Morgunblaðið - 17.05.1974, Side 34

Morgunblaðið - 17.05.1974, Side 34
34 MORG UXBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 17. MAl 1974 Verkfræðingar Tæknifræðingar Þeir verkfræðingar og tæknifræðingar, sem hafa í hyggju að ráða sig til Reykjavíkurborgar eru beðnir að hafa samband við skrifstofu Stéttarfélags Verkfræðinga, Brautarholti 20 eða skrifstofu Kjaradeildar Tæknifræðinga, Skúla- götu 63. Stjórnir SV. og KT. Kynnum nýja tjaldhúsvagninn Camp — Let 500 að Suðurlandsbraut 10. L úkasa rverks tæð ið. Sími 81320. Skipzt á skoðunum Frnmbjóðendur D-listaris við borgarstjórnarkosningarnar I Rr.-ykjavik oru þoirrar skoðunar að opið stjórnmáiastarf og aukm tengsl kjósenda og k|orinna fulltrúa þeirra sé mikilvæcjur þáttui i árangursriku orj uppbyugjandi starfi i þágu velferðar borgaranna Þvi er vakin athygli á að frambjóðendur eru reíðubúnir. sé þess óskað. til að: — KOMA I HEIMSOKNIR I HEIMAHUS TIL AÐ HITTA SMÆRRI HÓPA AÐ MALI — EIGA RABBFUNDI MEO HÓPUM AF VINNUSTOÐUM — TAKA ÞATT Í FUNDARDAGSKRÁM FÉLAGA OG KLUBBA — EIGA VIÐTOL VIÐ EINSTAKLINGA Frambjóðencfur D-listans vona að þiinnig geti fólk m a kynnyt skoðunum þeirra og viðhorfum til borgarmálanna og komið á framfæri ábendingum og athugasemdum um borgarmál Þeir sem áhuga hefðu á að notfæra sér framangremt hringi vinsamlega i sima 82605 Hagkaup auglýsir viðskiptakortaverö: 270 kr. pr. kg i egg 71 kr. pr. Vz kg í smjörlíki 75 kr. pr. 1á kg kaffi Þetta er smá sýnishorn af hinum hagstæðu viðskiptakortaverðum Hagkaups. Opið til 1 0 í kvöld og 1 2 á morgun. SKEIFUNN115 SÍMI 86566 ||) Vaktmaður Vaktmann vantar nú þegar til húsvörzlu og aðstoðarstarfa í Borgarspítalann. Umsóknir, sem berast skulu fyrir 25. maí n.k., skulu sendar Sigurði Angantýssyni Borgar- spítalanum, sem jafnframt gefur frekari upplýs- ingar. Reykjavik, 15. maí 1974. Borgarspíta/inn Seitjarnarnes Nýtt einbýlishús ca. 240 fm með bílskúr til sölu. Húsið er selt i smíðum tilbúið undir tréverk og málningu eða fullbúið. Skilað fyrri hluta árs 1 975. Skemmti- leg teikning með hagkvæmu herbergjaskipu- lagi. Eignarlóð. Gullfallegt útsýni. Uppl. gefur Jón Einar Jakobsson hdi, Aða/stræti 9 Símar 17215 — 43253. Sérleyfisleiðir lausar til umsóknar. Leiðirnar Egilsstaðir — Höfn í Hornafirði og Siglufjörður — Sauðárkrókur — Varmahlíð eru lausartil umsóknar. Umsóknir með upplýsingum um bílakost um- sækjanda skulu sendar Umferðarmáladeild Pósts og síma, Umferðarmiðsstöðinni í Reykja- vík fyrir 20. maí 1 974. Reykjavík, 1 5. maí 1 974. Frá Tækniskóla íslands Skráning umsókna fyrir skólaárið 74/75 er hafin. Umsækjendur þurfa að hafa lokið við, eða vera langt komnir með viðeigandi iðnnám — eða hafa öðlast sambærilega starfsreynslu og almenna menntun. Eftir nám í undirbúningsdeild og/eða raun- greinadeild eru námsáfangar TÆKNIR I byggingum, rafmagni, vélum eða útgerða- auk þess í meinatækni. TÆKNIFRÆÐINGUR í byggingum, rafmagni, vélum, rekstri eða skipum. Þessi menntun býr menn undir að takast á við flest vandamál í atvinnulífinu. Nánari upplýsingar eru veittar í Tækniskóla íslands í Reykjavik, á Akureyri og á Isafirði. UMSÓKNARFRESTUR RENNUR ÚT 15. JÚNÍ N-K- Rektor. Félagsmálastofnun Kópavogskaupstaðar Félagsmálastofnunin óskar að ráða starfsfólk í eftirtalin störf í sumar: 1 . Aðstoðarmann við vallargæzlu 2. Leiðbeinendur á starfsleikvelli. 3. Sumarbúðir i Kópaseli: a. Sumarbúðastjóra. b. Stúlkur og pilta til barnagæslu. c. Eldhússtúlku. 4. Umsjónarmann með vinnuskólanum. 