Morgunblaðið - 17.05.1974, Blaðsíða 4
4
® 22 0-22-
RAUÐARÁRSTÍG 31
V--------------'
Fa
JJ /Í//.I I.IH.t \
'AFUR
LOFTLEIÐIR
BÍLALEIGA
CAR RENTAL
Tt 21190 21188
LOFTLEIÐIR
tel 14444*25555
K
BiLALEIGA car rental
CAR RENTAL
V24460
Í HVERJUM BÍL
PIOIVJŒGR
ÚTVARP OG STEREO
KASSETTUTÆKI
ARÐUR í STAÐ
0 SAMVINNUBANKINN
YÐSLU
FERÐABÍLAR HF.
Bílaleiga — Sími 81260
Fimm manna Citroen G.S
station. Fimm manna Citroen
G.S 8 — 22 manna Mercedes
Benz hópferðabílar (m. bílstjór-
um).
Bílaleiga
GAB BENTAL
Sendum
U* 41660-42902
VARIZT
VINSTRI
SLYSIN
*D
MORGUNBLAÐIÐ,FÖSTUDAGUR 17. MAÍ 1974
STAKSTEINAR
Hver atar
hvern auri?
í Tímanuni í gær er því hald-
ið fram, að Murgunbladið ati
borgarfulltrúa Framsóknar-
flokksins auri af fyllsta kappi
og „beinir blaðið nú vopnum
sínum helzt gegn þeim mönn-
um, sem skipa annað og þriðja
sætið á lista Framsóknarflokks
ins og lepur dag eftir dag upp
allan þann róg, sem það getur
fundið um þá. Slíkum óhróðri
er óþarft að svara . .. “ Hér iief-
ur eitthvað skolazt til hjá leið-
arahöfundi Tímans. Morgun-
blaðið hefur ekki atað borgar-
fulltrúa Framsóknarf lokksins
auri nema síður væri. En lík-
lega er tilefni þessara ummæla
Tímans það, að Morgunblaðið
hefur birt fréttatilkynningu,
sem hópur framsóknarmanna í
Reykjavík hefur sent frá sér. í
þessari fréttatilkynningu eru
þeir, sem skipa annað og þriðja
sæti framboðslista Framsókn-
arflokksins, bornir hinum
alvarlegustu sökum. Þeir eru
sagðir .Jiefja til verks pðlitfskt
siðleysi og margvíslega fjár-
málaspillingu, brjóta félagslög
og lýðræðislegar starfsvenjur".
Og ennfremur er því haldið
fram af Samtökum vinstri
framsóknarmanna, að fram-
boðslisti Framsóknarflokksins
i Reykjavfk sé borinn fram
með ólöglegum hætti. Og vissu-
lega eru það engir utangarðs-
menn í Framsóknarflokknum,
sem bera fram þessar sakir.
Forystumaður Samtaka vinstri
framsóknarmanna f Reykjavfk
eru Baldur Kristjánsson, sem
er sonur Kristjáns Benedikts-
sonar, borgarful Itrúa, er skipar
efsta sæti á framboðslista
Framsóknarflokksins f Reykja-
vfk. Telji Tíminn, að með þess-
ari fréttatilkynningu sé verið
að ata borgarfulltrúa Fram-
sóknarflokksins auri ætti hann
fremur að beina spjótum sín-
um að samflokksmönnum og
hinum nýju félagssamtökum
framsóknarmanna f Reykjavík,
Samtökum vinstri framsóknar-
manna. Hlutur Mbl. f þessu
máli er ekki annar en sá að
sinna þeirri lýðræðislegu
skyldu dagblaðs að leyfa öllum
sjónarmiðum að koma fram og
vart verður Morgunblaðið um
það sakað, þótt framsóknar-
menn f Reykjavfk eigi við
heimilisböl að búa.
„Verkalýðs”-
flokkurinn!
