Morgunblaðið - 19.05.1974, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 19. MAI1974
7
Kvikmyndir
Eftír Bförrt Vtgní Sígurpálsson
SYRPA
ÆFINGIN
Hinn 16. nóvember árið 1973
réðust lögregla og her gegn and-
stæðingum grisku stjórnarinnar,
sem höf ðu komið sér fyrir i tækni-
háskólanum í Aþenu. Þar kom til
blóðugra átaka og samkvæmt til-
kynningum stjórnarinnar biðu 13
manns bana. Þessi atburður hefur
nú orðið til þess, að margir kunnir
listamenn kvikmyndanna hafa
tekið höndum saman og hafa nú
gert kvikmynd um þennan harm-
leik. Meðal þessara listamanna
eru Lord Olivier, Maximillian
Schell, Lillian Hellmann og Arthur
Miller, svo að einhverjir séu
nefndir og vinnur allt þetta fólk án
þess að þiggja laun fyrir.
Leikstjóri og framleiðandi
myndarinnar er Jules Dassin, og
segir hann kvikmyndina vera
„verk ástar og reiði". Dassin er
sem kunnugt er eiginmaður grísku
leikkonunnar Melinu Mercouri,
sem hefur hin siðari ár helgað sig
að miklu leyti baráttu gegn grísku
herforingjastjórninni, og hún er
engu mildari í orðum. „Ég er ekki
reið, ég hata þá," segir hún.
Hún segist vonast til þess, að
það verði aðallega Bandarikja-
menn, sem sjái þessa mynd,
y,vegna þess, að Bandaríkin bera
ábyrgð á því, sem gerzt hefur í
Grikklandi. Það voru bandariskir
skriðdrekar, sem drápu þessa
unglinga. Þess vegna er mér mikið
í mun, að bandariska þjóðin sjái
hvað Pentagon aðhefst i löndum
eins og Grikklandi."
Dassin leggur sjálfur stærstan
skerfinn til fjármögnunar á mynd-
inni en að auki hef ur honum borizt
verulegt framlag frá ónefndum
grískum flóttamanni, sem nú býr í
Frakklandi. Myndin verður um 90
minútur að lengd og tekin i svart-
hvitu. Dassin nefnir myndina
„The Rehearsal” eða Æfinguna.
Inn á milli hinna endurleiknu
þátta myndarinnar verður skeytt
fréttamyndum, sem hollenzkur
sjónvarpsmaður tók nóttina er
ráðizt var á skólann. Hinn leikni
hluti er aftur á móti byggður á
frásögn sjónarvotta. sem smyglað
var úr landi eftir að atburðirnir
gerðust.
„Fólk úr neðanjarðarhreyfing-
unni fór um allt og ræddi við
andófsfólkið og lækna. sem gerðu
að sárum stúdentanna," segir
Dassin. „Stjórnvöld segja, að 13
manns hafi beðið bana, en neðan-
jarðarhreyfingin gizkar á. að allt
frá 185—400 manns hafi látizt f
átökunum:" Til að ná fram drama-
tiskum áhrifum i myndinni var
leitað til fólks af grisku bergi, sem
býr i Bandaríkjunum, og það feng-
ið til að syngja söngva þá, sem
stúdentarnir sungu meðan þeir
höfðu skólann á valdi sínu. Gríska
tónskáldið Þeodorakis kom alla
leið frá Frakklandi til að hafa um-
sjón með tónlistinni í myndinni.
Atriðið með Lord Olivier var tek-
ið upp i London undir stjórn
Costa-Gavras, en þar les hann Ijóð
um einræðisstjórnina eftir griska
nóbelsverðlaunahafann George
Seferis. Maximillian Schell sendi
einnig sitt atriði f rá Þýzkalandi, en
þar les hann upp bréf frá griskum
stúdent. Arthur Miller og Lillian
Hellman lesa einnig upp yfirlýs-
ingar I myndinni, en einnig koma
þar við sögu nokkrir bandarískir
öldungadeildarþingmenn, sem eru
andvígir stefnu stjórnarinnar í af-
stöðunni til Grikklands.
Dassin stefnir að því að geta
frumsýnt myndina á þriðjudag nk.
á kvikmyndahátiðinni i Cannes.
Hins vegar segist hann láta sig
dreyma um. að sjónvarpsstöðvar
muni kaupa myndina og taka til
sýninga, þvi að þannig nái hún til
flestra. Hins vegar er allt óljóst
hvort af þvi getur orðið, „því að
myndin hefur ekkert skemmtana-
gildi," segir Dassin, „og við get-
um heldur ekki sagt. að hún sé
beinlinis heimildamynd."
CANNES1974
Eins og kemurfram hérá undan
er hin árlega kvikmyndahátið í
Cannes hafin og var formlega sett
sl. fimmtudag. „Amarcord",
fimmtánda kvikmynd Federico
Fellini varð fyrir valinu til að opna
hátíðina en hins vegar keppir hún
þar ekki að verðlaunum.
