Morgunblaðið - 17.05.1974, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 17.05.1974, Qupperneq 11
11 MORGÚNBLAÐÍÐ, FÖSTUDAGUR 17. MAÍ 1974 Þcssi litli balletflokkur mun dansa f stundinni okkar á sunnudag- inn kl. 18.00. FÖSTUDtkGUR 24. maí 1974 20.00 Fréttir 20.25 Vedur og auglýsingar 20.30 Kapp med forsjá Breskur sakamálamynda- flokkur. Þýðandi Kristmann Eiðsson. 21.25 Landshorn Fréttaskýringaþáttur um innlend málefni. Umsjónarmaður Eiður G uðnason. 22.05 KemalAtaturk Bresk fræðslumynd um tyrkneska þjóðskörunginn Mustafa Kemal Ataturk og umbætur þær, sem hann stóð aö i landi sínu i byrjun tuttugustu aldar. Þýðandi og þulur Jón O. Edwald. 22.50 Dagskrárlok L4UG4RD4GUP 25. maí 1974 16.00 Borgarmálcfnin Hringborðsumræður um málefni Reykjavíkurborgar í tilefni af kosningunum næsta dag. Umræðum stýrir Eiður G uðnason. 17.30 Iþróttir Meðal efnis er mynd frá Ensku knattspyrnunni og myndir og fréttir frá iþrótta- viðburðum innan lands og utan. U msjón armaðu r Ö mar Ragnarsson. Hlé 20.00 Fréttir 20.20 Veður og auglýsingar 20.25 Læknir á lausum kili Breskur gamanmyndaf lokk- ur. Skipting útávið Þýðandi Jón Thor Haraldsson. 20.50 Úr kfnversku fjölleika- húsi Myndasyrpa frá sýningum fimleika- og fjöllistamanna f Kínverska alþýðulýðveldinu. 21.20 Kampavín fyrir Sesar (Champagne forCaesar) Bandarísk gamanmynd frá árinu 1950. Aðalhlutverk Ronald Colman og Celeste H olm. Þýðandi Jón O. Edwald. Aðalpersónan, Bottomley, er greindur náungi. Hann stendur þó uppi atvinnulaus, en þegar stórt sápufyrirtæki efnir til spurningakeppni i auglýsingaskyni, sér hann sér leik á borði að vinna verð- launin og eignast þannig mikiö fé. 23.00 Dagskrárlok. KONAN MÍN I NÆSTA HÚSI hefur þegar aflað sér talsverðra vinsælda. Hér eru John Alderton og Hannah Gordon í hlutverkum sínum f einum þáttanna. Miðvikudagur kl. 20.30. HVAÐ ER AÐ HEYRA? ÞESS hefur orðið vart að und- anförnu, að sumarið er ekki allt of langt undan. Við það léttist brúnin á ýmsum, þeirra á mcðal eru útvarpsmenn. Út- varpsdagskráin fer nú smám saman að stokkast upp, gamlir þættir hverfa, aðrir koma f staðinn, og þegar f næstu viku eru a.m.k. tvcir komnir á kreik, sem tilheyra svonefndri sumar- dagskrá útvarpsins. A SUNNUDAG kl. 13.15 kemur aftur inn á dagskrána gamall kunningi fra sfð- asta sumri, MÉR DATT ÞAÐ 1 HUG, en eins og flestir muna voru þetta léttir spjallþættir, sem menn fengu svona ofaná sunnudags- steikina til að bæta melting- una, eða eitthvað þvíumlíkt. Þessir þættir nutu ágætra vin- sælda f fyrra, enda mennirnir, sem fengu hugdetturnar, bæri- lega hressirflestir. Jónas stýrimaður — hvað dett- ur honum f hug? Aðsögn þeirra útvarpsmanna er ekki fastákveðið, hverjir sjá okkur fyrir sumargamni á sunnudögum framvegis, fyrir utan það, að nú á sunnudaginn er búið að gabba Jónas Guð- mundsson rithöfund, listmál- ara, stýrimann og gvuð veit hvað, til þess að láta sér detta eitthvað í hug, og verður hann einn af fjórum, sem þetta gera í sumar. Þegar við höfðum samband við Jónas fyrri hluta rikunnar var hann ekki búinn að ákveða hugdettuna. „Ég er að hugsa. Þeir hringdu f mig í morgun frá útvarpinu. En ætli ég tali ekki bara um börnin min.