Morgunblaðið - 17.05.1974, Qupperneq 27

Morgunblaðið - 17.05.1974, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 17. MAl 1974 félk í fréttum □ Tvö spurningarmerki Hér á myndinni sést Moshe Dayan, varnarmálaráðherra Israels, virða fyrir sér vígstöðuna á snævi þöktu Hermon-fjalli í Golan-hæðum. — Þegar þétta er skrifað, veit enginn, hvernig fer með vopnahléssamninga milli ísraels og Sýrlands, eða hve lengi herir landanna standa þarna gráir fyrir járnum. Þá er og annað, sem enginn veit, hve lengi Dayan heldur stöðu sinni sem varnarmálaráðherra Israels. Anna Bretaprinsessa sést hér í sjúkraheimsókn. Sá, sem hún heimsækir, heitir Michael Wills, lögregluþjónn, sem hlaut skotsár, er hann kom prinsessunni og manni hennar til hjálpar, er tilraun var gerð til þess að ræna þeim einn verkfallsdaginn. Sem betur fer særðist Wills ekki lifshættulega, og lét prinsessan í ljós ánægju sína yfir því, að hann væri á batavegi. □ Sigraði á kostnað forsetans J. Robert Traxler hefur svo sannarlega ástæðu til þess að vera kátur. Hér fagnar hann sigri í aukakosningum i 8. kjör- dæmi Michigan-fylkis um sæti í fulltrúadeild Bandarfkjaþings. Fulltrúar þessa kjördæmis hafa verið repúblikanar síðustu 42 ár, en nú var Traxler, sem er demókrati, kosinn. — Nixon forseti kom sjálfur í kjördæmið fyrir kosningar til stuðnings frambjóðanda flokks sins, en það kom fyrir ekki, enda á for- setinn ekki upp á pallborðið hjá þjóð sinni þessa stundina. Utvarp Reykjavfk FÖSTUDAGUR 17. maí 7.00 Morgunútvarp. Veðurfrugnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10 Morgunleikfimi kl. 7.20. Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og forustugr. dagbl.),9.00 og 10.00. Morgunbæn kl. 7.55. Morgunstund barnanna kl. 8.45: Oddný Thorsteinsson les framhald „Ævintýris um Fávís og vini hans'* eftir Nikolaj Nosoff (23). Morgunleikfimi kl. 9.20. Tilkynningar kl. 9.30. Létt lög á milli liða. Spjallað viðbændur kl. 10.05. Morgunpopp kl. 10.25. Morguntónleikar kl. 11.00: Fíl- harmoníusveitin í Ösló leikur „Karnival í París" eftír Svenðsen /Hátíðarhljómsveit Lundúna leikur „Amerikumann í Paris" eftir Gershwin/Boston Pops hljómsveitin leikur „Fransmann í New York" eftir Milhaud. 12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynn- ingar. 12.25 Fréttir og veðurfregnir. Tilkynn- ingar. 13.00 Viðvinnuna: Tónleikar. 14.30 Síðdegissagan: „Hús málarans" eftir Jóhannes Helga óskar Halldórsson les (7). 15.00 Miðdegistónleikar: Norsk tónlist. Norski blásarakvintettinn leikur Svitu eftir Pauline Hall, Camilla Wicks og Fílharmóíusveitin í ósló leika Fiðlu- konsert op. 26 eftir Klaus Egge; öivind Fjeldstad stj. 15.45 Lesin dagskrá næstu viku. 16.00 Fréttir. Tilkynningar. 16.15 Veður- fregnir. 16.25 Poppkornið. 17.10 Tónleikar. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. Tilkynningar. 19.25 Bein Ifna. Untsjónarmenn: Arni Gunnarsson og Einar Kari Haraldsson. 20.00 Sinfónfutónleikar frá brezka útvarpinu. Flytjendur: Daniel Barenboim og Konunglega fílharmóíusveitin í Lundúnum; Lawrence Fosterstj. a. Sinfónía nr. 34 í C-dúr (K338) eftir Mozart. b. Píanókonsert nr. 3 i c-moll eftir Beethoven. 21.00 I hringiðunni Jónas Jónasson ræðir við Hauk Morthens. 21.30 Ctvarpssagan: „Ditta mannsbarn" eftir M«rtin Andersen Nexö Þýðandinn, Einar Bragi, les (25). 22.00 Fréttir. 