Morgunblaðið - 19.05.1974, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 19.05.1974, Qupperneq 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 19. MAl 1974 if Leitast ber við að halda jafnvægi i byggð landsins, stendur einhvers staðar skrifað. Eða sagði einhver mætur maður þetta? Var það kerlingin? Eða var það skáldið? Jæja, jæja Slagsíðan man það ekki. Hvað sem því lfður þá vill Slagsíðan viðurkenna fúslega, að hún hefur ekki haldið þessu jafnvægi nógu vel í skrifum sínum um stefnur og strauma i popphljómlistarmálum landsins. Hún hefur einblínt of mikið á það, sem er að gerast í þessum efnum á höfuðborgarsvæðinu og í næsta nágrenni. Samkvæmt dagblöðunum mætti oft halda, að popptónlist, — eða alla vega góð popptónlist, — væri eingöngu leikin í Reykjavík og Keflavík. Þetta er alvarlegur misskilningur. tJt um allt land, í hverju sjávarplássi, samgöngumið- stöð eða skóla eru til popphljómsveitir. Sumar eru að vísu rétt skrallhæf brennivínsbönd, sem óþarfi er að fari víðar en í samkomuhús staðarins. En einnig eru til hljómsveitir, sem eru að rembast við að gera góða og vandaða hluti, án þess að nokkur viti um þær utan byggðarlagsins og án þess að þessi viðleitni komist nokkurn tíma á legg. Slfkar hljómsveitir kafna áreiðanlega oft í tómri einangrun. ir Hér er á ferðinni mál, sem Slagsíðan hefur áhuga á að gera einhver nánari skil áður en langt um líður. Nú ríður á, að Slagsfðufólk um land allt bregði undir sig betra fætinum ójiphjálpi Slagsfðunni að rétta af sér þessa slagsfðu f popp jafnvægismálunum. Skrifi nú hver sem betur getur, — ábendingar, pistlar, greinar, viðtöl myndir o.s.frv. um það góða, sem er að gerast í þessum málum úti á landi. Nú fyrir skemmstu, eða um miðjan aprfl-mánuð gerðu Selfyssingar sér daga- mun og héldu sína Árvöku. Einn af dagskrárliðum þessarar vöku var popphátfð, sem haldin var f Selfossbíói. í sambandi við það, sem að ofan segir, bað Slagsíðan Ómar Þ. Halldórsson rithöfund með meiru á Selfossi, um að gefa lesendum síðunnar einhverja hugmynd um stöðuna í þessum efnum fyrir austan fjall með þvf að senda okkur frásögn af popphátfðinni. sveitarinnar á hátíðinni sjálfri, kann að þykja þetta oflof, en það er óhætt að fullyrða, að leikur hennar þar var ekki svipur hjá sjón miðað við raunverulega getu. Það er staðreynd, að loks þegar hljómlistarmenn eru búnir að vinna sig upp með áralöngu striti við að spila eftirapanir af erlendu sykurjukki, eru þeir oftast orðnir því svo samdauna, að um listsköp- un verður aldrei að ræða. Hljóm- sveitin Mánar flokkast að nokkru leyti undir þessa lýsingu. I áratug hafa þeir staðið frammi fyrir danshúsagestum og spilað sig eftirhermur, enda mátti glöggt greina það á leik þeirra á hljóm- leikunum. Ef ekki hefði komið til • Það kom greinilega í ljós á þessari popphátíð Selfyssinga, hversu erfitt það er úti á iandi að draga að hlustendur komna af barnsaldri. Salurinn var troðfull- ur, en þegar betur var að gáð mátti^ sjá, að börn á poppkorns- aldri voru þar í miklum meíri- hluta. Aðeins fáeinar hræður komnar á þann aldur að kunna skil á popphljómlist, hímdu aftast í salnum. Það hefði orðið flytjendunum til mikillar upp- lyftingar að hafa þessar fáu hræð- ur örlítið nær sviðinu i þeirri von, að mesti barnaskemmtunarblær- inn hyrfi af hátíðinni. Fum og fljótfærni einkenndu þessa hljómleika og hefði ekki sakað, að~ einhver röggsamur, en rólegur stjórnandi hefði fyrirfundizt á samkomunni. Staða austanfjallspoppara kom einnig vel i ljós á þessari hátið. Þrjár hljómsveitir tróðu þar upp; Mánar, sem auðsýnilega áttu hug og hjörtu barnanna, skólahljóm- sveitin Raflost, sem kórónaði byrjendabrag sinn með ofboðsleg- um hávaða, og hljómsveitih Orkidea, sem var eina hljóm- sveitin með frumsamið efni ein- göngu. Það, sem bezt virtist falla í eyru áheyrenda, voru öldurhúsa- slagarar Mána, útþvældir í ótal dægurlagaþáttum útvarpsins. Hins vegar mátti varla á milli sjá hvor hinna hljómsveitanna átti betur upp á pallborðið hjá áheyrendum. Með þessum orðum verða ekki færðar neinar sönnur á lélegan hljómlistarsmekk