Það er alkunna, að Alþýðu-
bandalagið hefur jafnan talið
sig vera fremsta forsvara
verkalýðshreyfingarinnar á
hinum pólitíska vettvangi og
raunar hafa forystumenn þess
hvað eftir annað sagt, að Al-
þýðubandalagið væri hinn póli-
tíski armur verkalýðshreyfing-
arinnar. í samræmi við þessa
afstöðu hefur Alþýðubandalag-
ið f gegnum árin lagzt eindreg-
ið gegn öllum aðgerðum, sem
kommúnista hafa talið skerða
hag verkalýðsins og á það ekki
sízt við um hvers konar breyt-
ingar á vfsitölunni. Sem dæmi
má nefna, að ríkisstjórn Jó-
hanns Hafstein frestaði í
nokkra mánuði greiðslu
tveggja eða þriggja vísutölu-
stiga haustið 1970 og ætluðu þá
þingmenn Alþýðubandalagsins
og málgagn þess, Þjóðvilj-
inn, að ærast og töluðu um vísi-
tölurán. Þegar þetta er haft í
huga, er óneitanlega fróðlegt
að kynnast þeim tillögum, sem
ráðherrar Alþýðubandalagsins
hafa gert f ríkisstjórninni um
ráðstafanir í efnahagsmálum. I
rfkisstjórninnni samþvkktu
ráðherrar Alþýðubandalagsins,
þessi pólitfski armur verkalýðs-
hreyfingarinnar, að engin vísi-
töluhækkun yrði greidd á laun
hinn 1. júní n.k. og skvidi sá
háttur gilda til 1. desember á
þessu ári. Þetta þýðir að sjálf-
sögðu stórfellda kjaraskerð-
ingu liins almenna launamanns
f landinu, vegna þess, að hann
fær þá f engu bættar þær miklu
verðhækkanir, sem dunið hafa
yfir frá 1. marz sJ. En ráðherr-
ar Alþýðubandalagsins gerðu
fleira. Þeir fluttu tillögu um að
breyta með iöguni nýgerðum
kjarasamningum og taka af
launþegum hluta þeirrar kaup-
hækkunar, sem um var samið í
þessum kjarasamningum. Þeir
áttu hugmyndina að því að
færa alla kjarasamninga niður
í 20% kjarabót með lögum.
Þessu hefur sambandsstjórn
Alþýðusambands fslands mót-
mælt harðlega. Afstaða ráð-
herra Alþýðubandalagsins
hlýtur að vekja mikla athygli
meðal verkafólks.
Borgarstjóri svarar...
Til kjördags svarar
borgarstjórinn í
Reykjavík fyrirspurn-
um borgarbúa um mál-
efni Reykjavíkur.
Lesendur Mbl. eru
hvattir til að hringja í
síma 10100 kl. 10-11
fyrir hádegi.
Skóladagheimili
í Arbæ
Róshildur Jónsdóttir, Rofabæ
47, R.
„Hvenær er áætlað, að skóla-
dagheimili komi í Arbæjarhverfi?
Er til sérstök áætlun varðandi
skóladagheimili fyriralla Reykja-
vfk? Ef svo er, f hvaða röð koma
hverfin?"
Svar borgarstjóra:
„Frá 1970 hafa verið sett á stofn
þrjú skóladagheimili, eitt f Lang-
holtshverfi, annað í Smáfbúða- og
Bústaðahverfi og hið þriðja við
Kaplaskjólsveg. Samkvæmt sér-
stakri áætlun, sem unnið hefur
verið eftir um stofnun fimm
slíkra heimila, kemur hið fjórða
væntanlega á þessu ári í Breið-
holti III og það fimmta er áætlað
aðverði í gamla austurbænum.
Þessi áætlun um stofnun fimm
skóladagheimila var á sínum tíma
skoðuð sem tilraun. Að fenginni
reynslu verður eflaust gerð ný
áætlun á næsta ári. sem tekur þá
til annarra borgarhverfa."