22.15 Veðurfregnir. Malta, — land og þjóð Vilhelm G. Kristinsson flytur annan ferðaþátt sinn. 22.40 Létt tónlist á sfðkvöldi a. Bandarískir listamenn flytja atriði úr söngleiknum „Fiorello** eftir Jerry Bock og Sheldon Harnik. b. Hátíðarhljómsveitin í Lundúnum leikur tónlist úr „Saga í Vesturbænum, „Umhverfis jörðina á áttatíu dögum“ og fleiri kvikmyndum. Stanley Biack stj. 23.35 Fréttir í stuttu máli. Dagskrárlok. LAUGARDAGU R 18. rnaí 7.00 Morgunútvarp Veðurfregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10. Morgunleikfimi kl. 7.20. Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og forustugr. dagbl.).9.00 og 10.00. Morgunbæn kl. 7.55. Morgun- stund barnanna kl. 8.45: Oddný Thor- steinsson heldur áfram að lesa „Ævin- týri um Fávís og vini hans" eftir Nikolaj Nosoff (24) Morgunleikfimi kl. 9.20. Tilkynningar kl. 9.30. Létt lög á milli atriða. óskalög sjúklinga kl. 10.25: Borghildur Thors kynnir. 12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynn- ingar. 12.25 Fréttir og veðurfregnir. Tilkynn- ingar. Tónleikar. 14.00 Létt tónlist Loúis van Dijk og trió hans, Stan Getz o.fl. leika. 14.30 Iþróttir Jón Asgeirsson sér um þáttinn. 15.00 Islenzkt mál Dr. Jakob Benediktsson flytur þáttinn. 15.20 Framhaldsleikrit barna og ungl- inga: „Þegar fellibylurinn skall á" eftir Ivan Southall Sjöundi þáttur. Þýðandi og leikstjóri: Stefán Baldurs- son Persónurog leikendur: Palli /Þórhallur Sigurðsson, Addi/Randver Þorláksson, Fanney/Þórunn Sigurðardóttir, Gurrí/Sólveig Hauksdóttir, Maja/Helga Jónsdóttir, Hannes/Þórð- ur Jón Þórðarson, Sögumaður/Jón Júliusson. 16.00 Fréttir 16.15 Veðurfregnir. Tfu á toppnum örn Petersen sér um dægurlagaþátt. 17.20 Tónleikar. Tilkynningar 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. Fréttaauki. Tilkynningar. 19.35 Stund með Gunnari skáldi Gunn- arssyni Sveinn Skorri Höskuldsson flytur er- indi um skáldið og verk þess. Sigurjón Björnsson ræðir við Gunnar. og lesnir verða kaflar úr verkum hans. 21.15 Hljómplöturabb Þorsteinn Hannesson bregður plötum á fóninn. 22.00 Fréttir. 22.15 Veðurfregnir. Danslög 23.55 Fréttir í stuttu máli. Dagskrárlok. A skjánum FÖSTUDAGUR 17. maf 1974 20.00 Fréttir 20.25 Veður og auglýsingar 20.30 Kapp með forsjá Breskur sakamálamyndaflokkur. Þýðandi Kristmann Eiðsson. 21.25 Landshorn * Fréttaskýringaþáttur um innlend mál- efni. Umsjónarmaður Svala Thorladuus. 22.05 Joe Glazer Þáttur með bandarískum vísna- og ádeilusöngvara. Þýðandi Dóra Hafsteinsdóttir. 22.40 Dagskrárlok fclk í fjclmiélum Bein lína í kvöld kl. 19.25 verður nýkjörinn formaður Félags fslenzkra iðn- rekenda, Davíð Scheving Thorsteinsson, á Beinni línu. Þátturinn er að vanda í umsjá þeirra Árna Gunnarssonar og Einars Karls Haraldsson- ar fréttamanna. Mikið hefur verið rætt og ritað um stöðu íslenzks iðnaðar, ekki sízt nú að undanförnu. Fram hefur komið af fréttum, að þessum atvinnuvegi er þröngur stakkur skor- inn bæði hvað snertir tollaákvæði og sam- keppni við innfluttar iðnaðarvörur. Iðnrekendur héldu árs- þing sitt sl. miðvikudag, og munu sjálfsagt margir óska eftir að eiga tal við hinn nýkjörna formann þeirra. Kapp með forsjá Sl. föstudag var sýndur fyrsti þáttur í brezkum sakamálamyndaflokki, sem hlotið hefur á íslenzku heitið „Kapp með forsjá". Við fyrstu athugun virðist þessi myndaflokk- ur géta orðið skikkanlegt afþreyingarefni, talsvert spennandi á köflum og vel úr garði gerður hvað snertir tæknilegu hlið- ina. Við heyrðum það á skotspónum, aö málið, sem fjallað var um í myndinni á föstudaginn var, hefði verið of óhugnanlegt til að það væri við hæfi barna, en þar var um að ræóa geð- sjúkling, sem kyrkti barn. Slíkir atburðir eru þó síður en svo einsdæmi, og virðist okkur hafa ver- ið fjallað um þetta af raunsæi og nærgætni í téðum þætti.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.