
Sólveig hefur málað á, en aðrar
þær stærstu af svipaðri stærð eru í
Seattle i Bandarikjunum og Mel-
bourne i Ástralíu.
Nú hefur bankinn i Slagelse
keypt þetta verk Sólveigar og þvi
fór hún utan til þess að skýra
kaupendunum nánar frá þvi
hvernig verkið er unnið og sög-
una, sem að baki liggur, en verkið
heitir íslenzk álfasaga og er jafn-
framt þjóðfélagsleg táknmynd.
í fyrra fékk Sólveig boð um að
sýna i Baden-Baden í Þýzkalandi.
en sú sýning var að nokkru leyti
hatdin á vegum borgarstjórnarinn-
ar þar. Þýzka sjónvarpið sýndi
verkum Sólveigar mikla athygli og
sendi út 3ja mín. dagskrá af verk-
um hennar á rás I í vestur-þýzka
sjónvarpinu, en það var i annað
sinn, að vestur-þýzka sjónvarpið
sjónvarpaði frá sýningu Sólveigar
Island (Vatnslitamynd)
á vatnslita- og rekaviðarmyndum.
Fyrra sinnið var frá sýningu i
Hannover 1970, en þá tók sjón-
varpið 20 min. mynd, sem siðan
var send út um sumarið.
Fyrir stuttu hélt Sólveig sýningu
á verkum sínum í Félagsheimili
Kópavogs fyrir beiðni kvenfélags-
ins þar, en næsta sýning hennar
mun verða i Galleri Gammelstrand
i Kaupmannahöfn og hefst sú sýn-
ing 18. okt. i haust.
List Sólveigar fær orð fyrir mjög
sérstæðan stil og frumlegan, en
upphafið til þessa stils hennar á
rekaviðarspýtunum er að rekja til
æskuára hennar, þegar hún átti
heima i sveit. Þar var fátt fólk og
lítið um leikfélaga. Þá byrjaði hún
að mála andlit á girðinarstaura,
afgangsstaurana og upp frá þvi
var enginn skortur á leikfélögum.
Kirkjusmiðurinn á Rein. (Vatnslitamynd)
BROTAMÁLMUR Kaupum allan brotamálm lang hæsta verði. Staðgreiðsla. NÓATÚN 27, simi 25891. GERUM VIÐ kaldavatnskrana og WC kassa. VATNSVEITA REYKJAVIKUR, simi 27522.
Birkiplöntur til sölu Úrvals birkiplöntur i mörgum verð- flokkum. Opið til kl. 1 0 virka daga og til 6 á sunnudögum. JÓN MAGNÚSSON, Lynghvammi 4, Hafnarf. Sími 50572. TVEGGJA HERBERGJA ÍBÚÐ óskast til leigu i Kleppsholti eða Heimahverfi. Tvennt i heimili. Uppl. i sima 85064, eftir kl. 7 á kvöldin.
FRÁ HOFI Nýkomið: feiknaúrval í gobilln, ull- arjava og demantspori. Bómullar- garn o.fl. H0F, ÞINGHOLTSSTRÆTI. MOSFELLSSVEIT — KJALARNES Stúlka óskast til léttra heimilis- verka 1 —2 daga i viku. Uppl. i skrifstofusima 24050 alla virka daga.
KEFLAVÍK Til sölu 3ja herb. ibúð ásamt stór- um bilskúrvið Hátún. Laus strax. FASTEIGNASALAN HAFNARGÖTU 27, Keflavik. S. 1420. INNRÉTTINGAR Getum bætt við okkur smiði á eldhúsinnréttingum og klæðaskáp- TRÉSMÍÐAVERKSTÆÐI Þorvaldar Björnssonar, simi 86940.
BIFREIÐAVIÐGERÐIR — JÁRNSMÍÐI Getum bætt við okkur bifreiðavið- gerðum og járnsmíði. VÉLSMIÐJAN Höfði, Tangarhöfða 2, Ártúnshöfða. |Hor0utttiIaMb ?"»mBRCf 9LDRR I mRRKRfl V0RR
* Utgerðarmenn — skipstjórar Til sölu er síldarnót í góðu ástandi. Hagkvæmt verð og skilmálar. Upplýsingar hjá Netaverkstæði Suðurnesja, Andrés Fersæth sími 92—2270.
17. mal 1974 Kl. 9.30 Kransepálagning av minnesmerket over falne nordmen i Fossvogskirkegárd. Kl. 1 0.30 Fest for barn og voksne í Nordens hus. Kl. 20.00 Festmiddag i Krystalsal Hotel Loftleiðir. Medlemmer með venner og bekjente er velkomne. Nordmannslaget.
Knattspyrnudómarar
Fundur verður haldinn föstudaginn 1 7. mai kl.
20 að Freyjugötu 27, Félagsheimili múrara.
Áríðandi að aUir héraðs- og unglingadómarar
mæti, svo og þeir /andsdómarar, sem ekki
komust á Munaðarnesráðstefnuna. Fundarefni:
Samræming knattspyrnulaganna.
K.D.R. og K.D.S.Í.
nt
óskar eftir starfsfólki í eftirtalin störf:
BLAÐBURÐARFÓLK ÓSKAST
Upplýsingar í síma 35408.
KÓPAVOGUR
vantar blaðburðarfólk í Kópavog. Sími 40748.
SEYÐISFJÖRÐUR
Umboðsmaður óskast til að annast dreifingu
fyrir Morgunblaðið. Upplýsingar hjá afgreiðsl-
unni í síma 101 00.
ESKIFJÖRÐUR
Umboðsmaður óskast til að annast dreifingu
fyrir Morgunblaðið. Upplýsingar hjá afgreiðsl-
unni í síma 1 01 00
ÓLAFSVÍK
Vantar umboðsmann strax uppl. á afgreiðslunni
í síma 1 0-1 00.