Hreinsun
bílastæða
Einar Kristinsson, Súðarvogi 20
spyr:
„Erekki hægt að fá hreinsunar-
deild borgarinnar til að gera
gangskör að því að hreinsa til á
bílastæðum þar sem standa all-
mörg bílflök núna. Við höfum tal-
að við lögreglu,umferðardeild og
hreinsunardeildina en enginn að-
hefst neitt. Hvenær verður haf-
izt handa við gangstéttarlagníngu
i Súðarvogi?“
Svar borgarstjóra:
„Hreinsunardeild borgarinnar
hreinsar reglulega til á iðnaðar-
svæðinu við Súðarvog, enda er
ástand þar mjög slæmt og starfs-
mönnum hreinsunardeildar full-
kunnugt um það. Seinustu að-
gerðir hreinsunardeildar á þessu
svæði voru 12. marz, en þá voru
teknír af svæðin'u 8 bflgarmar, og
20. marz voru teknir 10, auk braks
úr vinnuvélum. Seinustu götu-
spottar í þessu hverfi verða mal-
bikaðirá þessu ári.
Gangstéttarlagningu lýkur á
næsta ári.“
Sundlaug
í Breiðholti
Halldór Pálsson, Njörvabakka
16, R.
„Er fyrirhugað, að hjólreiða-
menn fái sérstaka hjólreiðastfga í
borginni? Ennfremur, — er von á
bankaútibúi hér á næstunni?
Hvenær fá Breiðholtsbúar
sundlaug og hversu stór verður
hún?“
Svar borgarstjóra:
„Þar sem Njörvabakki er ekki
til í Reykjavík er eflaust um mis-
ritun að ræða og á að vera Núpa-
bakki.
Samkvæmt áætlun um um-
hverfi og útivist, sem borgar-
stjórn samþykkti 2. þ.m., er gert
ráð fyrir sérstökum hjólreiðastíg-
um víða um borgina. Á uppdrátt-
um er fylgja áætluninni og liggja
frammi hjá Þróunarstofnun
Reykjavíkurborgar, má sjá, hvar
stígarnir eru fyrirhugaðir.
Bankaútibú fyrir Breiðholt I er
fyrirhugað í Mjóddinni.
Við fjölbrautaskólann í Breið-
holti III er ráðgert að lokið verði
við 12!4x25 m útisundlaug á árinu
1976.“
Höfðaskóli
Bjarni Guðmundsson, Greni-
mel 26, R.
„Hvað líður byggingu Höfða-
skóla? Verður hægt að hefja þar
kennslu að hluta í haust? Væri
ekki hægt að draga úr fram-
kvæmdum við t.d. íþróttamann-
virki, þannig að hægt sé að ljúka
byggingu þessa skóla?“
Svar borgarstjóra:
„Samkvæmt áætlun á Öskju-
hlíðarskóli, eins og hann er nú
nefndur, að taka til starfa haustið
1975 og þá að leysa núverandi
Höfðaskóla af hólmi.
Röðun framkvæmda er ákveðin
af borgarstjórn og eflaust má allt-
af um það deila, hvaða fram-
kvæmdir eru öðrum nauðsyn-
legri."
Sumarvinna
unglinga
Fjóla Kristjánsdóttir, Sogavegi
54, R.:
„Ætlar Reykjavíkurborg að sjá
unglingum, sem ekki verða 16 ára
fyrr en í haust ,fyrir sumarvinnu?
Hefur borgin ekki nóg að starfa
fyrir þennan aldursflokk við þær'
miklu framkvæmdir, sem fyrir-
hugaðar eru i sambandi við gróð-
ursetningu og fleira þess háttar á
næstunni?"
