Morgunblaðið - 19.05.1974, Síða 3

Morgunblaðið - 19.05.1974, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ. SUNNUDAGUR 19. MAl 1974 3 Yjjfc J 1 ' ve H 1 1 * fe 1 J EFTIR EINAR SIGURÐSSON Tíöarfarið Tióin var góð til sjávarins sið- ustu viku og sjóveður alla daga. þó að nokkuð hvessti á suð-austan i vikulokin. Aflabrögð Það er ótrúlega góður afli hjá netabátum og kominn þessi tími. Þannig. hafa bátar i Þoriákshöfn verið að fá um og yfir 25 lestir og raunar i Grindavík lika fyrr í vik- unni. Þetta er tveggja nátta. Aflinn er þó misjafn eftir ver- stöðvum og eins og hann sé rýrari. er vestar dregur. svo sem í Sand- gerði og Akranesi. þar sem hann er yfirleitt 10 lestir i róðri og minni. 2ja nátta. Sæmilegur aíli hefur verið i trollið. til að mynda í Sandgerði um 25 lestir eftir 4ra daga útívist. Handfærabátar. sem leggja upp í Sandgerði. hafa verið aó fá O.— 1 lest á færi yfir daginn. Margir bátar eru nú búnir að taka upp netin. þ.að er eins og vant er. Þegar komin eru lok. halda tnönnum engin bönd. enda þótt sæmilegur afli sé. Grindavík er sennilega afla- hæsta verstöðin með 23.000 lestir. þótt ekkí tnuní tniklu á henni og Vestmannaeyjum. \'ar aflinn í Grindavik 50"Ó tneiri i fvrra. Xú þegar vetrarvertiðinni er lokið. verður þeim. er þetta ritár hugsað til vigtarmannanna með þakklæti fyrir. hve vel þeir greiddu úr spurningum hans utn aflabrögðin. hvernig sem á stóö. því að oftast er nóg að gera. Vill hann nú i lókin taka undir visupart. sem hann heyrði ein- hverju sinni. en man ekki lengur upphafið að og Þorsteini Péturs- syni vigtarmanni á Siglufirði var sendur á afmælisdegi hans. En Þorsteinn var bróðir Asgeirs Péfurssonar. þess mikla útgerðar- tnanns á Akureyri. setn sennilega hefur samtimis átt flest fiskiskip á landinu eða 15. En seinnihluti visunnar er þannig: Heilagan Pétur í himnarann hljóttð þið fyrir vigtarmann. þá sjálfsagt verður synd vor létt. því svo sem fyrruin þú vigtar rétt. Togararnir Dágóður afli hefur verið hjá togurunum við Austur-Grænland. en inest hefur það verið karfi og hann yfirieitt smár. Það hefur komið fyrir. áð >kip hafa verið með helming áf hvoru. vinnslu- fisk og verksmiðjufisk. 100 lestir af hvoru. Það er ekkert við þvi að segja. þótt smár karfi slæðist með. en þegar farið er að liggja á smá- karfa á bleiðunum til þess að fá tonnatöluna. er of langt gengið. Xú er á leióinni reglugerð. sem bannar. aó meira en 5% sé af smákarfa í aflanum. og hefði hún þurft að vera komin fyrr. Það er synd að drepa karfann undir þeirri sta'ró. sem hann má vera til þess að vera verzlunarvara. Og það er raunar svo um. hvaða fisk. sem er. I þessari sömu reglugerð verða inöskvar stækkaðir. og er það lika spor í rétta átt til þess að drepa ekki ungviðið. á meðan það er litils eða einskis virði. Þrir togarar lönduðu i Reykja- vík i vikunni: Karlsefni 326 lestir Ögri 395 lestir Bjarni Benediktsson 220 lestir „Sá er eldurinn heitastur, er á sjálfum brennur.“ Menn eru nú heldur andvara- lausir um framtiðina nema þeir. sein stunda útflutningsfram- leiðslu. Allir hafa ineira en nóg að gera, peningarnir flæða. hvort heldur i borg eða bæ. og ferða- mannastaðir í útiöndum fara ekki varhluta af rúinum fjárhag ís- iendinga. En eins og sagt var-um Xeró. að hann lék á hörpu. á meðan Róm brann. eins er þvi farið með vara- gjaldeyrisforða þjóðarinnar, að hann brennur nú hraðar á báli verðbölgunnar en nokkru sinni fyrr. Það var sagt frá þvi i vikunni. að sjóðurinn hafi fyrstu tvo mán- uði ársins rýrnað um rúmar 2000 milljönir króna. Skyldi það hafa verið mjnna siðan, það er