5. Flokksstjóra við vinnuskólann. Umsóknareyðublöð liggja frammi á Félags- málastofnunni, Álfhólsvegi 32, 2. hæð og eru þar einnig veittar nánari upplýsingar. Um- sóknarfrestur er til föstudagsins 24. mai. Fé/agsmá/astjóri. — Þjóðhátíð í Portúgal l'ramhald at hls. 1S stríöin hófust. Hugrekki hans var rómaó og hann lét sig varöa hag óbreyttra hermanna. Þó þykir hann stífur i framkomu og hann er alger bindindismað- ur á vfn og tóbak. og einglyrni hans er orðið frtegt. Fljótt á litið er undarlegt að foringi byltingar eins og hann stóð fyr- ir og höfundur bókar — eins og hann sendi frá sér skuli vera hermaður, sem barðist með Franco i borgarastríðinu á Spáni og fékk að nokkru leyti herþjálfun í Þýzkalandi Hitlers. en þegar hann var landstjóri i Guineu fór hann í hvívetna eftir því. sem hann héltfram f bók snni. Hermenn hans notuðu skóflur i staðinn fyrir byssur. lögðu vegi og reistu skólahús og þegar hann hætti störfum 1972 var helm- ingur hers hans skipaður blökkumönnum. Fram til þessa hefur samstarf Spinola og stjórnar harts við sósialista undirforystu Soares, kommúnista undir forystu Cunhals og aðra vinstri menn gengið vel. Soares hefur ferðazt á vegum nýju stjórnarinnar til margra Vestur-Evrópulanda til þess að afla henni stuðnings og hann kemur til greina sem for- sætisráðherra i þjóðlegri sam- steypustj órn. Konim tini star hafa beitt áhrifum sinum til þess að afstýra verkfalli í stál- iðnaðinum. og þar með hafa þeirorðið eitt áhrifamesta aflið á vínstra vængi stjórnmálanna. Cunhal hefur mælzt til þess að fá sæti i stjórn Spinola og kommúnistar hafa heitið þvi að hlita öllum lýðræðisreglum. En þ<itt samstarfið hafi verið snurðulitið er uppi ágreining- ur. sem getur verið. ekki sízt f afstöðunni til nýlendnanna. Cunhal. Soares. aðrir vinstri menn og frjálslyndir hafa hvatt til þess. að þegar í stað verði bundinn endi á bardagana i ný- lendunum. Spinoía hefur hins vegar haldið fast við það. að fyrst verði nýlendurnar að fá sjálfsákvörðunarrét't og síðan. skuli stofna sambandsríki. A þessu getur myndun þjóð- stjórnar strandáð. Ef skærulið- ar i Mozambique fallast hins vegar á þátttöku i heimastjórn, bendir hins vegar margt til þess. að Spinola muní kalla portúgölsku hermennina heim. þótt hann hafi heitið hvitu landnemunum því að halda bar- dögunum áfram meðan engin lausn fæst. Spinola hefur lika herlið tii taks ef honum skýldi þykja kommúnistar og aðrir vinstri menn ganga of langt. Sósialist- ar og kommúnistar stefna að því að standa saman í samfylk- íngu ásamt kristilegúm demókrötum. en óvist er. hvort slfk samvinna heppnast. Ungir liðsforingjar, sem stóðu að bylt- ingunni, hafa skipað nefnd. sem fylgist jafnt með störfum Spinolastjórnarinnar og athöfn- um vinstri manna. En allir eru sammála um, að vilji þjóðarinn- ar eigi að koma fram í frjálsum kosningum og ráða framtfðar- þröuninni — og enn ríkir þjóð- areining, að minnsta kosti á yf- irborðinu. Jafnframt beina Portúgalar sjónum sínum til Vestur- Evrópu og ljóst er. að samskipti þeirra við vestræn ríki munu störaukast. Portúgalar geta tek- ið aukinn þátt i vörnum Atl an tsh af sb andalagsi ns ef þeirlosa sig við nýlendustríðin og það geti stuðlað að aðild þeiixa að Efnahagsbandalag- inu, sem þeir binda miklar von- ir við. Engin vandkvæði virðast vera á endurnýjun samn- ings Bandaríkjamanna við Portúgala unt bandarisku flug- stöðina á Azoreyjum og Portú- galar telja aðild að Efnahags- bandalaginu höfuðnauðsyn vegna þeirrar miklu fátæktar. sem ríkir í Portúgal. Senn líður að lokum nær fimm alda ný- lenduyfin’áða Portúgaia i öðr- um heimsálfum og þeir hverfa nú aftur til Evrópu, þar sem þeireru smáríki.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.