Svar borgarstjóra:
„Rétt er, að vandkvæðum hefur
verið bundið að útvega þessum
aldursflokk sumaratvinnu. Hefur
þó á vegum Ráðningarstofunnar
verið leitazt við að aðstoða þessa
unglinga eftir því sem aðstæður á
hinum almenna vinnumarkaði
hafa leyft hverju sinni. Á sl. 2
árum hefur Reykjavikurborg
einnig stofnað sérstaka vinnu-
flokka, 2 fyrir stúlkur og 1 fyrir
drengi, á þessu aldursskeiði, og
þannig útvegað 60—75 ungling-
um sumarvinnu, enda eru verk-
efni næg, en ásamt með Vinnu-
skólanum og vinnuflokkum garð-
yrkjustjóra hafa þessir unglingar
helzt unnið að hreinsunarmálum
og gróðursetningu. Má eflaust
reikna með, að svipaður háttur
verði á hafður í sumar.“
Mold inn á lóð
Sigfríð Breiðfjörð, Réttarholts-
vegi 89, spyr:
„í fyrra lofaði gatnamálastjóri,
að gengið yrði frá ræmu, sem til-
heyrir borginni og er utan við lóð
hússins á horni Réttarholtsvegar
og Bústaðavegar. Jafnframt var
því lofað, að mold yrði ekið inn á
lóðina. Síðan gerðist það, að geng-
ið var frá spildu borgarinnar utan
lóðarinnar, og nú er svo komið, að
ekki er hægt að flytja gróðurmold
inn á lóðina. Hvernig eigum við,
íbúar hússins,að snúa okkur f því
að koma mold inn á lóðina til
okkar?"
Svar borgarstjóra:
„Lóðirnar nr. 81—97 við Réttar-
holtsveg eru raðhúsalóðir. Skv.
mæliblaði eru fyrir framan hvert
ráðhús afmarkaðir reitir 4,5m x
8,0m, sem eru sérlóðir fyrir hvert
raðhús. Spildan frá þessum af-
mörkuðu reitum og fram að götu-
línu Bústaðavegar er sameiginleg
lóð raðhúsalengjunnar. Spilda
þessi var í megnustu óhirðu og
ekki séð fram á, að húseigendur
gengju frá þessu sameiginlega
svæði.
Gatnadeildin gekk frá þessu
svæði í fyrra í sambandi við
gatnaframkvæmdirnar. Flestir
húseigendanna gengu frá sinum
sérlóðum um leið. Viðkomandi
fyrirspyrjandi virðist ekki hafa
getað lokið sínum lóðafrágangi á
þessum tfma og því ekki um ann-
að að ræða en að hann fari með þá
mold, sem hann þarfnast, yfir
hina sameiginlegu spildu og lag-
færi eftir sig, ef þeir flutningar
valda spjöllum. "
Merkt
göngubraut
Jóhanna Bjarnadóttir, nú
heima að Ægissíóu 119, spyr:
„Ég átti heima f Skipasundi og
um umferðarmál þar fjallar þessi
spurning. Við húsið númer 89 við
Langholtsveg er mjög aðkallandi
að sett verði upp tafalaust merkt
göngubraut yfir þessa miklu um-
ferðargötu. Oft hef ég orðið vitni
að því, að á sfðustu stundu hefur
ekki orðið þarna stórslys á gang-
andi vegfarendum. Ökumenn aka
auk þess mjög tillitslaust þarna
og verður fólk oft að bíða langa-
lengi eftir að komast yfir götuna
vegna verzlunarerinda sinna. —
Er hægt að verða við þessari ósk,
spyr ég borgarstjóra vorn, um leið
og ég vona, að svar hans verði
jákvætt og ekki við það eitt látið
standa.“
Svar borgarstjóra:
„Zebragangbraut hefir verið
merkt á Langholtsveg norðan Álf-
heima við lóðina nr. 89, en merk-
ingin er nú slitin af eins og víða
annars staðar.
Gatnamerkingar eru nú að
hefjastog verður gangbraut þessi
merkt einhvern næstu daga.“