ótrú- legt. þótt hann kunni eitthvað að hafa verið réttur við meö erlend- um lántökum. þá er það engin lausn nema i bili. Mörgum þykir líka nóg um. að islenzka þjóðin skuli nú skulda rúmar 20.000 milljónir króna. Þetta eru allt orðnar svo háar tölur. að fólk áttar sig ekki á þeim. nema geta haft samanburð. En þetta er fjárhæð. sem ekki er fjarri ársútflutningi þjóðarinnar af sjávarafurðum. eða 100.000 krónur á hvert mannsbarn jafnt reifabarnið í vöggunni sem gamalmennið í körinni. eða G milljón krónur á hverja 5 manna íjölskyldu. Með 10'ý, vöxtum — nú er talað um 18lHj vexti og farið að praktisera þá meira að segja. ef um vanskil er að ræða — eru þetta 50.000 króna meðaltals út- gjöld á hvert heimili árlega. Það ntá segja, að næstum alls- staðar hafi verið kynt undir með hækkunum. hvort heldur í kaupi. aflahlut eða fiskverði. hvergi var nokkurt viðnám. og voru það opinbera og einstaklingar þar i sama báti. Þeini átti þó öllum að vera það ljóst. að þeir fengju ekki undir þessu risið. Alls staðar standa nrenn nú andspænis halla- rekstri. hvort heldur á rikissjóði. sveitarfélögum eða í atvinnulíf- inu. Það er næstum eins og manni gæti dottið í hug. að þetta væri allt skipulagt til að ná vissu rnarki. Gjaldeyririnn er seldur langt undir þvi verði. sem kostar að afla hans. og þegar svo almenningur hefúr handa á milli meira fé en nokkru sinni. er ekki við öðru aó búast en gjaldeyrisvarasjóður þjóðarinnar gangi til þurrðar og þar með lánstraust þjóðarinnar. Auðvitað verður ..eitthvað gert" eins og menn segja. en það er bara. að það verði ekki það seint. að hálfgert neyðarástand verði skollið á. sem erfitt gæti orðið aö losna úr. nema með hannkvælum. Gæti þá miirgum orðiö að orði: Beizkur ertu drott- inn minn. Engan langar í sultarár kreppunnar með atvinnuleysi og höftum. Það er ekki ófróðlegt að gera sér nokkra grein fyrir þeim verð- lækkunum. sem þegar eru orðnar. og hvað þær kosta þjóðina út árið, þótt þær yrðu ekki meiri. og miða við. að kaupgjald breyttist ekki frá því. sem það er i dag. Fiski- og loðnumjöl lækkar um 1300 milljónir króna — fiskblokk um 500 millj. króna — bátaflotinn er búinn að tapa I vetur 700 millj. króna eftir upplýsingum for- manns LÍC — togaraflotinn tapar ekki minnu en 600 millj. króna — h'alli frystihúsanna er 1000 millj. króna. blokkalækkunin er þá ekki tekin i dæmið. þar sem hún er talin áður. — Einhver hækkun hefur orðið á saltfiski. og er nú hangið í því hálmstrái. Um skreið er ekki að ræða. hún var ekki verkuð neitt. sem heitið getur. Þetta eru samtals hjá sjávarút- veginum 4.100 milijónir króna. Öðrum er látið eftir að brjóta til mergjar halla fjárlaga. sveitar- sjóða og annars atvinnurekstrar. En það er lagleg fúlga komin i eitt. Eða meðferðin á gjaldeyris- varasjóðnum. sem þarf að standa undir um helmingnuin af þörfum þjóðarinnar. Það er hægt að selja gjaldeyr- inn fyrir slikk. á meðan verið er að eyða gjaldeyrisvarasjóði þjóð- armnar og lánstrausli Islendinga. en ekki lengur. Allt er þetta umhugsunarefni fyrir þjóðina, svo að ekki sé meira sagt. Réttur strandríkja Þaö er ef til vill ekki ástæða til bjartsýni i landheigismálinu. þeg- ar litið er á siigu þess allt frá ráðstefnunni í Genf 1958 og 1960, þó að brezkir togaraútgerðar- menn hafi bætzt i hóp þeirra, sem krefjast víðáttumeiri landhelgi, af þvi, að þeir halda, að þeir geti verzlað með hana við Lslendinga, Norðmenn og Færeyinga. Heldur ekki þótt sjómenn í Massaehus- ettsfylki í Bandaríkjunum krefj- ist nú 200 milna. það er ekki speg- ilmynd af vilja Bandaríkjanna. En það et'annað, sem hefur