“ A SUNNUDAGSKV'ÖLD kl. 20.05 er á dagskránni liður, sem er ekki sérstaklega ein- kennandi fyrir sumardag- skrána, en þó þess rirði, að vak- in sé athygli á honum. Þetta er útvarpsupptaka á DJASS OG LJÓÐLIST, sem nokkrir sænsk- ir og fslenzkir hljóðfæraleikar- ar og skáld fluttu í samtvinn- Kl. 21.45 á sunnudagskvöldið flytur Jóhann Hanncsson er- indi íflokknum „Um átrúnað". uðu formi nú f vetur í Norræna húsinu. Svíarnir voru Lasse Söderberg, Jacques VVerup og Rolf Sersam, sem léku sjálfir undir. Af fslenzkum höfundum voru flutt ljóð eftir Jóhann Hjálmarsson, Jón Óskar, Matt- hfas Johannessen og Þorstein frá Hamri, en tveir hinir fyrst- nefndu fluttu sín Ijóð sjálfir. lslenzkir hljóðfæraleikarar að- stoðuðu. Meginefni dagskrár- innar verður flutt. A FÖSTUDAGSKVÖLD kl. 19.25 hefur göngu sfna á sumar- dagskránni þátturinn SPURT ÖG SVARAÐ í umsjá Ragn- hildar Richter. Þessi þáttur er þó ekki alveg nýr af nálinni, hcldur hefur hann skotið upp kollinum af og tii á undanförn- um árum með hinum og þess- um umsjónarmönnum. Er hér um að ræða eins konar útvarps- útgáfu á Lesendaþjón ustu Morgunhlaðsins. „Við leitum svara við þcim spurningum, sem hlustendur hafa áhuga á og koma á fram- færi við okkur," sagði Ragn- hildur f stuttu spjalli. Ilún kvað fyrirkomulagið vera þan n- ig, að hafður hefði verið sér- stakur sfmatími að undan- förnu, þar sem hlustcndur hefðu getað hringt inn spurn- ingar.og var síðasti sfmatíminn f bili sl. mánudag. Sfðan er gert ráð fyrir.aðspurningarnar ber- ist bréfleiðis, þótt einnig sé hugsanlegt að símatfmarnir verði teknir upp aftur. „Undirtektirnar hafa verið alveg Ijómandi góðar," sagði Ragnhildur, „og þegar er kom- ið efni feina tvo til þrjá þætti." Og um hvað er helzt spurt? „Allt möguiegt. Tii dæmis skipulagsmál ýmiss konar, fþróttamál, manneldi, sjón- varps- og útvarpsdagskrána o.sJrv. o.sJrv." Hún kvaðst svo afla svara hjá viðeigandi aðil- um, annaðhvort fara á stúfana með hljóðnemann eða fá við- mælendur f viðtal niðri f út- varpi. Ragnhildur sagði, að þetta væri sumarvinna hjá sér. Hún stundar annars nám við nátt- úrufræðideild Menntaskólans við Hamrahlið. GLEFS if Óvenju fátt var um fína drætti I dagskrá útvarpsins undanfarnar verkfallsvikur, jafn góð og vetrar- dagskráin i heild hefur þó verið. Auðvitað brá fyrir snaggaralegum tiltektum, eins og t d þáttum Páls Heiðars um þögla meirihlutann og nokkrum ágætum leikritum. En að öðru leyti virðist Ijóst, að nokkur þreyta er að gera vart við sig I ýmsum hinum föstu þáttum, sem verið hafa í gangi i vetur, og verða þeir sjálfsagt hvíldinni fegnir nú, þegar sumardagskráin gengur í garð Blessuð sé minning vetrardag- skrárinnar. Fréttastofa útvarpsins rak sig all óþægilega á það í verkfallinu, hversu háð hún í mörgum tilfellum er dagblöðunum um fréttaflutning og einkum og sérílagi um aðgang að fréttum. Þetta er að sjálfsögðu þeim reglum að kenna, sem hún verður að fara eftir. Sumar fréttir, — og þá fyrst og fremst fréttir, sem eiga sér pólitlskar rætur — eru þess eðlis, að oft á tiðum verða þær að hafa komið fram í blöðunum áður en útvarpið getur skýrt frá þeim. En fréttastofan áttaði sig áður en langt um leið og opnaði fréttatímann fyrir aðila, sem sagt gátu fréttirnar fyrir hana. Og þrátt fyrir smá mistök á stundum, græddi hún verulega á þessu verkfalli hvað öll vinnubrögð varðar. Gott ef þau eiga ekki eftir að nýtast áfram, þótt nú séu blöðin komm i spilið aftur, til þess að gera hana að sjálfstæðari og lifrænni fréttamiðli. ýý Sigurður A. Magnússon hefur verið með BÓKASPJALL í gangi i vetur. Þrátt fyrir það, að þessir þætt- ir hafi verið í mjög svo hefðbundnu og kannski dálitið útjöskuðu formi, þ.e aðallega upplestur, viðtöl og samræður i stúdlói, þá hefur oft verið þar bitastætt efni á boðstólum Sigurður hefði þó mátt leita fanga viðar, fara út fyrir Skúlagötu 4, taka menn tali úti í bókalifinu, fara á vettvang þegar eitthvað hefur verið að gerast o.s frv. Stundum verður Múhammeð að fara til fjallsins. Vel til fundið var það nýlega, að hleypa ungu bókmenntafólki