Alls munu 24 myndir frá 17
þjóðlöndum taka þátt í keppninni
og verða þær allar vandlega skoð-
aðar af alþjóðlegri dómnefnd, með
franska leikstjóranum Rene Clair i
forsæti.
Flestar myndirnar koma frá
Bandaríkjunum eða sex talsins og
meðal þeirra eru „Thieves Like
Us" eftir Robert Altman, „Sugar-
land Express" eftir Spielberg,
„Conversation Piece" eftir Franc-
is Ford Coppola. Af hálfu Frakk-
lands er m.a. tilnefnd nýjasta
mynd Alain Resnais — um svikar-
ann Stavisky, sem greint hefur
verið frá hér i þættinum. Um 400
myndir verða sýndar utan sam-
keppninnar en kvikmyndahátiðin i
Cannes stendur i tvær vikur.
HAMFARIR OG HÖRMUNGAR
Kvikmyndagerð í Hollywood
hefur jafnan verið tizku undirorpin
og i sumar verða engin frávik frá
þeirri reglu. Kvikmyndaframleið-
endur i Hollywood hafa nú upp-
götvað, að hægt er að sanka að
sér milljónum dollara með kvik-
myndum, þar sem homo sapiens
er teflt gegn atómum, skorkvik-
indum, jarðskjálftum. eldsvoðum
og fleiru áþekku. Hamfarir og
hörmungar eru þannig nýjasta ból-
an i kvikmyndagerðinni vestan
hafs.
„Við verðum að láta fólkið fá
eitthvað, sem það getur ekkt séð I
sjónvarpinu," er haft eftir Jenn-
ings Lang, höfuðpaur hörmunga-
myndanna hjá Universal.
Hann fékk Mario Puzo, höfund
Godfather, til að skrifa handrit að
myndinni Jarðskjálfti, sem lýsir
þvi hvernig mikill hluti Los Ange-
les fer i rúst af völdum jarð-
skjálfta. Á vegum Universal er
einnig verið að gera myndina
„Hindenburg", um eyðileggingu
loftfarsins fræga, og stjórnar Ro-
bert Gamli Wise þeirri mynd.
Charlton Heston fer ekki aðeins
með aðalhlutverkið i Jarðskjálft-
anum heldur einnig i „Airport
1975", sem segir frá fólki um
borð í laskaðri Jumbóþotu eftir
árekstur við aðra flugvél. Fjórða
myndin af þessu tagi hjá Universal
er „ Jaw", en hún er byggð á sögu
Peter Benchleys og greinir frá
hvitum hákarli, sem gerir umtals-
verðan usla i röðum baðstrandar-
gesta.'
Ókrýndur konungur hörmunga-
mangaranna er maður að nafni
Irwin Allen, en á hans vegum var
á sínum tíma gerð myndin „The
Poiseydon Adventure" — sem
varð upphafið að öllu þessu. Þessa
stundina er Allen að láta gera
fjórar myndir i þessum dúr —
„Beyond The Poiseydon Adven-
ture", að sjálfstöðgu og The Tow-
ering Inferno, sem lýsir eldsvoða i
hæstu byggingu veraldar. Fram-
undan eru hjá honum „The Day
the World Ended", „The Golden
Gate", og The Swarm" en hin
síðast nefnda er byggð á nýlegri
bók um skordýrainnrás.
Pöddur ýmiss konar eru annars
vinsælt viðfangsefni i þessari
grein. Parmount sendir fljótlega
frá sér „Phase IV." um maura
sem hyggjast taka völdin hér á
jörðu — það fer sem eldur um
sinu blessað valdaránið! Og hroll-
vekjumeistarinn William Castle er
að undirbúa mynd um innrás risa-
kakkalakka. Castle ábyrgist, að
viðbrögð áhorfenda verði við hæfi,
þvi að hann hefur látið útbúa
þreifara, sem komið verður fyrir i
sætisröðum kvikmyndahúsanna
vestra svo að engu er likara en
kakkalakkarnir skríði á áhorfend-
um.
Fisksalar athugið: til sölu þurrkuð ýsa. FISKVERZLUN GUÐBERGS 1NGÓLFSSONAR, Garði, sími 92-71 20. Vinnuskúr til sölu. Upplýsingar í síma 17888.
20—50 rúmlesta bátur óskast á leigu. Togbúnaður þyrfti helzt að fylgja. Tilboð sendist til afgr. Mbl. merkt: „Leigubátur — 1423". Markslög nr. 52. 54, 55, 58, 61 og 64 Rosette heklu og prjónagarn i sérflokki. HANNYRÐABÚÐIN, Linnetsstig 6. Hafnarf., simi 51314
Hús óskast keypt Óska eftir tvi eða þribýlishúsi á Stór-Reykjavíkursyæðinu. Má þarfnast standsetningar. Upplýsingar i sima 43084. Óska eftir að kaupa nýlegan vel með farinn 4ra—5 manna bil. Staðgreiðsla. Upplýsingar á mánudag i síma 92-801 1 og 92-8306.