opnað augu manna fyrir víðáttumeiri landhelgi, og það eru minnkandi fiskstofnar. Það kann að verða þyngst á metunum, að verið er á góðri leið með að eyða mörgum fisktegundum, ef ekkert verður að gert. Og þessa verðum við Is- iendingar ekki sizt varir, það sýn- ir samdráttur i afla vertíð eftir vertið. Það er næsta ótrúlegt, að það takist að ijúka þessum málum á ráðstefnunni i Caracas i Venezu- ela 20. júni og fá þar alþjóðavið- urkenningu á 200 mílna land- helgi. Þegar er ráðgerð fram- haldsráðstefna í Vin 1975. íslendingar geta beðið með sín- ar 200 mílur til 20. júní, en þeir geta ekki beðið mikiu lengur en þetta ár til enda með að helga sér 200 milurnar, hvað svo sem það kann að kosta eins og fyrri dag- inn. Daníel sigraði í blöndunarkeppni barþjóna BARÞJÓXAKLÚBBUR Islands hefur nú um ellefu ára skeið efnt til árlegrar keppni i blöndun drykkja, og var ellefta keppnin haldin að Hótel Esju á miðviku- dag. Annað hvort ár er keppt í blöndun kokkteila, en hitt árið í blöndun sjússa, eða ..long drinks", og svo var að þessu sinni. Sigurvegari varð Daníel Stefáns- son barþjónn á Hótel Sögu, og er það i sjöunda skiptið, sem hann fer með sigur af hólmi í þessari kepjíni. Daníel hefur einnig tekið þátt i alþjóða blöndunarkeppni við góðan orðstír, og sem dæmi um það má nefna, að í alþjóða- keppni i Los Angeles fékk hann sérstök heiðursskjöi bæði fyrir kokkteil sinn og ,,long drink“. Keppendur í ár voru alls tólf. Önnur verðlaun hlaut Bjarni Guð- jónsson á Hótel Loftleiðum og þriðju verðlaun Garðar Sigurðs- son á Hótel Borg. Fyrir sigurinn i keppninni á miðvikudag öðlast Daniel rétt til þátttöku i alþjóðakeppni bar- þjóna á næsta ári, en hún verður sennilega haldin á írlandi, þótt það sé ekki endanlega ákveðið enn sem komið er.v Sigurdrykkinn riefnir Daniel „Frosty Amour“, og uppskriftin af honun er svohljóðandi: 2 cl. Smirnoff vodka 2 cl. Southern Comfort 1 cl. Bols Apricot Brandy 1 cl. Cointreau. Skvettur af bananalíkjör, sftrónusafa og Amorlíkjör. Fyllt er upp með 7-up og skreytt með kirsuberi og sítrónusneið. Drukk- inn með röri. SIGURVEGARARNIR þrlr í hlöndunarkeppni barþjóna með sigur- launin. Talið frá vinstri: Garðar Sigurðsson, Bjarni Guðjðnsson og Danlel Stefánsson. Mesta feröaúrvaliö — Beztu sumarleyfisstaðirnir og ferðirnar seljast upp! Maí 12 Costa del Sol uppselt 22. italía — Gullna ströndin uppselt 31. ítalra — Gullna ströndin uppselt Júnl 1. Costa del Sol uppselt 1 5. 1 Q Ítalía — Gullna ströndin 6 sæti i y. 29. ^osta aei ooi Costa Brava uppsöit 4 sæti Júlí 2. Italía — Gullna ströndin laus sæti 3. Costa del Sol 1 0 sæti 15. Costa del Sol laus sæti 16. t n Italia — Gullna ströndin laus sæti 24. uosta aei oöi Costa del Sol I h- S3Btl laus sæti 29. Costa del Sol laus sæti 31. Costa del Sol uppselt FERÐA SKRIFS TOFA N r r IITSYM AUSTURSTRÆTI 1 7 (SILLA OG VALDA) SÍMAR 26611 — 20100 UTSYNARFERÐ ER SPARNAÐUR! Hvað kostar góð sumarleyfisferð ti/ Dæmi: Ferð á eigin vegum SÓIarlanda? Almennt flugfargjald til Malaga — Costa del Sol kr. 47.440 - 1. fl. gisting i nýrri ibúð með baði ogöllum búnaði samkv. verðskrá i 14 daga kr._9.860 - Samtals kr. 57.300.- 4- Samskonar Útsýnarferð kr. 27.300,- Sparnaður farbeqans kr. 30.000.- ÚTSÝNARFERÐIN ER FARIN MEÐ SÖMU FLUGVÉLAGERÐ — BOEING 727 — 1. FLOKKS VEITINGUM Á LEIÐINNI, SÖMU GISTINGU OG AÐ OFAN GETUR, OG ALLRI ÞJÓNUSTU FARARS.TJÓRA OG STARFSFÓLKS ÚTSÝNAR. MISMUNURINN KR. 30.000,- ER HAGN- AÐUR FARÞEGANS. SAMBÆRILEGUR SPARNAÐUR í ÍTALÍU- FERÐUM! HVAR GETIÐ ÞÉR GERT BETRI FERÐA- KAUP?

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.