úr háskólan- um með sin viðhorf um nútimabók- menntir að hljóðnemanum. En hefði ekki verið enn þá skemmtilegra að fara með hljóðnemann til þeirra,-— inn í umræðutima ufn bókmenntir uppi i háskóla og láta óformlegar umræður, — helzt auðvitað rifrildi — koma i stað upplestrarformsins? — Á. Þ. GLUGG ÞVÍ miður er ekki unnt að segja, að dagskrá sjónvarpsins verkfalls- vikurnar hafi verið óvenju slópp. Hún var slöpp eins og venjulega. Það er eins og dagskráin i vetur hafi samanstaðið af svo til ein- tómu uppfyllingarefni. Upp- fyilingarefni er auðvitað bráð- nauðsynlegt og jafnvel ágætt. En það verður þá að vera eitthvað til að fylla upp i. Burðarásar dag- skrárinnar hafa verið allt of fáir og margir hverjir mjög brokkgengir. Kvikmyndirnar hafa verið jafn bezta efnið, en óvenju margar af erlendu þáttakeðjunum, sem i gangi hafa verið, hins vegar slakar („Bræðurnir", „Að Heiðargarði", „Söngelska fjölskyldan", „Brellin blaðakona", „Valdatafl", „Stríð og friður o.s.frv. o.s.frv). Óþarfi er að fara að tyggja það upp aftur. Innlenda efnið hefur verið einkar rýrt i roðinu, þótt Ijósir punktar sæjust innan um (t.d. „Rokkugl- an"). Skal aðeins drepið á það skásta. sem fram hefur verið borið á sið- ustu vikum. Hitt þarf heila bók. Magnús Bjarnfreðsson er hættur að krunka á skjáinn. Hann mun stefna að pólitísku krunki t staðinn. Nokkur eftirsjá er að Magnúsi sem sjónvarpsmanni, þótt „Krunkið" á miðvikudags- kvöldum hafi verið orðið nokkuð einhæft undir lokin. Ólafur Ragnarsson er kominn með annan „blandaðan fjölskylduþátt" á mið- vikudögum, og nefnist sá „Á tiunda timanum". Það form, sem Ólafur hefur valið sínum þætti, er mun sveigjanlegra en Magnúsar, og þó að efnisvalið hafi verið svo- litið flatneskjuiegt. þá er þetta rösklega matreitt. Allt mjög slétt og fellt, en tilþrifalítið. Bezt hafa tekizt gömlu fréttamyndirnar, gerðar upp með tali og tónum. „Ugla sat á kvisti" þjáist stöðugt af samanburði við fyrsta þáttinn. En yfir þessu er mikil fagmennska og öryggi, og þau vinnubrögð, sem einkennt hafa þessa þætti I vetur, eru eitt af fáum merkjum þess, að sjónvarp- inu fer ekki aftur að öllu leyti. Ég vil sérstaklega geta kvikmyndaða innskotskaflans um „Bilavisur" i þættinum um Sa vannatrióið. Lifandi og frjósöm kvikmyndun (og klipping) á borð við þessa hef- ur ekki sézt i annan tima. Þeim manni, sem að stóð, ber að veita tækifæri til að kljást við stærri verkefni. Sami myndræni ferskleikinn var raunar eitt af beztu einkennum uppfærslu sjónvarpsins á leikriti Gunnars M. Magnúss, ,,í Múrn- um". Hér var á ferð óvenju blæ- brigðarfk og hreyfanleg mynda- taka, með tilfinningu fyrir nánu sambandi myndar og texta, myndskiptingar snöggar og ekki alveg út i bláinn eins og lengi hefur einkennt handverk sjón- varpsmanna Þar hefur hendingin lengst af ráðið ferðinni. Verkið sjálft naut óneitanlega þes: áhrifarika samspils leikstjórnar og upptökustjórnar. Ekki er tóm til að fara út í það hér i smáatriðum. en það var ójöfn blanda af heldur vafasamri sagnfræði annars vegar, þar sem talsvert skorti á jafnvægi milli rómantískra og raunsæislegra efnistaka og melódramatiskum hasar af hefð- bundinni gerð, hins vegar. Þrátt fyrir það að sum atriðin (t.d. byrjunin) væru viðvaningslega uppbyggð, þá var þarna oft á tið- um prýðilegur texti. Leikurinn var eins misjafn og hlutverkin voru misvel skrifuð (Valdimar Helgason brilleraði sem tugtmesterinn danski), en tónlistin var mis- heppnuð að mínum smekk, gróf undan áhrifum atriðanna fremur en styrkti þau. En það var bara gaman að þessu. — Á. Þ.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.