Til leigu 3ja herbergja i ibúð í vesturbæ. Upplýsingar um fjölskyldustærð og leigutilboð sendist blaðinu merkt: .Reglusemi — 141 2". Viljum ráða 2 pilta við grasþurrkunarverk- smiðju okkar og önnur land- búnaðarstörf, vana akstri dráttar- véla og helzt bifreiða. JÓN OG PÁLL ÓLAFSSYNIR, Brautarholti, simi 661 00.
Eldri maður óskar eftir ibúð i miðbænum. Ekki fyrirframgreiðsla. Reglulegar mánaðargr. Meðmæli frá fyrri ' leigusala ef óskað er. Simi 86127 —19069 næstu daga. Til sölu nýlegt, vel með farið sófasett. Settið er 3ja sæta sófi, 2ja sæta sófi, húsbóndastóll og sófaborð. Upplýsingar i síma 83924.
Ný sending af ofnum bakkaböndum i tizku- litum frá Vestur-Þýzkalandi. Einnig antik leggingar á lampaskerma og dúka. HANNYRÐAVERZL. ERLA, Snorrabraut. 15 ÁRA STRÁKUR óskast í sveit. Upplýsingar á mánudagskvöld i síma 1 1 662.
Ódýrar útsaums- pakkningar fyrir börn og fullorðna i sumar- leyfið. Puntuhandklæði i mörgum litum og hillur. HANNYRÐAVERZL. ERLA, Snorrabraut. GERUM VIÐ kaldavatnskrana og WC-kassa. Vatnsveita Reykjavikur, simi 27522.
Ný gerð af veggmyndum frá Nordiska i Gautaborg. Fljót unnar. Uppsetning fylgir með. Kynnið ykkur nýjungarnar. HANNYRÐAVERZL. ERLA, Snorrabraut. EIN MILLJÓN ÓSKAST Góðir vextir og trygging i boði. Algjört trúnaðarmál. Tilb. sendist afgr. Mbl. merkt: „Öruggur hagn- aður — 1 045"
Mikið úrval bilútvarpstækja og bilsegulbanda. Hátalarar og loftnet þ.á.m. loftnet sérstaklega fyrir Volkswagen. Póstsendum. F. BJÖRNSSON, radioverzlun, Bergþórugötu 2, sími 23889. MERCURY COMET '72 Fallegur bill til sölu. Samkomulág með greiðslu. Sími 16289.
Námskeið i flosi og flauelispúðagerð. Upplýsingar i Hannyrðabúðinni, Linnetstig 6. Sími 51314. KEFLAVÍK — SUÐURNES Rýmingarsala á hannyrðavörum næstu viku. HANNYRÐAVERZLUNIN ODDNÝ.
Konur Takið með ykkur krosssaums-r mottur i orlofið. 10 mismunandi 1 gerðir. HANNYRÐABÚÐIN, Linnetstig 6. S. 51314. LISTER BÁTAVÉL 36 hestafla til sölu. Upplýsingar i sima 92-6580.
TILSÖLU Mercury Cougar xr7 árg. '73. Ek- inn um 1 5.000 milur. Upplýsingar í sima 96-621 1 2. VANDAÐ ÍSLENZK HJÓL HÝSI til sölu. Svefnpláss fyrir 3—4. Góðir skápar. Gaseldavél. Rafljós. Upplýsingar í síma 92-1 786.
TILSÖLU 2 óslitin teppi og Rafha eldavél á Þórsgötu 7, Reykjavik. Verð við kl. 8 e.h. alla daga eftir laugardag. KJARVALSMÁLVERK til sölu 100x150 cm, málað 1937, Þingvallahraun. Verð ein milljón krónur. Væntanlegir kaup- endur skrifi Morgunbl. merkt: „Kjarval — 1410".
TVÖ HJÓLHÝSI TIL SÖLU Sérstaklega góð hús og hagstætt verð. Upplýsingar i sima 41 737 i dag og næstu daga eftir kl. 20.30. FORD MERCURY '67 Til sölu, mjög fallegur og vel með farinn. sjálfskiptur, ekinn 55 þús. km. Uppl. i sima 1 1 51 4 kl. 20 — 22.
ÍBÚÐTILSÖLU 4ra herb. rishæð í góðu timbur- húsi til sölu i Skerjafirði. Stórt eldhús og svalir. Hitaveita. Eignar- lóð. Hagstætt verð og skilmálar. Upplýsingar i síma 21 863. BIFREIÐ TILSÖLU Chevrolet Impala árg. 1965. 8 cyl-: sjálfskipt m/powerstýri og bremsum. Upplýsingar i sima 1 3585 milli kl. 3 — 6 i dag.
Sjá einnig dagbókar; auglýsingar ábls. 39.