unglinga austanfjalls sökum barndóms áheyrenda, en ólíklegt verður að teljast, að viðtökur þeirra hefðu orðið á annan veg, þótt meðal- aldur samkomugesta hefði færzt örlitið yfir fermingaraldur. Fyrsta atriði hljómleikanna var söngur og gitarleikur Svein- bjarnar Oddssonar og Steindórs Leifssonar. Góður efniviður, sem ýmissa orsaka vegna kom þó einna lakast út af öllum atriðun- um. Samæfing þeirra var lítil sem engin og kaflaskiptingar svo handahófskenndar að engu mátti muna, að hvert Iagið af öðru stöðvaðíst í miðjum klíðum vegna mistaka. Ekki bætti úr skák, að drukkinn listamaður frá Stokks- eyri settist gegnt þeim á sviðinu og truflaði þá langa stund án þess Sveinbjörn og Steindór: Lftil samæfing og truflanir drukkins lista- manns frá Stokkseyri... Orkidea: Of eftirtektarverðir til að týnast... (Ljósm.: Ómar) Rúnar Lúðvfksson: Bezt heppnaða atriðið... að nokkur sæi ástæðu til að koma honum burtu. Tvennt mátti þó greina þrátt fyrir mistökin! Af- bragðsgóðan söng Sveinbjarnar og góð lög þeirra félaga. Næst á dagskrá var hljóm- sveitin Raflost, sem yfirkeyrðí svo magnarana, að vont var stund- um að heyra, hvaða lag var verið að spila. Innan um mátti þó sjá nokkra ljósa punkta. Þjóðlagasöngvarinn RúnarLúð- víksson kom næstur og ein- kenndist framkoma hans af öryggi, sem nægði til að gera framlag hans 'ið bezt heppnaða atriði kvöldsins. Söngur hans var með ágætum og frumsamin lög hans skemmtilega langt frá öllu því rokki, sem fram kom á hljóm- leikunum. Þegar hér var komið var orðið augljóst, að atriðin gengu of hratt fyrir sig og mundi trauðla hægt að teygja samkomuna til klukkan ellefu. Þá var tekið til bragðs að smella ínn í prógrammið dansi hálfkynþroska stúlkna strax eftir leik hljómsveitarinnar Orkideu. Fyrirleikurdansinskom frá biluð- um plötuspilara, að því er virtist hálfgerðum forngrip, og setti þetta leiðinlegan svip á hátíðina. Sorlegustu mistök kvöldsins urðu þó hjá hljómsveitinni Orkideu. Þeir létu eftirrekuskap kynnisins hafa áhrif á sig og hófu leik án þess að stilla magnarana svo úr urðu uppsprengdar bassa- drunur þannig að gítarleikurinn hreinlega týndist. Frumsamin lög þeirra voru allt of eftirtektarverð til að týnast í slikum hávaða, sér- staklega þó lag gitarleikarans „Bakkus". Góður söngur Svein- bjarnar Oddssonar komst þó sæmilega til skila og eins hraust- legur sláttur trymbilsipS, sem var það eina sem stóð fyllilega fyrir sinu (þrátt fyrir mikil kjuða- brot). Undirritaður hlýddi á leik þeirra hálftíma áður en sam- koman hófst og sannfærðist um, að slík hljómsveit ætti ekkert að gera i öldurhúsa„bisnessinn“. Til þess er hún of góð og innan hennar skapandi listamenn, þó að fæð liðsmanna hindri að sjálf- sögðu fjölbreyttari túlkunarmáta. Þeim, sem hlýddu á leik hljóm- Raflost: Ofboðslegur hávaði kórónaði byrjendabraginn... sérlega skemmtileg útsetning þeirra á laginu „Hraustir menn“, hefði mátt ætla, að hljómsveitin væri enn í sama fari og árið 1968. Hitt hafa Mánar sannað með L.P. plötu sinni, að þeir eru færir um að gera góða hluti. Mistökin við þessa hátíð voru mörg, eins og áður var sagt, og stöfuðu flest af of stuttum undir- búningstima. Fæst þeirra voru stórvægileg og ættu aðeins að ýta undir þá hugmynd, sem kom fram meðal flytjenda undir lok hátíðar- innar, að halda fljótlega aðra slika því til sönnunar, að betur væri hægt að gera. Lýsing var afleit og gerði ekki annað en blinda skemmtikraftana. Kynningar Björns Gíslasonar voru ágætar framan af, en enduðu í hæpnuframtaki hans, að fá áheyrendur til að dansa. Nægur var barnaskemmtunar- blærinn fyrir. Eitt var þó, sem gerði þessa hljómleika öllu fullkomnari en endra nær. ískur vegna van- stilltra tóla heyrðist ekki allt kvöldið og telst slikt fátitt á þvi- líkum samkomum. • í heildina litið held ég, að allir, sem á hlýddu, megi vera þakklátir fyrir það framtak Sveinbjarnar Oddssonar að undirbúa og standa fyrir þessari hátið. Mánar: Eftiröpun erlends sykur- jukks... Bapndomur popp á ArvöKunni á Seifossi eða svellamennsKa?

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.